Vísir - 07.09.1974, Blaðsíða 3
Vísir. Laugardagur 7. september 1974.
3
Um 580
manns
mega
fljúga
sjólfir
— en aðeins lítill
hluti starfar
við flug
Þótt það sé bæði löng leið og
ströng að gerast atvinnuflug-
maður, þá setja ekki allir það fyr-
ir sig. Alls hafa um 580 íslending-
ar réttindi tii þess að fljúga hér á
iandi.
Um 580 skírteini eru þvi i gildi,
en það er ekki þar með sagt, að
allir þessir starfi við flug. Ekki
nema litill hluti meira að segja,
þvi að talsvert af þessu fólki er
ekki komið langt i náminu.
Alls hafa 1547 manns einhverS
konar skirteini varðandi flug. Þar
má meðal annars nefna flugvéla-
virkja, flugumsjónarmenn og
fleiri, sem ekki fljúga, en starfa
samt við flugið.
Talan 580 er ekki alveg nákvæm
en er þó mjög nálægt þvi að vera
rétt, eftir þeim upplýsingum, sem
við höfum fengið hjá Loft-
ferðaeftirlitinu.
Af þessari tölu hafa um 130
flugstjóraskirteini, 140 atvinnu-
flugmannsskirteini, 10 svokölluð
seniorskirteini, 220 einkaflug-
mannsskirteini og um 80 hafa
flugnemaskirteini.
Það má geta þess, að eftir að
hafa fengið flugnemaskirteini i
hendurnar eða sóló-próf, þá hætta
margir, sumir kannski vegna
þess að flugtiminn er ákaflega
dýr, öðrum finnst kannski bara
komið nóg.
Fáir Islendingarstarfa erlendis
við flug. Þeir sem starfa úti eru
þá aðallega hjá Cargolux.
—EA
Mannslátið á
Vesturgötunni:
Dánar-
orsðk
enn
óljós
Rannsóknariögreglan hefur nú
kannað aðdragandann að dauða
gamla mannsins, sem sagt var
frá I Visi í fyrradag.
Atvik voru þau, að húsráðand-
inn, sá sem lézt, var einn heima i
ibúð sinni á Vesturgötunni, er
mann bar að garði. Settust þeir að
drykkju og urðu báðir ölvaðir.
Eitthvað hefur orðið þeim aö
ágreiningsefni, þvi gesturinn
þreif til hálsbindis og batt gamla
manninn á höndum.
Kona og maður úr öðrum enda
kjallarans, þar sem gamli
maðurinn bjó komu að þeim, og
var þá gamli maðurinn látinn á
gólfinu með hendur bundnar.
Hringdi konan þá á lögregluna.
Gestkomandinn hefur nú verið
úrskurðaður i 30 daga gæzluvarð-
hald. Niðurstöður krufningar-
innarliggja nú fyrir, en þær hafa
til þessa ekki gefið neina ákveðna
visbendingu um dauðaorsökina.
Gamli maðurinn sem lézt var 74
ára gamall ellillfeyrisþegi og hét
Daniel Simonarson. —JB
24 þúsund og 7 hundruð
krónur spöruðust í tóbaki
Henriksen iæknir og Sigurður Bjarnason hjá tslenzka bindind
isfélaginu voru vel ánægðir með árangurinn af námskeiðinu.
„Ekki-reykinga-
námskeiðinu"
lokið. - Af 158
hœttu 137 alveg
„Þeir höfðu eytt 25 þúsund
krónum i reykingar fyrsta
daginn, þessir sem komu á
námskeiðið til okkar, en núna,
þegar námskeiðinu lauk eyddu
þeir sem ekki gátu hætt alveg,
tóbaki fyrir um 300 krónur
siðasta daginn”, sagði Jens
David Henriksen, danskur
læknir frá Boston, sem hér
hefur verið til leiðsagnar fólki,
sem vildi venja sig af reyk-
ingum.
„Það voru 158 , sem luku við
alla 5 daga námskeiðsins. Þar
af hættu 137 algerlega”, sagöi
Henriksen.
Læknirinn kom annars að
máli við Visi vegna fréttar, sem
honum hafði verið bent á um
ályktanir dansks læknis varð-
andi skaðsemi reykinga. — Dr.
Finn Gyntelberg hafði kynnt
niðurstöður rannsókna sinnar á
5.250 mönnum á aldrinum 40-59
ára og fullyrti, að þeir sem
reyktu hóflega, hefðu verið
betur á sig komnir likamlega
en hinir, sem reyktu ekkert eða
reyktu mjög mikið.
„Þessar fullyröingar dr.
Gyntelbergs — sem ég þekki
annars mæta vel — eru vill-
andi”, sagði Henriksen.
„Rannsóknirnar gefa alls ekki
nóga heildarmynd af ásigkomu-
lagi þeirra, sem rannsakaðir
voru”, sagði Henriksen og lagði
áherzlu á, að allar rannsóknir til
þessa hefðu leitt i ljós, að þeir
væru verr á sig komnir, sem
reyktu.
„Dr. Victor Cooper er við-
frægur læknir i Bandarikjunum,
sem m.a. hefur stjórnað þjálfun
geimfaranna i geimstöðinni i
Houston. Hann stjórnar einnig
þjálfunprógrammi Bandarikja-
hers á öllum nýliðum, sem
ganga i herþjónustu — Þessi
Cooper hefur gert rannsóknir á
reykingamönnum”, benti dr.
Henriksen okkur á.
„Cooper skiptir rannsóknar-
efninu i þrennt. — Fyrst þá sem
alls ekkert reykja, svo þá sem
reykja i mesta lagi 10 vindlinga
á dag og siðast þá, sem reykja
að minnsta kosti pakka á dag.
