Tíminn - 05.02.1966, Síða 13

Tíminn - 05.02.1966, Síða 13
LAUGARDAGUR 5. febrúar 1966 IflUŒI G TÍMINN í DAG Kirkjan Kópavogskirkja. Messa kl. 2. Hallgrímskirkja. Barnaguðsþjón Barnasamkoma klukkan 10.30. usta kl. 10. Messa kl. 11. Séra Gunnar Árnason. Dr. Jakob Jónsson. Kirkja ÓbáSa safnaðarins. Messa klukkan 2. SafnaSarpresturinn. Fríkirkjan. Messað kl. 2. Séra Lárus Halldórsson messar. Séra Þorsteinn Björnsson. Neskirkja.Barnasamkoma kl. 11 og messað kl. 2. Séra Jón Thorar ensen. Bústaðaprestakall. Barnasam- koma í félagsheimili Fáks kl. 10 og í Réttarholtsskólanum kl. 10 Guðsþjónusta kl. 11. Vinsamlegast athugið breyttan messutíma. Séra Ólafur Skúlason. Mýrarhúsaskóli. Barnasamkoma Grensásprestakall. Breiðagerðis- kl. 10. Séra Frank M. Halldórs skóli> barMsamkóma kl. 10.30. son' Messað kl. 2. Séra Felix Ólafsson Elliheimilið Grund. Guðsþjón- usta kl. 10 fyrir hádegi. Ólafur Laugarneskirkja. Messa kl. 2 Ólafsson kristniboði predikar. e- h Bamaguðsþjónusta kl. 10 f. Heimilisprestur. h- Séra Garðar Svavarsson. Ásprestakall. Barnaguðsþjónusta í Laugarásbíói kl. 11. Messa í Laugarneskirkju kl. 5 Séra Grímur Grímsson. Háteigskirkja. Bamasamkoma kl. 10.30. Séra Arngrímur Jóns- son. Messa kl. 2. Séra Jón Þorvarðsson. Dómkirkjan. Messa kl. 11 séra Jón Auðuns. Messa kl. 5. Séra Óskar J. Þorláksson. Barnasam koma í Tjarnarbæ kl. 11. Séra Óskar J Þorláksson. Hafnarfjarðarkirkja. Messa kl. 2. Séra Garðar Þorsteinsson. Mosfellsprestak. Messa að Brautar holti kl. 2. Séra Bjami Sigurðss Langholtaprestakall. Barnasam koma kl. 10.30. Séra Árelíus Níels son. Guðsþjónusta kl. 2. Séra Árelíus Níelss. Æskulýðsguðsþjón usta kl. 5. Kristján Guðmundsson stud. theol. predikar Nemendur úr Vogaskóla leiða söng. Æskulýðsfélagar annast flutning pistils og guðspjalis. Félagslíf Hið þekkta leikrit Bertolt Breeht, Mutter Courage, hefur nú verið sýnt 10 sinnum í Þjóðleik húsinu og verður næsta sýning í kvöld. Helga Valtýsdóttir leikur sem kunnugt er titilhlutverkið og Langholtssöfnuður. Spila- og kynningarkvöld verður í safnaðar heimilinu klukkan 20 sunnudaginn 6. þ. m. Mætið stundvíslega Bræðrafélag Langholtssafnaðar. Fundur verður þriðjudaginn 0. þ. m. kl. 20.30 Fjölbreytt dag- skrá. Bræðrafélag Bústaðasóknar mætir á fundinum. Stjórnin. Kvenfélag Óháða safna'ðarins. Fé- lagsfundur verður eftir messu á sunnudaginn kemur. Ennfreimur verða kaffiveitingar fyrir kirkjugesti Aðalfundur kvennadeildar Slysa- varnadeildar Reykjavíkur verður hefur hlotið ágæta dóma fyrir túlk haldinn mánudaginn 7. febrúkr klukk un sína á þessu erfiða og marg- an 20.30 i Slysavarnahúsinu við þætta hlutverki. Myndin er af Grandagarð. Venjuleg aðalfundar- Jóni Sigurbjörnssyni og Helgu í störf. Björn Pálsson flugmaður sýn hlutverkuim sínum. ir litmyndir víðsvegar af landinu. Fjölmennið. Stjórnin. DENNI DÆMALAUSI —- Það er brýnni þörf fyrir aðra liluti t. d. retðhj61. Æskulýðsfélag Bústaðasóknar, yngri