Vísir - 30.05.1974, Page 10
10
Vísir — Ferðablað 1974
BANGKOK
Ævagamlar austurlenzkar
hefðir ásamt vestrænum áhrifum
setja mark sitt á milljónaborgina
Bangkok. Óbrotin valviðarhús
standa innan um stórverzlanir og
stór fjölbýlishús. Á fljótandi
mörkuðum hins liðna tima er líka
hægt að gera innkaup. Einkum er
fengur i silfurmunum og gim-
steinum, sem fást þar á vægu
verði. Vert er að hafa i huga, að
listgrein viðskiptanna í Bangkok
er sú að geta prúttað af nógu mik-
illi snilld.
Þegar tekin er ákvörðun um
það, hvenær halda skuli til Bang-
kok, er rétt að taka. tillit til þess,
aö þar er hitabeltisloftslag, og
er árinu skipt i þrjú timabil:
„kalda timabil” nóv.-febr., hiti
fer ekki undir 20 stig, „heita
timabil” marz-júli, hiti nær þá oft
allt að 40 stigum og loks „regn
timabilið” júli-okt., en þá falla
ein eða tvær regnskúrir úr lofti
yfir daginn og þornar skjótt á
milli.
„Hvar er sólbaðsströndin?”
spyr sjálfsagt einhver. Stærsta
sólbaðsströnd Thailands er
Pattaya á strönd Siamsflóans, en
þangað er hálfs annars tima ferð
frá Bangkok.
En þeir, sem komnir eru alla
leið til Bangkok, eru sjálfsagt,
helzt á þeim buxunum að skoða
sig um, úr þvi að til Austurlanda
er komið. Og þeir, sem þannig eru
stemmdir, skipta gjarnan á
ströndinni og ferð til staða eins og
t.d. Singapore, Penang, Tokyo,
Hong Kong, Osaka, Kina, Delhi,
Dacca, Saigon, Manila eða Dja-
karta, svo eitthvað sé nefnd.
SAS hefur skipulagt ferðir til
Bangkok, en sé farið með þvi
flugfélagi, getur ferð til Bangkok
og ferð þaðan til einhverra ná-
grannastaðanna, sem áður eru
nefndir, kostað i kringum hundr-
að þúsund isl. krónur. Til viðmið-
unar má geta þess, að ferð beint
til Hong Kong, til að mynda, getur
kostað allt að hundrað og sjötiu
þúsund krónur.
AFRIKA
SAS fer einnig til Afriku
og fjölgar þeim stöðugt sem héð-
an fara i þá áttina. Þar eru enn til
óspjallaðir staðir. Þar er hægt að
sjá nashyrninga og fíla, og á hin-
um viðáttumiklu grasivöxnu
sléttum má sjá stórar hjarðir af
antilópum og visundum. Þar má
lika sjá zebrahesta og tigulega
giraffa, og i vatnsbólinu velta
i V '
' ■ w. v.' •;-
■ *
, ' T3ÍX tScr-, Vv '
^ m:, ■ >
• ,
•v / '} fí
Þegar minnzt er á ferðir til sól-
arlanda, kemur manni ósjálfrátt i
hug Costa del Sol og Mallorca.
Þangað hefur landinn sótt i æ rik-
ara mæli til að verða sér úti um
brúnan lit á kroppinn. En það eru
fleiri sólríkir staðir farnir að laða
til sin tsiendinga upp á siðkastið
og má þar m.a. nefna Möltu, sem
fjallað er um hér á öðrum stað i
blaðinu, auk staða eins og t.d.
Suður-Portúgals, Kanaríeyja,
Fiórida, ttaliu, Grikklands,
Júgóslaviu og Rúmeniu. Og siðast
en ekki sizt má nefna Bangkok, en
þaðan er svo hægt að komast til
enn fleiri staða, sem fæst okkar
þekkja —ja, nema þá úr ævintýr-
um....
