Tíminn - 22.03.1966, Blaðsíða 1
Miklir bardagar voru í dag í SuSur-Víetnam, og skýra talsmenn bandaríska herliðsins þar svo frá, aS miklS
mnnfall hafi orSiS f liSi Viet Cong-manna. AS undanförnu hefur oft komið til bardaga rétt fyrir utan Saigon,
og er mynd þessi tekin á þvf svæSi. Sýnlr hún hermenn Saigonstjórnarinnar aS leita uppi Viet-Congmenn.
Heimsbikarinn ófundinn
N*EB—London, mánudag.
Heimsbibarinn, sem stolið var
á sunnudagrnn, hefur enn ekki
fnndizt. Bikar þessi, sem er veg-
legasti bikar knattspyrnunnar, og
er -tryggður fyrir 30 þúsund pund
eða 3.6 milljónir króna, er 30
sentimetrar á hæð og gerður úr
gulli. Brezka knattspyrnusamband
ið, sem er gestgjafinn við neims
meistarakeppnina í knattspyrnu í
sumar, hefur lofað að láta gera
nýjan bikar, alveg eins. Sagði
talsmaður sambandsins, að þjófn
aðurinn hafi bakað sambandinu,
og Bretlandi, svívirðingu. Bikar-
inn var á sýningu hjá stórfyrir-
Framhald á bls. 22.
FINNSKU ÞINGKOSNINGARNAR:
Mikill sigur
jafnaðarmanna
NTB—Helsingfors, mánudag. (
Þegar lokið hafði verið við að
telja 68% atkvæða í finnsku kosn
ingunum, var Ijóst, að jafnaðar-
menn höfðu unnið mikinn sigur,,
unnið 16 þingsæti. Sósíalistísku
flokkarnir fá eftir þessum tölum |
að dæma 103 þingsæti gegn 97;
þingsætum borgaralegu flokk- \
anna. Kjörsókn var mjög mikil um !
83%.
Áður en kosningarnar fóru fram
höfðu borgaralegu flokkarnir 113
þingsæti gegn 87 þingsætum sós-
íalistísku flokkanna, þannig að
borgaralegu flokkarnir hafa tap
að 16 þingsætum til jafnaðar-
manna.
Sigur jafnaðarmanna varð mun
meiri en gert var ráð fyrir. Jafn
aðarenannaflokkurinn er nú stærst
ur með 54 þingsæti, en hafði áð-
ur 38. Allir aðrir flokkar töpuðu
atkvæðum, en útkoman er bezt
hjá kommúnistum, og virðist sem
þeir haldi sama þingsætafjölda og
þeir höfðu, 47 talsins.
Miðflokkurinn, sem hefur verið
aðalflokkur í rikisstjórn í Finn-
landi í mörg ár, tapar sennilega
þrem þingsætum, fær nú 50 þing
sæti, en hafði áður 53. íhalds-
flokkurinn fer sennilega verst út
úr kosningunum, og er gert ráð
fyrir að hann tapi fimm þingsæt-
um.
Snemma við talningu kom í ljós
að sigur jafnaðarmanna yrði mife
ill. Jafnaðarmenn geta nú gert
Framhald á bls. 22.
80-90 fórust
í jarðskjálfta
NTB—Fort Portal, mánudag.
Opinberlega er talið, að um 80
—90 manns hafi látið lífið í jarð
skjálftunum í Vestur-Uganda um
heigina, að sögn brezka útvarps
ins. Hluti þeirra mörgu, sem
særðust, var í dag fluttur til Fort
Portal í þyrlum.
Bwamba-héraðið í Uganda varð
verst úti í jarðskjálftanum og
einn frekar lítill bær lagðist al-
veg í rúst.
Sjö skólar hrundu til grunna,
og a.m.k. tvær trúboðsstöSvar
skemmdust verulega.
Skipað í embætti um-
dæmisstjóra
GS—ísafirði, mánudag.
