Tíminn - 11.03.1966, Blaðsíða 9

Tíminn - 11.03.1966, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 11. marz 1966 TÍMIWW : ■J S^N'W 0. ' '■ : ■ : : ■ ■ !i ; -v.\ W. ■Hí " 4 ■ . ' '.■:'. ■ . : ■. ; FIOGID TIL FUOTSOALSHÉRADS Sem kunugt er af frétum hafa snjóþyn-gsli verið meiri iiorðan lands og austan en í mörg ár, geng ið hafa tröllasögur um samgöngu vandræði og að legið hafi við skorti á lífsnauðsynjum á suimum bæjum, einkum í uppsveitum Aust- lirlands. Því gerði fréttamaður Tím ans sér ferð austur á Fljótsdalshér að um síðustu helgi til -ið sjá þetta með eigin augum og myndá vélar og hitta fólk að máli, og sannarlega er þar öðruvísi um- horfs en hér við Faxaflóa, svo sem nokkuð má marka af mynd um þeim, er birtast hér á síðunni, og þó hafði snjór sigið mikið síð- ustu dagana áður en fréttamaður kom því við að skreppa austur. Myndirnar í blaðinu í dag eru að- eins úr Egilsstaðakauptúni, en í næstu blöðum verður nofekuð sagt frá ástandinu í ýmsum sveitum Fljótsdalshéraðs og rætt við nokkra þorpsbúa og bændur. Flogið var með ,,Blikfaxa“, Fokk er-Friendship-vél Flugfélags ís- lands, og þrátt fyrir að fyrst væri flogið til Akureyrar og dokað þar við í stundarfjórðung, liðu ekki fullir tveir klukkutímar áður en lent væri á Egilsstaðaflugvelli. hvað mest, en ýta ruddi þá snjón um af vellinum, sem síðan hefur verið haldið opnum. Þessi flugvöll ur er að öllu leyti vel í sveit settur, vel fallinn til aðflugs og helzt að þokur komi í veg fyrir lending ar. Eftir að hann var ruddur, var um tíma enn ófær bílum vegurinn til vallarins, og urðu menn að ganga á skíðum á milli, sem þó getur vart talizt neyðarúrræði að skíði séu endrum og sinnum höfð til gagns ekki síður en gamans. íbúar Egilsstaðakaupstaðar hrósa happi enn sem komið er fyrir það, að undanfarna daga hefur þíð- viðri verið hægt án verulegrar úr komu, snjórinn hefur sígið tals- vert, þvi að riginingar ofan í þetta feikna snjólag mundi leiða af sér, að flæddi inn í flest hús í þorpinu. Á dögunum lá við stórslysi úti á Egilsstaðabúinu, þegar snjóskriða hljóp fram af peningshúsi þar áem 15 ára piltur stóð undir og færðist hann í kaf. Tveir menn voru nærstaddir og hlupu til að leita að piltinum, urðu að moka tvo metra í skaflinn á tveim stöð- um áður en þeir fundu hann. Var hann allþrekaður, en varð annars ekki verulega meint af, en snor \ ■ • ■ ' '■ ' ' ‘>V ' Hann lokaðist í nokkra daga í j handtök hafa líklega bjargað lífi febrúar, þegar fannkoman var * hans. # * £v \ /V fi f : ■ WmÆMmm " . V■•;; ■ : V . , ' ‘s' n ( , t ,, 'A '- í- : iC' ,.V . * . s ' S ' .... s ' J * I .......* ■ ..................................................... Stóra myndin efst er af fyrsta íbúðarhúsinu, sem flutt var inn í í Egilsstáðakauptúni fyrir röskum tuttugu árum, og þar býr enn fyrsti íbúinn og byggingameistar- inn, Einar Stefánsson. Bíllinn hans var nýlega búinn að gægjast upp úr snjóskaflinum, sem um tíma náði upp í þakskeggið. Margir bíl ar eru enn á kafi i snjóskafli eystra. Bömin eiga góða daga með an snjórinm helzt og góða veðrið, sem þar hefur verið síðustu vik- una, eins og sjá má á litlu ung- frúnni efst til hægri. Myndin neðst til vinstri sýnir glöggt, að allar ýtur á Egilsstöð- um og úti um Fljótsdalshérað hafa haft ærið að starfa allan þorra- mánuð og vel það. Þessar myndir fjórar tók GB, fréttamaður Tímans. Neðri myndirnar til hægri sýna önnur Blikfaxa á Egilsstaðaflug- velli, með mannhæðarháan snjó skafl til hægri og flugturninn i baksýn. Neðri myndin er úr mið bænum, þegar búið var að ryðja fyrstu bílunum braut gegnum skaflana fyrir framan Póst- og simstöðina. í fremsta bílnum sési enginn við stýrið, þetta er lögreglu bfllinn á Egilsstöðum, og bflstjór- inn skrapp sjálfur til að taka myndina, Hákon Aðalsteinsson lög regluþjónn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.