Vísir - 31.07.1974, Blaðsíða 9
Visir. Miftvikudagur 31. júli 1974.
Umsjón: Hallur Símonarson
Visir. Miðvikudagur 31. júll 1974
r
Dwight Stones — fellur hún eöa.
Reyndi við
2,31 m en
róin féll
Ljóshærði hástökkvarinn frá USA,
Dwight Stones, reyndi við 2.31 m á
Bislett-leikunum i Osló I gærkvöldi —
fór yi'ir hæðina, en kom aðeins við
rána. Hún titraði og féll svo niður.
Þetta var fyrsta tilraun hans til að
bæta sitt eigið heimsmet um einn
sentimetra. Hann var mjög nærri að
setja heimsmet I hinum tveimur
tilraunum sinum, en herzlumuninn
vantaöi. — l>að er langt siðan maður
hefur séð svo hárfint fellt, sögðu
norskir um stökkið.
Dwight Stones varð þvi að láta sér
nægja nýtt Bislet-met, stökk 2.28 m I
3ju tilraun. Gamla metið átti Kanada-
maðurinn John Beers, 2.20 m. — Hann
varð þriðji i gær i Osló, stökk 2.20 m en
i öðru sæti var Rory Kotinek, USA,
sem stökk líka 2.20 m. Tveir næstu
menn stukku 2.17 m og var
Norömaðurinn Leif Roar Falkum
annar þeirra.
Frábær árangur náðist á leikunum
m.a. hlupu fjórir Norðnienn innan við
13:30.0 mln. i 5000 m. Þar sigraöi Dick
Buerkie, USA, á 13:23.4 min. Knut
Kvalheim hljóp á 13:24.2 Arne
Kvalheim á 13:26.4, Fer llallc á 13:27.6
og Knut Boro á 13:29.4 min. Slikt hlaup
er sennilega einsdæmi hjá fjórum frá
sama landi — meira að segja stórþjóö-
unum. Timi Buerkle er nýtt Bisictmet.
Ileimsmethafinn Emile Putteman,
Belgíu, átti hið eldra. 13:25,2 min.
Hans Peter Wæhrli sigraði og setti
svissneskt met I 3000 m hindrunar-
hlaupi á 8:26.2 min. og Martha Watson
jafnaði bandariskt mct sitt i lang-
stökki kvenna 6.58 m.
Strákarnir koma
í Sjónvarpið
Þegar stjórn KSÍ samdi við
Sjónvarpið um útsendingar á
knattspyrnuleikjum sumarsins,
var sett inn i samningin sérstök
klásúia, þar sem Sjónvarpiö
skuldbindur sig til að taka upp og
sýna frá úrslitaieikjum yngri
flokkanna i knattspyrnu i ár.
Urslitaleikirnir i 3. 4. og 5.
flokki vcrða leiknir hér i Reykja-
vik 10. og 11. ágúst n.k. en leikirn-
ir i 2. flokki fara fram dagana 13,-
15. og 20. ágúst.
Keppninni i einstökum flokkum
er enn ekki lokið, en henni lýkur
einhvern næstu daga og munum
viö þá greina nánar frá hvaða iið
leika i úrslitunum.
—klp—
ísland í OL-
knattspyrnu!
— Útlit fyrir átta landsleiki á nœsta ári
Stjórn Knattspyrnusambands
tslands hefur tilkynnt þátttöku Is-
lands i undankcppni olympiuleik-
anna I knattspyrnu, en sú keppni
mun iiklega fara fram á næsta
ári.
Ekki er endanlega búið að
ákveða, hvernig skipt verður
I riðlameðal Evrópuþjóðanna, en
trúlega verður leikið i 4-liða riðl-
um. Dregið verður um hvaða liIX.
leika i riðlunum einhvern næstu
daga og úr þvi ákveða þjóðirnar
leikdaga sin á milli.
Olympiuleikararnir fara fram i
Kanada árið 1976 og mun þvi und-
ankeppnin fara fram á næsta ári.
Þetta þýðir, að ef leikið verður i 4-
liða riðlum, mun islenzka lands-
liðið leika a.m.k. átta landsleiki á
næsta ári, en þá leikur liðið einnig
i Evrópukeppni landsliða.
