Vísir - 14.06.1974, Blaðsíða 16
o
vism
Föstudagur 14. iúni 1974
Verðbólgan
yffir 44%
síðustu 12
mánuðina
„Metin fjúka”. Veröbólgan
var yfir 44 prósent siðustu tólf
múnuðina.
Vísitala framfærsiukostnað-
ar hækkaði um 44,2 prósent frá
1. mai í fyrra til 1. maf i ár.
Visitala neyzluvöruverölags
hækkaöi um 42,4 prósent á
sama tima, og byggingar-
kostnaður um 40,5 prósent.
Þessar upplýsingar koma
fram I júnfhefti Ilagtala mán-
aöarins, sem Seðlabankinn
gefur út.
Bílstjórar
á Hellis-
sandi í
deilum
við Vega-
gerðina
i kringum Hellissand standa nú
fyrir dyrum nokkrar vegafrpm-
kvæmdir. Vegagerðin setti það
skilyrði við þessar fyrirhuguðu
framkvæmdir, að eingöngu yrðu
ráðnir vörubilstjórar með þriggja
hásinga vörubíla.
Vörubllstjórar í sýslunni eru að
vonum mjög gramir yfir þessari
skyndilegu nýbreytni. Einungis 3-
4 þriggja hásinga bilar eru til i
sýslunni, en flestir vörubilstjór-
anna eru hins vegar með nýlega
tveggja hásinga bila.
Bilstjórarnir hafa hingað til
haft forréttindi á allri vinnu hjá
vegagerðinni i sýslunni. Kefjast
þeir nú að vegagerðin falli frá
þessum skilmálum, svo þeir fái
vinnu fyrir tæki sin.
Er blaðið hafði samband við
Hellissand i gærkvöldi var málið
ekki komið á alvarlegt stig ennþá
og var jafnvel vonazt til að samn-
ingar tækjust með bilstjórum og
vegagerðinni.
—JB
Telja
nú til
4 stiga skjálfta
smáhrœringa
,,Við erum hætt að
kippa okkur upp við
smákippi eins og þessa
sem komu i gær,” var
viðkvæðið hjá þeim
Borgfirðingum, sem
Visir hafði tal við i
morgun. Þó voru
kippirnir i gær um og
yfir 4 stig á
Ilichterskvarða eða
viðlika sterkir og
skjálftarnir, sem gerðu
Borgfirðinga hvað
skelkaðasta i siðasta
mánuði.
„Það hafa aðeins verið vægir
kippir i nótt og maður hefur að
mestu haft svefnfrið. Aðeins
deplað auga stöku sinnum,”
sagði húsfreyjan að Siðumúla I
Hvitársiðu i viðtali við Visi i
morgun, en þar á bænum er
jarðskjálftamælir, sem settur
var upp, þegar jarðskjálftarnir
hófust i Borgarfirði fyrir um
einum og hálfum mánuði.
„Það er dálitið erfitt að átta
sig fyllilega á upptökum
jarðskjálftanna vegna þess,
hver fáa jarðskjálftamæla við
höfum til ráðstöfunar,” sagði
Ragnar Stefánsson
jarðskjálftafræðingur, þegar
Visir hafði tal af honum
skömmu fyrir hádegi i dag.
Ragnar kvaðst þó geta
upplýst, að skjálftarnir tvo
slðustu sólarhringa ættu upptök
sln norðar en i fyrri hrinunni.
„Skjálftarnir eru núna austur af
Þverárhlið við Lambahraun,”
sagði hann.
„Það er m jög erfitt að átta sig
á jarðhræringunum á þessu
svæði”, hélt Ragnar áfram.
„Við höfum ekkert til að miða
við. Þetta er órannsakað svæði
og það er ekki vitað til að svona
öflugar jarðhræringar hafi orðið
þarna áður.”
