Vísir - 11.05.1974, Blaðsíða 1

Vísir - 11.05.1974, Blaðsíða 1
VÍSIR 64. árg. — Laugardagur 11. mai 1974. — 72. tbl. Átök vegna lokunar- tíma búða í Kópavogi — baksíða „Þó œtlum við að gera þjóðinni gagn..." — í sólskininu í gœr — Sjó bls. 2-3 • Ólafur: Meiri niður- greiðslur Rikisstjórnin hyggst setja al- gjöra verðstöðvun og kippa vísitölunni úr sambandi til að hindra visitöluhækkun á launum 1. júní, eftir að niður- greiðslur hafa verið auknar til að lækka verðlagið. Þetta kom m.a. fram hjá Ólafi Jóhannes- syni forsætisráðherra i sjón- varpsþætti i gærkvöldi. Aðgerðirnar eiga að gilda til júlíloka. Fallið verður frá til- lögum í stjórnarfrumvarpi um efnahagsmál, þar sem gert var ráð fyrir að skera grunn- kaupshækkun niður I 20% og flestöllum atriðum öðrum i frumvarpinu. -HH Kosfar skilding- inn að þjóna listagyðjunni Það er dýrt að halda uppi menningunni i landinu. Stór- kostieg listahátið I tilefni af 1100 ára afmælinu mun að öllum likindum kosta 10 miiljónum krónum meira en aðgangseyrir mun skila. Listaverk fyrir tugmilljónir, sjálf sinfóniuhljómsveit Lundúnaborgar með sjálfan André Previn. Heimsnöfn af öllu tagi, — allt kostar þetta pcninga. — Sjá nánar um listahátíð á bls. 7. Enn ekki hreyft við Gjábakkavegi — „Forsenda þess að þjóðhótíðin fari sœmilega ór hendi", segir Indriði G. Þorsteinsson //Forsenda þess, að þjóð hendi, er sú, að lagður sagði Indriði G. hátíðin fari sæmilega úr verði Gjábakkavegurinn," Þorsteinsson, Trúður Það voru vist flestir i sólskins- skapi I gærdag, þegar einstak- lega fallegt vorveður var viöa um landið, ekki sizt i Reykjavik. f Bankastrætinu hittum við einn i sólskinsskapi, trúðinn Tóta. Skýringin á veru hans innan um mannfjöldann i innkaupahug- leiðingum I miðborginni mun vera sú, að hann var ásamt fieirum úr stétt leikara að selja aðgöngumiða að skemmtun, sem leikarar og sinfóniustarfs- menn halda til ágóða fyrir sjóslysasöfnun. (LJÓSM. VtSIS Bj.Bj.) í sólskinsskapi framkvæmdastjóri þjóð- hátíðarnef ndar, þtgar Vísir grennslaðist fyrir um það, hvort nefndin legði enn áherzlu á lagningu vegar um Gjábakkaland fyrir þjóðhátíðina. „Það má hverjum manni vera ljóst, hvað af þvi hlýzt, ef mikill hluti umferðarinnar fer i gegnum þjóðhátiðarsvæðið, eftir að hátiðin er hafin.” Ennþá hefur ekki verið hafizt handa við lagningu þessa vegar, sem þjóðhátiðarnefnd lagði til á sinum tima. „Eftir þvi, sem mér er bezt kunnugt, þá er það i athugun, en ákvörðun hefur ekki verið tekin enn um, hvort fé verði veitt til þessarar vegagerðar,” svaraði framkvæmdastjóri nefndarinnar fyrirspurn Visis. — Eftir þvi sem blaðið hefur fregnað, þá hefur ákvörðuninni verið slegið á frest vegna ágreinings innan rikis- stjórnarinnar um fjárveitinguna. Forsætisráðherra mun hafa stutt tillögu nefndarinnar, en það dugði samt ekki til þess að fjármagn fengist til framkvæmd- anna. — Bráðabirgðavegur, sem lagður yrði frá Leirum þvert yfir Þingvallasléttuna austur i