Tíminn - 01.02.1966, Side 13

Tíminn - 01.02.1966, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 1. febrúar 1966 TÍMINN ÍÞRÓTTIR 13 Alf—Rvík, mánudag. Allar horfur eru á því, að knattspyrnumönnum KR berist góður liðsstyrk- ur á næstunni, því í ráði er, að Eyleifur Hafsteins- son, hinn kunni landsliðs- maður frá Akranesi, dvelji í Reykjavík allt næsta sum- ar. Og í því sambandi hef- ur Eyleifur snúið sér til forráðamanna KR og athug að möguleika á því að fá að æfa og keppa með félag inu, því að sjálfsögðu hef ur hann ekki hugsað sér að leggja knattspyrnu- skóna á hilluna meðan hann dvelur i Reykjavík. Undanfarið hefur Eyleifur verið við rafvirkjanám og ver ið á samningi hjá Sements- verksmiðju ríkisins, en nú vill hann skreppa til Reykjavíkur og kynnast sem flestum grein um framtíðarsarfs síns, en á Akranesi er tæplega aðstaða til þess. Eg hringdi í Eyleif í dag og spurði hann hvort hanm væri ákveðinn að koma til Reykja- víkur. „Eg get svarað þessu bæði játandi og neitandi”, sagði Ey leifur og bætti síðan við: „Eg vil gjarnan fara til Reykjavík ur f sambandi við námið og dvelja þar fram til næstu ára- móta. Hins vegar hefur ekkert verið ákveðið ennþá, og ég á eftir að tala við Jón Vestdal hjá Sementsverksmiðjunni um þetta endanlega. Fyrr verður ekkert ákveðið”. „Og ef úr þessu verður. ligg ur þá leiðin til KR?” „Já, ég hef talað við forráða menn félagsins, og er ekkert því til fyrirstöðu, að ég æfi með KR í sumar, Eg hef hug leitt, hvort ekki væri mögu- leiki á því að æfa í Reykjavík og keppa með Akranessliðinu, en að gthuguðu jinálj finnst mér það óraun-hæft. Þess vegn-a hef ég ákveðið það, að verði ég í Reykjavík um ein hvem tíma, muni ég láta skrá mig í KR. Þá get ég alla vega æft með félaginu, — og keppt með því, teljist ég nógu góð- ur” „Og siðan mundirðu fara upp á Skaga aftur?” Eylelfur „Já, að öllu forfallalausu, a.m.k. stendur ekki annað til”. Þetta sagði Eyleifur. Óneit- anlega mundi KR berast mikil björg í bú við að fá Eyleif, sem í dag er allra efnilegasti knattspyrruumaður okkar, og víst er. að skarð yrði fyrir skildi í knattspyrnunni á Skaga. Af Slysavarðstofunni beint í skotstöðu Hörkuleik FHogKR lauk með eins marks sigri FH, 19:18 Alf—Reykjavík, mánuda-g. fslandsmeistarar FH máttu þakka fyrir að krækja í bæði stigin gegn KR í íslandsmótinu f handknattleik á sunnudaginn í tvásýnasta og harðasta leik móts ins til þcssa. Það var ekki fyrr en á allra síðustu mínútum leiksins að meistaramir frá Hafnarfirði. sem enn einu sinni urðu að leika án Ragnars Jónssonar, náðu forystu í leikn- um, en KR-ingar höfðu haft for ustu nær allan tímann. Það var Ámi Guðjónsson, sem jafnaði fyr ir FH, 16:16, en þá voru 4 mínút- ur eftir. Og litlu síðar bætti Ámi 17. markinu við. Spennan í leiknum náði há- marki á mínútunum, sem eftir voru. Hannes Þ. Sigurðsson, sem hafði það arfiða hlutverk að dæma leikinn, dæmdi vítakast á KR litlu síðar. Páll Eiriksson vítakastssérfræðingur þeirra FH- inga, framkvæmdi kastið, en Sveinn í KR-markinu varði. Knötturinn rúllaði út að línu, en Sveinn lá sem rotaður á gólfinu og gerði eng-a tilraun til að ná til knattarins, og FH-ingur kast aði sér inn í teiginn á knöttinn, sem tók stefnu i markið. Og það var þá sem Sigurður Jonny, að- almarkvörður KR, ruddst inn á völlinn, öllum til mikillar furðu, og hindraði að knötturinn færi í mark. Mjög óvenjulegt atvik að sjá tvo markverði úr sama liðinu