Vísir - 14.06.1974, Qupperneq 1
64. árg. — Föstudagur 14. iúnl 1974. —98. tbl.
Rússar reka
stuðnings-
menn
Allende
— Sjá bls. 5
Þingmenn í
slagsmálum
í tyrkneska
þinginu
— Sjá bls. 5
Rússar og
Norðmenn fara
af umdeildum
loðnumiðum
við Kanada
— Sjá bls. 5
■ ■■
o
„Leyni-
vopn"
borgar-
stjórnar
m mm • w t
17. jum
Sjá baksíðufrétt
„Ég hef tapað 400 þúsund
1 krónum á þvi, að dregizt hef-
ur i 3 mánuði að borga fbúða-
kaupendum seinni hluta hús-
næðismálastjórnarlána”
segir Arni Vigfússon
byggingameistari, einn
hinna fjölmörgu, sem hafa
orðið illa úti I þvf máli.
„Fyrst dróst að borga út
fyrri hlutann í 5 mánuði og
siðan eru liðnir 9.”
Sjálfstœðis-
flokkur,
Fram-
sóknarflokkur
og Samtökin
áfram með
samstarf
íKópavogi
Samkomulag tókst i nótt
með I-lista og Sjálfstæðis-
flokki I Kópavogi að halda
áfram samstarfi sinu um
meirihluta bæjarstjórnar.
Þetta verður formlega til-
kynnt á fundi bæjarstjórnar i
dag.
I-listinn er samsteypulisti
Framsóknarflokks og Sam-
taka frjálslyndra og vinstri
manna.
Fulltrúaráö allra flokk-
anna sátu á fundum i
gærkvöldi, en ákvöröunin
var tekin i nótt.
Sjálfstæöisflokkur haföi
lýst sig reiöubúinn til sam-
starfs viö I-listann um
bæjarstjórnarmeirihluta.
Sama tilboö kom frá
Alþýðubandalaginu i Kópa-
vogi, að hafa samstarf viö
I-listann. En þvi samstarfi
hefur semsagt verið hafnað.
— ÓH
„Rannsóknarlögreglan sér
um fyrsta stig málsins"
„Forstjóraskýrsla"
Álafoss reyndist
fölsuð
„Hafsteinn Baldvinsson, lög-
fræöingur Alafoss, talaði við mig i
gær og sagði, að krafizt yrði saka-
dómsrannsóknar i þessu máli.
Formleg beiðni er ekki komin, en
ég á von á henni hvað úr hverju”.
Þetta sagöi Einar Ingimundar-
son, sýslumaöur i Kjósarsýslu, i
viðtali við Visi i morgun.
Vegna fréttar i Visi i gær, þar
sem vitnað var i skýrslu forstjóra
Álafoss, hefur Pétur Eiriksson
forstjóri sent út tilkynningu þar
sem hann segir, að skýrslan hafi
ekki verið samin af honum né
nokkrum öðrum starfsmanni
fyrirtækisins. Segir hann, að ekki
verði annað séð en skýrslan hafi
verið samin i þeim tilgangi aö
skaða fyrirtækiö og hann per-
sónulega.
Blaðið spurði Einar hvernig
rannsókninni yrði háttað.
„Fyrst verður reynt að hafa
upp á þvi, hver hafi gert þetta, ef
sannast að skýrslan sé ekki
kominfrá forstjóranum eða fyrir-
tækinu. Rannsóknarlögreglan
mun þvi sjá um fyrsta stig
málsins.”
Einar sagði það ekki ákveöið
hvort rannsókn málsins hæfist i
dag eða eftir helgi, þar sem form-
lega kæra hefði ekki borizt.
Málið mun vafalaust siðar
beinast að þvi að rannsaka, á
hvaða ritvél „skýrslan” hafi ver-
ið rituð.
Plaggið, sem barst Visi, bar
yfirskriftina „Skýrsla um rekstur
Alafoss h.f. árið 1973”. Upphafs-
stafirnir P.E./A.G. voru efst i
horninu. „Skýrslan” er fjölrituð,
upp á þrjár siöur, og fjallar um
heildarrekstur Álafoss i fyrra.
Aftast i skýrslunni stendur
„Gjört i mai 1974, forstjóri”.
Fyrir ofan „forstjóri” er lina til
að skrifa nafn, en á þessu
fjölritaöa eintaki er engin undir-
skrift. Siðan stendur að fjölritað
afrit sé sent „öllum viðkomandi
og umboðsmönnum”. Blaðinu
barst .„skýrslan” i pósti.
-ÓH
Þrymur í
mann-
heimum?
Það er ekki á hverjum degi
sem við fáum að sjá Þrym i
fullum skrúða, enda ekki oft
sem við komumst i hans
vistarverur.
A sviði Þjóöleikhússins hafa
staðið yfir æfingar á Þryms-
kviðu eftir Jón Ásgeirsson og
eins og sjá má, fer Jón Sigur-
björnsson með hlutverk
Þryms i ópcrunni.
t kvöid er svo frumsýningin.
A hana er uppselt og sala á
aðrar sýningar á óperunni
hefur gengið mjög vel.— EVI
SLUPPU MEÐ
SKREKKINN
Heimsmeistarar Braziliu
sluppu með skrekkinn I fyrsta
leiknum á HM I gær við Júgó-
slaviu. Jafntefli varð 0-0 og það
er i þriðja sinn i röð I fyrsta leik
HM, sem ekki er skoraö mark,
Júgóslavar voru óheppnir að
vinna ekki — „við þurfum tfma
til aö venjast aðstæöunum á
blautum völlum”, sagði þjálfari
Braziliu eftir leikinn. Myndina
fengum við simsenda frá AP i
morgun. Hún cr af einni af
mörgum sóknarlotum Júgó-
slava. Katalinski skallar yfir —
en aðrir á myndinni eru frá
vinstri Surjak, Marinho,
Bogicevio og Peirreira. Fréttir
frá IIM eru á iþróttaopnunni.