Vísir - 06.06.1974, Side 8

Vísir - 06.06.1974, Side 8
8 Visir. Fimmtudagur 6. júni 1974 Geir R. Andersen: íslenzko verðbólguöngþveitið Efnahagsundur í neikvœðum skilningi undir vinstri óstjórn Viðmiöun vinstri stjórnarinnar. Það.er kaldhæðni forlaganna, að vinstri óstjórnin islenzka, „stjórn hinna vinnandi stétta”, sem hvað mest hefur fordæmt stjórnskipulag Grikkja og Portú- gala, skulihafa tekið mið af verð- lagsþróun þessara tveggja rikja og vera i öðru sæti, á eftir Grikk- landi, hvað verðbólgu snertir, en Portúgal, hin fyrirmyndin að is- lenzkri verðlagsþróun, er i þriðja sæti. Island með vinstri stjórn að völdum er þvi eitt þeirra þriggja rikja af hinum 24 aðildarrikjum Efnahags- og framfarastofnunar Sameinuðu þjóðanna, OECD, sem kemst i 30% verðbólguskalann, ásamt fyrirmyndum i^lenzkra efnahagsmála, Grikklandi og Portúgal, (Grikkland með 33,4% verðbólgu, ísland með 32% og Portúgal með 30%). Væntanlega fer að komast á nánari samvinna milli þessara þriggja rikisstjórna, varðandi efnahagsmál en hingað til hefur verið, og er ekki seinna vænna, áður en kveðjustund þessarar vinstri stjórnar hér á landi rennur upp. Meðalaukning verðbólgu i öðr- um vestrænum löndum á siðasta fjárhagsári Efnahagsstofnunar- innar, sem lauk 31. marz sl. var 12%, og meðalaukning verðbólgu i OECD-löndunum á 10 ára tima- bilinu 1961—1971 var 4%. Næsta tiu ára timabil mun ekki sýna eins lága meðalaukningu verð- bólgu, og ekki sizt fyrir þátt hinnar einstæðu óstjórnar núver- andi vinstri stjórnar á Islandi, þótt ekki hafi setið nema tæp þrjú ár. „Launajafnréttið" fagnaðarerindið falska. Það mál, sem allir stjórnmála- flokkar á tslandi hafa haft á stefnuskrá sinni og boðað eins og „fagnaðarerindið”, er að „launa jafnrétti verið aukið” launamis- munureigi að hverfa, og sé þetta sú stefna, sem miði að allsherjar velgengni i þjóðfélaginu. Þetta er þó eitt hið falskasta fagiiaðarerindi, sem nokkru sinni hefur verið boðað, og er i raun stórkostiegt ábyrgðarleysi og gengur i berhögg við eðlilega þjóðfélagsþróun. Þetta vita allir, sem vilja vita, ekki sizt stjórn- málaleiötogar hinna vinstri öfga- afla hér á landi. En þetta faiska fagnaðarerindi vinstri flokkanna gegnum árin er ein helzta orsök fyrir þvi, hve langt islenzkt efnahagslif og verðlags- og kaupgjaidsmál hafa sokkið á undanförnum ár- um og eru nú komin á það stig, að á öllum sviðum blasir við gjald- þrot og stöðnun. Allir aðal-at- samninga við þær stéttir, sem eru i hærri launaflokkum og eiga ekkert skylt við stéttir verkalýðs- samtakanna. Launajafnrétti og barátta fyrir afnámi launsmismunar eru i sannleika fjarstæðu- kennd hugtök og alls- fridaga, kaffihléa og annarra lög- skipaðra frávika frá samfelldri vinnutilhögun. Hvað skyldi t.d. kosta stórt iðnaðarfyrirtæki að þurfa að stöðva alla vinnslu, stöðva allar vélar tvisvar á dag vegna kaffihléa? Það er auðvitað umdeilanlegt, Caetano 30 % Papadopolus 33,4 % Ólafur 32 % EVRÓPUMETHAFAKNIR vinnuvegirnir eru reknir með stórkostlegu tapi, svo og flestar aðrar greinar atvinnulifsins, og rikissjóður stendur uppi nær gjaldþrota, vegna visvitandi eyðileggingarstarfsemi verka- lýðsfélaga, sem