Onnur bezta í heimi
Ljósmyndavélar og útvarpstœki seljast bezt í Fríhöfninni
•##
Það, sem mest er selt af í Fri-
höfninni á Keflavikurflugvelli,
eru Ijósmyndavélar og útvarps-
tæki, auk þess sigilda, sem allir fá
sér, sælgæti, sigarettur og vin.
Söluaukning licfur verið afar
mikil á síðustu árum. Arið 1970
var selt fyrir 105 milljónir króna
— árið eftir var upphæðin 151
milljón króna. 1972 var selt fyrir
205 milljónir króna og i fyrra fyrir
205 milljónir króna, sagði Sigur-
jón Guðbjörnsson, þegar við
ræddum við hann um Frihöfnina
og það, scm mest er keypt þar.
Frihöfnin á Keflavikurflugvelli
er af kunnáttumönnum talin hin
„önnur bezta i heimi”. Þegar
talað er um aðra beztu er
auðvitað miöað við verðlag. Það
er sem sagt ódýrt aö verzla i fri-
höfninni hér — aðeins frihöfnin
á flugvellinum I Amsterdam selur
að jafnaði á lægra verði, en fyrir
kemur þar eins og annars staðar,
að verðlag er hærra en hér. Hins
vegar eru auðvitað til margar fri-
hafnir viðs vegar um heim, sem
hafa f jölbreyttara úrval á
boöstólum en gerist á Keflavikur-
flugvelli.
Ljósmyndavélar og útvarps-
tæki. Það eru þeir hlutir, sem
flestir fá sér, þegar þeir koma við
i Frihöfninni á leið til útlanda. En
sá böggull fylgir skammrifi, að
hámark þeirrar upphæðar toll-
frjálst er innan við sex þúsund
krónur, sem koma má meö i
einum hlut. Þetta þýðir að yfir-
leitt eru ódýrar ljósmyndavélar
og útvarpstæki til sölu i Frihöfn-
inni hér — af dýrari tækjum
veröur að greiða toll umfram sex
þúsundin. Fólk kaupir þvi nær
undantekningarlaust þær vélar
og tæki, sem kosta innan við sex
þúsund krónur. Þessi tæki eru að
miklum meirihluta frá Japan og
er það vegna eftirspurnar — al-
menningur vill kaupa japanskar
vörur.
Ekki liggja fyrir tölur um það,
hvað mikið fólk sparar sér á þvi
að kaupa ljósmyndavélar og út-
varpstæki i Frihöfninni miðað við
að keypt sé i verzlunum — slikt
gefa starfsmenn Frihafnarinnar
ekki upp, en allir vita, að það eru
talsverðar upphæðir eins og
tollum er háttað. Þess er rétt að
geta, að fólk tekur vissa áhættu,
þegar það kaupir slika hluti i Fri-
höfninni. Það er aðeins gefin
kassakvittun fyrir kaupunum og
rétt að hafa þær, þegar komið er
heim aftur og hluturinn sýndur
tollvörðum. Til þess er ætlazt og
án kassakvikkunarinnar hafa
tollverðir enga vissu fyrir þvi, að
keypt hafi verið i Frihöfninni á
Keflavikurflugvelli. Starfsmenn
Frihafnarinnar banna engum að
kaupa hjá sér — en benda á
þessar takmarkanir — og siðan er
áhættan kaupandans einkum ef
um dýrari hluti er að ræða.
Þá er það hið sigilda. 1 reglu-
gerö segir, að hægt sé að kaupa
sælgæti innan eðlilegra tak-
marka. Þessu er ekki framfylgt
út i yztu æsar og talið aö hin eðli-
legu takmörk séu 1500 krónur á
mann. Nú, og það er talsvert
slikkeri, sem fæst fyrir þá
upphæð. Hver farþegi kominn á
lögaldur má hafa meö sér toll-
frjálst eina flösku af sterku vini,
og einn lltra af léttu. Karton af
sigarettum. En það er hægt að
kaupa meira við heimkomu. Já,
það má framvisa i tolli þreföldu
magni, og er þá tekið ákveðið
gjald af hverri flösku. Þetta getur
munað talsverðu, miöað við
útsöluverð i áfengisverzlunum
hér, einkum ef um dýrari
vintegundir er að ræða.