deild. Fundur í Réttarholtsskóla, mið- vikudagskvöld klukban 20.30. Æslru lýðsfélag Langholtssóknar kemur í heimsókn. Stjórnin. Æskulýðsfélag Bústaðasóknar, eldri deild. Fundur í Rétlarholtsskóla klukkan 20.30, mánudagskvöld. Stjórnin. Bræðrafélag Bústaðasóknar. Mætið þriðjudagskvöld klúkkan 20; 15 við Réttarholtsskóla vegna heim sóknarinnar til Bræðrafélags Lang- holtssóknar. Stjórnin. komandi mánudag 7. febrúar klukk an 20.30 að Sólheimum 13. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kaffidrykkja. 3. Hörður Ágústsson listmálari held ur erindi sýnir skuggamyndir um þróun íslenzkra kirkjubygginga. Stjórnin. Fiugáætlanir Kvenfélag Ásprestakalls. Aðalfundur félagsins verður næst- Loftlelðir h. f. Bjarni Herjólfsson er væntanlegur frá NY kl. 09.30. Heldur áfram til Oslóar, Kfiupmannahafnar og Hels ingfors kl. 11.00 Þorfinnur karls- efni er væntanlegur frá Kaupmanna höfn, Gautaborg og Osló kl. 01.00. Heldur áfraim til NY kl. 02.30. '**mmm MINNING ólafur Thórarensen f dag verður til grafar borinn liér í Reykjavík Ólafur Thóraren- sen fyrrv. útibússtjóri Landsbank ans á Akureyri. Var hann nýflutt- ur hingað til Reykjavíkur og hafði verið heilsuveill hin síðustu ár, og andaðist í Landsspítalanum 28. jan. s. 1. ölafur Thórarensen var fæddur á Akureyri 8. des. 1892 og uppal inn þar. Voru foreldrar hans hjón in, Þórður Stefánsson gullsmiður Thórarensen bónda í Lönguhlíð í Hörgárdal Ólafssonar læknis á Hofi Stefánssonar amtmanns Þór arinssonar, og Anna Jóhannsdóttir Eyjólfssonar. Bjuggu þau Þórður og Anna allan sinn búskap á Akureyri og þóttu hin mestu sæmdarhjón, bæði áf góðu bergi brotin. Var Þórður hlédrægur maður og fáskiptinn, laus við hégómaskap og tildur, einn af hinum kyrrlátu og yfirlæt islausu, þótti greindarmaður og þéttur fyrir, en blandaði sér lítt í dægurmálin. Þótti heimili þeirra hjóna hið mesta myndar heimili, vinnusamt og reglusamt og börnin snemrna látin vinna fyr ir sér eftir því sem getan leyfði. bankastjóri Svo var um Ólaf, hann gerðist snemma starfsmaður við eitt og annað í bænum, en gekk svo til starfa skömmu eftir fermingu í Útibú Landsbankans a Akureyri T var þar til 1918, fluttist þá í aðalbankann í Reykjavík og var þar fulltrúi til 1931, en gerðist þá útibússtjóri á Akureyri og var það til 1961, er hann lét af störf um. Hann var því í þjónustu bank ans um rúmlega hálfraraldarskeið, traustur og dyggur starfsmaður. Ólafur Thórarensen fór snemma að vinna fyrir sér, eins og getið var, og naut því ekki mikillar skólagöngu umfram barnaskól- ann. En hann var uppalinn á menningarheimili og aflaði sér af sjálfsdáðum víðtækrar þekk- ingar í þeim verkahring, er hann valdi sér. Og víst var um það, að enginn kom að tómum kofum, sem ræða vildi við hann um söguleg og hagnýt málefni. Því að hann var vel lesinn og hinn mesti greindar maður, þaulkunnugur ísl. at- vinnuháttum og menningarlífi, og kunni góð skil á því sem