Tíminn - 01.02.1966, Side 9

Tíminn - 01.02.1966, Side 9
ÞRIBJUDAGUR 1. febrúar 1966 f TÍMINN Dómurinn kveðinn upp: „Þlð eruS öli ákærð fyrir þessar saklr" Talln frá vinstri: Theodór Halldórsson, Helga Har'ðardóttir, Leifur Ivarsson, Pétur Sveinssón, Magnús Bær- ing Kristinsson, AuSur Jónsdóttir, SigurSur Grétar GuSmundsson, GuSmundur Gíslason og Björn Magnússon. Tímamyndir—GE í Kópavogi hafa staðið yfir síðan í haust æfingar á frægu leikriti og fer frumsýning fram n.k. fimmtudagskvöld: „Tíu litl ir negrastrákar," höfundur Ag- atha Christie, og er þetta ann- að frægasta sakamálaleik- rit þessarar snjöllu og vin- sælu skáldkonu, hitt var sýnt einnig í Kópavogi, fyrir nokkr- um árum, „Músagildgran“ und ir leikstjórn Klemens Jónsson- ar, sem annast einnig leik- stjórn að þessu sinni, en Hild- ur Kalman leikkona hefur þýtt „Negrastrákana" á ískazku. Leikmyndir eru eftir Gunnar Bjarnason, hinn góðkunna leik tjaldamálara Þjóðleikhússins. Alls koma fram ellefu leikend- ur í sýningunni, Sigurður Orét- ar Guðmundsson, Helga Harð- ardóttir, Magnús Bæring Krist- insson, Björn Magnússon, Auð- ur Jónsdóttir, Guðrún Þór, Guðmundur Gíslason, Pétur Sveinsson, Árni Kárason, sem öll eru kunnir Kópavogsleikar- ar, en að auki Theodór Hall- dórsson (bróðir Baldvins leikara og Erljngs leikritaskálds) og Leifur ívarsson (sem tekið het- ur þátt i nokkrum leiksýning- um í Iðno og Þjóðleikhúsinu). f leikriti þessu styðst Agatha Christie að nokkru við kvæðið gamalkunna um negrastrákana tíu. Hér koma við sögu tíu persónur (og einni betur, ferju maður,) sem koma sitt úr hverri áttinni á báti út í Negraeyjuna, þangað hefur þeim verið boðið að koma ti] veizlu og dvalar. En fyrst er þangað kemur, rennur upp fyr ir þeim, að sá sem sendi boðs- kortið, lét ekki nafns síns get- ið, svo enginn kann deili á gestgjafanum, þótt hann sé raunar einn í þeirra hópi án þess að hin viti af því. Það kemur á daginn, að sérhver gestanna hefur íramið afbrot, og gestgjafinn veit af því, og innan stundar fer svo, að sam- vizkan lætur gestina ekki i friði, þótt allir hafi ákveðið að skemmta sér. En það kemst ekki upp fyrr en síðast. Hins vegar týna gestirnir smám . .m an tölunni, þeim er komið fyr- ir kattarnef. Persónurnar eru hershöfðingi, „c.nari, frægur taugalæknir, leynilögreglumað- ur, fyrrverandi majór í suður- afríska hernum, þjónustumær, gömul hefðarkona og pipar- mey, ungur kappakstursmaður, og hinn ellefti, sem flytur gest ina út í eyjuna Þetta er vel byggt leikrit, feikispennandi og þó ekki hrollvekjandi. Tvær kvikmynd- ir hafa verið gerðar eftir þvi, hin fyrri með Barry Fitzgerald í aðalhlutverkum var sýnt hér rétt eftir stríð, eii önnur ný kemur hingað síðar í vet; Leikfélag Kópavogs er nú að æfa íslenzkt barnaleikrit, sem sýningar hefjast áður en langt um líður, höfundur Ólöf Árnadóttir, leikstjóri Benedikt Árn:. _.n. □ 'í mmm , ■■■| . : . ' ' • :><:. Fyrsti „negrastrákurinn" fallinn f valinn. Frá vinstri Helga, Theödór, Pétur, Björn og Leifur. Æfing hjá Leikfélagi Kópavogs. í salnum I Kópavogsbíó. talin frá vlnstri: Gunnar Biarnason leik- tjaldamálarl, Guðrún Þór leikkona, sýninga- og Ijósamenn og aðstoðarstúlka, og Klemens Jónsson lelk stjóri. \ at'as ■ar |

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.