Vísir - 14.06.1974, Page 5
Visir. Föstudagur 14. júni 1974
5
UN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón: BB/GP
Frá æfingum á knatt-
spyrnuvellinum í Frank-
furt, þar sem heims-
meistarakeppnin í knatt-
spyrnu fer fram. Æfingin
fór fram undir strangri
lögregluvernd eins og allir
leikir keppninnar.
I
okkar mól!
— Podgorny forseti
varar Vesturlönd við, ef
þau vilja, að friðarvið
rœðurnar beri árangur, mega þau ekki gagnrýna kjör Sovétborgara
innanrikismál Sovét-
rikjanna, ef þau vilji ná
einhverjum árangri við
samningaborðið.
Nikolai Podgorny, for-
seti Ráðstjórnarrikj-
anna, lýsti þvi yfir i gær,
að Vesturlönd verði að
hætta að blanda sér i
t sömu andránni fagnaði Pod-
gorny væntanlegum viðræðum
Leonids Breznevs og Nixons
Bandarikjaforseta, sem eiga að
hefjast 27. júni. Lét hann i ljós
vonir um, að þær mættu þjóna
„tilgangi friðar og alþjóðlegs
öryggis”.
Fagnaðarlætin voru mikn, pegar Nixon og Sadat óku um götur Kairó.
Talið er, að tvær milljónir manna hafi verið á götum úti.
Aldrei séð eins
margt fólk fyrr
— segir Nixon í Alexandríu
— Við héldum eftir hinar stór-
kostlegu móttökur i Kairó, að viö
mundum aldrei sjá fleira fólk á
ævi okkar. En ég man, að þú
sagðir við mig, að ég skyldi biða
þar til við kæmum til Alexandriu.
Þú hafðir rétt fyrir þér.
Þannig komst Richard Nixon
Bandarikjaforseti að orði i
þakkarræðu sinni til Anwars
Sadat Egyptalandsforseta i
gærkvöldi. 1 dagheldur Nixon i
sjöunda himni yfir móttökunum,
frá Egyptalandi til Saudi-Arabiu.
Fyrst ætlar hann að skoða pýra-
midana.
Nixon sagði i ræðu sinni, að
Sadat forseti mundi koma til
Bandarikjanna i opinbera
heimsókn fyrir lok þessa árs.
Gifurlegur mannfjöldi hefur
fagnað Nixon alls staðar, þar sem
hann hefur farið um Egyptaland.
Talið er, að tvær milljónir manna
hafi tekið á móti honum i Kairó á
miðvikudag. Hins vegar er
áætlað, að þrjár milljónir hafi
verið við járnbrautarteinana frá
Kairó til Alexandriu i gærdag,
þegar forsetarnir fóru þar um i
opnum vagni.
Lítill vilji orðinn til að
sameina N- og S-írland
i fyrsta sinn i sögu írska lýð-
veldisins hefur forsætisráöherra
þess efazt um gildi hugsjónarinn-
ar um sameinað irland. Liam
Cosgrave, forsætisráðherra trska
lýðveldisins, sagði i gær i harð-
orðri árás á irska lýðveldisher-
inn, að með skæruhernaði sinum
dræpi hann niður óskirnar i lýð-
veldinu um að sameinast norður-
hluta eyjunnar.
Á fundi i flokki sinum sagði for-
sætisráðherrann, að ibúar lýð-
veldisins létu æ oftar i ljós það
álit, að þeir hefðu eriga ástæðu til
að auka tengslin við Norður-tr-
land, þar sem allt væri i kalda
koli vegna óeirða og deilna. En
trski lýðveldisherinn stuðlaði ein-
mitt að sliku ástandi.
Allt frá þvi, að héruðin sex, sem
mynda Norður-trland, voru sett
undir brezka stjórn, hefur sú
krafa verið sett fram af trska lýð-
veldinu, að stjórnvöld þess réðu
allri eyjunni.
Norður-Irland er ekki nema
13.600ferkilómetrar að stærð, eða
aðeins stærra en Norðurlands-
kjördæmi vestra hér á landi. Þar
býr ein og hálf milljón manna.
FARA AF LOÐNUMIÐUM
Rússar og Norðmenn hafa hætt
að veiða loðnu á umdeildu haf-
svæði við Nýfundnaland. Yfir-
lýsing um þetta var gefin af
löndunum tveimur og Kanada á
fundi Norðvestur-Atlantshafs-
fiskveiðinefndarinnar, sem nú er
haldinn i Kanada. Þórður As-
geirsson, skrifstofustjóri I sjávar-
útvegsráðuneytinu, og Jón Jónsr
son fiskifræðingur sitja fundinn
fyrir tslands hönd.
t siðustu viku hvatti Jack
Davis, kanadiski sjávarútvegs-
ráöherrann, til þess, að bæði rikin
hættu að veiða loðnu við tólf
milna fiskveiðilögsöguna utan við
Avalonskaga. Davis sagði, að
mikil vandamál hefðu skapazt
„vegna þess að erlendir flotar
safnast saman á litlu svæði mjög
nálægt ströndinni og veiða hættu-
lega mikið af stofni, sem hefur
mikið að segja fyrir aðþrengda
strandfiskimenn okkar Kanada-
manna.”