„Það er þó óhætt að fullyrða,
að skjálftar af sama styrkleika
og i fyrradag geta ekki endur-
tekið sig á þessum sama stað,”
sagði jarðskjálftafræðingurinn.
„Og það er ekki við þvi að búast,
að þessar jarðlagsbreytingar
haldi áfram að fikra sig norður.
Þetta getur tæpast færzt mikið
norðar, þar sem annars konar
jarðsvæði taka þar við. Við telj-
um þessar jarðhræringar vera
búnar að hoppa um á óeldvirka
svæðinu eins og þær geta.”
Mesti skjálftinn i fyrradag
mældist 6,3 stig á Richters
kvarða. „Það hafa ekki margir
sterkari kippir mælzt hér á
landi,” sagði Ragnar.
„Dalvikurskjálftinn 1934 var af
svipuðum styrkleika. Skjálftinn
fyrir mynni Skagafjarðar 1963
mældist þó vera 7 stig, og 1912
munu hafa verið jafn sterkir
skjalftar I nánd við Heklu, að þvi
er jarðskjálftamælar erlendis
sýndu.”
-ÞJM
Bóndinn að Ilelgavatni I
Borgarfirði við heitu laugina,
sem hvarf I siðasta mánuði. 1
fyrradag missti hann jafnframt
kalda vatnið....
-Ljósm. Bragi.
„Allt of ódýrt"!
— hrópuðu yfir sig hrifnir Fœreyingar á konsert
skólakórs MT — og áttu við aðgangseyrinn
„Viö fengum alveg fróbærar
móttökur I Færeyjum. Iiúsfyilir
á hverjum einustu tónleikum,
og gestrisnin átti sér engin tak-
mörk”.
Þetta eru orð tveggja
nemenda i Menntaskólanum við
Tjörnina, þeirra Snorra Sigfús-
ar Birgissonar og Jóns Þor-
steins Gunnarssonar, um för
skólakórs MT til Færeyja.
Snorri er stjórnandi kórsins, en
Jón gjaldkeri.
Kór MT fór I viku söngför til
Færeyja fyrir stuttu. Og til
marks um hinar frábæru mót-
tökur höfðu þeir Snorri og
Jón þessa sögu að segja:
„Við i kórnum vorum að ræða
okkar á milli hvað ætti að hafa
aðgöngumiðaverð hátt inn á
fyrsta konsertinn. Sigurður Pét-
ursson, skólastjóri i Sandavogi,
ráðlagði okkur aö hafa þaö tiu
krónur danskar fyrir fullorðna,
og þrjár krónur fyrir börn.
Þetta fannst okkur full hátt, og
lækkuðum það i sex krónur fyrir
fullorðna, og þrjár krónur fyrir
börn. Svo hófst konsertinn, og
húsið var troðfullt. Þór Vigfús-
son, sem var fararstjóri okkar
sat frammi i sal þegar hann
heyröi einhvern taka kröftug-
lega undir söng kórsins. Það var
Sigurður Pétursson, og á milli
þess sem hann tók undir, beygði
hann sig niður að Þór og sagði:
„Allt of ódýrt, allt of ódýrt”. Og
hann sagði okkur eftir konsert-
inn, að margir Færeyingar
hefðu hreinlega verið móðgaðir
yfir að fá ekki að borga hærri
aðgangseyri.”
Kór Menntaskólans við Tjörn-
ina er tveggja ára gamall. Til að
fjármagna þessa Færeyjaför
seldu þau jólakort, og héldu
hlutaveltu. Einnig fengu þau
styrk frá riki og bæ til fararinn-
ar og fóru söngför um Suður-
land i vetur. — ÓH
Þaö var sungiö á kvöldin, og
skoðað á d'aginn. Hér eru
kórfélagarnír staddir við Kirkju-
bæ.