í dag var Hirti Jónssyni end
anlega veitt embætti umdærn
isstjóra Landssímans hér á ísa
firði, en fyrirrennari hans í
embætti, Maríus Helgason, hef
ur tekið við stöðu umdæmis-
stjóra á Akureyri.
Hjörtur Jónsson er ísfirðing
ur að ætt og uppruna, sonur
Jóns Grímssonar.
Fátt er héðan annað frétta,
en í gær var hér vestanhríð
með mikilli snjókomu, og varð
að fresta firmakeppni á skíð-
um sem fara átti fram á sunnu
dag.
Bátar, sem voru að veiðum
á Breiðafirði, fengu vont veð-
ur og gátu ekki dregið fyrr
en á þriðja degi, en komu
flestir inn í gær með allgóðan
afla.
Á jeppum yfir Fjarð-
arheiði.
IH—Seyðisfirði, mánudag.
Hér er gott veður í dag og
glaðasólskin. Færðin er nú að-
eins léttari en að undanfömu
og fóru menn á nokkrum
jeppabifreiðum yfir Fjarðar-
heiðL Óku þeir í ýtuförum og
gekk veí alla ieiðina.
1 Lögbirtingi, sem kom út
fyrir nokkru, voru auglýst 8
laus prestaköll, en það vakti
athygli manna, að Seyðisfjörð
ur er ekki nefndur, þó að við
höfum verið prestslausir hér
síðan í fyrrasumar. Veltir
margur Seyðfirðingur því fyr
ir sér, hvers við eigum að
gjalda.
Nýtt sjóstangaveiði-
félag.
GS—Keflavík, laugardag.
Undanfarið hefur verið á-
gæt tíð hér til sjóróðra og
afli heldur að glæðast í netin.
Koma bátarnir með 8—16 tonn
í róðfi af heimamiðum. Mest-
an afla koma stóru bátarnir
með af Breiðafjarðarmiðum,
jafnan 20—50 tonn í róðri. í
vikunni kom Lómur með rúm
70 tonn, sem er metróður þess
arar vertíðar. Um miðjan þenn
an mánuð var Lómur aflahæst
ur Keflavíkurbáta með 323
tonn. Tvö skip, Vonin og
Hamravík, stunda enn loðnu-
veiðar, og hafa samanlagt feng
ið um 60 þúsund tunnur frá
áramótum, auk nokkurs þorsfe-
afla.
Nýverið var stofnað hér
stangveiðifélag sem hlaut nafn
ið Sjóstöng. Á stofnfundi
mættu 22. Félaginu voru sett
lög og kosin sjö manna stjóm.
Ákveðið var að halda stofn-
lista opnum til vors. Tilgangur
félagsins er að greiða götu
manna að sjóstangveiðimótum
ennfremur að útvega báta til
veiðiferða.
Lionsklúbbur Keflavíkur af
henti nýlega héraðslækninum,
Kjartani Ólafssyni, mjög full
kemið sjónprófunartæki til
notkunar í Keflavík og ná-
grannabyggðalögunum. Við-
staddir afhendinguna voru
skólastjórar umræddra staða.
Starfsemi Lionsklúbbsins er til
mikils sóma, þeir hafa áður
gefið veglegar gjafir til ým-
issa stofnana, svo sem elliheim
ilis og sjúkrahúss, einnig stutt
bágstatt fólk dyggilega.
Sæmileg færð á
Héraði
HA—Egilsstöðum, mánudag.
Færð hefur mikið skánað hér
á Héraði. Vegir hafa verið opn
aðir að Hallormsstað, Eiðum,
norður að Jökulsárbrú og bil-
fært á flesta staði. Veður er
kalt, en stillt og sólskin.
Á laugardagskvöld var hald
in ársihátíð Eiðaskóla, og komu
þá níu stúlkur gangandi hing
að til Egilsstaða frá Hallorms-
stað.
