Vísir - 31.07.1974, Blaðsíða 16

Vísir - 31.07.1974, Blaðsíða 16
MiOvikudagur 31. júlí 1974. „EINS OG AÐ VERA A LOFTPRESSU" vegirnir slœmir, og dekk fer í hverri ferð Sannarlega lagleg þessi...! Hún er svo sannarlega laglegþessi, sem horfir svona stórum augum augum til ljós- myndarans. Sjálfsagt er hún að furða sig á þvi, hvern fjár- ann hann sé að gera. Um köttinn vitum við annars litið. Það vitum við þó, að hann er einn af villiköttum borgarinnar, og hafði komið sér vel fyrir i öskjuhiiðinni, þegar Ijósmyndarann bar að. —EA/Ljósm: RagnarTh. Sigurðsson. „Þetta hefur verið mjög slæmt ástand fyr- ir okkur, sem gerum út bíla. Það er þvi að kenna, hversu þurrir vegirnir eru, og þess vegna er lítið hægt að hefla. Bilarnir vilja næstum þvi hristast i sundur, og við höfum verið svo óheppnir upp á siðkastið að missa dekk i næstum hverri ferð.” Þetta sagði Grétar Hansson, þegar við röbbuðum við hann I morgun, en Grétar hefur tvo vörubila á sinum vegum, sem eru I vöruflutningum út á land, og þá aðallega á Austfirði. Grétar þekkir þess vegna vegina vel, enda kemur stund- um fyrir að fara þarf allan hringinn. Og hann er ekki einn um að hallmæla vegunum. Mikill kostnaður er þvi sam- fara að missa dekk, þau kosta oröið allt upp I 30 þúsund krón- ur. Þá segir Grétar, að hús bíl- anna vilji springa. Sem fyrr segir hefur Grétar tvo bfla á sinum vegum og segir hann, að bilstjórarnir hafi stundum verið við það að gefast upp. „Þetta er eins og að vera á loftpressu.” Þar að auki tekur hver ferð lengri tima, þegar vegirnir eru slæmir. Grétar sagði, að vegirnir væru verri núna en undanfarin sumur. „En það er þó mikið bú- ið að gera fyrir þá, og þarna er ekki neinu um að kenna nema tiöinni. Það, sem þyrfti að gera, er að bleyta vegina og he'fia, en þvi fylgir áreiðanlega mikill kostnaður”. Einn, sem er nýkominn úr hringferð um landið, sagði að vegirnir væru slæmir, en einna beztir út frá Akureyri. —EA heitinn var að ganga frá ein- angruninni utan um þá jarð- skautstaug, sem átti að vera til frambúðar. Af einhverjum ástæðum virðist tengibandið hafa.losnað úr fest- ingu sinni niðri við jarðskautið. Ólafur hefur gripið I tengiklemm- una, en við það fengið I sig raf- straum vegna bilunarinnar I spenninum. Við það að gripa i tengiklemmuna virkaði hann sem leiðari fyrir rafstraum til jarðar. Þess má geta, að þetta var lág- spennu jarðskautstaug, en við bilunina I spenninum komst há- spenna inn á hana, að þvi er rann- sókn hefur leitt i ljós. Visir spurði Oddgeir Þorleifs- son yfirverkstjóra hjá Rafmagns- veitum rikisins, hvers vegna spenna hefði ekki verið tekin af háspennulinunni, meðan verið var að vinna við hana. Um slikt kveður á i reglugerð, að ef unnið er hættulega nálægt lifshættulegri spennu, skuli enginn straumur vera á. „Þáð var ekki hættuleg spenna þarna, þvi að háspennan fer ekki inn á þann hluta spennisins, sem unnið var við. Það er heldur ekki vist, að'það hafi verið háspennan sem kom þarna inná, það getur hafa verið einhver önnur spenna”, sagði Oddgeir. Aðspurður um, hvaða fræðsla hefði verið veitt i þessu tilfelli, sagði Oddgeir, að hún hefði verið I fullkomnu lagi. Sú fræðsla er veitt af framkvæmdaaðilunum sjálf- um, enda ber þeim skylda til sliks. —óH Rafmagnseftirlit rikisins hefur nú að ínestu lokið rannsókn á dauðaslysinu, sem varð i Miðdöl- um þann 17. júli af völdum raf- magns. Þó lézt 16 ára piltur, Ólafur Eggertsson, er hann var að vinna við einangrun á jarðskautstaug- uin á spennistöðvarstaur I háspennudreifilinunni. Bilun varð i spenninum sjálf- um, þannig að rafmagn leiddi út i járnhólk, sem er utan um hann. Þaðan