Vísir - 31.07.1974, Síða 7

Vísir - 31.07.1974, Síða 7
Vísir. Miðvikudagur 31. júli 1974. 7 ■NNÍHvernig vœri að bera 8ÍSAN á borð fíflasalat? Umsjön: Irna V. Ingólfsdóttir Þeir eru sennilega fáir, sem leitt hafa hugann að þvi, hversu skemmtileg, lærdóms- rik og heilsusamleg dægrastytting það er að safna nytjajurtum. Við teljum sjálfsagt að fara til berja á haustin og láta börnin okkar fara i skólagarð- ana, til þess að rækta matjurtir. Hvernig væri að breyta til og fara i grasaferð einu sinni til tvisvar á sumri. Enn lifir minn- ingin i bókmenntum okkar um, hversu það þótti mikið ævintýri að fara i grasaferð. Hvilíkur munur myndi það lika verða fyrir börnin, þegar þau byrja aftur I skólanum og fara að læra grasafræði og hafa sjálf séð og handleikið þær jurt- ir, sem þau eiga að fara að læra um. Þau hafa þá séð mismun- andi rætur, stöngla, blöð og blóm ekki aðeins á myndum heldur þreifað á þeim i raun og veru. 1 sl. vetrarbyrjun kom út á vegum Náttúrulækningafélags íslands bók, sem ber nafnið ,,ís- lenzkar lækninga- og drykkjar- jurtir”. Höfundur bókarinnar er Björn L. Jónsson, yfirlæknir heilsuhælis N.L.F.l. i Hvera- gerði. Eins og nafnið ber með sér, fjallar bókin um þær jurtir Islenzkar, sem reynslan hefur kennt að hafa i sér hollustu og lækningaáhrif gegn sjúkdóm- um. Höfundur tilgreinir i for- mála ýmsar heimildir, sem hann hefir stuðzt við, og eru þær frá ýmsum timum. Bókin skiptist i 7 kafla og auk þess skrá yfir heiti jurtanna og að lokum skrá yfir verkanir þeirra, þannig að auðvelt er fyr- ir þann, sem nota vill bókina sem handbók að finna án mikill- ar fyrirhafnar nöfn og lýsingu þeirra jurta^ sem til greina kemur að reyna til lækninga þeim kvilla, sem við er fengizt hverju sinni. Grasalækningar hafa verið stundaðar frá alda öðli og þekk- ing á þeim borizt land úr landi segir m.a. i bókinni. Með auk- inni kunnáttu I efnafræði og vaxandi tækni hafa hin virku lækningaefni jurtanna verið einangruð eða verið framleidd kemiskt I efnaverksmiðjum og eru nú gefin i töfluformi eða á annan hátt. Eigi að siður eru blöð og aðrir jurtahlutir enn i notkun. A síðari árum hafa farið fram rannsóknir á fornum lækningajurtum, bæði i Austur- löndum og viðar, sem og á öðr- um ævagömlum lækningaað- ferðum. Sumir trúa þvi i hjartans ein- lægni, að eitthvert tiltekið með- al hljóti að vera skaðlaust og heilnæmt, af þvi að það er úr jurtum. En það er siður en svo nokkur meðmæli. öll skaðleg nautnaefni og flest sterkustu eiturefni eru úr jurtum komin. Þarf ekki annað en benda á á- fengi, tóbak (nikótin) kaffi (koffein), heróin eða ópium, og þannig mætti lengi telja. Meira að segja fjörefnalyfin geta vald- ið hættulegum sjúkdómum m.a. A- og D-fjörefnin, ef mikið er notað af þeim. Þekking á grasalækningum hefir snemma borizt til Islands, aðallega frá Norðurlöndum, en þangað lengra að sunnan. Fátt af ráðleggingunum hér á eftir mun vera sérstaklega islenzkt eða norrænt. urinn tekinn frá, og þá var blett- urinn rauður. Þá átti að hafa við hendina eitt eða tvö blöð af hóf- sóley og leggja þau ranghverf á blettinn og binda utan um. Eftir sólarhring voru blöðin tekin frá, og var þá komin stór blaðra. Þá Á þvi leikur enginn vafi, að is- lenzkar jurtir hafa margvisleg áhrif á likamann og starfsemi hans, bæði við innvortis og út- vortis notkun. Hér á eftir eru taldar nokkrar af þeim jurtum, sem getið er i bókinni. Arfi. Blómgast allt sumarið. Vex i görðum, kringum hauga, i fuglabjörgum og viðar. Um allt land. Takist rétt áður en hann blómgast. Kælandi, mýkjandi, græð- andi. Seyði af nýjum arfa mýkir hægðir, enda sé drukkinn einn peli I senn, það eyðir iðrabólg- um, græðir sár I lungum og örv- ar matarlyst. Arfi étinn hrár hefur svipaðar verkanir. Kaldur arfabakstur stillir hita og verk i bólgum og eyðir þeim. Gott er að geyma nýjan fisk I haugarfa. Brennisóley. Blómgast i mai—júni, og oft langt fram á sumar. Vex