I sumar og haust á liðið eftir að
leika a.m.k. fjóra landsleiki. Við
Finnland hér heima 19. ágúst og
við Beígiu hér heima 8.
september. Það verður leikið við
Danmörku ytra 8. október og við
HM-lið Austur-Þýzkalands 12.
október.
,?~l! Allir reknir útaf
— í miðjum leik!
i fyrrakvöld fór fram einn leik-
ur i Skarphéðinsmótinu i knatt-
spyrnu á Selfossi...að visu var
það ekki heill leikur, heldur rétt
háifur, en þar áttust við lið Sel-
foss og Þórs frá Þorlákshöfn.
1 hálfleik var leikmönnum Þórs
tilkynnt að þeir yrðu að yfirgefa
völlinn, þvi þar ætti að fara að
hefjast æfing hjá aðalliði Selfoss.
Þeir ættu að fara yfir á annan
völl, þar sem' leiknum ætti að
ljúka.
Þessu vildu Þórsararnir ekki
una, og töldu, að það væri ekki
hægt að leika einn og sama leik-
inn á tveim völlum. Var þá ekkert
verið að tvinóna við hlutina — og
leikurinn einfaldlega flautaður
af.
Þórsararnir ætla nú að kæra
leikinn og vilja fá bæði stigin fyrir
þennan hálfa leik...sem manni
finnst nú ekkert ósanngjarnt, þar
sem þeir höfðu ekki gert annað af
sér en að vera fyrir!!! —klp—
Sigur og tap hjá Skaganum
Akurnesingar komust bæði i úr-
slit i 1. og 2. flokki i Bikarkeppni
KSÍ á þessu sumri. Úrslita-
leikirnir voru leiknir i siðustu
viku og unnu þeir sigur i 2. flokki
en töpuðu i 1. fiokki.
1 2. flokki léku þeir til úrslita við
Breiðablik — Reykjavikurliðin
taka ekki þátt i þessu.móti — og
sigruðu þar með tveim mörkum
gegn engu. t 1. flokki léku þeir við
Viking og töpuðu 3:1.
t þeim leik skoraði Agúst Jóns-
son, iþróttafréttaritari Morgun-
blaðsins, „supermark” af löngu
færi fyrir Viking. Þvi miður náð-
ist ekki mynd af þvi né fögnuði
hans á eftir, en vert hefði verið að
eiga það á filmu til að hræða dóm-
ara og aðrar knattspyrnustjörn-
ur, sem eru áð bjóða iþrótta-
fréttamönnum i stórleiki af og til.
—klp—
Júgóslavía hafði það
á síðustu sekúndunni
Sigraði Spán í EM unglinga í körfuknattleik
Körfuknattleiksmenn og þjálfarar hlýða á þjálfarana frægu frá Banda rikjunutu. Allt, sem þeir framkvæmdu, var siðan tekið upp á myndsegul-
band. (Ljósmyndir Bj. Bj.)
,Helzt er að sofa með
körfubolta í höndunum'
— sögðu bandarisku körfuknattleiksþjálfararnir, sem voru hér með námskeið
Júgóslavia sigraði I Evrópu-
meistaramóti unglinga I körfu-
knattleik, sem fram fór I Frakk-
landi i siðustu viku og lauk um
heigina
t úrslitaleiknum léku Júgó-
slavarnir við Spánverja og lauk
leiknum með eins stigs sigri
þeirra 80-79. í hálfleik höfðu
Júgóslavarnir yfir 37:33, en þegar
venjulegum leiktima lauk, var
staöan jöfn 71:71.
t þriðja sæti urðu ttalir — þeir
sigruðu Svia 77:69 eftir að
hafa haft yfir 39:38 i hálfleik.
