Vísir - 21.08.1974, Blaðsíða 8
Erlendur œtlar
ekki á EM í Róm
Telur sig ekki hafa neitt þangað að gera, þar sem hann
standi orðið algjörlega í stað í kringlukastinu
Erlendur Valdimarsson kringlukastari,
sem valinn var einn þriggja Islenzkra
keppenda i Evrópumeistaramótið i
frjálsum iþróttum, sem fram fer i Róm á
ltaliu I byrjun næsta mánaðar, hefur til-
kynnt Frjáisiþróttasambandinu, að hann
muni ekki fara þangaö.
,,Ég tel mig ekki eiga neitt erindi á
Evrópumótið”, sagöi Erlendur, er við
töluðum við hann I gær, ,,og þvi tilkynnti
ég FRÍ þessa ákvörðun mina.
Það er um algjöra stöðnun aö ræða hjá
mér I kringlukastinu. Ég hef kastaö lengst
i sumar 59.76 metra og ég sé enga ástæðu
til að fara alla leiö til italiu til að endur-
taka eitthvað álika og sanna fyrir mér og
öðrum, að um stöðnun sé að ræða hjá mér
i þessari grein.
Það væri annað mál, ef um einhverjar
framfarir hefði veriö aö ræða hjá mér I
sumar, eins og félögum minum tveim,
sem fara til Rómar, þeim Stefáni
Hallgrimssyni og Hreini Halldórssyni.
Þeir hafa verið á uppleið i allt sumar, en
þaö sama er ekki hægt að segja um mig.
I þeim sex mótum, sem ég hef tekiö þátt
i I sumar, hef ég veriö aö kasta þetta 57 til
liðlega 59 metra. Það er ekki neitt til að
hrópa húrra fyrir og þvi siður til að fara
með sem vegarnesti á Evrópumeistara-
mót”.
Endurskoðar þú afstööu þina til þessa
máls, ef þú kastaöir lengra einhvern
næstu daga?
„Nei, það geri ég ekki. Ég er ekki vanur
þvi að vera að hringla með hlutina, og ég
er búinn að tilkynna þessa ákvörðun mina
og hún stendur.” _k.
Erlendur Vaidimarsson vill ekki fara á
EM í Róm.
ÁHUGAMENNIRNIR FRÁ FINNLANDI:
Fengu tíu þúsund
fyrir jafnteflið
Finnsku leikmennirnir, sem léku lands-
leikinn við tsland I fyrrakvöld, fengu
10.000 krónur hver fyrir að ná jafntefii i
þeim leik — og fyrir sigurinn á móti
Noregi I siðustu viku fékk hver maður
sem samsvarar 20.000 krónum Islenzkum.
Þessar upplýsingar fengum við hjá ein-
um finnsku leikmannanna, sem jafnframt
tjáði okkur það, að islenzku leikmennirnir
væru árciðanlega siðustu 100% áhuga-
mennirnir i knattspyrnu, sem eftir væru i
heiminum.
Hann trúði þvi ekki er honum var tjáð,
að Islenzku landsliðsmennirnir þyrftu
meira að segja að kaupa sina eigin knatt-
spyrnuskó til að leika á landsieiki og
félagsleiki. Sagðist hann vera undrandi á
þvi að nokkur knattspyrnumaöur léti
bjóða sér slikt nú til dags.
Hann sagöi, að I Finnlandi fengju allir 1.
og 2. deildarleikmenn greitt fyrir leiki
sina I deildunum. Færi upphæöin eftir þvi,
hvaö margir áhorfendur kæmu á leikina,
og gæti hún stundum skipt nokkrum
þúsundúm króna fyrir hvern leik. Þá
væru ýmis önnur hlunnindi i boði og hver
einasti ieikmaður fengi endurgjaldslaust
allan þann útbúnað, sem hann teldi sig
þurfa til æfinga og keppni.