fánýtt var og hinu sem til heilla horfði fyrir einstakling og heild. Var sjálfur allra manna lausastur við tildur og hégóma, kyrrlátur mað- ur sem hvergi tranaði sér fram eða sóttist eftir völdum og veg- tyllum. Hann gengdi þó ýmsum trúnaðarstörfum, var m. a. um skeið í bæjarstjórn Akureyrar, leit á það sem borgaralega skyldu, en þótti gott að fá að þoka þaðan þegar færi gafst. Og ýmsu menn ingarstarfi á Akureyri rétti hann hjálparhönd, gaf t. d. trjágróður á sínum tíma kringum sundlaugar stæðið þar, og fleira af slíku tagi lét hann sig varða, þótt lítið bæri á. Á sextugsafmæli Ólafs Thórar ensen ávarpaði ég hann m. a. þannig: — Á fáu ríður ríki voru meir en að eiga góða starfsmenn, trúa og dygga. Þar er Ólafur Thór arensen til fyrirmyndar. Hann er hinn sterki og reglusami húsbóndi Útibúsins og ágæti þjóðarþegn Enginn mun hafa af honu*r Önn ur kynni. Sliku er vert að balda á lofti r.ú, þegar Bakkus herjar fast á liðsveitirnar hér og þar og veldur eymd og óreiðu allt of víða. Sjálfsagt er það ekki vandalaust að vera vörður og miðlari hins „gyllta leirs“ nú á dögum, og hef ir líklega aldrei verið það. Marg- ur á þung spor í og úr banka. Oft þarf að ræða þar persónuleg vanda mál. Þá er gott að hitta þar fyrir góðan mann, viðræðuprúðan, sann gjarnan og drenglyndan. Góð ráð eru þá stundum mikilvæg. hvernig sem fer um kaup og sölu víxilsins. En slík erindislok eru sem kunn ugt er oft háð ýmsu því, sem lítt eða ekki verður við ráðið. En það ætla ég, að þá sé mikil þröng í búi bankans ef heiðarlegir menn þurfa að fara vonsviknir af fundi bankastjórans. Góðvilji hans og hjartahlýja sér um það, að svo miklu leyti sem það getur til hrokkið, því að banki verður líka að sjá um sig. — Og um það er óþarft að deila, að alltaf verða einhverjir ósigrar á þessum leið- um, hversu vel sem unnið er. Hitt er höfuðatriði, að ráðdeild og trúmennska sitji í öndvegi og hæfnin og drenglundin haidi um stjórnvölinn. Þá verður lengst kom ist og mestu borgið á hvaða vett- vangi sem er —. Þannig var Ólafur ávarpaður meðan hann var enn í starfi. Og þannig reyndist hann meðan hann gat störfum sinnt, — traustur og samvizkusamur starfsmaður, sem ekki mátti vamm sitt vita, og drengur góður. Árið 1919, hinn 27. sept. kvænt ist Ólafur Thórarensen eftirlifandi konu sinni, Maríu Frímannsdóttur •Takobssonar trésmíðameistara og konu hans Sigriðar Björnsdóttur. hinni mestu ágætiskonu og móður Var heimili þeirra hjóna glæsilgt myndar- og menningarheimili, sem öllum þótti gott að gista Eiga þau hjón 2 börn á lífi, Þórð lög- fræðing, kv. Halldóru Hjaltadótt- ur og Sigríði, g. Friðjóni Skarp héðinssyni bæjarfógeta. Að svö mæltu kveð ég vin minn Ólaf Thórarensen, þakka hon um langa viðkynningu og bið hon um blessunar á nýjum leiðum. Og konu hans og börnum. og öðrum vandamönnum, sendi ég innileg ustu samúðarkveðjur. Snorri Sigfússon.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.