Sovétrikin urðu i fimmta sæti i
keppninni — sigruðu Pólland i
siöasta leiknum 86:60
Eftir keppnina var valið
Evrópuúrval, ,;,sem á að mæta
bandáriska unglingalandsliðinu i
Bandarikjunum þann 7. ágúst, og
leika þar nokkra leiki við há-
skólalið
t Evrópuliðið voru valdir þessir
piltar: Knego, Zizio og Nakic frá
Júgóslavlu, Filba, Posh og Kairo
frá Spáni, Rizzi frá ttaliu,
Krovilak Tékkóslóvakiu,
Kijewski Póllandi og Sakellariou
frá Grikklandi. Þjálfari liðsins
var valinn Mirko Novosel frá
Júgöslaviu.
,,Þið hafið góðan efnivið hér á
landi og sumir af þessum piltum,
scm við höfum séð, eru virkilega
góðir körfuknattleiksmenn, ef
miðað er við, að þarna eru 100%
áhugamcnn á ferð.”
Þetta sagði Marv Hrshmann,
bandariskur körfuknattleiks-
þjálfari, serri hér dvaldi I siðustu
viku á vegum KKt ásamt félaga
sinum Will Renken við kennslu og
þjálfun körfuknattleiksmanna.
Hrshmann er aðalþjálfari
Washington háskólans, og er
körfuknattleikslið hans talið eitt
af 10 beztu háskólaliðum Banda-
rikjanna og á tvo menn i landslið-
inu. Sjálfur var Hrshmann kosinn
þriðji bezti körfuknattleiksþjálf-
ari Bandarikjanna á siðasta
keppnistimabili.
Renken er aftur á móti þjálfari
Albright skólans, sem einnig er
með mjög gott körfuknattleikslið.
A æfingarnar hjá þéim félögum
var vel mætt —eða á milli 35 og 40
menn i öil skiptin. Það vakti
mikla undrun hjá þeim félögum,
að i þeim hópi voru aðeins þrir 1.
deildarþjálfarar og tveir 2. deild-
arþjálfarar og ekki einn einasti
iþróttakennari. Þótti fleirum en
þeim þetta furðulegt áhugaleysi.
Þeir félagar voru með mjög
skemmtilegar æfingar og þannig
úr garði gerðar, að menn höfðu
mikla skemmtun og ánægju af
þeim. Þeir tóku fyrir mörg atriði
og útskýrðu og kenndu þau á þann
hátt, að þau gleymast ekki i bráð.
Ef svo skyldi fára, á að vera auð-
velt að rilja þau upp, þvi að flest
allt var tekið upp á myndsegul-
--------------------------------i
,Marv llrshiiianii til vinstri og/
Will Renken sögðu, áð hér værul
inargir elnilegir körfuknatt f
leiksincnn.
mm
*■■'%
band, sem KKI hefur til afnota.
Allir, sem sóttu námskeiðin,
voru mjög hrifnir. Einn þeirra
var Kolbeinn Pálsson, fyrirliði
KR og landsliðsins, sem sagði, að
hann hefði lært meira á þessum
örfáu dögum en á þeim 16 árum,
sem hann væri búinn að vera i
körfubolta. Fleiri tóku undir þetta
með honum, sérstaklega þó
yngstu þátttakendurnir, sem
þarna fengu meiri lærdóm en
hugsanlegt er, að þeir hefðu feng-
ið hjá innlendum þjálfurum á
mörgum árum.
Aður en þeir félagar fóru héðan
— til Sviþjóðar — útbjó Hrsh-
mann æfingaprógram fyrir Einar
Bollason, þjálfara landsliðsins,
sem hann byrjaði að starfa eftir i
þessari viku.
Er það mjög vel unnið og
æfingarnar þannig úr garði gerð-
ar, að allir fá mikið út úr þeim.
Byggjast þær flestar á þvi, að
menn séu með körfuboltann i
höndunum þá liðlegu eina og
hálfa klukkustund, sem æfingin
stendur yfir, en það taldi Hrsh-
mann mjög nauðsynlegt...helzt
ættu menn að sofa með boltann i
höndunum, ef eiginkonan eða
kærastan væri ekki á móti
þvi....—klp—
Ólga vegna
Elmarskœru
í gærkveldi var ,,Elmarskær-
an” tekin fyrir á fundi Knatt-
spyrnuráðs Reykjavíkur. Er það
kæra Vals á hendur Fram vegna
þátttöku Elmars Geirssonar i
leiknum gegn Val. Vikingur hcfur
enn ekki kært — Málið var scnt
áfram tii dómsstóis KRR, sem
mun liklega taka það fyrir i dag.