eru studd af for- sprökkum hinna ýmsu vinstri flokka i landinu. En hvar eru heilindin i „launa- jafnréttisbaráttunni”, þegar á hólminn er komið? Þá er fagnaðarerindið gleymt. Sérhvert stéttarfélag, hvort sem um opin- bera starfsmenn er að ræða eða aðildarfélög innan ASl, hefur otað sinum tota og reynt að knýja fram sem hæstar kjarabætur, en yfirlýst, opinber stefna um að hinir lægst launuðu fengju sem mestar úrbætur, látin lönd og leið og oftast farin sú leið að láta semja við þá lægst launuðu fyrst, til þess að taka mið af, vegna sér- endis útilokað, að nokkru sinni verði hægt að fylgja þessu tvennu fram til sigurs. Og ástæða er til að óska að svo verði enda aldrei i raun, þvi slikt leiðir einungis til stöðnunar á framförum og þroska hvers þjóðfélags. En hér á landi er þessum mál- um dálitið öfugt farið, miðað við önnur nálæg lönd, með heilbrigðu efnahagslifi og eðlilegri verðlags- þróun. Hérlendis er miklum mun minna tillit tekið til staðgóðrar undirstöðumenntunar og sér- menntunar á hinum ýmsu svið- um en eðlilegt og æskilegt er. Þetta gerir það að verkum, að óeðlilegt misræmi verður i at- vinnulífinu öllu, framkvæmdir og framleiðsla verður óhóflega dýr, og verður loks ósamkeppnishæf á sölumarkaði vegna óeðlilega hárra vinnulauna, of stuttrar vinnuviku, of margra lögskipaðra hve há laun hver og ein stétt á að hafa, eða hversu hátt skal meta skerf hvers starfshóps af þjóðar- framleiðslunni. En hvað sem þvi liður er það t.d. óeðlileg þróun, að einstaklingar, starfshópar og stéttir, sem með sérþekkingu sinni stuðla að skipulagi fram- kvæmda, framleiðslu, rannsókna, o.s.frv. og eru ábyrgir fyrir slik- um störfum, hafi i mörgum til- felli'm iægri laun en þeir sem gegn almennum störfum, sem ekki krefjast sérhæfni eða mennt- unar, en þetta er altitt hérlendis. Fáránleg verðlagning. Viðmiðun. Segja má, að málum sé þannig komið nú i allflestum greinum is- lenzkrar framleiðslu og þjónustu, að hvergi megi þar til koma mannshönd, sem vinnur með inn- í BILAVARA- HLUTIR NOTAÐIR VARAHLUTIR í FLESTAR GERÐIR ELDRI BÍLÁ T.d. vélar, girkassar, drif i Benz ’59-’64, Opel ’62-’66, Moskvitch ’59-’69, Vauxhall Viva, Vauxhall Victor, og flest annað i eldri teg. bila, t.d. hurðir og boddihlutir i miklu úrvali. BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10, simi 11397. Opið frá kl. 9-7 alla virka daga og 9-5 laugardaga. Viljum ráða nokkra útvarpsvirkja og simvirkja. Nöfn og heimilisföng sendist auglýsingadeild blaðsins merkt „Verkstæði”. Nýinnfluttir amerískir bílar: CHEVROLET NOVA HATCBACK 2ja dyra árg. 1973. CHEVROLET MONTE CARLO LANDAU 2ja dyra árg. 1973. CHEVROLET MALIBU 4ra dyra árgerð 1973. OLDSMOBILE OMEGA CUSTOM 2ja dyra árgerð 1973. DODGE CHARGER CUSTOM 2ja dyra árgerð 1972. CHEVROLET BLAZER árgerð 1970. Bifreiðarnar eru til afgreiðslu strax. Upplýsingar i sima 83454 eftir kl. 4 i dag og næstu daga. lendu handafli eða verkfærum, án þess að viðkomandi vörutegund eða þjónusta margfaldist svo i verðlagi, að hún sé óframbærileg til sölu á venjulegum markaði. A þetta og við á nærri öllum sviðum viðskiptalifsins hér á landi. Hvar erum við Islendingar staddir, t.d. á sviði innkaupa til heimilishalds miðað við aðrar þjóðir? Jafnvel innlendar mat- vælategundir eru seldar á svo óheyrilega háu verði, að flestir sneiða hjá þeim, ef þess er nokkur kostur. Ekki er hægt að kenna há- um tollum um hið háa verðlag þeirra vörutegunda. Siðasta bragð rikisstjórnarinnar um verðlækkun á hluta af landb.