Tíminn - 18.03.1966, Page 1
Myndin hér að ofan var tekin í gærdag í Houston í Texas, þar sem yfirmenn bandarískra geimvisinda héldu fund með blaðamönnum og
skýrðu þeim frá „ævintýrum" og lendingu Gemini—8. F. v. Christopher Kraft, yfirmaður geimferðaáætiunarinnar, John Hodge, WHIiam
Schneider og Dr. Hubert Gilruth, yflrmaður geimvisindamiðstöðvarinnar f Houston. — Símamynd
7.'í,,; ■ ■ JWpiHf-'jo-
Fyrsta nauðlendingin í sögu geimferða mannsins:
Geimfaríð snerist stjórn
iaust hring eftir hring
NTB-Houston, fimmtudag.
Bandarískt herskip átti að
koma kl. 12 á miðnætti til Ok-
inawa í Kyrrahafi með geim-
farana Neil Armstrong og Dav
id Scott, sem í nótt lentu í
mjög alvarlegum vandræðum
um borð í Gemini—8 290 km
fyrir ofan yfirborð jarðar, og
sem leiddi til fyrstu nauðlend-
ingarinnar í sögu bandarískra
geimferða. Það var um kl. 11
í gærkvöldi að íslenzkum tíma,
að geimfarið t ók að snúast
hratt í hingi og til þess að
ná stjórn á geimfarinu varð
Neil Armstrong að setja þær
stjórneldflaugar í gagn, sem
notaðar eru þegar geimfar held
ur inn í gufuhvolf jarðar. Var
geimförunum síðan skipað að
lenda sem fyrst, og um kl.
3.30 í nótt féll geimfarið nið-
ur í Kyrrahafið 80 km suðaust-
ur af Okinawa. Hcrskip tók þá
upp kl. 5.30 og sigldi með þá
áleiðis til Okinawa jafnframt
því, sem vísindamenn í Houst-
on í Bandaríkunum Ieituðu
ákaft að orsök óhappsins.
Geimfarið tók að snúast
mjög hratt um möndul sinn
um 45 mínútum eftir, að geim-
förunum hafði tekizt að tengja
Gemini—8 við Agena gervi-
hnött og náð þar með þýðing-
armiklum áfanga í kapphlaup-
Bandarísku geimfararnir Inni í Gemini—8. T. h. er David Scott en t. v. stjórnadi geimfarsins, Neil Arm-
strong.
inu um að senda mannað geim
far til tunglsins. Aftur á móti
varð að hætta við allar aðrar
tilraunir, sem geimfararnir
áttu að gera, m.a. geimgöngu
Scotts geimfara.
Bandaríska geimvísindastofn
unin hefur neitað að birta op-
inberlega viðræður þær, sem
fram fóru milli geimfaranna
og vísindamanna á jörðu niðri
rétt eftir að erfiðleikarnir
hófust. Þetta leiddi til þess, að
spurt var, hvort hræðsla hefði
gripið um sig meðal geimfar-
anna. Christopher Kraft, fyrir-
maður Gemini-áætlunarinnar,
sagði, að geimfararnir hefðu
haft stjórn á sér allan tímann.
Hann sagði, að háu raddirnar,
sem heyrðust á segulbandinu
— en viðræðurnar voru allar
teknar inn á segulband — gæfu
ekki rétta mynd af því sem
gerðist. Vísindamenn í Houst-
on unnu að því í dag, að at-
huga, hvað orsakaði óhappið,
en ekki er að búast við niður’
stöðum þeirra rannsókna fyrr
en eftir nokkra daga.
Frarn hefur komið, að hjart
sláttur geimfaranna hafi verið
mjög tíður, þegar bilunin varð
og þegar þeir stýrðu geimfar-
inu inn í gufuhvolf jarðar-
innar. Hafi hjartsláttur geim-
fara aldrei fyrr verið jafn hrað
ur.
Framhald á 14. síðu.
Togarínn
Karísefni
kærður!
ÁJ—Hellissandi fimmtudag.
Togarar, sém eru að veið-
um nálægt landhelgislínu við
Breiðafjörð, hafa að undan-
förnu gert mikinn usla hjá
netabátum. Nýlega kom
Skarðsvík að togaranum
Karlsefni þar sem hann tog-
aði yfir átta trossur í einu, og
hefur þetta mál verið kært.
Bátar frá verstöðvunum hér á
Breiðafirði hafa misst á milli 10
— 20 trossur vegna ágangs togar
anna, og er hver trossa áætluð um
60 þús. kr. .virði. Einnig hafa
margir bá.tar frá öðrum verstöðv
um misst eina til tvær trossur.
Þegar Skarðsvíkin kom að tog
aranum kallaði hún á varðskip til
aðstoðar, en þau svör fengust, að
þar sem togarinn væri utan línu
væri ekki í verkahring varðskips
að verja veiðisvæðið, en hins veg
ar ef bátarnir tilkynntu hvar net-
in lægju í sjó, myndu varðskipin
koma þeirri orðsendingu til togar
anna. Bátamennirnir eru mjög
reiðir yfir ágangi togaranna vegna
þess, að þeir leggja sín net áður
en togararnir koma siglandi með
vörpur sínar, og eru þar af leið
andi í fullum rétti.
Loðnuflotinn er hér allur, en
mjög lítið hefur verið landað af
loðnu á Breiðafjarðarhöfnum.
Smáfiskur gengur hér í svo þykk
Framhald á 14. síðu.
UM 300 BÖRN
EITURLYFJA-
SJÚKLINQAR
VIÐ FÆÐINGU!
NTB—New York fimmtudag.
Am.k. 300 börn sem fæddust í
New York í fyrra voru eiturlyfja
sjúklingar strax við fæðingu ,að
því er talsmaður heilbrigðisyfir-
valda borgarinnar Dr. Alonzo Yer
by tilkynnti t dag. Börnin hafa
erft eiturlyfjasýkina frá mæðrum
sínum sem nota eiturlyf. Nokk
ur barnana létust af þessum sök-
um, en hægt var að bjarga öðrum.
Yerby sagði, að ástæða væri tii
að óttast, að tala barna, sem eru
eiturlyfjasjúklngar þegar við fæð
ingu, væri mun hærri. Lét han::
að því liggja að bæta mætti 400
—500 börnum við fyrri töluna
sem er hin opinbera tala. Harxn
sagði einnig, að tala þessi tæri
stöðugt hækkandi j New York.
Barn, sem vanizt hefur á eitur
lyfjanayzlu í móðurkviði, líður
miklar kvalir, þegar það fær ekki
lengur eituriyf eftir fæðinguna •