Tíminn - 28.01.1966, Blaðsíða 8

Tíminn - 28.01.1966, Blaðsíða 8
8 TÍMINN FÖSTUDAGUR 28. janúar 1966 ANDRUMSLOFTID A ÞINOUM NORÐUR- LANDA ER ALLS STADAR HID SAMA innihaldsríkara lífs. Stökkbreyting ar tækninnar skapa því aðeins nýj an og betri heim, að manninum takist jafnhliða að tryggja heil- brigði sálarinnar, andlegt jafn- vægi, og aíhliða þroskun hæfileika sinna. Margt bendir til þess, að hin- ar fámennari þjóðir hafi betri skilyrði en aðrir til þess að gera sér þetta ljóst og haga sér eftir því. Háttvirtu ráðsmeðlimir, herrar mínir og frúr! Fyrir hönd forseta Norðurlanda ráðs leyfi ég mér að bjóða ykkur velkomin til 14. fundar Norður- landaráðs. Ég þakka danska þjóð- þinginu fyrir að hafa opnað hinn fagra fundarsal sinn fyrir Norður- landaráði. Stjórnmálamenn Norð- urlanda gerast nú svo kunnugir í þingum hvor annarra, að við borð liggur, að okkur finnist við staddir á heimaslóðum, hvar sem fundir ráðsins eru haldnir og að hverju sinni. Er það ótvíræð sönn un um áhrif og nytsemi persónu- legra kynna forystumanna hinna náskyldu norrænu þjóða. Andrúmsloftið í þingum Norð- urlanda er alls staðar hið sama. Það er andi lýðræðis og mann- helgi, sem hér svífur yfir vötn- unum. Það er trúin á rétt ein- staklingsins til þess að njóta hæfi leika sinna, friðar og hamingju í réttlátu þjóðfélagi. Þetta er í 4. skipti, sem No-ð urlandaráð kemur saman til fund; ar í hinni dönsku höfuðborg. f raun réttri má segja, að hugmynd- in um stofnun þessara samtaka hafi fæðzt og mótazt hér í huga Hans Hedtoft fyrrverandi forsæt isráðherra. En hún var fyrst sett fram á fundi Þingmannasambands Norðurlanda í Stokkhólmi sumar- ið 1951. Okkur greinir örugglega ekki á um, að bá hafi gæfuspor verið stigið. Áður en lengra er haldið leyfi ég mér að minnast eins ráðsmeð- lims, sem látizt hefur á s. 1. ári. Að eins mánuði eftir að Reykjavík- urfundi ráðsins lauk lézt forseti finnska þingsins. Kauno Kleemola aðeins 58 ára gamall, mitt í mik- ilvægu starfi fyrir land sitt og þjóð. Hann tók margvíslegan þátt í finnskum stjórnmálum eftir stríð ið, og gegndi fjölþættum ábyrgð- arstörfum. Norðurlandaráð átti í honum einlægan og traustan stuðn ingsmann. Kauno Kleemola. var meðlimur í ráðinu síðan árið 1956, bæði sem þingmaður og ráðherra. Af langvarandi starfi m. a. sem samgöngumálaráðherra leiddi það, að hann tók þýðingar- mikinn þátt í störfum samgöngu- málanefndarinnar, sem naut víð- tækrar þekkingar hans á þessu sviði. Hjartahlýja hans, gáfur og drengileg framkoma sköpuðu hon um marga persónulega vini meðal okkar. Við tökum þess vegna rík- an þátt í söknuðinum við fráfal! hans. Þróunin gengur sinn örugga gang í þjóðfélögum Norðurlanda. Hvert ár sem líður færir þessar litlu lýðræðisþjóðir fram á við til fullkomnari og réttlátari þjóðfé- lagshátta. Ný verkefni og vanda- mál skapast. Flestar þessar þjóð- ir eiga t.d. við vanda vaxanci dýr- tíðar að etja. Þeir efnahagserfið- leikar, sem af því leiðir eru nokk- urs konar vaxtarverkir