Tíminn - 02.02.1966, Blaðsíða 1
MJOLKUR
POKINN
Svona líta plastpokarnir út.
sem mjólkursanilögin á Sauðár-
kr^d og Blönduósi hyggjast
taka í notkun áður en langt líð
ur, en blaðið hefur áður skýrt
frá því, að undirbúningur að
notkun þessara umbúða stand.
nú sem haest, og hafa vélar
verið pantaðar og eru á leið
til landsins. Meðfylgjandi mynd
er tekin £ Borup Andelsmejeri,
sem varð fyrst til þess í Dan
onörku að taka upp slíka plast-
poka, sem umbúðir utan um
mjólk. Mjólkin er í þunnum,
gagnsæjum plastpoka, og er
hægt að fá hana í eins lítra,
hálfs lrtra, pela umbúðum, og
svo er líka hægt að kaupa einn
deselítra, en í svo smáar umbúð
Lr er venjulega aðeins látinn
rjómi. Plastpokamjólkin er
létt þar sem engin aukaþyngd
er í umbúðunum, og það á
líka að vera heldur þægilegt,
að koma henni fyrir í innkaupa
töskum húsmæðra, og sömuleið
is í ísskápnum. Utan um plast
pokann á myndinni er glært
plastbox, er það sérstaklega ætl
að til þess að hafa utan um
mjólkurplastpokana, og er með
smástút að framan, en eins og
skiljanlegt er, geta pokarnir
ekki haldizt UPPÍ af sjálfsdáð
um, og mundi öll mjólkin renna
úr þeim, eftir að gat hefur ver
ið klippt á eitt hornið ef
ekki væri um stuðning plast-
boxins að ræða.
Standa ekki við gerðan
samning um olíuf lutning
TÍMINN LEITAR ÁLITS TRYGGINGAFÉLAGA VEGNA VEÐURSKAÐA
HVER BORGAR TJÓN ?
KT—Reykjavík, þriðjudag.
Túninn hafði i dag samband við
nokkur tryggingafélög í Reykja
vík til að grennslast fyrir um,
hver þyrfti að bera þau tjón. sem
orðið hafa á verðmætum af völd
um óveðursins, sem geisað hefur
um landið að undanfömu. Það
kom í ljós, að hér er um mikið
vafaatriði að ræða, og ef þak fýk
ur af húsi og eyðileggur verðmæti
í fallinu, er ekki víst, að húseig-
andi geti talizt ábyrgur, og þess
vegna ekki tryggingarfélag hans.
Er Tíminn hafði í dag samband
við deildarstjóra hjá Aimennum
Tiryggingum, Samvinnutrygging-
um og Sjóvátryggingafélagi ís-
lands, kom það í ljós, að bifreiða
eigendur þeir, sem orðjð hafa illa
úti vegna óveðursins um s.l. helgi
eiga yfirleitt ekki kröfu á hendur
tryggingafélögum sínum af þeim
völdum. Undantekning er þó ef
bifreið fýkur út af vegi og veltur
en yfir það tjón myndi kaskótrygg
ing ná.
Talsvert öðru máli gegnir um
þær bifreiðar sem verða undir
þýkum húst, eins og komið hefur
fyrir um helgina. Undir eðlilegum
kringumstæðum ættu bifreiðaeig
endur kröfu á heridur húseigend-
um, en húseigendur kröfu á hend
ur tryggingafélagi, ef hús væri
tryggt gegn slíku tjóni. (Á-
byrgðartrygging húseigenda). í
tilvikum eins og um síðustu helgi
þykir tryggingafélögunum hins
vegar málin ekki liggja eins beint
við og ella. Ber þeim saman um
Framhaio a ois 14
GÞ—Reykjavík, þriðjudag.