átt til bæjarins Gjábakka að mótum vegarins yfir Lyngdalsheiði, er talinn mundu kosta milli 20 og 30 milljónir krória. Hafa nú vaknað áhyggjur af þvi, að hver sé siðastur að hefja vegagerðina, svo að ekki þurfi að leggja i aukakostnað vegna tima- skorts. Þegar Visir grennslaðist fyrir um það hjá framkvæmdastjóra þjóðhátiðarnefndar, hvort hætt yrði við veginn, visaði hann til forsætisráðuneytisins, en þjóð- hátiðarnefnd starfar á vegum þess. Miklar annir forsætisráð- herra og fundarhöld komu i veg fyrir, að hægt væri aö bera upp við hann fyrirspurnir um málið. „Þjóðhátiðarnefnd hefur lagt miída áherzlu á, að Gjábakka- vegur verði lagður, enda er hann ekki bara nauðsynlegur þjóð- hátiðinni — þótt það kannski eitt út af fyrir sig væri nóg — heldur er hann hugsaður sem framtiðar- vegur um Þingvelli og með það fyrir augum samþykktur af Þing- vallanefnd,” upplýsti Indriði framkvæmdastjóri. — Hann kvað hugmyndina um veginn hafa þó sprottið fyrst upp af nauðsyn þess að gera Austfiröingum og Sunn- lendingum, sem sækja mundu þjóðhátiðina, götu að bifreiða- stæðum á Leirum. —G.P FÁ TVÆR SUNDLAUGAR í Mikiar framkvæmdir eru nú fyrirhugaðar i Breiðholti varö- andi iþróttamannvirki. Ákvörðun hefur verið tekin um byggingu fveggja nýrra sundlauga, og einnig er gert ráð fyrir Iþrótta- svæði, þar sem fyrir verður kom- ið völlum, iþróttahúsum og sund- laug. Framkvæmdir þessar munu eiga sér stað i Breiðholti 2 og i Breiðholti 3, og verður vinnan við sundlaugarnar til dæmis boðin út á næstunni, og er þá búizt við þvi, að hægt verði að hefja vinnu fijótt I sumar. Sundlaugarnar verða við fjölbrautarskóla i Breiðholti 3. Verður byggð útisundlaug við skólann og siðan litil kennslulaug innanhúss. Stærð útisundlaugar- innar er svipuð og Sundlaugar Vesturbæjar. Kennslusundlaugin verður hins vegar öllu minni. BREIÐHOLTINU — og miklar framkvœmdir við önnur íþróttamannvirki Þá verða byggðir búningsklefar og böð i sambandi við laugarnar, og gert er ráð fyrir byggingu iþróttahúss i sama áfanga. 1 Breiðholti 2 verður svo mikið um að vera. 1 svokallaðri Mjódd, sem er svæði fyrir neðan Breið- holt 1 og Breiðholt 2, verður iþróttasvæðið staðsett, og verður það syðsti Mjóddinni. Svæði þetta er alveg óbyggt. Iþróttasvæðið hefur verið til athugunar hjá Iþróttaráði og skipulagsnefnd, en ekki hefur fyllilega verið gengið frá skipu- lagi, né það samþykkt. A iþróttasvæðinu verður, sem fyrr segir, komið fyrir völlum, iþróttahúsum og sundlaug. Litlar ákvarðanir hafa verið teknar um sundlaugina, en ráðgert er að hafa iþróttahúsið öllu stærra en venjuleg iþróttahús. Til dæmis er gert ráð fyrir, að hægt verði að leika samtimis á 4 völlum i hús- inu. Þá verður gerður keppnis- völlur, að undanskildum æfinga- völlum, og verður þar söluað- staða. Ekki hefur verið tekin ákvörð- un um útboð á íþróttasvæðinu, enda er það enn til athugunar hjá skipulagsnefnd. — EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.