Tíminn - 01.02.1966, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 1. febrúar 1966
SAMTÍÐIN
heimilisblað allrar fjölskyldunnar flytur sögur,
greinar, skopsögur, stjörnuspár. kvennaþætti,
skák- og bridgegreinar o.mfl.
10 hefti á ári fyrir aðeins 120 kr.
Nýir áskrifendur fá þrjá árganga fyrir 200 kr.,
sem er einstætt kostaboð.
Póstsendið í dag eftirfarandi pöntunarseðil:
Eg undirrit • • . . óska að gerast áskrifandi að
SAMTÍÐINNI og sendi hér með 200 kr. fyrir ár-
gangana 1964, 1965 og 1966. (Vinsamlegast send-
ið þetta í ábyrgðarbréfi eða póstávísun).
Nafn: .......................................
Heimili
Utanáskrift okkar er: SAMTÍÐIN, Pósthólf 472,
Reykjavík.
Skrífstofustarf
Stúlka óskast til vélritunarstarfa í skrifstofu
borgarstjóra, Austurstræti 16. Laun skv. 9—13
flofcki kjarasamninga starfsmanna Reykjavíkur.
Umsóknum ásamt upplýsingum skal skilað í
skrifstofu borgarstjóra eigi síðar en 5. þ. m.
Skrifstofa borgarstjórans í Reykjavík,
31. janúar 1966.
4ra herbergja íbúð óskast
Opinþer stofnun óskar eftir að taka á leigu hér
í borginni 4ra herbergja íbúð ásamt eldhúsi og
baði frá 1. naarz n.k. eða sem fyrst. Tilboðum
óskast skilað til afgreiðslu blaðsins fyrir 5. febr-
úar n.k., merktum „Opinber stofnun — 1. marz
1966’’.
TÍMINN
Viljum ráða skrifstofustúlku. Nokkur
vélritunar-, og málakunnátta er nauðsyn-
leg..
STAR FSMAN NAHALD
KJÖRGARÐUR
SAUMUM EFTIR MÁLI.
Þér getið valið úr 20 mis-
munandi sniðum, eða teikn
að yðar eigin snið.
Höfum einnig um 50 gerð-
ir af úrvalsefnum.
llltíma
Aðalfuridur
HJARTA- OG ÆÐASJÚKDÓMAVARNAFÉLAGS
REYKJAVÍKUR
verður haldinn ' Gyllta salnum á Hótei Borg mið-
vikudaginn 2. febrúar n.k. kl. 20.30.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstört.
2. Lagabreytingar.
3. Sýndar verða tvær danskar kvikmyndir um
hjartaverndarmálefni (ca. 20 mínútur).
Stjórnin.
Karlmannaföt
glæsilegt úrval.
IÞRÖTTIR
Framhald af 12. síðu
sínu frá stórtapi með góðri
markvnrzlu. Þessi sami Liney lék
áður fyrr með Dundee og kom
m.a. með liðinu til íslands hér
á árunum.
Með sigri sínum gegn St. Mirr
en er Glasg. Rangers aftur komið
í efsta sæti í deildini, þar sem
Celtie varð að láta í minni pok-
ann fyrir Edinborgarliðinu
Hearts. Liðin eru jöfn að stigum,
en markatala Rangers hagstæð-
ari. Celticleikmennimir hafa af-
sökun fyrir ósigri sínum, því á
föstudagskvöld komu þeir úr
sögulegri ferð frá Tiblis í Sovét
ríkjunum, og því þjáðir ferða-
þreytu Eins og kunnugt er, þá
er Celtic komið í undanúrslit
Bvrópubikarkeppni bikanh. með
samanlögðum sigri sínum gegn
Dynamo Kiev, 4:1 (3:0 og 1:1).
ÍÞRÓTTIR
Framhald af 12. síðu
Tottenham, eftir 14 vikna mikil
veikindi. Greaves var settur £
stöðu v. útherja, en þá stöðu
hafði hann aldrei leikið fyrr, enda
skipti hann yfir á hægri kannt
fljótlega og nýttist mun betur.
Greaves skoraði 3. markið úr
vítaspyrnu, sem Mackay hugðist
taka, en hljóp til hliðar og Grea
ves kem i kjölfarið og skoraði við
mikil fagnaðarlæti, enda maðurinn
vinsæll á White Hart Lane, en
svo heitir völlur Tottenham-manna.
Mark Liverpool skoraði bak-
vörðurinn Lawler. Það er orðið
algengara upp á síðkastið að varn
armenn Liverpool skori en leik
menn úr framlínunni.
Coventry er nú komið í annað
sæti í annari deild og sigurinn
gegri Wolves gæti vel orðið til
þess að félagið léki í fyrstu deild
næsta leikár. Ray Pointer mið-
herji nýkeyptur frá Bury, skoraði
eina mark leiksins á 35. mín. með
skalla. Þetta var 28. leikur Úlf-
anna og í fyrsta sinn, sem þeir
skora ekki mark í leik.
Staða efstu og neðstu liða í 1.
og 2. deild á Englandi er nú sú,
að Liverpool er efst í 1. deild með
41 stig eftir 28 leiki, en næst kem
ur Burnley með 36 stig eftir 27
leiki. f 2. deild er Manchester City
efst með 37 stig eftir 27 leiki og
Coventry kemur næst með 36
stig eftir jafnmarga leiki. Annars
mun staðan birtast í blaðinu á
morgun.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13
felli gagnar línuspil bezt, en hver
hefur séð íslandsmeistarana beita
nokkurn tíma línuspili? Mörk FH:
PáU 6 (4 víti), Öm 4, Auðunn 3,
Jón G. og Ámi 2 hvor, Birgir og
Rúnar 1 hvor.
Varnarleikurinn var sterkasta
hlið ICR í þessum leik, en auk
þess hrá fyrir skemmtilegu línu-
spili á köflum. Sigurður Óskars-
son var sterkasti maður KR, en
auk þess áttu Gisli og Karl ágæt
an leik. Verðskuldaða athygli
vakti nýliðinn Ólafur Lárusson,
sem er öUu kunnari fyrir leik á
knattspymuveUinum. Mörk: GísU
4, (1 víti), Karl og Sigurður Ósk-
arsson 3 hvor. Heinz 3 (1 víti),
Ólafur L. og Guðmundur B. 2
hvor jfe Pétur 1.
Leikinn dæmdi Hannes Þ. Sig
urðsson. sem fyri segir og skilaði
hann hlutverki sínu yfirleitt vel,
þótt gagnrýna megi nokkur atrið
en þess ber að gæta, að mjög erf-
itt var að dæma leikinn.
Jón Grétar Sigurösson,
héraðsdómslögmaður
Laugavegi 28 B II hæð
slmi <8783