Hallstiel Rasmussen, formaður
norsku sendinefndarinnar, sagði,
að norski flotinn hefði farið af
miðunum, áður en Davis bað
hann um að fara. Hann sagði, að
norskt verksmiðjuskip og sex
fiskiskip hefðu yfirgefið svæðið,
af þvi að aflinn hefði ekki verið
mikill.
Alex Volkov, talsmaður
sovézku sendinefndarinnar, sagði
i gær, að sovézku skipin hefðu
farið af svæðinu fyrir tveimur
dögum. Hann sagði, að þetta hefði
verið ákveðið „i kurteisisskyni”
við Kanada.
Siðar I þessum mánuði mun Nixon hitta Podgorny, forseta Sovét-
rikjanna. Hann hefur varað Vesturlönd við afskiptum af sovézkum
innanrlkismálum.
En viðvörun Podgornys um að
Vesturlönd blandi sér ekki i
einkamál Rússa er talið vera
beint til Bandarikjaþings, sem
hefur fellt tillögur um að veita
Sovétrikjunum undanþágur á
tollum og skatti i millirikja-
verzlun þessara tveggja landa,
eða gefa þeim gjaldfrest. Allt
vegna tálmana, sem sovézka rik-
ið hefur lagt á landflutninga
sovézkra Gyðinga.
Ræða Podgornys var næstsið-
asta talan, sem flutt var i Bolshoi-
leikhúsinu af leiðtogum flokksins,
áður en Sovétborgarar ganga til
kosninga núna á sunnudaginn. —
Siðustu ræðuna flytur æðsti mað-
ur flokksins, Leonid Brezhnev.
Þingmenn berjast með hnefum
Þingmenn á tyrkneska þinginu
lentu i hörkuslagsmálum i
gær.þegar Mustafa Ustundag
menntamálaráðherra var gagn-
rýndur fyrir að ráða kommúnista
i kennarastöður. Að minnsta kosti
sjö þingmenn særðust. Ibrahim
Tekin, fyrrum tollmálaráðherra,
var með blæðandi höfuðsár.
Þingmönnum hægri sinnaða
Lýðræðisflokksins, sem er i
stjóhnarandstöðu, og vinstri
sinnuðu Lýðveldissinnuðu
alþýðufylkingarinnar, sem er
stærsti stjórnarflokkurinn, lenti
saman. Þingmenn stigu upp á
borð sin og köstuðu skjölum i and-
stæðinga sina. Einnig skiptust
menn á hnefahöggum. Þegar
viðskiptin i þinginu höfðu farið
þannig fram i hálftima, var fundi
slitið
Um það bil 20 þingmenn tóku
þátt i áflogunum. Áhorfenda-
pallar voru þéttsetnir áhugasöm-
um áhorfendum. Þingfundum var
frestað fram til þriðjudags, svo
að þingmenn gætu jafnað sig. v
Bulent Ecevit, forsætisráð-
herra úr Lýðveldissinnuðu
alþýðufylkingunni, hefur gefið til
kynna að hann muni segja af sér,
ef meirihl. þingsins telji að ávita
beri menntamálaráðherrann
fyrir embættisfærslu sina.
Ekki blanda ykkur
Reka Chile-stúdenta
á brott frá Moskvu
Sovézk yfirvöld hafa I kyrrþey
rekið fjölmarga námsmenn frá
Chile, sem áður studdu Salvador
Allende, úr landi i Sovétríkjun-
um.
Þetta er haft eftir vestrænum
stjórnarerindrekum i Moskvu i
morgun. Þeir sögðu, að margir
vinstri sinnaðir stúdentar frá
Chile hefðu verið sviptir styrkj-
um, fengið fyrirmæli um að yfir-
gefa stúdentagarða og látnir hafa
flugmiða til Santiago.
Ekki var greint frá þvi, hve
margir hefðu fengið þessa
meöferð. Hins vegar er ljóst, að
flestirhinna brottreknu vilja ekki
fara aftur til Chile. Þeir hafa
snúið sér til vestrænna sendiráða
i Moskvu og beðið um skólavist i
háskólum á Vesturlöndum.
Stjórnarerindrekarnir sögðu að
sovézk yfirvöld vildu greinilega
losna við vinstri-sósialistana, þvi
að þeir væru róttækari en
kommúnistarnir frá Chile.
— Þeir hafa ekki áhuga á neinum
stúdent frá Chile nema hann sé
kommúnisti, nú þegar Allende er
fallinn, sagði einn stjórnar-
erindrekinn.
Allende, forseti Chile. Nú ff
stuðningsmenn hans ekki lengui
að dveljast I Sovétrlkjunum.