Tíminn - 01.02.1966, Blaðsíða 14
14
TjlYIINN
SUNNUDAGUR 30. janúar 1966
SJÖTUGUR
fiallirio 11 J síðu
var staður hamingju þeirra og
sonanna þriggja. Kvöldskinið í
Laufási var bjartara en nokkru
sinni, þegar einn sonurinn fékk
gullverðlaun í vísindagrein sinni
í Kaupinhöf, en bræðurnir frá
Laufási eru verkfræðingar tveir
og einn lífeðlisfræðingur.
Framtíðarstarf
Opinber stofnun óskar eftir aS ráða bókara nú
þegar. Nokkur vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu
blaðsins fyrir 5. febrúar n.k., merktar „Framtíð—
1966”.
Skrifstofustiílka óskast
Opinber stofnun óskar eftir að ráða skrifstofu-
stúlku nú þegar. Laun samkvæmt 8. launaflokki
starfsmanna ríkisins. Umsóknir með upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf sendist af-
greiðslu blaðsins fyrir 6. febrúar n.k., merktar
„Skrifstofustúlka—febrúar 1966”
STÚLKUR
' 35 ára bóndi, óskar eftir að kynnast konu á aldr-
inum 25—35 ára
Algerri þagmælsku heitið.
Svar merkt „1966.“ sendist afgreiðslu blaðsins.
HRAÐFRYSTiHÚS
í Keflavík er til sölu, mjög aðgengilegir skilmálar.
Lögfræðiskrifstofa Áka Jakobssonar,
Austurstræti 12, sími 1-59-39.
ÞAKKARÁVÖRP
Hjartans þakkir til allra vina og vandamanna, sem
heiðruðu mig með gjöfum, heillaskeytum og heimsókn-
um á 90 ára afmæli mínu, 21. ian. s. 1., og gerðu mér
þar með afmælisdaginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður J. Brandsson.
Innilegustu þakkir sendi ég öllum, sem vottuðu mér
hlýhug á áttræðisafmæli mínu.
Sigríður Gísladóttir
Lindarbæ. Ásahreppi. Rangárvallasýslu.
Innilcgar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar og ömmu,
Ingibjargar Nikulásdóttur
Baldursgötu 22 a,
Þorlelfur Slgurðsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
Karl Guðmundsson
skipstjóri, Öldugötu 4.
Lézt laugardaginn 29. þ. m.
Marfa Hjaltadóttir.
Þessi birta frá fornhelgum Lauf-
ásstað hefur fylgt heimilinu suð-
ur, því að þrátt fyrir erfiðleika
veikindanna er þar gott að koma
og glatt í sinni. Andinn frá Lauf-
ási er eilífur.
Ágúst Sigurðsson á Möðruvöllum.
Oveðurs
fréttir
Framhald af 16. síðu.
síminn verið í lagi. Lítils háttar
skemmdir urðu í Bjarnadal, og
útihús á Tröð urðu nokkuð illa
úti. Rafmagnsstaurar eru víða
brotnir úti í sveitum, og ekki er
hægt að aka inn í Bjarnadal fyrir
brotnum símastaurum. Hér í þorp-
inu hefur þó verið allt í lagi með
rafmagnið, enda er hér góð diesel-
varastöð svo til ný.
Frá ísafirði bárust þessar frétt-
ir:
Enski togarinn St. Agnetus frá
Hull fékk í gær á sig brotsjb 2
mílur undan Ritnum og fór á
hliðina. Togarinn Port Vale frá
Grimsby var staddur þar skammt
frá og sigldi að til að taka menn-
ina frá Agnetus um borð. í sama
mund fór Agnetus að rétta sig
við og rakst þá stefni Port Vale í
hvalbak Agnetus og kom gat á
skipið rétt ofan við akkerisgötin.
Agnetus réttist brátt við, og þeg-
ar hún var komin á réttan Kjöl,
fór einn hásetanna út til að at-
huga ratsjána. Fauk hann fyrir
borð og fannst ekki. Agnetus er
nú í höfn á ísafirði, en ókyrrð
er í áhöfninni og vilja margir
skipverja fara af skipinu hér.
