Vísir - 06.06.1974, Side 3
Vísir. Fimmtudagur 6. júni 1974
3
Loðna á dag
kemur
getunni í lag
Jæja, þá er loks komiö I ljós, hvað
Japanir eru að vilja með alla
þessa loðnu, sem þeir kaupa af
okkur. Gf til vill er lika skýringin
á fólksfjöldanum i Japan sú hin
sama. Þeir hafa sem sagt haft þá
trú um aldir, japönsku karlmenn-
irnir, að loðnuát auki kyngetu
þeirra til muna. Þetta litla fisk-
krili á að færa mönnum aftur
æskuglóö þeirra og getu. Þar I
landi er það þar af leiöandi talin
hrein ástarjátning, þegar kona
býður manni loðnu til átu.
Þetta kom fram á kynningu á
islenzkum vörum, sem haldin var
i Káupmannahöfn fyrir nokkru og
að sjálfsögðu vakti þetta feikilega
athygli danskra blaðamanna. Var
mikið skrifað um þessa upp-
götvun i dönsk blöð og jafnvel birt
forsiðumynd af loðnu i einu
þeirra. Engu var likara en loðnan
hefði nú bjargað framtið dönsku
þjóðarinnar.
Eftir þetta hafa margar fyrir-
spurnir borizt til Sölustofnunar
lagmetis og er engu likara en
Danir séu almennt uggandi um
kyngetu sina. Það skyldi þó aldrei
fara svo, að Danmörk yrði okkar
stærsta markaðsland fyrir loðnu?
Svo sakar heldur ekki, að loðnan
er mjög ljúffeng og hentug til fjöl-
breyttrar matreiðslu. Lesendum
okkar til nokkurs léttis skal þess
getið, að niðursoðin loðna fæst i
verzlunum hérlendis.
—JB—
Músíkin
stórkostleg
hjó honum
Jóni"
w
— segir Guðrún A.,
sem sést nú að nýju
á sviði Þjóðleikhússins
í Þrymskviðu.
„Fjalirnar i Þjóðleikhúsinu
hafa að mestu verið lausar við
mig siðan hérna um árið,
þegar ég söng I Brúðkaupi
Fígarós. Ég held, að þær hafi
alveg þolað það, og ég lika, þvl
mér hefur liðiö dásamlega
siðan, enda kann ég vel við að
syngja svona út um allt.
Ég veit, að ég á að vera i
glæsilegum kjól i Þrymskviðu,
og þá veit ég, að mér liður vel,
og þvi er ég ekkert farin að
hafa áhyggjur út af
frumsýningunni”.
Þetta sagði Guðrún Á. Sim-
onar söngkona, sem syngja
mun eitt aðalhlutverkið i verð-
launaóperu Jóns Asgeirs-
sonar, Þrymskviðu, sem
frumsýnd verður i Þjóðleik-
húsinu föstudaginn 14. júni nk.
er við spjölluðum við hana i
morgun.
„Þetta er mikil ópera hjá
honum Jóni og músikin i henni
stórkostleg. Efnið er
margþætt og ólikt þvi, sem er i
flesum öðrum óperum. Það
vill oft verða svo, að
söngvarnir eru keimllkir hver
öðrum I svona stórum
óperum, en ekki þessari.
Við söngvararnir erum
alltaf að gera kraftaverk á
stuttum tíma. Við höfum æft
nú I tæpar sex vikur og erum
við verða anzi góð, þótt ég segi
sjálf frá — enda erum við öll
góð.
Það eina, sem vantar i
verkið, eru kettir. Ég syng
hlutverk Freyju, en hún var
mikið fyrir ketti eins og ég, en
leiktjaldarmálarinn hefur
ekki haft þá með — ekki einu
sinni mynd eða styttu af þeim,
hann hefur sjálfsagt haldið,
að hann væri að gera mér
óleik með þvi” —klp
ÓLAFSFJARÐARKAUPSTAÐUR:
r
„Af ram með sjúkra-
hússbygginguna"
„Eitt af fyrstu verkefnunum,
sem þjóðhátiðarnefnd ólafs-
fjaröarkaupstaðar setti á
oddinn, var það að hrinda af
stað áframhaldandi fram-
kvæmdum við byggingu sjúkra-
húss og elliheimilis hér á
staðnum”, sagði Kristinn G.
Jóhannsson, skólastjóri gagn-
fræðaskólans á Ólafsfirði og for-
maður þjóðhátiðarnefndar,
þegar Visir leitaði upplýsinga
um þjóðhátiðarhald þar nyðra.
„Frágangi húsgrunnsins var
að mestu lokið, þegar fram-
kvæmdir stöðvuðust fyrir all-
nokkru siðan. Það var ráðizt i
byggingu sjúkrahúss og gagn-
fræðaskóla samtimis, sem
reynist vera of viðamikið verk-
efni I senn, og af þeim sökum
lagðist vinna við sjúkrahúsið
niður”. hélt Kristinn áfram.
„En nú er skólabyggingin risin
og þvi hægt að taka til við
sjúkrahúsið, þar sem frá var
horfið.
Þá má geta þess, að við Ólafs-
firðingar erum nýbúnir aö sam-
þykkja teikningu að skjaldar-
merki kaupstaðarins”, sagði
Kristinn. Hann hefur sjálfur
hannað platta, sem gefinn
verður út i 200 eintökum i tilefni
hátiðarhaldanna á Ólafsfirði 17.
júni. Hann teiknaði einnig
slikan þjóðhátiðarplatta fyrir
Eyfirðinga.
