Tíminn - 28.01.1966, Síða 13
ÍÞRÓTTIR
PÖSTUDAGUR 28. janúar I9GG
ÍÞRÓTTÍR
TÍMINN
Var neitað
um aukaleik
í Reykjavík
- og Dukla Prag leikur því á
Keflavíkurvelli gegn landsliðinu.
Alf—Reykjavík, fimmtudag.
Ákveðið er, að tékknesku handknattleiksmeistararnir, pukla Prag,
leiki einn aukaleik í för sinni hingað, en eins og kunnugt er, mæta
Tékkarnir FH í Evrópubikarleik í Reykjavík föstudaginn 4. febrúar.
Höfðu FH-ingar í hyggju að fá aukaleikinn — landsliðið og Dulda
Prag — í íþróttahöllinni í Laugardal, en úr því verður ekki, því
Handknattleiksráð Reykjavíkur og fþróttabandalag Reykjavíkur hafa
neitað FH um leyfi til að haida leikinn í Reykjavfk.
Hvernig skyldu íslemkir knattspyrnumenn aefa um þessar mundir? Æfingar eru víst byriaðar á fáum stöðum
og illa maett á æfingarnar, nema í einu eSa tveimur tilvikum. Einhvern veginn situr það í ísl. knattspyrnu-
mönnum, að þeir þurfi ekki að hefja æfingar fyrr en hillir undir mótaleiki, og það er þess vegna, sem það er
hrein undantekning að sjá ísl. knattspyrnumenn í æfingu snemma á vorin.
Dönsku knattspyrnumennirnir, sem við sjáum á myndinni hér að ofan, eru greinilega á annarri skoðun en
fsl. knattspyrnumenn um það hvernig haga beri undirbúningi fyrir keppnistímabilið, því þeir byrjuðu æfing-
ar löngu fyrir áramót. Myndin var nýlega tekin á æfingu hjá KB. (Ljósm. Polfoto)
Landslið í kðrfu-
knattleik valið
Þorsteinn Hallgrímsson aftur með.
Landsliðsnefnd KKÍ, sem skip
uð er þeim Jóni Eysteinssyni og
Þóri Guðmundssyni, hefir valið
landsliðið, sem mætir Skotum
Leik FH og
Fram frestað
Leik Fram og FH í 1. deildar
keppninni í handknattleik, sem
fram átti að fara 2. febrúar, hef
ur verið frestað til 11. marz.
Er þetta gert með hliðsjón af
Evrópubikarleik FH, en FH-
ingum mun þykja það fuílerfitt
að leika tvo „stórleiki“ með
svo stuttu millibili.
n. k. laugardag og sunnudag
íþróttahöllinni í Laugardal.
Liðið skipa þessir mennn:
Agnar Friðriksson
Birgir Jakobsson
Hólmsteinn Sigurðsson
Þorsteih i Hallgrímsson
Einar Bollason
Kolbeinn Pálsson
Gunnar Gunnarsson
Hjörtur Hansson
Kristinn Stefánsson
Birgir Örn Birgir
i'ávíð Helgason
Þorsteinn Hallgrímsson, sem
stundar nám í Kaupmannahöfn,
kom heim í boði KKÍ til að leika
þessa afmælisleiki við Skota. Þor
steinn hefir verið oftar fyrirliði
landsliðsins, en nokkur annar,
Framhald á bls. 12
S. I. þriðjudagskvöld og mið
vikudagskvöld voru leiknir þeir
leikir úr 3. umferð ensku bik
ar keppninnar, sem eftir var að
fá úrslit í. Úrslitin urðu þessi:
Burniey—Bournemouth 7:0
Ipswich—Southport 2:3
Cardiff—Port Vale 2:1
Dortsmouth—Grimsby 1:3
Shrewsbury — QPR 1:0
Athygii vekur, að Ipswich —
sigurvegarar í 1. deild — 1962,
en eru nú í 2. deild — tapa fyrir
Framhald á bls. 12
Þrátt fyrir þessa neitun ætla
FH-ingar að alda aukaleikinn og
er ákveðið, að hann fari fram
í íþróttahúsinu á Keflavíkurflug
velli sunnudaginn 6. febrúar. Upp
haflega ætlaði FH að halda
Evrópubikarleik sinn 6. febrúar
og aukaleikinn 7. eða 8. febrúar,
en þar sem ekki fékkst leyfi til
að halda aukaleikinn í íþróttahöll
inni, færðu FH-ingar Evrópubik
arleikinn fram um tvo daga, svo
aukaleikurinn geti farið fram í
íþróttahúsinu á Keflavíkurflug-
velli á sunnudegi.
Það kann e. t. v. að koma
ýmsum spánskt fyrir sjónir, að
HKRR og ÍBR skuli hafa neitað
FH-ingum um afnot að íþróUa
höllinni í Laugardal fyrir auka-
leikinn, en fyrir því eru tvær
ástæður. Önnur er sú, að kvenna
lið Vals (Reykjavíkurfélag) á
fyrir höndum Evrópubikarleik 9.
febrúar og mundi aukaleikurinn
eflaust draga úr aðsókn að þeim
leik. í öðru lagi raskar Evrópu
bikarleikurinn fslandsmótinu, þar
sem fresta þarf leikdegi hans
vegna, og mundi þurfa að fresta
enn einum 'eikdegi, ef aukaleik
urinn yrði leyfður í Reykja-
vík. Er afstaða HKRR og ÍBR þvi
að ýmsu leyti skiljanleg.
