Vísir - 06.06.1974, Blaðsíða 4
4
Vísir. Fimmtudagur 6. júní 1974
RBBBflMrNDIR
'TáiCÓÚM&l Ö mín-f
■c ökjUjskíripsinL ~ ntzfri.skJ/tieuiL
oeýcz&r^3/c~ skóCezAJkí'iíavti *./>■
f lAlMATORVERZ IjUNINí
SlMI 22718] LAUCAVEGI C
Blaðburðarbörn
í Voga
VISIR
®í=H86611
« BÍLLItSN (!|í
»5 V 8U..A5AIA \
Ilverfisgotu II
Sími 14411.
mL
Chevrolet Nova ’70.
Mustang Macki ’70.
Volkswagen 1300 ’72.
Volvo 144 '70 og ’68.
Fiat 850 ’72.
Datsun 1200 ’72.
Opið á kvöidin kl. 6-10.
Laugardag kl. 10-4.
Aðalfundur
Aðalfundur félags landeigenda i Selási
verður haldinn i dag, fimmtudag 6. júni,
ki. 20, að Freyjugötu 27. Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál.
Stjórnin.
I VELJUM ISLENZKT
m
fSLENZKAN IÐNAÐ
Þakventlar
Kjöljárn
Kantjárn
ÞAKRENNUR
J. B. PÉTURSSON SF.
ÆGISGOTU 4-7 <3*5 13125,13126
Pyrstur meó
fréttimar
vism
AP/INITB
ÚTLÖND I MORGUN UTLÖND Í MOF
Yfir Kyrrahaf
Hér við hliðina sést nákvæm
eftirliking af 2000 ára gamalli
kínverskri djúnku, sem getið er
i kinverskum þjóðsögum og bar
nafnið „Tai Ki”. — Þegar
myndin var tekin, beið hún
byrjar i höfninni i Hong Kong,
en nokkrir ævintýramenn ætla
að sigia henni til
Suður-Ameriku. Þeir ætla sér 6
mánuði til siglingarinnar.
Kólero í
Portúgal
Heilbrigðisyfirvöld i Portúgal
skýrðu frá þvi i morgun, að i
siðasta mánuði hefði orðið vart
við 41 kóleru-tilfelli i Portugal.
Hefur 72 ára maður orðið veikinni
að bráð.
Yfirvöldin hafa bannað alla
veiði og sund i þremur litlum ám,
sem renna út i sjó á Algrave-
ströndinni i suðurhluta landsins.
Fimm tilvika hefur orðið vart á
þessum slóðum, 26 i Lissabon og
10 i u.þ.b. 260 km norður af höfuð-
borginni.
Marijuana
á 300 milljónir
Tollgæzla Bandarikjanna náði i
gær i mesta magn af m-arijuana á
landamærum Bandarikjanna og
Mexikó, sem nokkru sinni hefur
fundizt þar. Alls voru 12.200 pund
af fiknilyfinu gerð upptæk við Rio
Grande fljótið i Suður-Texas.
Söluverðmæti þessa magns á
strætum úti er talið vera 3.38
milljónir dollara eða rúmar 300
milljónir isl. króna. Fiknilyfinu
hafði verið komið fýrir i 186
sekkjum. Fundust sumir þeirra i
flutningabil, en aðrir höfðu verið
faldir i bakka Rio Grande
fljótsins.
Gamlar stríðskempur
á fornri vfgaslóð
Þrjátíu ár liðin frá innrásinni í Normandí
Þrjátiu árum eftir „lengsta bandamanna gerðu innrásina 6.
dag” þeirra llfs sneri hópur fyrr- júní 1944. En við þann atburð
verandi hermanna aftur til þóttu mörkuð timamót þess, að
stranda Normandi, þar sem herir heijartak Hitlers á Evrópu var
____________ losað.
Peron rœðst á
vinstri menn
Juan D. Peron, forseti
Argentínu, berst nú harkalega
með aðstoð lögreglu sinnar og
hcrs við vinstri öflin I Argentinu.
Skiptir það forsetann greinilega
engu, þótt þeir, sem studdu
endurkomu hans I forsetastólinn,
séu illa leiknir og sviptir frclsi.
Ný ofsóknaralda hófst i kjölfar
1. mai hátiðahaldanna, þegar
ágreiningurinn milli Perons og
vinstri arms breiðfylkingar hans
varð opinber. Siðustu daga hefur
lögreglan einkum beint athygli
sinni að blöðum og timaritum
vinstri sinna.
1 gær var útgáfa vikublaðsins
De Frente bönnuð og átta starfs-
menn þess handteknir. Margir
töldu blað þetta tengiliðinn milli
róttæka vinstri armsins i Peron-
istahreyfingunni og skæruliða
hreyfingarinnar, sem hefur verið
bönnuð. A þriðjudag var útgáfa
vikublaðsins E1 Peronista
bönnuð. Það kom út á vegum
250.000 manna æskulýðsfylkingar
Peronista-hreyfingarinnar.
Fyrir hermannahópnum, sem
nú heimsækir þessar fyrri viga-
slóðir, fer bandariski hershöfð-
inginn Omar Bradley, sem nú er
orðinn 81 árs að aldri. — Hann var
með i hópi þeirra, sem brutust
upp fjöruna og klettana i
Normandi i gegnum varnargirð-
ingar nasista.
Alls voru þar 130 þús. hermenn,
sem tóku þátt i landgöngunni, 13
þús. flugvélar, 8 orrustuskip, 115
herskip, 360 tundurskeytabátar
og 450fleytur af ýmsu tagi. — Það
voru mestmegnis brezkir, kana-
diskir og bandariskir hermenn,
sem tóku þátt i þessari hernaðar-
aðgerð.
Um innrásina hefur verið skrif-
uð bók og eftir henni gerð sam-
nefnd kvikmynd: „Lengstur dag-
ur”.
Sendiherra
Svía í USA
Siðasta skrefið til þess að sættir
kæmust á milli Sviþjóðar og
Bandarikjanna var stigið i gær,
þegar nýskipaður sendiherra
Svia i Bandarikjunum, Wilhelm
Wachtmeister, afhenti Nixon
forseta trúnaðarbréf sitt. — Aður
hafði sendiherra Bandarikja-
manna afhent trúnaðarbréf sitt i
Stokkhólmi.
Lenín undir
tjaldi
Tjald hefur verið breytt yfir
grafhýsi Leníns á Rauða torginu
i Moskvu. Er verið að
framkvæma nauðsynlegt
viðhald á þessum helgasta stað
sovézkra kommúnista. Raunar
er allt Rauða torgið lokaö vegna
þess, að þar er verið að skipta
um jarðveg og leggja nýjar
götuhellur. Framkvæmdunum á
að verða lokið i nóvember.