Þjóðhátiðarnefnd ólafs-
fjaðrarkaupstaðar hefur gert
annað átak i útgáfumálum, hún
hefur látið gera fyrsta ferða-
bæklinginn um Ólafsfjörð.
„Dagskrá þjóðhátiðarinnar er
ekki fullmótuð ennþá”, sagði
Kristinn. „Ýmislegt er þó i bi-
gerð og þá m.a. það að koma
upp byggðarsýningu, sem gæti
orðið fyrsti visirinn að byggða-
safni. Sýningin á að standa
mestan part sumars.Þá er Leik-
félag Ólafsfjarðar með sýningar
á „Skugga-Sveini” um þessar
mundir i tilefni þjóðhátiðar”.
Ennfremur má geta þess, að
Tóniistarfélagið á staðnum er
að æfa sérstakt söngprógram til
þjóðhátíðarnefnd
á Ólafsfirði
beitir sér fyrir
því, að haldið
verði áfram við
bygginguna
þar sem
frá var horfið
flutnings 17. júni. Hestamanna-
félagið, skátar og iþróttafélögin
eru einnig með sitthvaðá prjón-
unum, en fyrirhugað er að hafa
eitthvað til skemmtunar alla
þrjá dagana 15, 16. og 17. júni.
Að lokum gat Kristinn þess,
að unnið væri að þvi að fá frá
Listasafni A.S.Í. yfirlits-
sýningu, sem spannaði yfir
siðustu áratugi aftur til alda-
mótanna
—ÞJM
Guðrún A. Slmonar syngur hlutverk kattævinarins Freyju I óperunni Þrymskviðu, sem frumsýnd
verður IÞjóðleikhúsinu föstudaginn 14. júni. Hér er hún á æfingu ásamt Guðmundi Jónssyni, sem hefur
hlutverk Þórs, og Magnúsi Jónssyni I hlutverki Heimdalls. — Ljósm. Bj. Bj.
LÖGFRÆÐINGURINN
BÚINN AÐ FÁ NÓG
AF FISCHER SÍNUM
Lögfræðingur Bobby
FischerS/ heimsmeistara
í skák/ sá sami Paul
Marshall/ sem islending-
ar munu minnast frá
samningaþófinu í
kringum heimsmeistara-
einvígið hér i Reykjavik,
kvartar undan því, að
skjólstæðingur hans leiði
alveg hjá sér 3,2 milljón
dala skaðabótamál
Chester Fox.
Paul Marshall hefur þvi beðið
áfrýjunarrétt Manhattanrikis
um að leysa sig undan mál-
flutningsskyldum við umbjóð-
anda sinn. Segist hann hafa
fengið nóg af heims-
meistaranum.
Marshall lögmaður segir, að
Fischer hafi verið ósamvinnu-
þýður, óaðgengilegur og hunzi
málið algerlega, svo að ekki sé
unnt að flytja málið fyrir hann
eins vel og skyldi.
Menn hér heima minnast
þess, þegar Fischer þvertók
fyrir að sjónvarpstökuvélar
væru hafðar i gangi I Laugar-
dalshöll, meðan hann tefldi ein-
vigisskákirnar við Spassky.
Shester Fox, sem keypt hafði
sjónvarpsréttinn, bar af skapa,
þvi að hann hafði lagt i nokkurn
kostnað til þess að geta gert
sjónvarpsmynd um einvigið.
Chester Fox höfðaði síðan
skaðabótamál á hendur Fischer
i október 1972, þar sem hann
sakaði Fischer um samnings-
rof. Krafðist hann 3,2 milljón
dala bóta.
Varanlegur
vegur
fró
Selfossi
að
Skeiða-
vegamótum
„Við erum að leita eft-
ir tilboðum i áframhald-
andi framkvæmdir við
Suðurlandsveg. Þ»etta
sem nú er boðið út, er
um 14 km kafli frá Sel-
fossi um Flóa og austur
að Skeiðavegamótum”
Þetta sagði Sigurður Jó-
hannsson vegamála
stjóri um væntanlegai
hraðbrautarfram-
kvæmdir á Suðurlandi i
sumar.
„Þessi vegaspotti var á vega
áætlun 1974 og við ætium að fram
kvæmdir hefjist seinast i júli og
verði lokið haustið 1975. Þettf
verður sams konar vegur og sá
sem liggur að Selfossi þ.e. mei
oliumöl. Gamla vegastæðini
verður i stórum dráttum fylgt ai
Skeggjastöðum, en þar verðu
rétt úr veginum.
Það er kannski ekki rétl að ver:
að gefa upp nákvæmar áætlani
um kostnað, áður en tilboð hafi
borizt. En þetta er verk upp á all
að 200 milljónum króna.
Það er erfitt að segja nákvæm
lega fyrir um næstu stórfram
kvæmdir okkar, þar sem alþing
lauk ekki endurskoðun vegaáætl
unar fyrir árið i ár og það næsta
Þingið hefur ekki heldur lokii
gerð vegaáætlunar fyrir árin 197(
og ’77.
Við höldum þó áfram mei
Vesturlandsveginn, og i sumai
verða einnig hraðbrautafram
kvæmdir i kringum Lónsbrú vii
Akureyri, en varaniegt slitlag
verður sennilega ekki lagt fyrr er
næsta sumar.
Um framkvæmdir Sverris
Runólfssonar höfum við ekkert
frétt nýverið. Hann fékk að velja
úr þrem vegaköflum á Kjalar-
nesinu og fékk vilyrði fyrir þeim
spotta, sem hann'valdi. Hins veg
ar hefur hann ekki enn skilai
verklýsingu og við höfum ekki út
hlutað honum verkinu ennþá”
—JE