Tíminn - 08.01.1966, Qupperneq 11

Tíminn - 08.01.1966, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 8. janúar 1966 TÍMINN n 41 hina undrandi verjendur: „Hundar, þekkið þið ekki AudaV" Þetta næði bæði þorpsbúum og Tyrkjum. Eftir klukkustund var Nasir farinn að drekka te með setuliðsstjóranum, sem var nú gestur og fangi Nasirs. Um kvöldið kom yngsti sonur Hússeins, Zeids hafði verið drepinn af syni Auda svo hér kom upp vandamál. Þegar unglingarnir tóku að tala um hefnd, reiddist sá gamli, og sagði að þeir líktust smáfuglum, sem ætluðu að ráðast á Örn og sagðist myndu láta húðstrýkja þá á þorpstorginu ef þeir héldu áfram slíku tali. Zeid tók auðveldasta ráðið og lét Auda fara ásamt liði sínu, þetta átti eftir að hafa afdrifar- ríkar afleiðingar. Zeid átti að verja Tafileh með hundrað úlfaldariddurum, lífverði Lawrence og deild egypskra og marokkóskra vélbyssu skyttna. Það hafði ekki verið mögulegt að flytja fallbyss- urnar yfir Moab fjöll, vegna snjóa, svo að Nuri el Said varð eftir í Jurf ásamt Nasir. Þetta var alltof fámennt setulið, ef svo færi að Tyrkir reyndu að ná bænum aftur á sitt vald með einhverju liði, en það þýddi lítið að gera sér áhyggjur, hér varð að búa um sig og vona hið bezta þar til veður batnaði svo að hægt væri að senda liðsauka. Þetta fór þó ekki svo. 25 janúar, níu dögum eftir töku bæjarins komu Tyrkir aftur með miklu liði, níu hundruð fótgönguliða, hundrað manna riddaralið, tvær fallbyssur og tuttugu og sex vélbyssur. Þessi árás kom algjörlega að • óvörum, Arabar urðu skelfingu lostnir, þorpsbúar óttuðust hefndir Tyrkja fyrir að hafa ekki reynt að verjast Nasir og Auda og stukku brott til hæðanna fyrir ofan bæinn. Zeid og Jaafar álitu hentast að hörfa úr bænum og verjast við gljúfur sunnan við bæinn. Lawrence var algjörlega mótfall- inn þessu, hann áleit að varnarstaðurinn væri ekki vel val- inn og auk þess myndu þeir þorpsbúar, sem höfðu gengið í lið með Þeim, flýja ef þetta ráð yrði tekið, þeim veitti ekki af að halda í þá, sökum fámennis. Zeid var sá sem átti að ráða og hann áleit heppilegast að hörfa. En eftir nokkra umhugsun sá hann hve ákvörðun hans var röng, og hann afsalaði sér forustunni í hendur Lawrence, skömmu áður en Tyrkir hófu árás. Lawrence undirbjó nú varnirnar, hann skipaði herliðinu og þorpsbúunum dreift á hæðirnar fyrir framan bæinn og sendi lífverði sína undir for- ustu Abdulla, sem nefndur var Ræninginn, móti Tyrkjum, til þess að beina athygli þeirra frá undirbúningnum. Tyrkir hófu stórskotaliðsárás og síðan sóttu hermenn þeirra fram, Arabarnir hörfuðu hæð af hæð og hægðu þannig framsókn Tyrkja. Nú kom liðsauki verjendum til hjálpar, tvöhundruð þorpsbúar og hundrað Bedúnínar fr’t ná>æítu þorpi. Þetta var einmitt það, sem Lawrence sKo' a Hjmn hafði ætlað að láta Tyrki taka hæðirnar og gera S/ðan hliðarárás á þá. Með þessum liðsauka hafði hann nóg lið til þess að hefja árás á þá úr þrem áttum og þurfti ekki að draga varnarliðið af síðustu hæðinni. Bedúínar læddust að vélbyssuhreiðrum Tyrkja og hófu skothríð í tvö hundruð metra færi og þurrkuðu þau út. Ridd- aralið Araba réðst á Tyrki á hlið og reið og hjó allt niður, sem fyrir varð, þegar miðsveitirnar sáu hrakfarirnar beggja megin, brast óskipulegur flótti á lið þeirra, Arabarnir fylgdu fast eftir og Armeníumennirnir drógu upp hnífa sína og þurftu Tyrkir ekki griða að biðja. Þegar skothríðinni linnti, töldu Arabar herfeng sinn, þeir höfðu náð öllum fall- byssum Tyrkja, tvöhundruð hesta og tvöhundruð og fimmtíu fanga. Það náðu aðeins fimmtíu Tyrkir stöðvum sínum lif- andi af ellefu hundruð, hinir féllu, dóu úr kulda eða voru drepnir við flóttatilraunir. Þetta var eftirtektarverður bardagi og geysilegur sigur fyrir Lawrence og sýndi svo að ekki varð um villzt forustu- hæfileika hans og kjark. Hann gerði lítið úr þessum sigri og sagðist hafa unnið orrustuna með hefðbundnum aðferðum. Hann segist hafa