Hreindýr sást á laugardag í
hagagirðingunni hjá Strönd,
sem er 20 kílómetra fyrir inn-
an Egilsstaði, en þau virðast
lifa sæmilegu lífi.
Tengdasonur óskast
í gærkvöldi frumsýndi Ung
mennafélagið Skallagrímur
leikritið „Tengdasonur óskast”
eftir William Douglas Home.
Frumsýningin var haldin í sam
komuhúsinu í Borgarnesi, og
var húsfyllir, og var leiknum
vel tekið. Leikstj. er að þessu
sinni Hilmar Jóhannesson, en
með hlutverk fóru þau Þórður
Magnússon, Freyja Bjamadótt-
ir, Guðrún Helgadóttir, Sigríð
ur Héðinsdóttir, Margrét Guð-
mundsdóttir, Unnsteinn Ara-
son og Hilmir Jóhannesson.
Þýðingu leikritsins hefur Skúli
Bjarkan gert.
Leiklistarlíf hefur legið í
dvala um nokkurt skeið í Borg
arnesi og er því almennur á-
hugi og ánægja hjá Borgnes-
ingum yfir því, að líf skuli
vera að færast í starfsemina á
ný.
Þess má geta, að leikritið
„Tengdasonur óskast“ var sýnt
í Þjóðleikhúsinu árið 1959.
Öllum boðið á kvik-
myndasýningu
PK—Hvolsvelli, mánudag.
S.l. föstudagskvöld voru tekn
ar í notkun nýjar kvikmynda-
sýningarvélar í félagsheimilinu
hér að Hvoli. Var öllum íbúum
sveitarinnar boðið á frumsýn
ingima, sem var þéttsettin. Áð
ur en sýningin hófst, flutti odd
viti hreppsins, Páll Björgvins-
son, ávarp, og skýrði frá kostn-
aði við vélakaupin, en kvik-
myndavélarnar eru vestur-þýzk
ar af fullkomnustu gerð. Breið
tjaldið er frá Bretlandi.
Uppsetningu vélanna sjálfra
annaðist Gunnar Þorvarðarson
frá Reykjavfk, en margir af
iðnaðarmönnunum hér á Hvols
velli lögðu hönd að verki við
breytingar, svo og raflagnir.
Framvegis verða kvikmynda-
sýningar á föstudagskvöldum.
Fyrsta myndin, sem sýnd var,
heitir Jessica, og' þótti hin
skemmtilegasta. Sýningarstjóri
er Erlingur Ólafsson, Hvols-
velli.
Myndarlegur fagnað-
ur kvenfélaga
PE—Hvolsvelli, mánudag.
S.l. laugardagskvöld bauð
Kvenfélag Fljótshlíðarhrepps
konum úr Kvenfélaginu Ein-
ingu í Hvolhreppi ásamt körl
um sínum til myndarlegs fagn
aðar í félagsheimilinu að Goða
landi í Fljótshlíð.
Auk veglegra veitinga buðu
kvenfélagskonurnar upp á hin
fjölbreyttustu skemmtiatriði,
sem öll yoru heimaunnin og
tókust með ágætum.
Byrjað var á félagsvist, síð-
an voru leikþættir, gamanví-sna
söngur og síðan fluttu tvær
konur hluta úr Jörundi hunda-
dagakonungi eftir Þorstein Er-
lingsson. Einnig var lesin
draugasaga og voru ljósin
myrkvuð á meðan.
Að dagskrá lokinni var stig
inn dans lengi nætur. Sam-
koma þessi var öllum, sem að
henni stóðu, til hins mesta
sóma, og sýndi, hve víða leyn
ast ágætir skemmtikraftar, og
hvað hægt er að gera í dreif
býlinu, þegar góður vilji er
fyrir hendi. Til dæmis kom
þama á fjalirnar í fyrsta sinn
sjötug kona, Katrin Jónasdótt
ir, húsfreyja að Núpi, og fói
með hlutverk sitt af reisn og
myndugleik.
V. Á V
A.-