Söluaukning hefur verið mjög
mikil hjá Frihöfninni. Salan 1973
varð 101 milljón króna meiri en
árið áður. Aukningin stafar af
miklum hækkunum á innkaups-
verði hjá Frihöfninni og fjáðari
farþegum, auk þess, sem utan-
ferðir hafa aukizt. Islendingar
hafa yfirleitt alltaf talizt til hinna
fjáöu farþega — en mikil breyting
hefur orðið á þar hjá út-
lendingum, sem koma i Fri-
höfnina til að verzla. Erlendir
farþegar Loftleiða eru nú mun
fjáðari en þeir, sem ferðuðust
með félaginu fyrir nokkrum
árum. Likur eru á þvi I ár, að um
mikla söluaukningu verði að ræða
frá 1973.
En snúum okkur aftur að
verzlunarborðum Frihafnar-
innar. Þar er fleira á boðstólum
en það, sem nefnt hefur verið hér
aö framan. Ilmvötn eru alltaf
ofarlega á vinsældalista
kvenfólksins — kveikjarar hjá
karlmönnum, úr hjá báðum
kynjum, svo fátt eitt sé talið.
Þeir, sem ætla i utanför, geta
einnig pantað ákveðinn hlut hjá
Frihöfninni með góðum fyrir-
vara, og tekið hann með sér,
þegar að utanförinni kemur.
flóðhestar sér makindalega i leðj-
unni.
í Austur-Afriku er sömuleiðis
hægt að sjá frumstæðan land-
búnað, töfralækna og galdra-
menn, ævagamlar venjur og
framandi trúarsiði, sem fylgt
hafa ibúunum frá alda öðli fram á
þennan dag.
En það má ekki gleyma þvi að i
Austur-Afriku er einnig að finna
töfra borgarlffsins, þar sem gam-
alt og nýtt blandast saman. Ein
viöáttumesta og vinsælasta bað-
ströndin á þessum slóðum heitir
svo Mombasa við Indlandshaf.
ÍTALIA
ítalska Rivieran freistar
margra. En sé farið til ttaliu, er
óhjákvæmilegt annað en að skoða
sig um i stórborginni Milanó eða
þá Róm, borginni eilifu.”
ítalía er, eins og sérfræðing-
arnir segja, þrungin fegurð allt
frá hinum töfrandi vötnum við
rætur Alpafjallanna, Lago
Maggiore og Como, suður til
hinnar undurfögru eyjar Kapri.
Feneyjar með rómantiskum
„Gondóla”-ferðum og Markúsar-
kirkjunni, listagersemar Flórens,
Skakki turninn i Pisa, hin helga
borg Assis og hinar dularfullu
rústir Pompej, eru viðkomustaðir
þeirra, sem vilja sjá það mark-
verðasta á ttaliu — um leið og
hörundið dökknar.
PORTÚGAL
Hagstætt verðlag og mikil
aukning á allri aðstöðu fyrir
ferðamenn hefur orðið þess vald-
andi öðru fremur, að æ fleiri
Islendingar fara i sumarleyfinu
sinu til Portúgal.
Höfuðborgin Lissabon, sem er
reist á sjö hæðum við ósa árinnar
Tejo, er gjarnan fyrsti áningar-
staður þeirra, sem heimsækja
Portúgal. Þetta er glaðvær borg á
suðræna visu, og þar þarf enginn
að vera iðjulaus, hvort heldur
hann vill fara i búðir og verzla,
skoða listasöfn og frægar minjar
ellegar skemmta sér i samkomu-
húsum.
Aðeins 25 km frá Lissabon er
svo einn af tizkubaðstöðum
Evrópu, Estoril, en þar eru ný-
tizku hótel, veitingahús, nætur-
klúbbar og spilaviti.