gefið skýrslu um atburðinn og sent til aðal- stöðvanna, þar sem hann hafði gert sem minnst úr þætti sínum í þessum sigri og þakkað hann dæmum lærðra her- fræðinga, sem hann hefði tekið sér til fyrirmyndar. Þeir í aðalstöðvunum hrifust mjög af þessari skýrslu og buðu hon- um heiðursmerki fyrir frammistöðuna. Lawrence var lítið um þá eftirtekt, sem þessi sigur hans vakti, þar sem þær baráttuaðferðir sem hann notaði voru ekki samkvæmt kenningum hans um það, hvernig baráttu- C The New American Librarv UNDIR FÖLSKU FLAGGI ANNE MAYBURY — En hann er farinn að eldast, svo að ég hugsaði með mér, aS xannski vildi hann eiga náðugu daga í ellinni. — Þú hugsar um allt, Vonnie! Það hefurðu alltaf gert. Hún veif- aði til burðarmannins. Eg er með bíl fyrir utan. Rauður Pont- iac. Burðarmaðurinn kinkaði kolli og ók farangrinum út. — Hefurðu skemmt þér vel? — Ljómandi — nema þegar við stoppuðum í Field, þar munaði minnstu, að ég hálsbryti mig — Á heimleiðinni sagði Vonnie frá viðburðum dagsins á undan. Þegar fólk hitti Myru Ashlyn í fyrsta skipti, hélt það oftast, að hún væri fyrirsæta eða leikkona. Fæstum datt í hug, að hún var góðum gáfum gædd og að hún hafði keypt einkaritaraumboð og gert það að arðbæru fyrirtæki. Frjótlega eftir það keypti hún litla húsið við Englis Bay og fór með Vonnie þangað til að sýna henni. Þar eð Vonnie kærði sig ekki um að búa ein, stakk Myra upp á , að þær skyldu búa saman á neðri hæðinni. Á annarri hæð ætlaði hún að láta innrétta íbúð og leigja hana út. Þá var Vonnie nýbyrjuð í aug- lýsingadeildinni hjá Meaker. Vonnie hafði maldað í móinn og sagt, að hún hefði ekki efni á því, en lofaði að heimsækja hana oft. Og þú mátt reiða Þig á það, sagði hún, fyrst þú hefur þennan skínandi garð. En Myra beitti öllum brögðum til að telja hana á að flytja til sín og loks fékk hún vilja sínum framgengt. —Það eina, sem ég set upp eru sextíu dollarar á mánuði og það er ekki meira en þú borgar fyrir þessa herbergiskytru, sem þú hef ur núna. Svo að þú skalt ekki halda fram, að þú hafir ekki efni á þvi. Sextíu dollarar voru eftir kanad ísku verði mjög sanngjarnt og Vonnie flutti inn í húsið við Eng- lish Bay. Hún kom sínum eigin húsgögnum fyrir í herberginu sem sneri út að garðinum og keypti sér fallegt málverk og snotra ljósakrónu og gerði her bergið mjög vistlegt. Allt gekk ágætlega. Vinátta þeirra hafði staðið gegnum þykkt og þunnt á öllum skólaárum þeirra og engir árekstrar urðu á milli þeirra. Þær báru farangurinn inn í herbergi Vonnie. Sólin hellti geisl um sínum inn í herbergið og í garðinum fyrir utan lá Gabríel, stór, feitur og virðulegur og mal- aði. Myra tilkynnti, að kaffið væri tilbúið og þær tóku bollana með sér út í garðinn. Þær skiptust á helztu fréttum, meðan þær drukku kaffið og borðuðu kökur með. Vonnie tók eftir því, að Myra var óróleg og utan við sig þótt hún legði sig fram um að vera eðlileg í framkomu. Það var eins og hún brynni í skinninu að segja Vonnie eitthvað og loks gat hún ekki þagað lengur, og sagði: — Ég hef heyrt frá Brad! Ósjálfrátt hvarflaði Vonnie aug um að fingrum Myru, eins og hún byggist við, að stóri demants hringurinn væri kominn aftur á sinn stað. — Og ætlarðu að hitta hann aft ur? — Það er einmitt það sem ég óska. af öllu hjarta! Angurværðar- svipur kom á fallegt andlitið. Eft- ir heils árs aðskilnað ætti það að vera ótvíræð sönnun þess, að þetta er ást og ekki bara skyndi- hrifning. — Er Brad í Kanada? i Myra hristi höfuðið, tók upp ! | bollann og drakk af kaffinu. |; — Nei. Hann er hjá Harbourn i; es í New York. Ég fékk bréf frá |! Lindu Harbourne í dag. Þau eru j ■ gamlir vinir. — Þú og Brad áttuð svo vel j saman, sagði Vonnie og lagði j i áherzlu á orð sín. Ef þið fengjuð j j bara tækifæri til að hittast aftur. : — En ég hef ekki hugmynd um ihvort Brad kærir sig um mig j lengur. Rifrildið milli okkar var j býsna biturt og ofsalegt — — Og óþarft! — Auðvitað. Það eru flest rifr- ildi. En það tekur ekki broddinn af þeim. Linda hringdi tii mín frá New York og sagði mér, að hann hefði spurt um mig. Það er betra en ekki. En ef við hittumst aftur, verður Brad að eiga frum- i kvæðið. 