Tíminn - 22.03.1966, Page 12
árg.
Þýzkur sjómaður
lézt afslysförum
SK—Vestmannaeyjum, mánudag.
Á laugardag komu þrír þýzkir
togarar með slasaða skipverja til
Vestmannaeyja. Tveir þessara
manna liggja nú á sjúkrahúsinu í
ÞUNG
FÆRÐ
KT—Rvík, mánudag.
Blaðið hafði í dag sam-
band við Hjörleif Ólafsson
hjá Vegamálaskrifstofunni
til þess að spyrjast fyrir um
færðina um landið. Sagði
Hjörleifur, að Hellisheiði
hefði lokazt í gær, en fært
væri um Þrengsli og allt
Suðurlandsundirlendið aust
ur að Vik, en aðeins stærri
bílum þar fyrir austan.
Ágæt færð væri fyrir Hval
fjörð um Borgarfjörð, en
fjallvegir, svo sem Fróðár
heiði og Kerlingarskarð á
Snæfellsnesi væru ófærir.
Þá væru Brattabrekka og
Holtavörðuheiði þungfær-
ar eða ófærar, en vonir
stæðu til þess, að allir þess
ir fjallvegir opnuðust á
morgun. Þá yrði fært norð
ur á Hólmavík, um Snæfells
nes allt og í Dalina, og
norður í Skagafjörð.
Um Vestfirði sagði Hjör
leifur, að þar væri flest lok
að, en opið væri frá Súða-
vík til Bolungarvíkur. Á
Austfjörðum væri ástandið
með skásta móti.
Snjókoma hefur verið í
Reykjavík í dag og í gær,
og hafa ýmsar truflanir og
tafir orðið af þeim sökum.
Hafa menn átt í erfiðleik-
um með að koma bílum sín
um í gang á morgnana og
hafa jafnvel fest bílana í
snjó á nokkrum stöðum.
Eyjum, en hinn þriðji lézt af sár
um sínum.
Áðurnefndir þrír togarar komu
með stuttu millibili til Eyja á
iaugardag. Á einum þeirra hafði
maður slasazt, er hann féll aftur
fyrir sig og lenti á polla með
þeim afleiðingum, áð flytja varð
hann á sjúkrahús. Á öðrum togar
anum hafði maður skorið framan
af fjórum fingrum, og var gert
að sárum hans á sjúkrahúsinu í
Eyjum. Liggja þessir menn báðir
á sjúkrahúsinu nú.
Þriðji togarinn kom með mann,
sem skorizt hafði hroðalega á
hálsi og höfði. Þegar togarinn
kom með hann til Eyja, tók á
móti honum héraðslæknirinn, en
tilraunir hans til þess að bjarga
manninum komu ekki að haldi.
Lézt hann af sárum sínum.
Allir togararnir héldu þegar út
til veiða.
Myndln er tekln vlS endurvígslo GarSaldrkju.
ÞRIGGJA ALDA ÁRTÍÐ JÓNS VÍDALÍNS MINNZT MEÐ FYRIRLESTR-
UM, MINNINGARHÁTÍÐUM OG KIRKJUVÍGSLU.
GARÐAKIRKJA ENDURVÍGÐ
um
Fundur
iðnaðarmál
Framsóknarfélag Reykjavíkur
heldur almennan fund um iðnaðar
mál miðvikudaginn 23. þ.m. kl.
20.30 í Framsóknarhúsinu við Frí
kirkjuveg.
Framsöguerindi flytja: Björn
Sveinbjömsson, verkfræðingur,
Harry Frederiksen, forstjóri, og
Kristján Friðriksson, forstjóri.
Allt Framsóknarfólk er velkom
ið á fundinn, meðan húsrúm leyf
ir.
Margir eru uggandi um fram-
tíð íslenzks iðnaðar í ört vaxandi
samkeppni við erlendar iðnaðar-
vörur og sumir spyrja: Hvort er j
hagkvæmara frá þjóðhagslegu j
sjónarmiði að framleiða vöruna
hér innanlands eða flytja hana inn
fullunna? Þessu munu framsögu
menn fundarins svara, en þeir!
hafa allir um árabil stjórnað um-1
fangsmiklum iðnfyrirtækjum.
Fjölmennið og mætið stundvís |
lega. Stjómin. j
FB—Reykjavík, mánudag.
Þriggja alda afmælis Jóns bisk
ups Vídalíns, sem er í dag, mánu
dag, hefur verið minnzt á marg
víslegan hátt nú um hclgina. Jóns
Vídalíns var minnzt við guðsþjón
ustur í öllum kirkjum landsins,
Vídalínsminning var í Háskólan-
um á sunnudaginn, og sömuleiðis
í Skálholtsdómkirkju á sunnudags
Dr. Steingrímur J. Þorsteinsson
flutti erindi um Jón Vídalín.