Hilmar Svavarsson, fulltrúi
Fram i KRR, sagði i viðtali við
blaðið i morgun, að hann hefði
lagt þá spurningu fyrir ráðs-
menn, hvort þeir teldu það heppi-
legt fyrir liðsandann i Reykjavik-
urúrvali, að leikmenn Fram
mættu þar til leiks undir þessum
kringumstæðum.
„Ráðið fór eindregið fram á að
Framarar mættu og létu þetta
mál grafið og gleymt á meðan.
Þeir munu þvi allir mæta nema
Árni Stefánsson, sem er meiddur
og Elmar Geirsson, sem heldur
aftur utan i fyrramálið.
Það er mikil óánægja hjá strák-
unum með þessa kæru, sem þeim
finnst lúaleg og sýni þar að auki
ragmennsku, sem ekki var búizt
við af KFUM-mönnum. Það hafa
tugir Islendinga i knattspyrnu,
sundi, körfuknattleik, handknatt-
leik, frjálsum iþróttum og fleiri
greinum keppt hér heima eftir að
hafa leikið og keppt fyrir erlend
lið, þar sem þeir hafa verið við
nám eða störf. Nægir þar aðeins
að benda á sjálfan Valsmanninn
Jóhannes Eðvaldsson.
Það er þvi ekki undarlegt þótt
okkar piltar séu sárir út i
Valsmenn, en þeir mæta til leiks-
ins vegna þess, að það er fyrir
Reykjavik, sem þeir keppa, en
ekki fyrir VaF'Ef svo hefði verið
er ég viss um að engin Framari
hefði mætt.”
Jóhannes Eðvaldsson, fyrirliði
Vals, sagði i morgun, að sér þætti
það reglulega barnalegt hjá
Frömurunum að láta það bitna á
leikmönnum Vals þótt stjórn
félagsins hefði kært þennan leik.
,,Það er þvi ekki við okkur að
sakast i þessu máli. Auk þess trúi
ég þvi ekki að kunningjar minir
meðal leikmanna Fram hafi sagt,
að þeir vildu ekki spila við hliðina
á okkur Valsmönnum — eins og
við séum einhverjir stórglæpa-
menn”.
Jón Aðalsteinn Jónsson,
formaður Vikings, sagði það ekki
vera rétt i Morgunblaðinu i morg-
un, að Vikingur væri búinn að
kæra sinn leik á móti Fram.
,,Við höfum ekki sent inn neina
kæru — en við eigum það kannski
eftir. Annars finnst mér
framkoma Framara i þessu máli
bera vott um mikið þroskaleysi,
og alveg furðulegt að þeir skuli
fara i fýlu og vera með hótanir i
sambandi við þennan leik, þar
sem þeir eru aö keppa fyrir hönd
Reykjavikur, sem hefur fóðrað þá
og fóstrað og gert margt gott fyrir
félag þeirra. —klp—
Kvennaslagur á
KR-velli í kvöld
I kvöld fer fram úrslitaleikur-
inn i Islandsmóti kvenna i knatt-
spyrnu. Fer leikurinn fram á ein-
um af völlum KR við Frostaskjól
og hefst hann kl. 20,00.
Til úrslita leika stúlkur úr FH
og Akranesi, en þær urðu sigur-
vcgarar i sinum riðlum i keppn-
inni.
1 þeirri keppni tóku þátt 10 lið —
öll af Suðvesturlandi — og háðu
þau liarða keppni, sem staðið hef-
ur yfir undanfarnar vikur.
Leikir kvennanna eru oft anzi
skemmtilegir og mikil barátta i
þeim. Leikurinn i kvöld kemur
áreiðanlega til með að bjóða upp
á það, og jafnvel enn meira, enda
verður sjálfsagt niargt um
„manninn” á KR-veliinum þegar
stúlkurnar hefja úrslitabaráttuna
um isiandsmeistaratitilinn i ár.