barst rafmagnið I tengi- band, sem var sett til bráða- birgða i jarðskaut, meðan Ólafur „Ætlaði ekki að drepo 'ann segir tilrœðismaðurinn núna, eftir að hann skaut úr búðum hlaupum haglabyssu sinnar ú lögmann Fœreyja, Atla Dam Vélstjórinn Bugvi yfirvalds Færeyja, landstjórnarinnar, en hún er kosin af lögþing- Joensen var úrskurð- aður i allt að 4 vikna gæzluvarðhald i Þórshöfn i gær og um leið var hann ákærður fyrir morðtilraun á Atla Dam, lögmanni Færeyja. Atli Dam er for maður æðsta inu. Joensen, sem ruðzt hafði inn á lögmanninn og skotið á hann tveim skotum úr haglabyssu, neitaði að hafa ætlað að drepa hann. — Atli Dam hefur verið lagður inn á sjúkrahús, en sár hans eru ekki alvarleg. Fékk hann höglin I fæturna, þvi að honum tókst að festa hendur á byssuhlaupinu og beina þvi. niður á við, áður en tilræðis- maöurinn náði að hleypa af. Hinn ákærði segist einungis hafa ætlað að særa lögmanninn. „Hann hefur ofsótt mig i öllum fjölmiðlum Norðurlanda, bæði stjórnmálalega séð og mannlega,” sagði Joensen við Þórshafnarlögregluna. Joensen hefur verið úrskurð- aður til geðrannsóknar I Dan- mörku. Hann hefur áður sætt geðrannsókn vegna dráps- tilraunar, en strauk þá til Nor- egs. I skýringum sinum á verknaðinum heldur hinn 29 ára gamli vélstjóri þvi fram, að hann hafi miðað á fætur lögmannsins, en Atli Dam segir sjálfur, að honum hafi tekizt i stimpingum þeirra að beina byssuhlaupinu að gólfinu, áður en skotið reið af. Atburðir þessir skeðu á heimili lögmannsins, en þangað var Joensen ekið I leigubil. Bað hann bilstjórann að biða, meðan hann skilaði af sér pakka. Bilstjórinn segir, að Joensen hafi haft á orði, að það hafi verið leitt, að hann ekki hæfði betur. Rafmagnsslysið í Miðdölum: SPENNAN EKKI TEKIN AF, ÞÓTT UNNIÐ VÆRI VIÐ SPENNINN ,Sama þrjózkan einkenni lllllllllM 11 — sagði Moshe Leshem, ambassador DwQQIUj ísraels, um ísraela og íslendinga „israelsmenn hafa fundið, að sambúðin við vinaþjóðirnar hefur eins og stirðnað eftir október- striðiö. Þó ekki samskiptin við is- land. Þar hefur engin breyting orðið”, sagði Moshe Leshem, am- bassador israels, sem búsetu hef- ur í Kaupmannahöfn, en kom hingað til lands til að flytja árnaðaróskir þjóöar sinnar á 11 alda afmæli íslandsbyggðar. Leshem ambassador rabbaði i gær við blaðamenn og skýrði frá ástandi og horfum hjá löndunum fyrir botni Miðjarðarhafsins. „Með þessum tveim smáþjóðum er að minu viti svo ótalmargt sameiginlegt, og liklega geta engir aðrir skilið betur þrjózkuna, sem einkennt hefur lifsbaráttu hvorrar þeirrar fyrir sig”, sagði Leshem ambassador. „Það er fjarri þvi, að vanda- málin hafi verið leyst eða endan- legur friður saminn”, sagði Leshem um samningana við Egypta og Sýrlendinga, sem ný- lega voru undirritaðir að tilstuðl- an Kissingers, utanrikisráðherra Bandarikjanna. „Þessir samningar útiloka ekki nýjar striðsaðgerðir, þótt þeir geri þær óíiklegri”, sagði Leshem. Voru auðheyrð hjá ambassa- dornum vonbrigði Israelsmanna með samningsgjörðina, þar sem allar tilslakanir i mála- miðluninni voru Israelsmanna, meðan Arabar létu ekkert I staðinn — „Ekki einu sinni loforð, hvað þá tryggingu fyrir þvi aö striðið blossi ekki upp aftur”, sagði Leshem og bætti við. „Heima i ísrael spyrja menn lika, hvi sá tapi friðnum, sem vann striðið? Sem er einmitt öfugt við alla aðra sigurvegara sögunnar.” Leshem ambassador ætlaði aö dvelja hér nokkra daga til við- bótar, áður en hann snýr aftur til Kaupmannahafnar. GP Aðalsteinn Eggertsson, ræðismaður tsraels hér á landi, og Moshe Les- hem, sendiherra israels á tslandi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.