Tíminn - 01.02.1966, Blaðsíða 2

Tíminn - 01.02.1966, Blaðsíða 2
2 TÍMINN ÞRIÐJUDAGUR 30. janúar 1966 SJ—Reykjavík, mánudag. Undarleg tilfinning hlýtur að hafa gripið um sig hjá mörgum þegar Reykjavík og nágrenni myrkvaðist gjörsamlega s. 1. laugardagskvöld. Leiguhílstjóri á Hreyfli var að snúa við á hlaðinu hjá toppstöðinni við Elliðaárnar þegar skammhlaupið varð og gífurlegur blossi blindaði hann. Hann sagði, að það hefði verið undarleg tilfinning að sjá fyrst þennan mikla glampa og síðan öll ljós borgarinnar hverfa. „Mér kom ekki annað til hugar cn að allir starfsmennirnir í toppstöðinni væru liðin lík — þetta var furðuleg sjón,“ í Sundhöll Reykjavíkur var ný- búið að reka þá fáu, sem þar voru staddir, upp úr, og var komið með kertaljós handa þeim sem voru að tína á sig spjarirnar í klefunum. í Austurbæjarbíói var kvik- myndasýning, en þar var aukamót or settur í gang og sýningin hélt áfram eins og ekkert hefði í sborizt eftir fimm mínútna töf. f Þjóðleikhúsinu átti að hefja sýningu á Mutter Courage kl. 8. Ljósameistarinn fór í skyndingu inn í toppstöð, og þaðan gaf hann upplýsingar um hvenær mætti bú ast við rafmagni á ný, en á meðan hélt Þjóðleikhússtjóri gestum húss ins rólegum í húsinu með ræðu höldum. f Iðno átti Ævintýri á gönguför að hefjast kl. 8,30. Flestir leik húsgesta mættu á tilsettum tíma, þrátt fyrir myrkrið og gengu leik ararnir þá fram fyrir tjaldið og sungu lög úr hinu sívinsæla ævin týri við mikla ánægju viðstaddra. Sýningin hófst kl. 9.15 og vantaði fáa leikhúsgesti. í Lídó var árshátíð stangveiði manna, og súpan komin á borðin þegar ljósin fóru. Þjónustuliðið var reiðubúið með kerti og kerta stjaka, því að Agnar Kofoed Han sen hafði lýst yfir við húsráðend ur að ekkert væri líklegra en rafmagnið hyrfi í þessu ofviðri — og það reyndust orð að sönnu! Þegar gestir voru búnir með súp una fengu þeir fisk, og gekk sú þjónusta dálítið erfiðlega, þar sem lyftur hússins voru óvirkar, og þurftu þjónarnir að selflytja fisk fötin. Aftur á móti þurfti að bíða með kalkúnana, sem voru hitaðir upp aftur þegar rafmagnið kom. Það heyrðust mikil undrunar- og fagnaðaróp í gestunum þegar ljós in hurfu, en einkenni kvöldsins var mikil stemmning og kátína. Háttsettur aðili hjá Rafmagns sveitu ríkisins var staddur í Lidó þegar ljósin fóru, og snaraði hann sér út i kjól og hvitt að næsta bíl, sem var að koma með fólk, og bauðst til að borga bílinn, ef það vildi láta bílinn lausan þegar í stað! Á Hótel Sögu voru mætt um 400 manns þegar rafmagnið fór. Þegar í stað var aðgangi að „Grill inu“ lokað, þar sem lyfturnar voru óvirkar og hættulegt að fara stig ann í myrkrinu. „Við vorum búnir að ákveða að loka staðnum”, sagði Konráð hótelstjóri, „en í sama mund komu ljósin aftur. Það bjarg aðist furðu vel hjá okkur. Við settium ljósalampa og kerti um allt, og okkur tókst furðu vel að halda matnum heitum. Fólkið skildi vel vandkvæði okkar og við fengum engar skammir. Það var mikil stemmning hjá fólkinu; það dansaði og söng við kertaljós. Það festist einn útlendingur í lyftu, en við töluðum strax við hann, og var hann hinn rólegasti og náðum við honum út eftir kortér eða tuttugu mín. Jú, það var mikill spenningur, ys og þys og eigin lega anzi ævintýralegt kvöld. Eg var í baði heima hjá mér