liggjand á gólfinu. Hannes dóm ari var fljótur að greiða úr flækj- unni, afhenti Sigurði Jonny „reisu passa' og dæmdi FH víti, sem Páll skoraði úr, 18:16. Með þessu voru úrslitin raunar ráðin, en leiknum var samt ekki lokið. Karl Jóh-annsson skoraði 17:18, en Jón Gestur bætti marki við fyrir FH, 19:17. Síða-sta mark leiksins skoraði Gísli Blöndal fyr ir KR, og þá var tíminn nær út- runninn. Lokatölur úrðu því 19:18 fyrir FH. Það er óhætt að fullyrða, að þetta sé harðasti leikur í mótinu til þessa. Svo mikil var harkan, að flytja varð einn KR-leikmanna Gísla Blöndal, í Slysavarðstofuna með blæðand andlit. Illaut Gísli högg frá Jóni Gesti undir lok fyrri hálfleiks og fékk skurð fyrir neðan annað auga. En Gísli var fljótur að jafna sig og kom beint af Slysavarðstofuniii í skotstöðu í leiknum um miðjan síðari hálf- leik, þar sem hann tók vítakast og skoraði! Þrátt fyrir spcnnu bauð leikur inn ekki upp á góðan handknatt- leik, til þess var harkan allt of mikil. Og það voru KR-ingar, sem áttu upptökin með sínum fasta varnarleik. í byrjun komst FH yfir 5:2, en KR-ingar jöfnuðu og liöfðu yfirlett eitt mark yfir fram að hléi en í hálflelk var staðan orðin .iöfn, 11:11. í síðari hálfleik náði KR fljótlega aftur forustu og hafði þrívegis 2 mörk yfir. En undir lokin sigidu FH-ingar fram úr og unnu með einu marki. Eftir öilum gangi leiksins hefði jafn- tefli verið sanngjörn úrslit. FH má illa vera án Ragnars Jónssonar, Það sannaðist áþreifan lega i leiknum á sunnudaginn. Ragnar á við meiðsli í hendi að stríða, en mun að öllum líkindum verða með í leiknum gegn Dukla Prag á föstudaginn. Hætt er við, að FH missi af íslandsmeistara- titlinum ef liðið leikur fleiri leiki svipaða og það hefur sýnt í byrj un mótsins. Jafn einhæft lið og FH þoldi t.d. illa vamarleik KR á sunnuda-ginn, en KR lék vörn- ina mjög framariega. í slíku til Framhald á 6- síðu Fram er eina liðið án taps - vann Hauka 29:26 Alf-Reykjavík, mánudag. Fram er nú eina 1. deildar Iið- ið í handknattleik, sem ekki hef ur tapað leik. Á sunnudagskvöld lék Fram gegn Haukum og sigr aði nieð 3ja marka mun, 29:26, eftir skemmtilegan leik. Fram náði fljótlega forustu í leiknum og hélt henni til leiks- loka. í hálfleik var munurinn fjög mr mórk, 12:8, og um tíma í síð- ari háifleik skildu 9 mörk á milli 26:17, en Haukai áttu góðan loka sprett og minnkuðu bilið niður í 3 mörk Sókaarleikur Fram í þessum leik vai mjög góður, línuspilið sér staklega gott, en það sama verður ekki sagt um varnarleikinn eða markvörzlu þeirra fél-aga Þorgeirs og Þorsteins, sem var mjög léleg. Má segja, að næstum því hvert einasta skot Hauka, sem fór fram hjá vörninni hafi hafnað í netinu. Áberandi bezti maður Fram og jafnframt vallarins, var Gunn- aiugur Hjál-marsson, sem skoraði 10 mörk þar af 5 úr víti. Gunn- Framhald á 4. síðu 4 1 .... ■ Badminton- mót hjá KR Laugardaginn 5. febrúar beldur Radmintondeild KR innanféla-gsmót í KR-hús- inu. Verðui keppt í einliða leik og tviliðaleik. Mikil aðsókn hefur verið að æfingatimum deildarinn ar og komast færri að en vilja. Sömu sögu er að segja um TBR. og má af því ráða að badmintoní- bróttin njóti sívaxandi vin- FRIÐRIK ÓLAFSSON SKRIFAR UM REYKJAVÍKURMÓTIÐ Síðasta umferð Friðrik sigraði Jón. Kr. og tryggði sér þa-r með efsta sætið því að Va-sjúkof tóks-t ekki að komast neitt áleiðis í viðureign sinni við Guðm. P. O’Kelly náði 3ja sætinu með sigri yfir Jóni H„ en Guðm. P. hafnaði í næsta sæti og ætti hann að hafa mögu- leika á að fá útnefningu sem ai þjóðlegur meistari fyrir þennan árangur sinn. Svipað er að segja um Freystein, sem lenti í 5. sæti. Jón. Kr.