En þrátt fyrir allt, er þessi
aukaleikur velkominn, því lands
liðið á fyrir höndum leik gegn
Pólverjum 13. febrúar og verð
ur þetta því góður æfingaleik
ur fyrir landsliðsmenn okkar
gegn einu sterkasta félagsliði í
heiminum í dag.
Úrslit í gær
í kvöld fóru fram tveir hand-
knattleikir í fyrstu deild. Fram
sigraði Ármann naumlega í hörku
spennandi og jöfnum leik með
þriggja marka mun 24:21.
Síðar leikurinn var milli Vals
og Hauka og laug honum með sigri
Valsmanna, 25:21. í hálfleik var
staðan 15:12 fyrir Hauka, en í
síðari hálfleik flugu Valsmenn um
völlinn og sýndu yfirburðaleik og
gerðu út um leikinn á góðuim
endaspretti.
Verzlunarskólanemar náðu
athyglisverðum árangri
Alf-Reykjavík, fimmtudag.
Eftir árangri að dæma, sem
náðist á frjálsíþróttamóti Verzl-
unarskólans nýlega, virðast mörg
góð frjálsíþróttaefni standa fyrir
utan frjálsíþróttafélögin, því
flestir þátttakenda í þessu móti
hafa lítið sem ekkert komif ná-
lægt starfsemi þeirra og því ekki
hlotið þá grunnþjálfun í frjáis-
íþróttum, sem æskileg hlýtur að
vera.
Lítum fyrst á árangur í langstökki
án atrennu:
1. Júlíus Hafstein 3.02 m.
2. Arnþór Blöndal 2.95 m.
3. Hermann Gunnarsson 2.C~ m.
Þrístökk án atrennu:
1. Arnþór Blöndal 8.80 m.
2. Júlíus Hafstein 8.70 m
3. Halldór Waagefjörð 8.20 m.
Hástökk með atrennu
1. Júlíus Hafstein 1.75 m.
2. Hermann Gunnarsson 1.70 m
3. Halldór Fannar 1.G5 m.
Árangur piltanna er athyglis-
verður rniðað við, að þarna eru
nýliðar í frjálsíþróttum, en pilt
arnir eru liðtækir í öðrur.i
íþróttagreinum. Þannig er Her
mann Gunnarsson kunnur knatt
spyrnu- og handknattleiksmaður,
og Júlíus Hafstein leikur hand
knattleik með Val.
Körfuknattleikssambandið 5 ára
Bogi Þorsteinsson form. frá upphafí
Á morgun, laugardag,
verða fimm ár liðin frá
stofnun Körfuknattleiks-
sambands íslands, og verð-
ur þess minnzt með tveim
landsleikjum gegn Skot-
um. Bogi Þorsteinsson hef
ur verið formaður sam-
bandsins frá uphafi, og má
hiklaust segja, að hann
hafi unnið mikið og óeigin
gjarnt brautryðjendastarf
í ísl. körfuknattleik með
stjcrn sinni á KKÍ.
Fyrsta stjórn sambandsins
var þannig skipuð: Bogi Þor-
steinsson, Benedikt Jakobsson,
Magnús Björnsson, Ásgeir Guð
mundsson, Matthías Matthías
son, Einar Ólafsson og Krist
inn Jóhannsson.
Á þessu fimm ára tímabili
hefir fjárskortur jafnan ver
ið erfiðasta viðfangsefni hverr
ar stjórnar. Þrátt fyrir það
hefir sambandið þó leyst nokk
uð mörg verkefni, svo sem ann
ast útgáfu á körfuknattleiks
reglum og reglum um tækni
merki og knattþrautir KKÍ.
Bandarískir þjálfarar hafa
kennt hér þrisvar á vegum
sambandsins og sambandið hef
ir styrkt íslenzka dómara til
náms erlendis. Dómaranám-
skeið hafa verið haldin í
Reykjavík og á Akureyri.
Sambandið hefir sjálft séð
um framkvæmd íslandsmóta á
undanförnum árum og nú s. 1.
sumar fór fram hin fyrsta
bikarkeppni á vegum KKÍ með
þátttöku 16 liða víðsvegar að
af landinu.
Á þessu tímabili hafa ver
ið leiknir 12 landsleikir og
4 unglingalandsleikir og hefir
verið keppt við þessar þjóð
ir: Dani, Svía, Finna, Frakka,
Skota, Luxemborgara, Englend
inga og Pólverja op auk þess
Bogi Þorsteinsson
keppti landslið KKÍ 12 leiki í
Bandaríkjunum og Kanada á
síðastliðnum vetri.
Núverandi stjórn KKÍ
skipa: Bogi Þorsteinsson,
I--gnús Björnsson, Gunnar
Petersen, Þráinn Scheving, Ás
geir Guðmundsson, Helgi Sig
urðsson og Guðjón Magnús
son. Tvcir stjórnarmanna, þeir
Bogi Þorsteinsson og Magnús
Björnsson hafa átt sæti í stjóm
inni óslitif frá upphafi.