ÞaS gekk ekki öllum vel að komast áfram í Reykjavik og nágrenni «m> helgina, eins og sjá má á þessari mynd,
sem GE tók ■ Kópavogi á sunnudaginn.
kvöldið, og Steingrímur J. Þor-
steinsson, prófessor, hélt erindi
um meistara Jón í útvarpið á
sunnudagskvöld, og heldur annað
erindi um hann í útvarpið í kvöld.
Síðast en ekki sízt var svo endur
vígð Garðakirkja á Álftanesi, og
var vígsludagurinn valinn með til
liti til minningar Jóns Vídalíns,
sem fæddur var í Görðum, og var
þar prestur í eina tíð.
Síðdegis á sunnudag var Vída-
línsminning í Háskólanum, og var
hún fjölsótt. Þar flutti dr. Stein
grímur J. Þorsteinsson, prófessor
erindi, og las kvæði Einars Bene
diktssonar, Meistara Jón, og Þor
steinn Ö. Stephensen leikari las
úr predikunum Jóns Vídalíns.
Tónlist var flutt í umsjá dr. Ró-
berts A. Ottóssonar, og guðfræði-
nemur sungu gamalt tvísöngslag.
Klukkan 9 um kvöldið átti svo
að hefjasf minningarhátíð í Skál-
holtsdómkirkju, en héðan úr
Reykjavik fóru um 30 manns til
þessarar hátíðar. Alls munu hana
hafa sótt um 80 manns, en veður
hamlaði nokkuð, að þangað kæm-
ust eins margir og vildu. Dr. Stein
grímur J. Þorsteinsson flutti þar
annað erindi um Jón Vídalín, jg
hr. Sigurbjöm Einarsson, biskup,
las upp úr postillu Vídalíns. Einn
ig las sr. Bernharður Guðmunds
son upp. Orgelleikur var og guð
fræðistúdentar sungu undir stjórn
Roberts A. Ottóssonar, en for-
söngvari var Kristinn Hallsson.
Almennur söngur fór fram og
bænagjörð, sem sóknarpresturinn
Kaffiklúbbur Fram-
sóknarfélaganna
í Reykjavík.
Haraldz*"hagfræð
..jgwli maður Efnahags-
jflwB stofnunarinnar
JhHI svarar fyrirspurn
um um efnahagsmál. Allt Fram
sóknarfólk velkomið meðan hús-
rúm leyfir. Framsóknarfélögin.
sr. Guðmundur Ó. Ólafsson ann-
aðist.
Erindi þau, sem dr. Steingrímur
J. Þorsteinsson flutti í útvarpið
um Jón Vídalín nefndust, á sunnu
dagskvöld Ævi og athafnir, og f
kvöld, mánudagskvöld, Kennimað-
urinn.
Endurvígsla Garðakirkju á
Álftanesi fór fram á sunnudaginn.
Biskupinn, herra Sigurbjöm Ein-
arsson, framkvæmdi vígsluna, en
ellefu prestar vom viðstaddir og
auk þess Ásmundur Guðmunds-
son, fyrrverandi biskup. Mikið
Frambald á bls. 22.
Seldu hund
fyrir brenni-
vínsflösku
HZ—Reykjavík, mánudag.
Það var á laugardags-
kvöldið, þegar þýzkur tog-
ari kom til Vestmannaeyja
og var að leggjast að, að
nokkrir piltar höfðu hug-
boð um, að vín gæti verið
um borð og þessvegna
gripu þeir hund á bryggj-
unni og seldu Þjóðverjun-
um hann fyrir eina brenni-
vínsflösku og voru báðir á-
nægðir með kaupin. Ekki
var hundeigandinn jafn á-
nægður, þegar honum barst
til eyrna, að hundur hans
væri orðinn þýzkur skips-
hundur. Hann hringdi án
tafar í lögregluna og bað
hana að bjarga málunum.
Lögreglan vildi sem minnst
afskipti af málunum hafa
og bað hundeigandann að
snúa sér til þýzka konsúls
ins. Það gerði hann og inn-
an stundar örkuðu þeir nið
ur á bryggju, út í togarann
og náðu í hundinn. TO'gar-
inn var á förum, þegar það
gerðist, og því tókst eigi að
láta Þjóðverjunum í té
flöskuna — enda mun hún
hafa verið tæmd þá.
•* 'ft'T' f 'K *y >'<» i >■ v y r, f,r. f rx'