velmegun- arþjóðfélags, þar sem miklum framkvæmdum er haldið uppi og kröfurnar aukast stöðugt til lífs- ins gæða. Það er eitt af eðlileg- ustu lögmálum lífsins, að eins- staklingarnir eru sjaldnast ánægð- ir með ríkjandi ástand. Óánægjan með það sem er, birtist í oþol- inmæði og kröfum um breytingar og umbætur. Þeim, sem stjórna >ag ábyrgðina bera, kann að þykja Ræða Sigurðar Bjarnasonar við setningu fundar Norður- landaráðs í Kaupmannahöfn í dag. kröfurnar ganga of langt. En í raun og sannleika er það oþolm- mæðin og gagnrýnin í lýðræðis- þjóðfélagi, sem á sinn ríka þátt í hraða þróunarinnar. Hinir „reiðu ungu menn“ kunna að virðast ósanngjarnir í dómharðri gagnrýni sinni, en margt í ádeilu þeirra á við rök að styðjast, einnig i okkar norrænu velferðarþjóðíélög Efnahagssamvinnan hefur um langt skeið verið eitt af aðalum- ræðuefnum á fundum Norður- landaráðs. Á fundi ráðsins í Reykjavík s.l. ár var skorað á rík- isstjórnirnar að vinna að eflingu efnahag'ssamstarfsins innan EFTA og halda jafnframt áfram barátt- unni fyrir víðtækari norrænni efna hagssamvinnu innan vébanda EFTA. Síðan hafa verið lagðar fram nýjar tillögur af hálfu ein- stakra ráðsmeðlima, sem snerta þýðingarmikil svið norræns efna- hagssamstarfs, m.a. um norræna tollasamræmingu, sameiginlegan markað fyrir landbúnaðarafurðir, samræmingu atvinnulöggjafar og skipulagða samvinnu á sviði verzl- unar- og viðskiptamála. Þessi þýðingarmiklu mál verða vafalaust meðal aðalumræðuefna 14. fundar ráðsins. Á sameigin- legum fundi forsætisráðherra Norðurlanda og forseta ráðsins, sem haldinn var í Imatra í Finn- landi í október s.l. gerðu forsæt- Sigurður Bjarnason isráðherrarnir grein fyrir því und- irbúningsstarfi, sem sérfræðingar hafa unnið að undanfarið á þessu sviði. Þetta starf kann að virðast hægfara. En það stefnir tvímæla- laust í rétta átt. Ályktun síðasta ráðsfundar um stofnun menningarsjóðs Norður- landa er nú að komast í fram- kvæmd. Það hefur að vísu valdið vonbrigðum og gagnrýni, að rík- isstjórnirnar hafa aðeins treyst sér til að hefja starfsemi sjóðsins með 669 þús. d. króna byrjunarfram- lagi í stað 3ja millj. d. kr. fram- lagi eins og tillagan gerði ráð fyrir. En hér er aðeins um fyrstu framkvæmd að ræða. Gera verð- ur ráð fyrir, að starfsemi sjóðs- ins verði efld verulega strax á næsta ári, ef hinn norræni menn- ingarsjóður á að ná þeim tilgangi sínum að verða þróttmikill afl- gjafi menningarlegra samskipta hinna norrænu þjóða. En það var eindreginn vilji ráðsins þegar tii- lagan um stofnun hans var sam- þykkt. Á .ssurn fundi ráðsins he: ur m.a. verið flutt tillaga af með limum menntamálanefndarinnar um hækkun á framlagi til menn- ingarr ! Á sviði menningarmála hefur norræn samvinna e.t.v verið ár- angursríkari en á nokkru öðru sviði. Hún hefur átt sinn ríka þátt í að færa þjóðirnar saman, auka kynni þeirra og treysta vináttu d. Á þessum miklu breytinga- og byltingatímum er hinn menning- arlegi, grundvöllur norræns sam- starfs mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Aukin tækni og vélvæðing er gagnleg og stuðlar að efna- hagslegri uppbyggingu og aukinni velmegun. En menningin, andleg- ur þroski og siðferðisvitund fólks- ins er grundvöllur mannlegrar hamingju, fumskilyrði betra. og Af öðrum aðgerðum Norður- landaráðs á s.l. ári leyfi ég mér að nefna rannsóknarráðstefnuna í Helsingfors í apríl, sem ráðið gekkst fyrir í samráði við ríkis- stjórnir landanna. Tiigangur henn ar var að stuðla að auknu nor- rænu samstarfi á sviði vísinda og rannsóknastarfsemi. Var hún sótt af fjölda vísindamanna og menntamanna, og er það von for- seta ráðsins að verulegt gagn muni af henni verða. í júní gekkst ráðið fyrir ráð- stefnu í Easselby í Svíþjóð fyrir embættismenn og forvígismenn ýmissa alþjóðlegra stofnana, sem hafa höfuðstöðvar í Evrópu. Var tilgangur hennar að veita upplýs- ingar um samvinnu Norðurlanda, form hennar og árangur og skapa jafnframt tækifæri til gagnkvæmra skoðanaskipta um alþjóðleg við- fangsefni og vandamál. Mun þetta fyrsta alþjóðleg ráðstefna, sem haldin er fyrir alþjóðleg samtök og því ekki ómerk nýjung. Var það skoðun þeirra, er hana sóttu. að hún har; teki"‘ vel. Á þessu ári hefur verið ákveð- ið að efna til ráðstefnu á vegum Norðurlandaráðs um :ka amál og framkvæmd þeirra. Verður til hennar boðið ýmsum sérfræðing- um fjármá’ "'nrðurlanda. Með þeirri ósk og von, að þessi fundur megi bera góðan ár- angur og stuðla að því að treysta hin víðtæku og nánu tengsl milli hinna norrænu þjóða, lýsi ég því yfir, að 14. fundur Norðurlanda- ráðs set* ■. Sextugur í dag: Dr. Oddur Guðjónsson Dr. Oddur Guðjónsson er sex- tugur í dag. Hann er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Foreldrar hahs, María Guðmundsdóttir og Guðjón Gamalíelsson múrarameis1 ari voru greind mannkosta hjón, sem margir gamlir Reykvíkingar kannast við. Móðir Odds fórst í flugslysi á Hvammsfirði fyrir all- mörgum árum, en faðir hans var dáinn fyrr. Dr. Oddur lauk stúdentsprófi 1927. Stundaði nám í hagfræði við háskólann í Kiel í Þýzkalandi frá 1927 til 1933 og lauk doktorsrit- gerð við sama háskóla 1934. Sama ár og hann lauk námi réðist hann til Verzlunarráðs íslands, sem full trúi og skrifstofustjóri þess. Gegndi hann þvi starfi til ársins 1942. Flest árin, sem dr. Oddur gegndi störfum hjá Verzlunarráð- inu, eða eftir 1938, átti hann og sæti í Verðlagsnefnd, Skömmtun- amefnd og Gjaldeyris- og inn- flutningsnefnd. Hann átti og sam- tímis sæti í skólanefnd Verzlunar- skóla íslands og stjórn Hagfræð- ingafélags íslands, enda einn af stofnendum þess félags og for- maður þess um árabil. í janúar ’ 943 var dr. Oddur skip aður einn af forstjórum Viðskipta- ráðs. Gegndi hann þvi starfi á meðan að Viðskiptaráði entist ald ur, en eftir að það hætti störfum fluttist dr. Oddur i önnur sams konar forstjórastörf í öðrum hlið stæðum stofnunum, fyrst í Fjár- hagsráði, síðan Viðskiptanefnd og síðast Innflutningsskrifstofu. Er Innflutningsskrifstofan hætti störfum