ISLENZKURSAUNGUR - 40 nemendur Stúdentaskólans við Tjörnina
Reykjavlk.... Kórfélagarnir þurftu að teikna auglýsingar sjálfir til að
setja upp, og að sjálfsögöu brugðu þeir fyrir sig færeyskri tungu, þótt
alveg eins hefði mátt nota þá islenzku.
Sameigin-
legir fram-
boðsfundir
Eins og fyrir siðustu alþingis-
kosningar, hafa stjórnmála-
flokkarnir I Reykjaneskjördæmi
tekið höndum saman um funda-
höld i kjördæminu. Verða að
þessu sinni fjórir sameiginlegir
fundir og var sá fyrsti haldinn I
gærkvöldi að Hlégaröi I Mosfells-
sveit.
Næsti fundur verður haldinn I
Vighólaskóla I Kópavogi á
fimmtudaginn i næstu viku. Þriðji
fundurinn verður kvöldið eftir i
Stapa í Njarðvikum og loks sá
fjóröi I Hafnarfirði og þá væntan-
lega I Bæjarbiói. Sá fundur
verður haldinn mánudaginn 24.
júni.
Allir hefjast þessir fundir
klukkan hálfniu. Eru þessir
fundir opnir öllum.
-ÞJM
knattspyrnuœfingum! Lið borgarstjórnar og
embœttismanna keppa 17. júní
„Æskan setur svip á hátlðar-
höldin 17. júni. Skrúðgöngur
hefjast kl. 13.15 frá
Hlemm torgi, Miklatorgi og
Melaskóla. Barnaskemmtun
verður á Lækjartorgi og I
Árbæjarhvcrfi og uppistaðan i
fjölbreyttri iþróttakcppni i
Laugarda! eru börn og
unglingar.”
Þetta sagði Már Gunnarsson,
formaður þjóðhátiðarnefndar, á
blaðamannafundi i gær.
Keppni i frjálsiþróttum hefur
oft dregizt á langinn, en nú
verður aðeins keppt til úrslita,
svo að heildarkeppnistiminn
verður aðeins 40 min. Kvenna-
knattspyrna verður á milli
Reykjavikur og Hafnarfjarðar.
Og strákana sjáum við i hand-
knattleik, körfuknattleik og
knattspyrnu.
Sennilega verður samt mest
æsandi keppnin á milli liða
borgarstjórnar og liða
embættisvalds borgarinnar i
knattspyrnu. Sagt er, að
æfingar fari fram með mikilli
leynd hjá báðum og kærleikur
litill á milli liðanna. Enda var
valinn hraustur maður i
dómaraembætti, enginn annar
en Guðmundur Jónsson óperu-
söngvari. I liði embættis-
valdsins eru 3 fyrrverandi
landsliðskappar, Hermann Her-
mannsson, Helgi V. Jónsson og
Gunnar Guðmannsson. 1 liði
borgarstjórnar eru margir
góðir kappar og gert ráð fyrir,
að Albert Guðmundsson, fyrr-
verandi atvinnumaður i knatt-
spyrnu, gefi liði borgarstjórnar
mörg hollráðin. Bæði liðin
klæöast svo auðvitað lands-
liösbúningi.
Fjallkonan okkar verður að
þessu sinni Halla Guðmunds-
dóttir. 1 samfelldri dagskrá á
Lækjartorgi sjáum við
Rauðhettu, Tóta trúð, Pálinu og
saumavélina o. fl. 1 Árbænum
verður hluti af barnadagskránni
endurtekinn, þar verður poka-
hlaup o.fl.
Dansað verður á sex stöðum i
borginni, Austurbæjarskóla,
Breiðholtsskóla, Langholts-
skóla, Melaskóla, Arbæjarskóla
og Fellaskóla.
Hátiðaskapið fer ákaflega
mikið eftir umhverfi, og er það
von þjóðhátiðarnefndar, að sem
flestir dragi fána að hún og
verzlanir skreyti glugga sina til
þess að gera heildarsvip
borgarinnar sem skemmtileg-
astan.
-EVI-