-Friðrik: Friðrik brást ekki við byrjunartaflmennsku Jóns a þann hátt, sem venjulegast er og setti það Jón nokkuð út af lagÍTOU. Náði Friðrik að byggja upp vænlega scknarstöðu á drottn ingarvængnum og tókst síðan, eft- ir nokkcar sviptíngar að komast í mjög hagstæð mannak-aup (2 'hrókar fyrir drottningu). Varð staða Jóns við þetta illverjanleg enda lór svo, að hann varð að gef ast upp eftir skamma viðureign. 1. d4, Rf6 2. c4, g6 3. Rc3, Bg7 4. e4, d6 5. Bg5, h6 6. Bh4, o—o 7. Be2, c5 8. d5, a6 9. a4, Da5 10. Dd2, Rbd7 11. Rf3, b5 12. cxb5, axh5 13 Bxb5, Rxe4 14. Rxe4, Dxb5 15. axb5 Hxal+ 16. Ke2, Hxhl 17. Rc3, He8 18. Dd3, Rb6 19. Rd2, e6 20. De3, Bd7 21. Kf3, exd5 22. Df4, He5 23. Ra4, Bxb5 24 Rxb6, g5 — hvítur gafst upp. Vasjúkof-Guðm. P.: Vasjúkof var ekki í neinum friðsemdarhug leiðingum þetta kvöld eins og gef ur að skilja. Hann hrókeraði á lengri veginn þegar í 10. leik til að get.a byggt upp sókn gegn kóng andstæðingsins á hinum vængnum. Guðm. tók þessu öllu með ró og opnaði sér línu til gagn sóknai á drottningarvængnum. Vasjúkoí varð að snúast til varn- ar um sinn en er hann taldi kóngs stöðu sína vers orðna nægilega trygga, tók hann aftur til við sóknarsðgerðir sínar á kóngs- vængnuim. Miðtaflið reyndist mjög andteflt, end-a eyddu báðir miklum tíma sérstaklega þó VasjÚKot Þegar leiknir höfðu ver ið rúmlega 20 leikir átti Vasjúkof einungis eftir 20 mínútur ti] að ljúka tilskildum leikjafjölda, og hætti honum þá að lítast á blik- una. Bauð hann jafntefli og Guðm. þáði. í lokastöðunni stóð Vasjúkof sennilega eitthvað betur að vígi en ekkert afgerandi var í sigti a.m.k. ekkert, sem rétt- lætti frekari taflmennsku með svo nauman tíma. Jón H.-0‘KeIly. Jón iagði fljót- lega til atlögu á miðborðinu, en hún var ekki vel undirbúin og átti )‘Kelly auð-velt með að hrinda henni og ná frumkvæðinu. Með tak-tískum leikjum jók 0‘Kell\' sífell* yfirburði sína og auðnaðist Jóni ekki er til lengdar lét að verja stöðu sína áföllum. Var staðan orðin alggjörlega von laus. er hann gafst upp. Freysteinn. Bjórn: Björn fékk liðlegr, stöðu ipp úr byrjuninni og virtist Freystcinn eiga við tals verða erfiðleika að etja í miðtafl- inu. Fvrir ónákvæ-ma taflmennsku Björns tókst honum þó að rétta við og jafnvej vinna peð rétt áður en skákin fór í bið. — Biðskákina tókst honum ekki að vinna þrátt fyrir liðsmuniim. Wade-Böök. Þessi skák ireyndist einhvei sú furðuiegasta í mótinu. Wade vann fljótiega peð sökum slælegrar taflmennsku Böök í byrjuninni og kom auk þess svarta kónginum á hrakhóla. Vinn ingurinn virtist aðeins vera tækni legt atriði ,fyrir Wade, en þá fór hann skyndilega að tefla glanna- lega ->g gaf andstæðingi sínum færi a nættulegri gagnsókn. Til að stemma stigu við þessari sókn kaus Wade að forna hrók, en sú fórn hefði varla átt að gefa hon um meira en jafn-tefli í aðra hönd. Reyndm varð hins vegar sú, að Böök tefidi framhaldið illa og lék sip að lokum í mát. Staðan var þá einnig töpuð. Kieninger-Guðm. Sig.: Drottn. tngarkaup urðu þegar í 8 leik, og fleiri jppskipti fylgdu í kjölfarið. Um síðir kom upp endatafl, sem hvorugur áleit sig geta teflt til vinnings í, og var þá sætzt á jafn tefli.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.