2. kapítuli. I Tveim dögum síðar bauð Nigel i Vonnie með út, og þau borðuðu j saman miðdegisverð á hóteli, sem | var með skrúðgarð á þakinu og útsýn yfir Kyrrahafið. Hún var í nýjum kjól úr bláu , silkiefni með silfurívafi og á i dökkbláum sandölum með háum ! silfurhælum. Nigel leit á hana með velþókn un þvert yfir borðið. — Þú notar uppáhaldslitinn minn, Vonnie. Ég kalla hann safir bláan. — Það kalla ég hann líka. Hún mæ augnatilliti hans og hló. En flestir karlmenn myndu samt segja, að hann væri blár, og ekk- ert meira. Ég hélt annars, að það væru bara listamenn, sem þekktu réttu nöfnin á litum. Ég er enginn listamaður, sagði hann. Ég er vísindamaður. En ég skyldi verða rriálari undir eins á morgun, ef ég væri fær um slíkt. Þau spjölluðu saman um list af þeirri tegund, sem bæði höfðu vit á, ekki um abstrakt fantasíur, heldur um skýr og skiljanleg verk. Bæði könnuðust við, að þau væru illa að sér um myndhöggv- aralist og sönglist, en ég veit vel hvað mér finnst fallegt og hvað mér ekki finnst fallegt, sögðu þau bæði samtímis og hlógu að vizku sinni. Kvöldið var fullkomið. Þau röbbuðu saman, eins og þau hefðu verið kunnug árum saman, döns- uðu milli þess að þau borðuðu og drukku fyrirtaks hvítvín, og Nigel skýrði frá því, að hann hefði séð Sauternevíngarðana í Frakklandi. Þegar búið var að loka, óku þau spölkorn fram með klettun- um í bílnum, sem hann hafði tek- ið á leigu, meðan hann dvaldi í Vancouver. Þau námu staðar, þar sem vel sást til hafsins, og við litla vík, sem krökkt var af segl- bátum. Hægra megin við veginn óx þykkur skógur upp eftir hlíð- unum. Þau sátu kyrr, og samtalið varð að slitróttum og strjálum athuga- semdum. Bæði fundu til hins djúpa friðar. Uppi yfir þeim blikuðu stjörn- urnar, golan var hlý og mjúk. Á slíkum stundum, hugsaði Vonnie, er karlmaður vanur að vefja konu örmum og kyssa v- ekki vegna ástar, heldur af því að rómantík er í samræmi við slík kvöld. En Nigel Foster fór samt ekki þannig að. Hann bauð henni sigar- ettu og kveikti í fyrir þau bæði tvö, hallaði sér aftur á bak og horfði á nýmánann, sem speglað- ist í vatnsfletinum. — Ef þetta kvöld hefur verið eitthvað á áttina til þess, sem það hefur verið mér, viltu þá koma út með mér aftur? Og hefurðu annars ekki í alvöru gaman af sönglist? Hún svaraði glöðum rómi. Já, það mátti hann reiða sig á. — Ég hef gaman af sönglist og vil gjam an fara út með þér. Hún horfði á hann, meðan hún sagði þetta, og fann með sjálfri sér, að hjá henni var vöknuð von um, að hann hefði huga á að vera kunningi hennar, áfram. Um næstu helgi óku þau um nágrennið, og Vonnie sýndi hon- um suma þá staði, sem hún hafði mestar mætur á. Þau gengu um_í skóginum eða leituðu uppi ein- hverja smávíkina, þar sem þau gætu legið og sólað sig. Síðasta kvöldið, sem þau voru OTVARPIÐ Laugardagur 8. janúar 7.00 Morgunútvarp 12.00 Hádegis útvarp 13.00 Óskalög sjúklings Kristín Anna Þórarinsdóttir kynr Iir lögin 14.3P í vikulokin, þáttur undir stjórn Jónasar Jónassonar. 16.0C úeðurfregnir. 16.05 Þetta vil éj tteyra. Séra Bjöm 0. Bjömssor velur sér hljómplötur. 17.00 Fréti ir Á nótum æskunnar Jón Þói Hannesson og Pétur Stein grímsson kynna létt lög 17.3E Tómstundaþáttur bama og ungj inga Jón Pálsson flytur. 18.00 Ú1 varpssaga barnanna: „A kross götum'1 Guðjón Ingi Sigurðssor les. 18.20 Veðurfregnir 18.3C Söngvar ( léttum' tón. 18.45 Ti kynningar 19.30 Fréttir 20.0C Stuttur konsert að kvöldi: 20.3C Leikrit: „Allah heitir hundra? nöfnum" eftir GUnther Eich Þýðandi: Briet Héðinsdóttir Leil stjóri: Helgi Skúlason. (Áðui flutt i febrúar 19621. 22.00 Fréttii og veðurfregnir. 22.15 Danslög 24.00 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.