i graslendi. Um allt land. Jurt þessi er eitruð og þvi ekki notuð innvortis. Séu blóm henn- ar lögð við húðina, brenna þau af skinnið og draga undir sig blöörur. Eigi skyldi láta þau liggja lengur við en þar til húðin roönar. Við mörgum sjúkdóm- um eru blöðrudragandi meðul nauðsynleg, svo sem gigt I út- limum, tökum, svima, brjóst- verkjum o.fl. Guðrún Teitsdótt- ir ljósmóðir skrifar: „Amma min kenndi mér að búa á sig bakstur við verk i siðunni. Hún lét mig taka svolítinn brúsk af brennisóleyjarblöðum (ekki blómið), saxa það smátt með dálitlu ósöltuðu smjöri, smyrja saxið á tusku og leggja við verk- inn, binda svo utan um allt sam- an. Eftir klukkutima var bakst- Vex á túnum og byggðum. Um allt land. Takist fyrir blómgun. örvar hægðir og þvaglát, eyð- ir bólgum, mýkjandi, þynnir vessa. Notað við meinlætum (innanmeinum), vatnssýki, harðlifi, þvagstemmu, skyr- bjúgi. Af seyði blaðanna, sem nefnast hrafnablöðkur, drekkist lbolli daglega. Úr þvi er gott að þvo klæjandi limi. Gott þótti að leggja marin blöð við litil sár og útbrot. Fyrrum voru framleidd fegrunarlyf úr fíflum, t.d. með þvi að sjóða þá og nota siðan seyðið. Konur þvoðu andlit sitt með þvi til húðfegrunar. Viða um lönd eru blöðin notuð til matar sem salat. Franskir sjómenn fóru I fiflaleit hér á landi á vorin og gæddu sér um borð á fiflasalati, enda rækta Frakkar fifla sem matjurt. Rangvellingar grófu upp fifla- rætur vor og haust, steiktu á glóð og borðuðu heitar með smjöri, lika steiktar á pönnu i smjöri. Unglingar borðuðu rót- ina hráa. Gott þótti að sjóða ræturnar i mjólk. Þær voru einnig þurrkaðar og brenndar og notaðár i kaffi i staðinn fyrir eða með kaffirót. Kúmen Höfundur bókarinnar „islenzk- ar lækninga- og drykkjarjurt- ir”. Björn L. Jónsson, yfirlækn- ir heilsuhælis N.L.F.Í. Kúmen Blómgast i mai-júni. Vex i ræktarjörð kringum bæi og i út- högum. Sjaldgæft á NA- og A- landi. Fræið er vindeyðandi, eykur mjólk I brjóstum og er gott gegn gulu, lifrarbólgu og styrkir voru blöð lögð yfir á ný, en nú rétthverf, og næstu daga var þetta endurtekið, og þurfti alltaf að hreinsa sárið, þvi að út úr þvi vall vilsa. En eftir viku var sár- ið gróið og verkurinn horfinn. Ég varð að endurtaka þetta vor eftir vor:” Til litunar: fölgult. Fifill. (Biðukolla, ljónstönn, túnfif- ill, ætififill). Blómgast i mai til september. Fjallagrös. Takist helzt i júni, I eða eftir vætu. Styrkjandi, barkandi, hægðamýkjandi, blóðhreins- andi, ormdrepandi. Góð við hægðatregðu, uppþembu, lyst- arleysi, kraftleysi, blóðsótt, einnig við niðurgangi. Seyðið er gott viö kvefi og hósta, blandað hunangi. Af teinu drekkist 1 bolli tvisvar á dag. Fjallagrösin eru efnarik og nærandi, I þeim eru 40-70% kolvetni eða álika og I kornmat, auk þess slimefni, sem verka vel á magann og meltinguna. Notuð til matar, m.a. i grauta. Til litunar: Brúnt, gult. Hrútaberjalyng. Blómgast i júli. Vex innan um kjarr og lyng. Um allt land. Blöð og ber eru hjartastyrkj- andi, auka styrk og þrótt, styrkja slímhúð meltingarfær- anna. Barkandi. Góð við niður- gangi. Af berjamaukinu er gott að taka 2 tesk. 4 til 6 sinnum á dag. magann. Af tei fræsins drekkist nokkrir bollar á dag. Fræið blandað i mjöl gefur brauði og súpum þægilegan smekk. Kúm- en er sums staðar ræktað vegna blaðanna til matar. Hefur orðið illgresi I túnum. Reynir Blómgast i júni. Vex innan um birki og i urðum og gljúfrum. Um allt land. Berin eru barkandi, stilla blóðlát, niðurgang, verka þvag- aukandi og góð við nýrnaveiki og þvagteppu. Af berjamauki skal taka 2 tesk.i senn. Af seyð- inu má drekka 1 bolla 3svar á dag. Við blöðrusteini er gott að borða þurrkuð berin kvölds og morgna. Söl. Vaxa i sjó. Auka matarlyst og þorsta. Góð við kligju, sjóveiki, upp- þembingi og harðlifi. Næringar- rik fóður- og matjurt, sem þekkt hefir verið frá fyrstu timum Is- lands byggðar.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.