Tíminn - 04.02.1966, Side 9

Tíminn - 04.02.1966, Side 9
FÖSTUDAGUR 4. 196« f Nauteyrarhreppur liggur austan við ísafjarðardjúp og nær alla leið frá Kaldalóni og inn á ísafjarðarbotn. Landslagi svipar þar meir til þess, sem er við Húnaflóa — Steingríms- fjörð til Hrútafjarðar — en á Vestfjörðum sunnan ísafjarðar djúps. Hlíðar eru þar ávalar en ekki snarbrattar og hálsarn ir eru víða grónir grasi og kvisti enda hafa löngum þótt þar sauðlönd góð. Veðrátta er misjöfn í hreppn uan. Innan til er snjólétt og veðursælt en að utanverðu er vetrarríki í meira lagi og norð anveður hörð, enda skammt að Drangajökli. „ÞAÐ HEFUR VERIÐ GAMAN” Yzti bær í Nauteyrarhreppi er Ármúli, sem stendur skammt frá sjó undir múla þeim er gengur fram milli Kaldalóns og Skjaldfannardals. f Skjaldfannardal, eru tveir bæir, Skjaldfönn og Laugaland og nýbýlið Laugarás, þar sem Jón Þórðarson stundar ylrækt, sennilega nyrsti garðyrkjubóndi veraldar. Á Laugalandi býr fað ir hans, oddviti hreppsins, Þórð ur Halldórsson. Á Laugalandi býr með Þórði Halldór sonur hans, sem er kvæntur Ásu Ket ilsd. frá Fjalli í Aðaldal. Jón sonur hans býr við jarðhitann neðan við túnið eins og áður er sagt. Kristín dóttir hans er húsfreyja á næsta bæ, kona Guðmundar Magnússonar á Mel graseyri og Ólafur sonur hans býr á Rauðamýri. nðali Halldórs afa síns. Eg var fyrir nobkru gestur Þórðar á Laugalandi og Helgu Jónsdóttur konu hans. Við Þórð ur ræddum margt og meðal ann ars spurði ég hann að ýmsu með það í huga að láta það fara lengra og verða fleirum en mér til skemmtunar og um- hugsunar. En fyrst verð ég lítilsháttar að gera grein fyrir uppruna Þórðar. Jón Halldórsson afi hans bjó á Laugabóli í ísafirði og var frægur að dugnaði og skörungs skap víða um Vestfirði. Synir hans voru Þórður á Laugabóli, faðir Sigurðar hreppstjóra þar, Jón í Tröllatungu, Halldór á Rauðamýri, faðir Þórðar og Magnúsar bæjarfógeta í Hafn arfirði. Dóttir Jóns á Lauga bóli var Valgerður, kona Kristj áns Þorlákssonar í Múla. Eftir Jóni Halldórssyni á Laugabóli var það haft að hvert barn væri betri eign en 12 hundruð í jörðu. Eg spurði Þórð um tildrög þess, að hann byggi á Lauga landi. — Það var uppboð á Naut eyri vorið 1915. Þar átti að bjóða upp eitthvað drasl frá búi hér. Eg ætlaði þangað ekki en kom í hug, eftir að pabbi var farinn niður eftir, að þar myndu verða boðnir upp tveir hrútar sem höfðu verið aldir um veturinn vegna leiguánna. Svo ég hljóp þá niður eftir og náði uppboðinu. Þegar að því kom að bjóða upp jörðina eða % hennar gerði enginn boð og Magnús Torfason sýslumað ur sagði: „Vill nú enginn eiga Laugaland?" Þá gaf ég mig fram, og spurði hvort hann tæki mig gildan, og þetta fór svo, að ég keypti á 960 krónur. Eg átti 5 ær og einn brúnan hest og 39 krónur í sparisjóðs bókinni en 18 leiguær fékk ée með jörðinni. — Og fórstu þá að búa? — Nei. Eg leigði jörðina fyrst en flutti hingað 1917. Að- koman var ekki að öllu leyti glæsileg. Baðstofan var fúin og lá á hliðinni. Túnið var ekki nema hóllinn hérna. Það er varðveitt í gömlum hreppsbók um í framtali á hreppskilum eitt haustið að töðufengur af fjórða hluta þess hafi verið 1? pokar það árið. Búnaðarfélagið hafði menn i umferðavinnu og einn morgun þegar þeir voru hérna segi ég þeim að fara að rífa baðstof una. Sjálfur fór ég niður að Ár múla og fékk þar lánaða skektu og réri út í Æðey. Þar fékk ég lánaðan bát, — Hvíta þorskinn — til að fara á til ísafjarðar og urðum við 6 saman. Þegar til ísafjarðar kom hitti ég Árna Jónsson verzlunarstjóra og sagði bonum að ég þyrfti að byggja upp bað stofuna. Eg var með á blaði hvað ég taldi mig þurfa af timbri. „Farið þið og hvílið ykkur um stund, sagði Árni. Eg skal sjá um að þetta verði látið í bátinn. Þú borgar honum Ólafi Pálssyni það í haust.