Þrátt fyrir ofsaveður haf? ekki
orðið hér teljandi skaöar, utan
þess, sem rafmagns- og símaiín-
ur hafa víða slitnað. Rafmagns-
laust var í gær og í dag víða
hér í grennd, svo sem á Skutuls-
' rði og í Hnífsdal.
Á Hvammstanga urðu litlar
sem engar skemmdir af veðurofs-
anum, aðeins nokkrar járnplötur
fuku þar af húsum, og að ekjd.
Mjög hvasst var í mestu hryðj-
unum, en lítinn snjó hefur fest á
jörð.
Á Blönduósi hefur verið ^ersta
veður, sem menn munr. síðustu
dagana, en í kvöld var komið
’ogn og orðið stjörnubjart. Engir
skaðar hafa orðið á húsum eða
öðrum mannvirkjum, að því und-
anskildu, að fáeinar plötur hafa
fokið af húsþökum. S,. er
ill, og hefur hann skafið saman
í stóra skafla, og er ófærð mikil
í Langadal.
Mikið tjón varð á Skagaströnd
í óveðrinu, og muna menn ekki
annan eins veðurofsa frá því árið
1920. Tuttugu og tveggja tonna
bátur, Stígandi sökk í höfninni.
Svo mikill ís hlóðst á bátinn, að
ekki hafðist undan að berja hann
af. Fór báturinn á hliðina og
sök’- síðan. Miklir erfiðleikar voru
á að halda öðrum bát’im á fl i
í höfninni og munu nokkrar
skemmdir hafa orðið sumum
þeirra. Þak fauk af húsinu Skál-
holti á Skagaströnd, en þar að
auki fauk mikið af þakplötum af
öðrum húsum, og hús löskuðust.
Rúður brotnuðu , mjölskemmu og
verksmiðjuhúsi sfldarverksmiðj-
unnar á staðnum, • og tvær rúður
brotnuðu í ítibúi 'caupfélagsins.
Snjóaði þar inn og einnig mun
eitthvað af vörum 'nafa "okið út.
Allar rafmagnslínrr slitnuðu og
einnig loftsípialínur, og er nú sam
bandslaust við öll þau hús á staðn
um. sem ekki eru með jarðsíma-
samband Heyskaðar íaf5 orðið
nokkrir í þessu óveðri. Mjóikur-
laust hefur verið á Skagaströnd
frá því á fimmtudaginn, en mjólk
fá þorpsbúar bæði úr sveitum í
kring og frá Blönduósi, en okki
verið talið fært að ná í mjólk.
Á Sauðárkróki var nokkuð
hvasst um helgina, en þar hefur
ekki orðið tjón á mannvirkjun
svo vitað sé. Á laugardaginn varð
veðurhæðin mest, um 10 vinstig.
í Blönduhlíð var ofsarok, þak
fauk af hlöðu á Úlfsstöðum og
plötur af hlöðuþaki að Sólheima-
gerði.
Engar skemmdir urðu á Hófsósi
í óveðrinu. Mikill snjór er þar í
kring, og vegir ófærir eins og er.
íbúðarhúsið á Reykjarhóli í
Holtshreppi í Fljótum gjöreyði-
lagðist í óveðrinu. Fólkið á bæn-
um komst út og varð ekki fyrir
neinum meiðslum, en talið cr að
Msið sé gjörónýtt.
Stórfelldar skemmdir urðu í
óveðrinu hjá Síldarverksmiðjum
Ríkisins á Siglufirði. Meðal ann-
ars lagðist einn veggur Dr. Páls
verksmiðjunnar alveg inn og er
nú verið að kanna, hve miklar
skemmdir hafa orðið af þessum
sökum, er þegar talið að skemmd
irnar nemi hundrað þúsund
króna. Auk þess sem veggurinn
hrundi, fauk mikið járn af þök-
um hjá síldarverksmiðjunu— og
sömuleiðis af mörgum húsum öðr
um á Siglufirði. Til dæmis fauk
allt þakið af nokkurra mánaða
gömlu íbúðarhúsi við Laugarveg,
og einnig fauk þakið af húsi, sem
stendur niður á hafnarbryggju.
