Tíminn - 12.01.1966, Side 7

Tíminn - 12.01.1966, Side 7
jfHtrvmuDAöVR i5. januar xutro TÍMINN SAMVINNUTRYGGIIVGAR hafa í nær 20 ár verið 1 fararbroddi um hvers konar nýjungar og endurbætur í tryggingamálum hér á landi. Oss er því ánægja að tilkynna bifreiðaeigendum, að ákveðið hefur verið að breyta iðgjaldakerfi ábyrgðar- trygginga, þannig að um verulega iðgjaldalæklcun verð- ur að ræða fyrir góða og örugga bifreiðastjóra. Fleiri nýmæli í bifreiðatryggingum kynnum vér hér með: NY ökumanns- og farþegatrygging Ökumaðurinn sjálfur, hvort sem hamn er eigandi eða einhver annar, er alls ekki tryggður í ábyrgðar- eða kaskótryggingu og aðdragandi slyss getur verið þannig, að farþegar fái heldur ekki tjón sitt bætt. Hin nýja ÖKUMANNS OG FARÞEGATRYGG- fNG Samvinnutrygginga er því nauð- synleg og sjálfsögð viðbótartrygging. Ökumaður og hver farþegi er tryggð. ur fyrir eftirtöldum upphæðum- Við dauða kr. 200.000 Útfararkostnaður kr. 20.000 Við algera örorku kr. 300.000 Ákveðið hefur verið að þeir bifreiða- eigendur sem hjá oss tryggja njóti þessarar tryggingar fram til 1- maí n. k. en ársiðgjald frá þeim tíma verði kr. 250. ■— Alþjóðlegt tryggingar- skírteini Þeim bifreíðaeigendum, sem ætla utan með bifreiðir sínar, er bent á, að nauðsynlegt er fyrir þá að hafa í höndum alþjóðlegt trygging arskírteini „Green Card“. Við- skiptamenn Samvinnutrygginga geta framvegis fengið slíkt skír- teini hjá Aðalskrifstofunni Ármúla 3, án aukagjalds. 60% Þegar vér hófum bifreiðatryggingar. tókum vér upp þá nýbreytni að mismuna bifreiða- eigendum eftir tjónareynslu þeirra. Var það gert með bónuskerfinu og hefur ve'rig veittur 30% afsláttur af iðgjaldi eftir eitt tjónlaust ár. Ennfremur höfum vér veitt iðgjaldsfrítt ár eftir tíu tjónlaus ár. Nú verður bónuskerf inu breytt og afslátturinn stighækkandi: 15% eftir eitt tjónlaust ár 30% eftir tvö tjónlaus ár 40% eftir þrjú tjónlaus ár 50% eftir fjögur tjónlaus ár 60% eftir fimm tjónlaus ár- Þeir bifreiðaeigendur, sem voru tjónlausir s. I. ár fá þó 30% bónus viS næstu endurnýjun. Jafnframt þessu verða í ríkara mæli en áður hækkuð iðgjöld þeirra, sem valda endurtekn- um tjónum. Samvinnutrvggingar hafa lagt áherzlu á að tryggja góða og örugga bifreiðastjóra og hafa trú á, að aukinn afsláttur verði hvatning til betri og gætnari aksturs. Vaxandi umferð og fjölgun bifreiða hef ur orsakað fjölgun bifreiðatjóna. Ný- lega hafa orðið mjög alvarleg umferða- slys, en með samstilltu átaki hefði mátt komast hjá velflestum þeirra Samvinnu tryggingar hafa ákveðið að gera sitt ítrasta á þessu ári til að koma í veg fyrir umferðarslysin og heita á alla lands- menn til liðsinnis. Eins og kunnugt er, eru Samvinnutryggingar gagnkvæmt tryggingarfélag og greiða tekju- afgang til tryggingatakanna eftir afkomu hverrar tryggingagreinar Á undanförnum árum eða frá árinu 1949 hafa Samvinnu- tryggingar greitt samtals 56 milllónir króna á þennan hátt tii tryggingatakanna þar af sex sinnum af bifreiðatryggingum. ARMULA 3 pm F JC * I_____ iniRiin w/, ’//////. Y/////J '/////,'/////, //////, '/////. '////, '////. ////' ’///,'////■ '////■'///, '/////■ /////■ '///'■ '////. '////■/////. '////■ ////, ■///. Trmmii i i m m 'lui SÍMI 38500

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.