Þeir, sem væru valdír i landsliðshópinn,
fengju allir laun, og þar að auki greiddi
Knattspyrnusambandið allt vinnutap
leikmannaog ýmsan annan kostnað.Fyrir
hvern leik væri greidd ákveðin upphæð,
jafnt til varamanna sem leikmanna, og
siöan fengju leikmenn „bónus” fyrir unna
leiki og jafntefli. Reiknaði hann út, að
fyrir jafnteflið við ísland fengi hver leik-
maður um 10.000 islenzkar krónur og þar
fyrir utan kæmi svo fast kaup og ýmislegt
annaö, sem hann sagði, að erfitt væri að
telja saman.
Hann taldi, aö þetta væri ein aðal-
ástæðan fyrir þvi, að knattspyrnan væri I
miklum uppgangi i Finnlandi — menn
legðu meira aö sér, þegar þeir vissu, aö
þeir fengju eitthvað fyrir sinn snúð.
Þetta væri nýtilkomið I Finnlandi og
hefði gefizt vel og allir aðilar haft hagnað
af... og hann bætti þvi viö, að ef við ætluð-
um ekki að hjakka áfram i sama farinu,
yrðum viö aö fara að taka eitthvað svipaö
kerfi upp, annars yrðum við eftir sem
— sfðasta háriö á hestinum. -klp--
Þeir fengu tiu þúsund krónur fyrir jafntefliö við tsland og tuttugu þúsund fyrir að
vinna Noreg.
Stefán Hallgrimsson KR fór
tnjög vel af stað á fyrri degi ís-
landsmótsins i tugþraut, sem
hófst á Laugardalsvellinum i
gærkvöldi, en þá var keppt I fimm
greinum af tiu á mótinu.
Enn fjúka heimsmetin
Hinn 18 ára gamli ungverski
sundmaður Andraz Hargitay
setti í gær heimsmet í 400 metra
fjórsundi karla á Evrópu-
nieistaramótinu I sundi, sem nú
er haldið I Austurriki.
Hann synti i úrslitasundinu á
4:28,89 mín., sem er nær tveim
sekúndum betra en gamla met-
ið, sem Bandarikjamaðurinn
Gary Hall átti, en það var
4:30,81 minúta.... sett 1972.
Austur-þýzku stúlkurnar
héldu áfram að sópa að sér gull-
inu i gær. Angela Franke sigraði
i 400 m skriðsundi kvenna, synti
á 4:17,83 minútum sem er nýtt
Evrópumet, og i 4x100 metra
boðsundinu sigruðu Aust-
ur-þýzku stúlkurnar einnig.
Nikolay Pankin frá Sovétrikj-
unum sigraði i 100 metra
bringusundi á 1:05.63 min eftir
injög harða keppni við Walter
Kusch frá Vestur-Þýzkalandi.
Haukarnir
hala inn!
Sigruðu Breiðablik í gœrkveldi í 2. deild
Haukar sigruðu Breiðablik i 2.
deild islandsmótsins i knatt-
spyrnu i gærkvöldi með 2 mörk-
um gegn 1 i leik, sem háður var á
velli þeirra Hafnfiröinga i Kapla-
krika. Hafa Haukarnir þar meö
sigrað Breiðablik i báðum leiki-
unum i deildinni og eru nú i 3ja
sæti þar á eftir FH og Þrótti.
Fjögur opin golfmót
um nœstu helgi
Um næstu helgi verður nóg úr
að velja fyrir golfáhugafólk á öll-
um aldri, þvi að þá verða fjögur
opin golfmót haldin á Suður- og
Norðurlandi...karla, unglinga og
kvennamót.
A velli Golfklúbbs Suðurnesja
fer fram BEA-keppnin, sem er 36
holu opin keppni og hefst hún á
laugardaginn. Þetta er flokka-
keppni og verður keppt i meist-
ara, 1. og 2. flokki karla.
A Norðurlandi verður hin ár-
lega „S.Ö-keppni” en það er einn-
ig 36 holu opin keppni. Ber keppn-
in nafnið af keppnisstöðunum,
sem eru Siglufjörður og ólafs-
fjörður. Verða leiknar 18 holur á
Siglufiröi á laugardeginum, en
þaðan halda keppendurnir til
Ólafsfjarðar og leika þar 18 holur
á sunnudeginum.
t Hafnarfirði verða tvö mót um
helgina. „Dunlop Open”, sem er
36 hólu unglinga- og drengja-
keppni og fer framá laugardag og
sunnudag, og á sunnudeginum fer
þar einnig fram 18 holu opin
kvennakeppni.