“ Ólafur Pálsson frá Vatnsfirði veitti þá forstöðu útibúi verzl unarinnar á Arngerðareyri. Við komum hér upp í Ásinn með timbrið og Jóhann á Skjaldfönn, blessaður karlinn, var þá að koma þar með reið ingshesta til að hjálpa mér heim. Og einhvern veginn var baðstofunni klöngrað upp og hún stóð til 1945 að þessi bær var byggður. Annars átti víst að gera mig andans mann. Pabbi hafði mikla trú á lýðháskólunum dönsku og ætlaði að senda mig til Askov. Til undirbúnings því fór ég haustið 1909 i unglinga skóla að Heydalsá í Stein- grímsfirði. Skólastjóri þar var Sigurgeir Ásgeirsson. Hann var gagnfræðingur frá Möðruvöll um og hélt barna- og unglinga skóla á föðurleifð sinni um 15 ára skeið en síðar rak hann verzlun á Óspakseyri. Eg svaf hjá Sigurgeiri meðan ég var í 9kólanum en hann var með berkla. Sumarið eftir fékk ég brjósthimnubólgu og lá fram undir hátíðar. En þó að mér batnaði fyrir brjóstinu gróf í stórutá og var bólguhnútur und ir kjálkanum. Sigvaldi Kaldalóns var þá læknir hér og vildi að ég færi suður vegna þessara meina. Eg fór með skipi en á leiðinni opn aðist ígerðin á tánni. Því fór ég til læknis á Bíldudal. Hann færði út úr meininu og batt um, fannst ekki mikið til um og spurði hvort Sigvaldi væri að senda mig suður með þetta. Þegar suður kom var það Guðmundur Magnússon sem stundaði mig. Hann leit á tána og sagði: „Mér sýnist þetta ekkert gróðarlegt". Svo var ég svæfður en þegar ég var vaknaður sagði Guðmundur við mig: Eg tók af þér tána. Svo verð ur dálítið ör undir kjálkanum, en það gerir ekkert til. Stúlk unum lízt bara betur á þig.“ Eg jafnaði mig fljótt eftir táarmissinn. Af honum veit ég ekkert, en tvær þær næstu eru þroskalegri en systur þeirra á hinum fætinum. En bólgan und ir kjálkanum tók sig upp næsta vetur. Þá fór ég suður og Matth ías Einarsson skar i því. En veturinn þar * eftir tók það sig enn upp. Enn fór ég til Matthíasar: „Þetta tekur eng an enda“, sagði hann. Svo brenndi hann mig og síðan hef ég verið laus við það mein. — Hvað ertu annars gamall, Þórður? — Eg er fæddur 22. nóvem ber 1891. — Séra Páll Stephensen hef ur þá fermt þig eins og mig. — Nei. Það. var- enginn vin- skapur með pabba og honum. Pabba þótti hann heldur vín hneigður og risu af því mála ferli þar sem pabbi var dæmd ur í sektir fyrir meiðyrði. Samt jarðaði sr. Páll móður mína. Eg man hann rakti til frænd semi við hana í líkræðunni og rakti svo ættina áfram til Guð brands biskups. Móðir mín hét Ingibjörg Jónsdóttir en móðir hennar var Hólmfríður, systir Guðbrands Vigfússonar. Þau Jón og Hálmfríður voru á litlu koti á Skarðsströnd en skildu og Hólmfríður giftist síðar Ein ari Grímssyni, bróður Sighvats á Höfða. En þegar til þess kom að búa mig undir fermingu var ég sendur út á ísafjörð til séra Guðmundar frá Gufudal. Eg held að þeir Haraldur og Þórir hafi hlýtt mér yfir Faðirvorið o.s.frv. Séra Guðmundur kom inn eftir, messaði í Nauteyrar kirkju og fermdi mig. Þar voru ekki önnur fermingarbörn þá. Séra Páll var aldrei hneigður til búsýslu, blessaður karlinn. Ekki virðist það vera. Sú saga var sögð að frúin hefði einhverntíma nuddað í honum að vitja um hrognkelsanet þeg ar henni fannst hún hafa fá- breytt matarföng á Melgraseyri en prestur hafi afgreitt það með þessu svari: „Þú svínar mig út með grá- slepputali þegar ég er að þjóna guði mínum.“ Þú hefur fylgzt með þróun inni í hreppnum í 50 ár. Já, nú eru hreppsbúar 78 á 15 heimilum en hér var á þriðja hundrað manns. Bú- stofn hefur þó ekki minkað, — öðru nær. Túnstærðin margfald ast. Og fjölskylda þín er þriðjung ur af hreppnum. Það er eins og jökullinn togi til sín eða hvað það nú er. Framhald á bls 12 HEIMSÓKN TIL ÞÓRÐAR HALL- DÓRSSONAR Á LAUGALANDI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.