Rafmagn fór i óveðrinu, en fyrir
nokkru hefur verið komið upp
dieselstöð á Siglufirði, og hafa
Siglfirðingar því ekki þurft að
hýrast í myrkri í þessu mikla
óveðri. Fréttaritari blaðsins hefur
búið á Siglufirði frá því árið 1934
og man hann aldrei eftir aðru
eins veðri í allan þann tíma, sem
hann hefur verið þar.
Á Ólafsfirði hefur geisað linnu-
laus norðaustan stórhríð frá því
aðfaranótt föstudags með mikl-
um veðurofsa og snjókomu. Allar
samgöngur tepptust þegar í stað,
og hafa bændur ekki getað kom-
ið mjólkinni frá sér nema af
næstu bæjum. Strax á föstudag
var komið hér foráttu brim, og
komst því flóabáturinn Drangur
ekki inn á fjörðinn, en náði höfn
á Siglufirði. Til allrar hamingju
voru allir heimabátar í höfn, er
óveðrið skall á, en sjómenn ..~a
orðið að standa vörð um þá dag
og nótt, ef þeir slitu gf sér bönd
í veðurofsanum. Sftir hádegi á
laugardag "ór heldur að draga úr
snjókomu og frosti, en veðurhæð-
in var sízt minni, og náði há-
marki á laugardagskvöld og hélzt
allt fram á sunnudag. Allar síma-
línur og raflínur voru orðnar út-
blásnar af ísingu seint á laugar-
daginn, mátti þ\. búast við að
línur og staurar bryc+u þá og þeg-
ar, ef veðurofsann lægði ekki.
Klukkan 22.30 á laugardagskvöld
fór allt rafmagn af bænum, og
kom ekki aftur fyrr kl. 10
á sunnudagsmorgun. Kom þá í
Ijós að háspennulínan frá Garðs-
ái.L.jun hjifði slitnað niður á
löngum parti og að mir- *a kosti
13 staurar brotnað. Enn fremur
tnuðu niður allar loftlínur í
bænum, og stau ar brotnuðu. og
eru því sum hver." alveg raf-
magnslaus. . alháspennulínan frá
Skeiðsfossvirkjun hefiu þrauk-
að ennþá, en sums^staðar slitnað
niður á þverlínum 'heim að bæj-
unum. Þá hafa símalínur viða
slitnað og samband rofnað. Flest
loftnet í bænum eru slitin niður
eða stérlöskuð. Storminn fór held-
ur að lægja í morgun, ig víða sér
til fjalla.
Síðan á föstudag hefur verið
norðan og austanstætt stórviðri
á Akure;TÍ. Á mið ’ætti á laugar
dag herti veðrið enn og ge' aði
um nóttina og fram yfir há-
degi á sunnudag afspyrnu-
rok með ofanhríð og cafrenn
ingi. Frostharka var ekki - mikil,
en samt muna menn ekki annað
eins vetrarveður í mörg ár. Mikl-
ar umferðartruflanir og skemmd
ir urðu af völdum veðursins. Sam
kvæmt upplýsingum Gísla Ólafs
sonar yfirlögregluþjóns átti lög
reglan mjög annríkt að sinna
hjálparbeiðnum. Fólk átti í erfið
leikum með að komast leiðar sinn
ar. Á sunnudag aðstoðaði snjó-
bíll fólk í ferðum innanbæjar og
í nágrenni. Þakplötur fuku af
fimm til sex húsum. Af Ga0n-
fræðaskóla Akureyrar fuku 70
til 80 þakplötur. Dreifðust þær
um allt umhverfið, brutu rúður,
og löskuðu bifreið, sem stóð þar
nálægt. Á húsinu Munkaþverár-
stræti 8 stóðu sperrurnar einar
eftir af kvisti að austanverðu.