- afurðum breytir þar engu um, enda mun almenningur fá að greiða þessar niðurgreiðslur rif- lega á sinum tima, og mun það koma i ljós, að stuttum tima liðn- um. En það er annars merkilegt, hvað flokkast undir landbúnaðar- afurðir. Hér eru það einungis vissar tegundir landbúnaðar- afurða, sem undir þær flokkast, a.m.k. þegar um lækkun á verði er að ræða, eins og nú kemur glöggt fram. Eina tegund kjöts er kindakjötið, allt annað kjöt virðist flokkast undir „lúxusvör- ur”, svo sem kjúklingar, kálfa- og nautakjöt og svinakjöt, einnig allur innmatur, svo sem lifur, hjörtu, nýru, o.þ.h. Eða eggin flokkast þau ekki lengur undir landbúnaðarvörur? Nei, þessi siðasta kosningabrella vinstri stjórnarinnar er eins óraunhæf og hún er ósvifin, sem sé gerð með það fyrir augum að slá ryki i augu þeirra, sem hún metur einskis, allan almenning, neyt- endur i landinu. Sömu sögu er að segja varð- andi verð á fatnaði, sem fram- leiddur er hérlendis, tvisvar til þrisvar sinnum dýrari en annars staðar þekkist. Orsakirnar fyrir hinum geysiháu verðum eru allar af innlendum toga, hið dýra vinnuafl er orsökin, hvernig sem reynt er að blekkja fólk af stjórn- völdum og hinum launuðu tals- mönnum þeirra, um að „verð- hækkanir séu svo miklar er- lendis.” Auðvitað eiga þær sér stað, en þær eru ekki nema brot af þvi, sem kauphækkanir hérlendis valda. Dæmin um utanlands- ferðir fólks til kaupa á algengum nauðsynjavörum. sannar þetta bezt. Siðan núverandi rikisstjórn komst til valda hefur þó fyrst keyrt' um þverbak i verðlagsmál- um, og verðbólguöngþveitið er slikt, að þrátt fyrir valdagræðgi núverandi ráðherra og löngun þeirra til þess að sitja áfram að völdum, er þeim nú efst i huga, hvernig þeir geti komizt hjá þvi að gera nokkrar ráðstafanir, en láta allan vanda óhreyfðan, bar til nýir menn muni um fjalla, og gera úttekt á þeim ólýsanlegu erfiðleikum, sem við erum nú stödd i á sviði efnahagsmála. Núverandi rikisstjórn hefur ekki látið sitt eftir liggja til þess að auka vandræðin i verðlags- þróun. Hún hefur framar öllum öðrum hérlendum rikisstjórnum aukið svo við rikisbáknið, að þar er nú raðað á hvern auðan bás, aðstoðarmenn eða handlangarar eru ýmist kallaðir aðstoðarráð- herrar eða ráðgjafar, sem eiga að bæta upp þekkingarskort reynslulausra ráðherra. Framkvæmdastofnun rikisins er enn eitt dæmið um hið fá- heyrða bruðl vinstri stjórnarinn- ar. Allt eykur þetta yfirbyggingu hins opinbera og þjakar efna- hagslifið og allan almenning með auknum álögum, þvi auðvitað verður að sækja greiðslur til al- mennings. Það mætti með fullri sanngirni taka undir með ritstjóra Timans, sem endaði einn leiðarann, ekki alls fyrir löngu á þessari setningu: „Er ekki mælirinn fullur og timi til breytinga runninn upp?”

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.