Það hefur komið rækilega i
ljós, að þeir, sem ekkert reyktu,
komust fljótt og auðveldlega i
góða þjálfun, eins og reyndar
var við að búast. Hinir, sem
reyktu i mesta lagi 10 vindlinga
á dag, náðu aldrei nema 50%
þreki þeirra. Og svo þeir, sem
reyktu að minnsta kosti pakka á
dag, þeir komust aldrei nema i
25% þjálfun miðað við þá, sem
ekki reyktu”, segir Henriksen
um niðurstöður rannsókna
Coopers.
Henriksen gat lýst fleiri rannr
sóknum og niðurstöðum þeirra
en hér er ekkert rúm að telja
allt upp. — Honum er mikið
hjartans mál að gera fólki ljósa
skaðsemi reykinga.
Læknirinn kom hingað til lands
fyrir 20 mánuðum, þegar fyrsta
námskeiðið var haldið hér I
Norræna húsinu til þess að leið-
beina fólki við að losa sig við
reykingarvanann.
„Arangurinn núna var sá
sami og þá”, sagði dr.
Henriksen.
—GP—
„Fáum fyrri Spánartogarann
í þessum mánuði - ef okkur
tekst að kljúfa fjármálin"
— segir fram-
kvœmdastjóri
r
Utgerðarfélags
Akureyringa
„Ef okkur tekst að kljúfa fjár-
málahliðina, getum við tekið við
fyrri skuttogaranum frá Spáni i
lok þessa mánaðar og hinum i
næsta mánuði,” sagði Gisli
Konráðsson, annar
framkvæmdastjóra Otgerðar-
félagsins á Akureyri í viðtali viö
Visi i gærkveidi.
„Það er rétt,” sagði Gisli, ,,að
okkur skortir nokkurt fé til að
geta tekið við togurunum og siglt
þeim heim. Sem betur fer virðast
mér þó vera fremur góðar horfur
á að úr rætist og afhending þurfi
ekki að dragast á langinn,” bætti
hann við.
Frekari upplýsingar um
fjárhagshliðina vildi Gisli ekki
veita. Minnti þó á, að Útgerðar-
félagið keypti i fyrra tvo aðra
skuttogára, sem kostuðu sitt, en
þau útgjöld spila að sjálfsögðu inn
i dæmið.
Aðspurður um það, hvort áætl-
un um smiði togaranna hafi
staðizt, svaraði hann: „Það er nú
bæði og. Upphaflega var ráðgert,
að smiði fyrri togarans yrði lokið
i júlí, en hins siðari i október.
Eins og ég gat um áðan, verður
fyrri togarinn seinna á ferðinni en
ráðgert var, en á móti kemur, að
hinn verður fyrr á ferðinni.”
Ekki var Gisli tilbúinn til að
gefa upp verðið á skuttogurunum
hingaðkomnum eftir gengis-
feilinguna og ýmsar aðrar verð-
lagsbreytingar, sem orðið hafa,
siðan samið var um smiði togar-
anna. „Það er lika eitt, sem hafa
verður i huga, nefnilega það, að
við höfðum upphaflega samið
við skipasmiðastöðina hér á
Akureyri um smiði þessara
tveggja skuttogara og höfðum
fengið til landsins tæki og ýmis-
legt annað fyrir togarana, sem
við svo sendum Spánverjum,
þegar ákveðið var að fela þeim
smiðina,” útskýrði GIsli. „Það
var þvi ekki um eins stóran
kaupsamning að ræða við
Spánverja.”
Á leiðinni heim á að ganga frá
lestum skuttogaranna i Þýzka-
landi, og fiskkassana er svo
ráðgert að kaupa i Noregi. —ÞJM
GOTT
AÐ EIGA
HEILBRIGÐ
BÖRN
Kaffisala á vegum
kvennadeildar lam-
aðra og fatlaðra
„Kvennadeild Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra hefur nú
starfað 18 ár og eru I félaginu yfir
200 konur, sumar eiga lömuö og
fötluð börn, en aðrar eru í félag-
inu m.a. vegna þess að þær eru
þakklátar fyrir að eiga heilbrigð
börn,” sagði Jónina Þorfinnsdótt-
ir, formaður félagsins, er við
ræddum viö hana.
Félagið safnar fé á ýmsan hátt,
Þaö er ekki of oft sem hugsaö er til þess, hvernig lifi þeir lömuðu og fötluðu lifa.
svo sem með stórbingói, basar,
þar sem konurnar gera ýmsa
hluti sjálfar og gefa á basarinn,
og með kaffisölu. Peningarnir
sem safnast renna svo til starf-
semi Æfingastöðvarinnar við
Háaleitisbraut og starfseminnar i
Reykjadal.
,,A sunnudaginn kl. 14 hefur
kvennadeildin kaffisölu i Sigtúni.
Væri ekki alveg tilvalið fyrir fólk
að koma og fá sér kaffisopa og
njóta góðrar skemmtunar um leið
t.d. þegar komið er frá þvi að
horfa á landsleikinn á Laugar-
dalsvellinum þennan sama dag?”
sagði Jónina.
Hljómsveit Hauks Morthens
skemmtir ásamt Ómari Ragnars-
syni, Magnúsi Ingimarssyni,
Þjóðdansafélagi Reykjavikur og
tizkusýning verður með sýning-
arfólki frá Pálinu Jónmundsdótt-
ur. Þá verður spilað bingó og
verðlaunin eru ferð til Costa del
Sol á vegum ferðaskrifstofu
Útsýnar. _ev1—