Brak úr þakinu laskaði 3 bíla,
sem stóðu á stæðinu við húsið og
einn þeirra, nýle^ Opelbifreið
stórskemmdist. Einnig fuku hlut
ar úr þakinu yfir I Ilafnarstraiti
og brutu þar rúður í nærliggj-
andi húsum. Mestar urðu skemmd
irnar á Amtsbókasafninu, Hafnar
stræti 88, og verzluninni Eyja-
firði. í dag er verið að hreinsa
brakið af lóð POB og næriggj
andi götum.
Slökkviliðið var kvatt út laust
fyrir klukkan 7 á sunnudagsmorg
un. V: þá veðurhæð 7—9 vind-
stig. Kviknað hafði í íbúðar-
glugga á Gleráreyrum 6, sem er
í eigu bæjarins. Slökkviliðið átti
í erfiðleikum að komast á staðinn
i. gat lítið athafnað sig vegna veð
urs. Eldurinn magnaðist fljótt,
og varð ekkert við ráðið, þó
tókst að koma lítill dælu í sam-
band við Olerána, en annars var
ekkert vatn að fá. f bragganum
bjuggu tvær fjölskyldur, fjöl-
skyldur Valdimars rAtorarinsen,
og Árna Bjarmans, alls 15 manns.
Bjargaðist fólkið naumlegc. og
sumt fáklætt. Búslóðin brann öll
inni. en þó tókst að bjarga ein
hverjum fatnaði úr íbúð Áma
Bjarmans. Um eldsupptök er
ókunnugt. Ekki var slökkviliðið
kallað út aftur meðan á óveðrinu
stóð. og var það vel, þar sem nær
ófært var um bæinn. Þorsteinn
Stefánsson hafnarvörður .sagði,
að þrátt fyrir afspyrnuveður og
mikið öldurót við höfnina, hefðu
þ”” ekki orðið miklar skemmd-
ir. Snæfellið losnaði að vísu frá
að nokkru leyti og braut hekkið
á mótorbátnum Verði. Áttu menn
í nokkrum erfiðleikum með að
vinda skipið aftur, -Jium þess,
að sji-- gekk án afláts fyrir
bryggjuna pótt lágsjávaó væ:
Fimm þrezkii togarar tíndust
inn til Akureyrar á laugar o .
suœniudag til þess að liggja af sér
veðrið. Tveir þeirrra . öfðu L
á sig nnút. Togarinn Northern
Eáglj frá Grimsby var með önýta
radarstöng og laskaðan brúar-
væng eftir brotsjó. Lifeguard
frá Grimsby fékk einnig á sig
hnút og brotnuðu báðir lífbátarn
ir. Togararnir voru að búast til
brottfarar í dag. Samkvæmt upp
lýsingum Ingólfs Árnasonar, raf
veitustjóra Eyjafjarðarveitu,
urðu skemmdir furðulitlar á svæð
inu. Þakkaði hann það aðallega
því, hve ísmyndun var lítil. Þó
var rafmagnslaust við Eyjafjörð
norðan Iljalteyrar þar með talin
Hrísey, Dalvík og Grímsey. Há-
spennulínan í Grímsey slitnaði
en ekki er hægt að fá upplýsing
ar þaðan sökum sambandsleysis.
Gunnar Schram ímstöðvar-
stjóri sagði, að sambandið við eft
irtalda staði hefðý rofnað í veðr
inú: Raufarhöfn, Ólafsfjörð, lín
an til Siglufjarðar slPnaði og"
hlaða a Grýtubakka í Höfðahverfi
fauk upp og sleit símalínuna, og
því er sambandslaust til Greni
-'íkur. Einnig bilaði línan milli
Akureyrar og Reykjavíkur og
smátruflanir urðu á innanbæjar
hverfinu. Fyrst dag var nægt að
senda vinnuflokka til veiðgerðar
Framhald á bls. 15.