Og þá má ekki heldur gleyma
portúgölsku eyjunni Madeira,
sem er stærst fimm eyja i
eyjaþyrpingu um 800 km suð-
vestur af Lissabon. Þar er fjöl-
brpytt fegurð, mikill gróður og
aldrei óþægilega heitt.
AÞENA
Þeir, sem gera vilja hlé á
Spánarferðum eitt sumar, en
vilja samt verða sólbrúnir, leita
margir til Grikklands. Þar er það
Aþena, sem laðar að.
Akrópólis gnæfir yfir borginni,
sem geymir ótal margar minjar
fortiðarinnar. Það getur verið
gaman að reika um borgina: um
Plaka, eða gömlu borgina, með
fjörlegum markaðstorgum og sér-
kennilegum krám, þar sem heyra
má þjóðlög og sjá þjóðdansa, eða
um glæsilegar breiðgötur og torg
nýju borgarinnar, sem iðar af lifi
nætur og daga.
Það er til Aþenuborgar, sem
mestu fjöldi auðkýfinga og
kvikmyndastjarna leitar i frltim-
um sinum.
SPÁNN
Það, að yfir 24 milliónir ferða-
manna skuli hafa heimsótt Spán
á siðasta ári, talar sinu máli.
Þrátt fyrir hinn gifurlega fjölda
ferðamanna, sem þar kemur, eru
Spánverjar ósnortnir af áhrif-
um þeirra. Þeir hafa jafnvel fæst
ir lært tvö algengustu orð enskrar
tungu, „Yes” eða „No”.
Kunnáttuleysi þeirra i tungumál-
um er þeim samt enginn fjötur
um fót. Spánverjarnir geta bjarg-
að sér með þolinmæðinni — ef
ferðamaðurinn getur það sömu-
leiðis. Annars eru það útsendar-
ar ferðaskrifstofa, hótel- og
skemmtistaðahringa, sem þjóna
ferðamönnunum. Sjálfir eiga
Spánverjar fæst þeirra hótela,
sem risið hafa við strendur þeirra
á undanförnum árum. Þeir láta
sér lynda að vinna þar við lægst
launuðu þjónustustörfin — nú eða
þá þaö að byggja enn fleiri hótel.
Verðlagið á Spáni á sennilega
mestan þátt i þvi, hve vinsældir
landsins eru miklar. Gisting,
matur og annað þar fram eftir
götunum er selt mjög lágu verði á
okkar mælikvarða, enda er það
einna helzt á Spáni, sem dag-
launamaðurinn frá tslandi getur
leyft sér að taka á leigu ibúð m.eð
öllu tilheyrandi.
Óþarft ætti að vera að telja hér
upp vinsælustu sólbaðsstaði
Spánar. Það hafa jú allir heyrt
getið um Mallorca, Costa del Sol,
Ibiza og Costa Brava. Frá þess-
um stöðum er svo hæglega hægt
að komast i eins eða tveggja daga
ferðir yfir til Marokkö eða
Algeirsborgar til að mynda.
KANARÍ-
EYJAR
Þó að Kanarieyjaklasinn sé
undir yfirráðum Spánverja, er
rétt að geta þeirra hér sérstak-
lega. Eyjarnar eru sjö talsins og
liggja úti fyrir vesturströnd Af-
riku.
Gran Canaria er þriðja stærsta
eyjan i eyjaklasanum, en þar eru
Las Palmas og Playa, staðirnir,
þar sem svo margir tslendingar
hafa eytt dögum vetrarins.
Þar eru tilvaldir staðir jafnt
fyrir þá er leita vilja hvildar og
friðar og þá, sem komast vilja á
glæsilega og fjöruga nætur-
klúbba. Sólin skin þar hins vegar
jafnt yfir fjörkálfa og rólegheita-
fólk.
Nú, og svo er lika sólrikt i
Júgóslaviu og Rúmeniu.
— ÞJM
'