Eins og á þessari upptalningu
má sjá.hafa kylfingar úr nógu að
velja um helgina enda má búast
við, að margir þeirra verði með i
einhverju þessara móta, þó að
sumir þeirra séu enn hálf þreyttir
eftir íslandsmótið.
Sigur þeirra i gærkvöldi var
sanngjarn — þeir léku betur en
Kópavogsbúarnir og sköpuðu sér
mun fleiri marktækifæri, þótt svo
að þeir skoruðu ekki úr nema
tveim þeirra.
Það'fyrra nýttist á 8. minútu
leiksins, er Steingrimur
Hálfdanarson skoraði með góðu
skoti utan vitateigs, sem mark-
vörður Breiðabliks hélt ekki, og
missti hann boltann aftur fyrir sig
i netið.
Breiðablik jafnaði skömmu fyr-
ir hálfleik — Hinrik Þórhallsson
var óvaldaður rétt við markið og
átti auðvelt með að taka boltann
niöur og senda hann i netið enda
héldu varnarmenn Hauka, að
hann væri rangstæður.
Þannig hélzt staðan nokkuð
fram i siðari hálfleik, er
Haukarnir skoruðu aftur. Stein-
grimur lék á tvo varnarmenn
Breiðabliks og lagði siðan boltann
fyrir fætur Lofts Eyjólfssonar,
sem sendi hann i netið. Var það
hans 11. mark i 2. deildinni i sum-
ar, og er hann nú lang markhæst-
ur þar.
Litil spenna var i þessum leik
enda bæði liðin örugg um sætið i
deildinni næsta ár, en á báðum
hæðum hennar nú er mikii
spenna. Þrjú lið eru i fall-
hættu...lBl, Armann og Völsung-
ur, en Þróttur og FH berjast um
efsta sætið, þar sem FH-ingarnir
standa mun betur aö vigi á
Þróttarvellinum annað kvöld.
Hann náði sinum bezta árangri
i tveim greinum — 100 metra
hlaupi og kúluvarpi — og var við
sitt bezta i hinum þrem, lang-
stökki, hástökki og 400 metra
hlaupi. Er hann eftir fyrri daginn
með 3835 stig, og ef honum tekst
vel upp i kvöld, má búast við, að
hann bæti Islandsmetið all veru-
lega, en það er um 7400 stig.
Stefán hljóp 100 metrana á 11,1
sek, sem er hans bezti árangur i
þeirri grein. 1 langstökki stökk
hann 6.84 metra, sem er við hans
bezta og i kúluvarpi setti hann
persónulegt met með þvi að kasta
'
kúlunni 13,88 metra. 1 hástökkinu
tókst honum einnig ágætlega upp
— fóryfir 1,89 metra og hljóp svo
400 metrana á 50,4 sekúndum.
Eftir þennan fyrri dag er hann
með 180 stigum meir en næsti
maður, sem er Elias Sveinsson
1R, en hann er með 3649 stig.
Arangur hans i gærkveldi var 11,0
i 100 metra hlaupi, 6,41 i lang-
stökki, 12,90 i kúluvarpi, 195 i há-
stökki og 53,0 i 400 metra hlaupi.
Karl West, UMSK, er þriðji
meö 3568 stig en árangur hans i
ei.istökum greinum i gær var:...
Stefón Hallgrimsson náði mjög góðum árangri I tugþraut i gærkvöldi.
hvað gerir liann í kvöld?
a %
11,3 —6,80—11,51 —1,98 —og 53,7
i 400 metrunum. Friðrik Þór Ósk-
arsson er fjórði með 3376 stig.
11,1 — 6,58—10,95 — 1,83 — 53,7 en
12 stigum á eftir honum kemur
Hafsteinn Jóhannesson UMSK
með 3364 stig... 11,7 — 6,36 —
11,69 — 1,92 — 53,2.Alls eru 12
keppendur i tugþrautarmótinu að
þessu sinni.
Mótinu verður haldið áfram i
kvöld og þá keppt i eftirtöldum
greinum: kringlukasti, stangar-
stökki, spjótkasti, 110 metra
grindahlaupi og 1500 metra
halupi. Einnig verður keppt i
fimmtarþraut kvenna.