þegar raf magnið fór, og ég var ekki lengi að komast í spjarirnar og halda út á Hótel Sögu“. I háhýsinu að Austurbrún 2 bar ekkert óvænt til tíðinda, og þar var enginn staddur í lyftu þeg ar rafmagnið fór. Á Landsspítalanum bar heldur ekkert til tíðinda, þar lauk slysa vakt um hádegi á laugardag og má segja að rafmagnið hafi farið á heppilegum tíma. Á fæðingardeild Landsspítalans gerðist heldur ekkert sem .var í frásögur færandi — engin kona að ala barn, og ef þannig hefði staðið á hefði það ekki komið að sök, því að spítalinn er vel birg ur af stórum vasaljósum og lömp um með rafgeymum. Á Fæðingarheimili Reykjavíkur borgar var kona að Ijúka við að fæða stúlkubarn þegar rafimagnið fór — það átti eftir að skilja á milli, en ekki kom bilunin að neinni sök, þótt óvíða sé óþægind in meiri en á spítulunum við slík ar aðstæður. HÖFÐU MESTAR ÁHYGGJ- UR AF SJÚKRAHÚSUNUM Hér varð skammhlaupið. (Tímamynd GE) FOKKERNUM SEINKAR SJ—Reykjavík, mánudag. Fimm mínútur fyrir kl. átta á laugardagskvöld varð skammhlaup í mælaspennum í toppstöðinni við Flliðaár og við það hvarf allt raf magn á svæði Sogsvirkjunarinnar. Að klukkutíma liðnum var við- gerð lokið og rafmagni aftur hleypt á. Blaðið hafði samband við Ingólf Ágústsson, rekstrarstjóra hjá Landsvirkjuninni, og sagði hann, að ástæða bilunarinnar hefði ver ið sú, að selta og snjór hefðu hlað izt á einangrarana og á þeim mynd azt leiðandi lag, sem olli skamm hlaupinu. Á einöngrurunum hvíldi 33 þús. volta spenna og urðu þeir gjörónýtir við skammhlaupið, en ekki er hægt að segja að tjónið hafi orðið verulegt. Við skammhlaupið kom gífurleg ur blossi, sem lýsti upp allt ná- grennið. í fyrstu yfirferð var ekki hægt að sjá neinar alvarlegar skemmdir og var þá hætt á að hleypa straum aftur á keríið, en á meðan voru állir starfsmennirn ir látnir standa í skjóli. Við allra hagstæðustu skilyrði tekur viðgerð eins og þessi um hálfa klukku- stund, og má segja að viðgerðin nú hafi ekki tekið langan tíma mið að við ríkjandi skilyrði. Atburður sem þessi hefur áður gerzt; um tvö ár eru nú liðin frá því að rafmagn fór af öllu orku veitusvæðinu. Um leið og x-aímagn hverfur er haft samband við ákveðna aðila sem eiga mest á hættu vegna raf magnsleysis. Ingólfur sagði, að þeir hefðu alltaf mestar áhyggjur af sjúkrahúsunum, en þau eru nú mörg komin með einhvers konar varaaíl. Fjarskiptastöðvarnar á Rjúpnahæð og í Gufunesi hafa báðar varastöðvar og á Keflavíkur flugvelli er einnig varastöð, þann ið að flugumferð truflazt ekki þótt rafmagn hverfi. Hægt er að fyrirbyggja skamm hlaup með því að sprauta vatni á einangrarana og þvo seltuna þannig af. Fundur ungra Fram sóknarmanna í Skagafirði Félag ungra Framsóknarmanna í Skagafirði gengst fyrir nokkr um almennum umræðufundum næstu mánuði. Sá fyrsti verður haldin í Bifröst, Sauðárkróki mánu dag 7. febr. og hefst kl. 20.30 Umr. efni verður stóriðjan og íslenzkur iðnaður. Framsögu annast Stefán Guðmundsson trésmíðameistari Sauðárkróki og Magnús Gíslason bóndi Frostastöðum. Öllum er heimill aðgangur meðan husrúm leyfir, og ungt fólk sérstaklega hvatt til að mæta. Magnús Stefán KT—Reykjavík, mánudag. í nýútkomnu hefti af Faxa- fréttum, blaði starfsmanna Flug- félags íslands, er skýrt frá því, að Fokker - Friendship skrúfuþot an, sem Flugfélagið á í smíðum í Amsterdam, sé ekki væntanleg til landsins fyrr en seint í apríl. Búizt hafði verið við flugvélinni um mán aðamótin marz-apríl en afhending unni hefur seinkað vegna óviðráð anlegra orsaka. f sama blaði er einnig skýrt frá Aðalfundur Sam- Handsráðs S. U. F. ASaltundur sambandsráðs verður haldinn i Reykjavík 9. og 10. marz n.k. og hefst kl. 5 báða dagana. Dagskrá samkvæmt sambandslögum. Nánar tilkynnt síðar. Stjórn S.U.F. 