árið 1960, var dr. Oddur settur í bili ráðuneytisstjóri í viðskipamálaráðuneytinu í fjar- veru þess er skipun hafði, en síð- ar var hann skipaður viðskipta- ráðunautur ríkisstjórnarinnar, en starf það er hliðstætt starfi ráðu- neytisstjóra. Fylgir þessu starfi að vera fastamaður í nefndum er annast opinbera viðskiptasamn- inga við aðrar þjóðir. Hefur dr. Oddur því hin síðari ár verið lang- dvölum erlendis. Er hann það t.d. nú, og skilur því vík milli vina á afmælisdaginn. Af stuttri upptalningu hér að framan er ljóst, að á sextugsaf- mælinu hefur dr. Oddur að baki sér 23 ár í aðalstarfi hjá ísl. rík- inu eða síðan i janúar 1943, og að auki í 5 ár í ýmsum nefnd- um, eða allt frá árinu 1938- Öll hafa hin opinberu störf, sem dr. Oddi hafa verið falin, staðið í beinu sambandi við opinber af- skipti gf viðskiptamálum. fjárfest- ingamálum og öðrum hliðstæðum þáttum efnahagsmálanna. en ein- mitt þessi mál, þótt þau séu köll- uð höft. þóttu og þykja enn hin vandasömustu í ísl. stjórnarfari. Að sjálfsögðu hefur ávallt verið reynt að velja sem hæfasta menn til að sjá um framkvæmd slíkra mála, og ber að viðurkenna slíkt, þótt deilt sé um leiðir og einstök stefnuatriði í sambandi við málin sjálf. Það ætla ég, að traustið á manninum hafi valdið því, að dr. Oddur gegndi lengur umræddum störfum en flestir aðrir. sem til- kvaddir voru til starfa á sama vettvangi. Söun embættismennska, gætni og skapstilling eru þættir sem skipa öndvegi I manninum dr. Oddi Guðjónssyni Ríkisvald- inu var því á hverjum tíma ljóst, að engin áhætta var tekin í sam- bandi við val á manni til vanda- samra starfa þar sem dr. Oddur var. Þetta tel ég liðinn tíma sanna. Dr. Oddur hefur skrifað tals- vert um hagfræðileg efni, bæði í ísl. dagblöð og ísl. og erlend tíma- rit. Hann er því, bæði af þessum sökum og hinum opinberu störf- um sínum, löngu þjóðkunnur mað ur. Tilgangur minn með þessum fáu línuim er því ekki sá, að kynna hann sem ókunnan mann, heldur hinn, að þakka honum fyr ir persónuleg kynni og alllangt samstarf. í nær því 20 ára samstarfi kynn ast menn oft persónulega. Ég tel slík kynni okkar dr. Odds hafa leitt af sér gagnkvæmt traust og nokkra vináttu, sem ekki hefur glatazt þótt leiðir hafi skilið í starfi fyrir nokkrum árum. í sam- starfi okkar dr. Odds voru skoð- anir oft skiptar, en aldrei skap- aði slíkt tortryggni i a persónu- lega fjarlægingu. Hygg ég að þar hafi mestu um ráðið. hve trygg- lyndui drengskaparmaður dr. Oddur er. Aðal erindi mitt i dag, með þessum línum, er að senda honum hugheilar þakkir fyrir lið- in ár og óska honum gæfu og geng is á ókomnum árum. Kona dr. Odds er þýzk að æti, Lieselotter Marie Helene að nafni. Mikil glæsikona. Börn þeirra njóna eru þrjú. María sem er gift og bú sett í Þýzkalandi. Lieselotte, íþróttakennari og Þórir, sem stund ar laganám hér við Háskólann. Fjölskyldunni allri að Flóka- tu I sl:a ég til namingju með afmælisdagii.n Stefán Jónsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.