— klp —
Allir í
hringinn!
Heimsmeistarinn i hnefaleik,
George Foreman, og tveir fyrr-
verandi heimsmeistarar,
Muhamed Ali og Joe Frazier,
munu keppa i Salt Lake City i
Bandarikjunum hinn 3. septem-
ber. Er keppt til fjáröflunar fyr-
ir hinar 5 afrikönsku þjóðir,
sem vcrst hafa orðið úti i hinum
gifurlegu þurrkum, sem þar
hafa verið undanfarið. Andstæð-
ingarnir, sem þessir þrir miklu
boxarar munu berjast við, hafa
ekki ennþá verið vaidir.
Þess má geta, að heims-
nieistaracinvigið milli Fore-
mans og Ali mun fara fram i
Zaire þann 24. september næst-
komandi.
Víkingur vann í 2. flokki
Sigraði Val i úrslitaleiknum í gœrkvöldi 2:1
Vikingur og Valur léku til úr-
slita i islandsmótinu i 2. aldurs-
flokki á Melavellinum i gær-
kvöldi, og sigruðu Vikingar verð-
skuldað 2:1.
Vikingar léku á móti vindi i
fyrri hálfleik, en þrátt fyrir það
voru Vikingar öllu atkvæöameiri I
hálfleiknum. A 12. minútu fengu
Vikingar hornspyrnu frá hægri og
upp úr henni barst knötturinn til
Haralds Haraldssonar, eins bezta
manns Vikinga, sem stóö óvald-
aður á markteigshorni og þrum-
aði honum upp i þaknetið.
Eftir markið dofnaði yfir leikn-
um og þófiö varö ráðandi, þó átti
landsliðsmaðurinn Óskar Tómas-
son gott skot i þverslá Vals-
marksins úr erfiðri aðstöðu og
Atli Eðvaldsson átti skot hinum
megin, sem Vikingar björguðu á
linu.
Siðari hálfleikur var svipaður
og sá fyrri. Vikingar sóttu öllu
meira, án þess þó að skapa sér
veruleg tækifæri. Um miðbik
hálfleiksins kom þó að því, að
vörn Valsmanna gaf eftir, er ein-
um af þeim mistókst að hreinsa
frá, og Gunnlaugur Kristfinnsson
náði að skjóta frá vitateigshorni
og skoraði laglegt mark. Eftir
þetta sóttu Valsmenn nær stöðugt
Enn vinnur Carlisle
1 gærkvöldi voru leiknir nokkrir
leikir i 1. og 2. deild enskuknatt-
spyrnunnar og urðu úrslit sem
hér segir:
Arsenal—Ipswich 0:1
Birmingh.—Leicester 3:4
Everton—Stoke 2:1
Middlesborough—Carlisle 0:2
Wolves—Liverpool 0:0
1 2. deild:
Millwall—Nott. Forrest 3:0
Blackpool—Orient 0:0
Hull City—Aston Villa 1:1
Notts County—Fulham 1:1
Enn komu nýliðarnir Carlisle á
óvart með að sigra Middles-
borough á útivelli og skoraði
ONeill.sá erskoraði eitt á móti
Chelsea, bæði mörkin.
—ey —
þær 15 min, sem eftir voru og er
um 10 min. voru eftir, skoraði
Grimur Sæmundsson þá fyrir
Val. A lokaminútu leiksins áttu
Valsmenn gullið tækifæri til að
jafna, er Atli Eðvaldsson komst
upp aö endamörkum og renndi
knettinum út, en Vikingar björg-
uðu á siöustu stundu.
Leikurinn var frekar þófkennd-
ur og leiöinlegur á aö horfa, en
Vikingar voru þó öllu betri og áttu
sigurinn fyllilega skilið.