Svo virðist sem Rússum ætli
ð ganga illa að standa við
lerða samninga um olíuflutn-
nga til landsins. Er svo kom-
5, að þeir geta ekki flutt
lema helming þess magns af
lasolíu sem olíufélögin höfðu
skrð eftir að fá í febrúarmán
iði/ Samkvæmt upplýsingum
em Tíminn Hefur aflað sér
ijá Olíufélaginu Skeljungi og
Xíufélaginu h.f hafa orðið
erulegar vanefndir á þeim
oforðum, sem Rússar hafa
lefið um olfuflutningana
lingað
Það var í desehibermáinuði síð-
stliðins árs sem olíufélögin hér
erðu pantanir sínar á gasolíu fyr
• febrúarmánuð i ár. Áttu Rússar
amkvæmt þeim pöntunum að
lytja hingað 24 þúsund tonn af
asolíu í febrúai. Fljótlega bar á
ví, að um einhverja tregðu var
ð ræða af Rússa hálfu og báru
eir fljótlega við skipaleysi. Eins
g kunnugt er, þá hafa þeir sam
5 um að flytja olíuna hingað,
g undirboðið þá flutninga til að
ná þeim.
Gekk lengi í þófi milli kaup-
enda hér og Rússa út af þessum
óvæntu viðbrögðum þeirra, eftir
að samningar um olíusölu og flutn
inga höfðu til þess að gera nýlega
verið gerðir Lék jafnvel grunur
á því að Rússar væru ekki eins
birgir af olíu og mátt hefði ætla.
Niðurstaðan hefUr orðið sú eft
ir þetta þóf, að Rússar treystast
til að senda hingað helming þeirr
ar gasolíu. sem pöntuð hafði verið
fyrir tebrúarmanuð. Að sjálf-
sögðu þýðir þetta það að olíufé-
Framhald .- nis 14.
EINLÆGNI „ FRIDA RSÓKNAR "
JOHNSONS ER DREGIN IEFA
NTB-New York, EJ-Reykjavík,
þriðjudag.
ic Bæði Sovétríkin og Frakk
land andmæltu því í dag, að
Öryggisráðið skyldi taka Viet-
nanimálið til umræðu, þegar
ráðið kom saman til fundar í
dag til þess að ræða tillögu
Bandaríkjanna um, að málið
skyldi tekið á dagskrá ráðsins.
Það var einkum sovézki full
trúinn, Fedorenko, sem gagn
rýndi harðlega ákvörðun Banda
ríkjanna um að hefja loftárásir
að nýju.
ic Jafnframt skýrði fréttarit
ari brezka útvarpsins í Wash-
ington frá þvi í dag, að talið
væri, að loftárásir yrðu gerðar
innan ákveðinna takmarka, þar
til Ijóst væri, hvernig málinu
reiddi af innan Sameinuðu Þjóð
anna, og að það væri viða tal
ið þar i borg, að ákvörðun John
sons forseta um bæði að hefja
Ioftárásir og hefja nýja „friðar
sókn“ á vettvangi Sameinuðu
Þjóðanna bæri mestan keim af
póliiskum hagsmunum innan
lands.
Arthur Goldberg, fastafull
trúi USA hjá Sameinuðu Þjóð
unum, lagði til í byrjun fund
ar Öryggisráðsins í dag, að
fulltrúar frá Norður- og Suður
■Vietnam yrði boðið að sitja
fundi Öryggisráðsins um Viet
nam. Tveim tímum áður en ráð
ið kom saman. hafði stjórn
Norður-Vietnam aftur á móti
lýst þvi yfir, að sérhver sam-
þykkt, sem gerð yrði í Öryggis
ráðinu um Vietnam, væri dautt
og ómerkt. Það væri einungis
Genfarráðstefnan um Indó-Kína
sem hefði vald til þess að taka
til meðferðar hernaðaraðgerð
ir Bandaríkjanna i Vietnam.
Bandaríkin vildu enn einu sinni
misnota Sameinuðu Þjóðirnar
til þess að hylja árásarað-
Framhald á bls. 14.