—klp—
Koma beint úr Evrópu-
mótinu í Jaðarsmótið
Stœrsta golfmót Norðurlands Kaldið um nœstu helgi
Um na-siu lielgi — verzlunar-
mannahelgina — fcr fram opið
slórmót.i golfíá Jaðarsvellinum á
Akureyri. Er það hið svonefnda
Jaðarsmót, sem er,36 holu keppni
og fer fram á laugardag og
sunnudag,
Vitað er um mikinn fjölda kylf-
inga á Suðurlandi og viða að,sem
ætlar i mótið, en þeir hafa jafnan
tjölmennt norður, þegar þetta
mót fer fram.
Þar verða m.a. flestir af beztu
kylfingum landsins — sumir
þeirrá eru þegar komnir norður
— en þetta mót gefur stig til
landsliðs GSI i golfi.
Flestir af piltunum, sem tóku
þátt i Evrópumótinu i Finnlandi,
verða þar meðal keppenda. Þeir
koma flestir heim á fimmtudag-
inn — sumir þeirra fóru yfir til
Sviþjóðar og leika þar i dag og á
morgun —en halda til Akureyrar
á föstudaginn.
I sambandi viö Jaðarsmótið
verður einnig haidin opin kvenna-
keppni, og er vitað um nokkrar
konur, sem ætla að taka þátt i þvi,
á meðan að bóndinn keppir i
Jaðarsmótinu.
^Það verður að koma Bomma 'V' Gotti"'N
rir kattarnef
Frábœrt
heimsmet
— Rick Wohlhuter
stórbœtti heimsmetið í
1000 m hlaupi í gœrkvöldi
Hinn 25 ára stórhlaupari frá Banda-
rikjunum, Rick Wohlhuter, bætti
heimsmetið I 1000 m hiaupi um 2.1
sekúndu á Bislett-Ieikunum i Osló í
gærkvöldi — hreint ótrúlegur árangur
i ekki lengra hlaupi. Timi hans var
2:13.9 min., en eldra heimsmetið sem
David Maian, S-Afriku, átti var 2:16.0.
— Ég gerði áætlun að hlaupa á um
2:14.0 min., og fékk góða aðstoð frá
Norðmanninum Jan Torgersen og
Mike Boit, Kenýa, sagði Wohlhuter
eftir hlaupið, en hann setti einnig
nýlega heiinsmet i 880 jarda hlaupi á
1:44.1 mín.
Togersen hljóp fyrstu 400 m á 51.5
sek. og hætti siðan, og Rick tók forust-
una, en Boit fylgdi fast á hæla hans.
Timinn eftir 600 m var 1:19.0 — 3.3 sek.
betra en þegar Malan setti heimsmet
sitt. 800 m hljóp Wohlhuter á 1:47.0
min. — þá með næstum 4 sek. betri
tima. Hins vegar var hraðinn ekki eins
góður I lokin — einkum eftir að Boit,
sem hljóp á 2:16.7 min. hætti að veita
honum keppni. Þeir fylgdust að þar til
á siöustu beygju, en þá fékk Boit
olnboga Ricks i magann „og það
eyðilagði mikið fyrir mér”, sagði
Kenýu-svertinginn eftir hlaupið. „Það
var algjört óviljaverk — skeði i hita
keppninnar, þegar við rákumst
saman” sagði Rick þá við Boit, sem
samstundis féllst á þá skýringu.
Þriðji i hlaupinu var John Walker á
2:17.1 min. sem er ný-sjálenzkt- met.
Landi hans Rod Dixon hljóp á 2:17.2 —
siðan kom Byron Dyce, Jamaika, á
2:17,6 min. og Sven Erik Nielsen. sem
setti danskt met 2:18.3 min. Sergei
Abramov, Sovét-, varð sjöundi á 2:19.5
min.
Heimsmetið áður var talið lakasta
hlaupamptið — en nú hefur vel verið
bætt úr þvi. Þá má geta þess, að á
þessum Bislet-leikum, sem haldnir
voru til minningar um Martin Luther
King, setti Greta Andersen norskt met
I 800m á 2:04.0 min. og varð 3ja. Robin
Campell, USA, sigraði á 2:02.5 min.
Ahorfendur voru um 16 þús.
—hslm.