Vísir


Vísir - 05.06.1974, Qupperneq 17

Vísir - 05.06.1974, Qupperneq 17
Vísir. Miövikudagur 5. júni 1974 Nú verðum viö bara aö gæta þess, aö ekki gerist þaö sama meö okkur og jólagæsina okkar.... SJÓNVARP • Miðvikudagur 5. júni 20.00 Fréttir 20.30 Snorr a h át i ð i n i Reykholti Stutt kvikmynd, tekin sumarið 1947, þegar Ólafur Noregskonungur, þáverandi rikisarfi Norð- manna, færði Islendingum að gjöf styttu Vigelands af Snorra Sturlusyni. Myndina gerði Óskar Gislason, en textahöfundur og þulur er Magnús Bjarnfreðsson. 20.40 Nýjasta tækni og visindi. 21.05 Við leiksviðsdyrnar. (Stage Door) Bandarisk biómynd frá árinu 1937. Aðalhlutverk Katherine Hepburn, Ginger Rogers og Adolphen Menjou. Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir. Myndin greinir frá nokkrum ungum stúlkum, sem allar búa á sama hótelinu i bandariskri stórborg, og hafa það sameiginlega áhugamál, að verða sér úti um eftirsóknarverð hlut- verk i leikhúsunum. Eins og að likum lætur, gengur þeim misjafnlega að ná settu marki, og fer þá eins og oft- ar, að gróði eins verður annars tap. 17 -K-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-K-K-k-k-K-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-K-K-K-k-K-K-K ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ I ★ ★ k ★ k ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ t ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ * * * ¥ * * * ¥ ¥■ ¥ i * ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ I i ! ¥ ¥ Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 6. júni. .iMÍ w Ht ...c "t A Hrúturinn, 21. marz—20. april.Greiði, er þú ger- ir einhverjum, gæti leitt til skemmtilegs sam- bands. Forðastu að ofreyna þig, þú þyrftir frek- ar aukahvild. Aætlanir kynnu að tefjast. Nautið, 21. april—21. mai.Það kynni að standa á undirtektum við uppáhalds málefni þitt. Láttu ekki undan neinum ósmekklegum freistingum eða trassaskap. Horfstu i augu við staðreyndir. Tviburinn, 22. mai—21. júní.Eitthvert máttleysi virðist einkenna daginn, hversdagsleikinn gæti orðið dálitið niðurdrepandi. Kvöldinu fylgja þvingaðar tilfinningar. Krabbinn, 22. júni—23. júli.Láttu ekki tilfinning- ar hafa áhrif á verk, er þafnast ópersónulegrar yfirvegunar. Taktu ekki mark á rómantikur- hjali. Láttu ekki þunglyndi ná tökum á þér i kvöld. Ljónið, 24. júli—23. ágúst. Verzlaðu varlega. Þig vantar ekki hvitan fil, er það? Krafa um hjálp kynni að vera sprottin af virkilegri þörf. Sláðu varnagla um leið og þú metur málin. Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Til að ná settu marki kynnirðu að neyðast til að gefa eftir, en það reynist þess virði. Það gæti bólað á fjármálalegri klipu með kvöldinu. Hjálpaðu vini þinum. Vogin, 24. sept,—23. okt. Það kynni að leggjast myrkur yfir málin i dag. Vertu ekki of trúgjarn, vinarbragð gæti haft dulinn tilgang. Þrýstingur eykst seinni hlutann, viðskipti lenda i hönk. Drekinn, 24. okt.—22. nóv. Einhvers konar barnaskapur kynni að blandast inn i atburði dagsins, tilhneiging til að taka málin ekki al varlega. En með kvöldinu verður gangurinn ákveðnari. Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des.Yfirmenn kynnu að gagnrýna vinnu þina, hertu skriðinn. Stjörnurnar vara við ofáti. Sinntu félagslegum skyldum i kvöld, þó þig langi ekki til þess. Steingeitin, 22. des.—20. jan. Tengsl við mann með f jarlæg sambönd kynnu að teygja sig inn i framtiðina. Nám og skemmtun ætti að skilja að. Farðu varlega i kvöld. Vatnsberinn, 21. jan.—19. feb. Vertu ekki of eftirlátur. Ef þú ert ekki á verði, kynnirðu að gera óraunhæf kaup. Er kvöldar, ættirðu að sinna atvinnu- eða námsmálefnum. Fiskarnir, 20. feb.—20. marz. Maki/félagi gæti reynzt óáreiðanlegur. Fólk með frumkvæði er ekki alltaf nógu íylgið sér. Forðastu slæm kaup. Tilhneiging til nánasarháttar virðist rikjandi. ★ Í ! i ! ★ i I -v- ¥ ¥ i ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ u □AG | D KVOLD | □ □AG | D KVÖLD | □ □AG | „Nýjasta tœkni og vísindi,/ Frumhreinsun, síðhreinsun „Þetta verður nú ekki ósvipuð mynd og sú, sem var I seinasta þætti og var um loftmengun. Þessi er um vatnsmengun”. Þetta sagði örnólfur Thorlacius, sem sér um þáttinn „Nýjasta tækni og visindi”, þegar við ræddum við hann. Þetta er amerisk mynd en Amerikanar eru komnir mjög langt i rannsóknum sinum á mengunarvandamálum. Gæt- um við ýmislegt af þeim lært og sloppið þá við sams konar mis- tök og þeir gerðu. Til dæmis um hvað miklar kröfur eru gerðar i sambandi við mengun, vitnaði örnólfur i siðustu mynd. Þar kom fram, að pappirsframleiðendur þurftu að leggja sömu upphæð fram til að hefta mengun og sem nam heildarágóða. I myndinni i kvöld fáum við að sjá ár og vötn fyrr á timum og nú. Þó að við sjáum ekki bláa litinn, þá fáum við að sjá, hvað hefting mengunar hefur að segja fyrir umhverfið. -EVI- Sjónvarp í kvöld kl. 21,05: „Við leiksviðsdyrnar#/ (Stage door) GRÓÐI EINS VERÐUR ANNARSTAP Að visu er myndin i sjónvarpinu i kvöld komin nokkuð til ára sinna. En þær Katherine Hepburn og Ginger Rogers sem leika aðalhlutverkin, hafa báðar verið á toppnum i meira en 40 ár. Geri aðrir betur. Margir muna eftir myndum með Ginger Rogers og Fred Astaire, þar sem þau dönsuðu af hjartans lyst fyrir áhorfendur. Það var i kringum 1930 sem þau dönsuðu saman fyrst, og enn stiga þau dansspor saman öllum til ánægju. Katherine Hepburn er ekki siður vinsæl en Ginger Rogers- Hún hefur meðal annars leikið i mörgum myndum með Spencer Tracy. 1 eitt af fyrstu skiptun- um, sem þau léku saman, hafði Hepburn orð á þvi, að hún myndi vera heldur í hærra lagi fyrir Tracy. Hann var nú ekki á þvi, að það myndi koma að sök. Voru það orð að sönnu, þvi aö þarna byrjaði vinátta þessara tveggja, sem hélzt til æviloka. En Spencer Tracy er látinn fyrir nokkrum árum. Margir muna sjálfsagt eftir Katherine Hepburn úr myndinni „The African Queen”, sem sýnd var i sjónvarpinu. Þar lék hún á móti llumphrey Bogart. „Stage door” greinir frá nokkrum ungum stúlkum, sem allar búa saman i bandariskri stórborg. Aðaltakmarkið hjá þeim er að verða sér úti um eftirsóknarverð hlutverk i leikhúsum borgarinnar. -EVI- Katherine Hepburn hefur yfir fjörutiu ára leikferil aö baki

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.