-ey-
BEZTA IÞROTTAMYNDIN
Þessi bráöskemmtilega og óvenjulega íþróttamynd hlaut 1. verðlaun í „World
Press Ijósmyndasamkeppninni" sem bezta íþróttamynd ársins, en úrslit í þeirri
stóru keppni voru nýlega tilkynnt. Myndin ber nafnið „Startið undirbúið" og er
tekin skömmu áður en mikil hjólreiðakeppni á ítalíu var að hef jast. Ljósmyndar-
inn, Norbert Rzepka frá Vestur-Þýzkalandi, var þar staddur — og vel staðsettur —
þegar kapparnir voru að „búa sig undir" að halda af stað í keppnina. Myndin birt-
ist í blaði hans í Vestur-Þýzkalandi en var síðan send i keppnina, þar sem hún hlaut
1. verðlaun.
BJÖRGVIN KOMST INN!
Stjórn Golfsambands islands
valdi i gær islenzka landsliðið i
golfi, sem tekur þátt I Norður-
landamótinu. er fram fer á
Grafarholtsvellinum um aðra
helgi.
Stjórnin gerði nokkrar breyt-
ingar á uppstillingu landsliðs-
nefndarinnar, sem valdi liöiö fyr-
ir siöustu mánaðamót og studdist
þá við árangur einstakra kylfinga
i opnum stigamótum i sumar.
Brautstjórnin þar með sina eigin
reglugerð.
Samkvæmt uppstillingu lands-
liðsnefndar var Björgvin Þor-
steinsson, íslandsmeistarinn frá
Akureyri, ekki i liðinu, en nú vel-
ur stjórn GSt hann i liðiö.
Það er sjálfsagður hlutur, enda
er Björgvin i algjörum sérflokki
golfara hér á landi þessa dagana.
En það kemur mörgum spánskt
fyrir sjónir, að úr þvi að stjórnin
brautsinareigin reglur, skuli hún
ekki hafa valið Óttar Yngvason i
liðið, en hann náði betri árangri á
tslandsmótinu en margir þeirra
sem eru i liðinu — einnig að hún
skuli hafa gengið fram hjá óskari
Sæmundssyni, sem varð i fjórða
sæti á tslandsmótinu.
Liðið, sem stjórn GSI valdi i
Norðurlandamótið, er þannig
skipað:
Þorbjörn Kjærbo, GS,
Loftur ólafsson, NK,
Jóhann Benediktsson, GS,
Björgvin Þorsteinsson, GA,
Ragnar Ólafsson, GR,
Sigurður Thorarensen, GK,
Varamenn:
Hans tsebarn, GR,
Óskar Sæmundsson, GR,
Július R. Júliusson, GK,
Einar Guðnason, GR.
Þorbjörn Kjærbo verður fyrir-
liöi liðsins á leikvelli, en Pétur
Björnsson fyrirliði utan vallar.
öll liðin eru með tvo fyrirliða i
svona mótum, enda mikið að snú-
ast á meðan á þvi stendur.
Eftir Norðurlandamótið verður
háð landskeppni við Finnland —
ekki ákveðið hvar og hvenær — og
þar munu flestir varamennirnir
leika, en aðrir fara þá úr liðinu.
klp —
BEST BYRJAÐUR!
Knattspyriiugoðið fyrrver-
andi, George Best, er enn á ný
byrjaður að hrella varnarmenn.
Best, sem nú nýlega geröi
samning við enska áhuga-
inannaliðið Dunstable — eign
milljónamærings — um að spila
með því þrjá leiki, lék sinn
fyrsta leik i síðustu viku. Var
hann móti varaliði Manchcster
United.
Leikur þessi var vináttuleikur
og þótti Best standa sig vel gegn
sínum gömlu félögum, þrátt
fyrir nokkur aukakiló.
Dunstahle sigraði i leiknum
meö 3:2 og skoraði Best tvö
■nörk.
Þess má geta hér til
gamans, aö Jeff Astle fyrrver-
andi landsliðsmaður Englands
og leikmaður ineö West
Bromwich, leikur einnig meö
þessu liði. -ey-
1
B
a
M
M f
1
Þú sigrar ekki
þú Jáv heppinn
og heppnin er fallvölt.
Kannski skora ég ekki
marká sunnudag.
—
Hillir undir nýtt fslands-
met í tugþraut hjá Stefáni
Er með 3835 stig eftir fyrri dag meistaramótsins í tugþraut, sem hófst í gœrkvöldi