'teykjaneskiördæmi Formenn Framsóknarfélaganna í Reykjaneskjördæmi. áríðandi fund ur sunnudaginn 6. febrúar klukk an 2 síðdegis að Neðstutröð 4 Kópavogi. því, að um miðjan febrúar verði tekin endanleg ákvörðun um þotukaup Flugfélagsins, en þeirri ákvörðun hefur einnig seinkað vegna yfirgripsmikilla athugana, sem þurftu að fara fram. MESTUM USLA Framhald af bls. 1. ið af rúðum. Rifnaði auk þess veggfóður af veggjum og ' loft í herbergjum rifnuðu. Ríkir hálf- gert neyðarástand á bænum vegna skemmda á íveruhúsinu. Þá gerðist það nálægt Fossi á laugardagskvöldið, að jeppi fauk af veginum. í honum var Bene- dikt Benediktsson og piltur með honum. Þeir sluppu ómeiddir frá jeppanum, þegar hann fauk, en veðrið þeytti honum margar veltur. En á leið til bæjar fauk pilturinn og handleggsbrotnaði. Á Fossi fauk þak af nýbyggðu fjárhúsi og fjárhúshlöðu. í Litlu- Hlíð, fór þak af húsim og rúður brotnuðú og einnig fauk þak af geymsluhúsi þar á staðnum Eng inn er í Litlu-IIlíð um þessar mundir., Hreinasta fárviðri skall yfir á Patre!:sfirði urn hádegið á laugar- da_' x. Var vindur ..^rðlægur fram á kvöldið, en snerist þá til suð- austan áttar, og versnaði veðrið þa til muna. Upp úr klukkan 7 síðdegis á laugardag fór að bera á rafmagnstruflunum og var um að kenna skemmdum á loftlínum, / sem flytja rafmagn til innsta hluta kauptúnsins. Rafmagnslaust varð svo með öllu kl. 11 um kvöldið, en unnið var að viðgerðum, þótt illt væri vegna veðurofsans. M:kl- ar skemmdir urðu á húsum og mannvirkjum vegna ofviðrisins. Þak tók af í heilu lagi af stórhýsi á Sveinseyri, járnplötur rifnuðu af skreiðargeymlu á lóð frystihússins og hurðir fuku af sama húsi og fiskmóttöku frystihússins. Járn fauk af hálfu þaki vélsmiðjunnar Loga og hálfu þs’-i íbúðarh Hliðskjálf. Nokkuð fauk af þaki fiskverkunarhúss Fiskivers HF. I . fauk þak af gamalli geymsiu- skemmu á v'atneyri og lagðist hús- ið alveg saman og er ónýtt. Víða annars staðar í kauptúninu hefur orðið tjón á húsum, járnplötur losnao og gluggar ' rotnað. í gær- morgun lá togarinn Gylfi úti á skipalegunni, en hefur nú skipið rekið íangt út á fjörð. Veður- ofsann lægði talsvert síðdegis í gær, en úrkoma jókst að sama skapi, og geisaði mikil stórhríð. M-.xi fim: og sex á sunnudag ætl- uðu tveir brezkir togarar að leita hér hafnar, en uunar þeirra strand aði utan til í hafnarmynninu, en hann náðist síðan á flot aftur á flófi, lítið sem ekkert laskaður. Veður hefur farið batnandi í t 5—7 vindstig, rafmagnið er kom- ið í lag, en símasambandslaust er enn við allan Rauðasandshrepp. Fólk þurfti að flytja úr húsum vegna gluggabrota, og segja má að hálfgert neyðarástand hafi ríkt í þorpinu um helgina. Frost var 5—7 stig á laugardag, en í gær var frostlaust og nokkur skafhríð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.