Vísir - 07.09.1974, Blaðsíða 4
4
Vísir. Laugardagur 7. september 1974.
HJÓNABAND í STYTTRA LAGI!
UTLOND
Nákvœmlega 58 mínútum eftir að presturinn hafði lagt blessun sína yfir
hjónabandið voru ungu hjónin skilin
Vitið þið hvar heims-
ins stytzta hjónaband
átti sér stað?....í
Bandarikjunum að
sjálfsögðu!
Þann 2. júni s.l. gengu
þau Ann Smith og
Victor Karvenookoski i
heilagt hjónaband og
fór athöfnin fram með
viðhöfn i einni af stór-
kirkjum Boston — En
58 minútum siðar voru
þau skilin, eða svo gott
sem.
Um leið og presturinn hafði
lagt blessun sina yfir hjóna-
bandið og gestirnir búnir að
hrista hægri hönd Victors,
þannig að hann var að fara úr
axlarliðnum, og kyssa Ann svo
allur farði varfarinn af kinnum
hennar, fóru hjónin að rifast.
Brúðurin vildi fara i brúð-
kaupsferð til Florida, en brúð-
guminn vildi heldur fara til New
York. Rifrildinu lauk með þvi
að brúðguminn gaf brúðinni
einn syngjandi kinnhest og bað
hana siðan að fara til..! eða
lengra, ef hún kæmist.
Hún tók hann ekki alveg bók-
staflega á orðinu, en þó svo gott
sem þvi hún labbaði sig inn á
næstu tilheyrandi skrifstofu .
i brúðarkjólnum og öllu
finiriinu. .. og náði sér þar i
skilnaðarpappirana. Og
nákvæmlega 58 minútum eftir
það þau gengu út úr kirkjunni
var frú Karvenookoski aftur
orðin ungfrú Ann Smith.
—klp
Útboð
Stjórn verkamannabústaða i Reykjavik
óskar eftir tilboðum i raflögn i 308 ibúðir I
Seljahverfi i Reykjavik.
Útboðsgögn verða afhent i Lágmúla 9 (5.
hæð) gegn 10 þúsund króna skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð föstudag 27. septem-
ber 1974.
Kjöt- og
nýlenduvöruverzlun
Til sölu er ein af betri kjöt- og nýlendu-
vöruverzlunum i austurborginni.
Verzlunin er i góðri umsetningu, tæki og
áhöld nýleg og góð. Hagstæð greiðslukjör.
Tilboð sendist Visi fyrir 11. sept. merkt
„Góð velta”.
Oahspe-kynning
Undrabókin Oahspe verður kynnt sunnudaginn 8. sept. kl.
2 e.h. að Lindarbæ (niðri). Gengið inn frá Skuggasundi.
Rakin sagan I stórum dráttum i 24000 ár. Oahspe er saga,
vfsindi og háspeki. Hvað er framundan séð I ljósi Oahspe?
Fyrirspurnum svarað. Njáll Þóroddsson.
Sjóið
þið
bara!
Nei, það er ekkert athuga-
vert við sjónina þina, þó svo
að þú haldir það eftir að hafa
horft á þessa mynd svona I
fljótheitum.
Ef þú skoðar hana betur,
getur þú séð, að það er
sebrahesturinn til vinstri,
„Torso”, sem á höfuðið, Sá
sem er til hægri, „Tenso”
var að flækjast fyrir, þegar
Ijósmyndarinn ætlaði að
taka mynd af „Torso” — en
útkoman varð þessi bráð-
skemmtilega felumynd, sem
vfða hefur vakið athygii í
blöðum og timaritum
erlendis.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 40., 44. og 45. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1974 á eigninni Aifaskeið 54, jarðhæð, Hafnarfirði,
þinglesin eign Snorra Gunnarssonar, fer fram eftir kröfu
Innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11.
september 1974 kl. 1.15 e.h.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 40., 44. og 45. tölublaði Lögbirtinga-
biaðsins 1974 á eigninni Arnarhraun 16, rishæð, Hafnar-
firði, þinglesin eign Andra Heiðberg, fer fram eftir kröfu
Innhcimtu Hafnarfjarðarbæjar og Innheimtu rikissjóðs á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. september 1974 kl. 2.00
e.h.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 76., 78. og 80. tbl. Lögbirtingabiaðs 1973 á
hluta i Marklandi 10, þingl. eign Ólafs Friðrikssonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldhcimtunnar i Reykjavík á eigninni
sjálfri þriðjudag 10. september 1974 ki. 14.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 40., 44. og 45. tölublaði Lögbirtinga-
biaðsins 1974 á m.b. Ellu SH-145, þinglesin eign Sævars
Jónatanssonar, fer fram eftir kröfu Þorfinns Egilssonar
hdl„ Vilhjálms Þórhalissonar hrl. og Fiskveiðasjóðs
tslands við eða i bátnum, þar sem hann stendur i skipa-
smiðastöðinni Bátalón h/f, Hafnarfirði, miðvikudaginn 11.
september 1974 kl. 5.30 e.h.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 40., 44. og 45. tölublaði Lögbirtinga-
biaðsins 1974 á eigninni Miðvangur 85, Hafnarfirði, þing-
lesin eign Arna Óskarssonar, fer fram eftir kröfu
Tómasar Gunnarssonar hdl. og Arna Gunnlaugssonar
hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. september 1974
ki. 3.30 e.h.
Bæjarfógetinn i llafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 40., 44. og 45. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1974 á eigninni óldutúni 12, 1. hæð til vinstri,
Hafnarfirði, þinglesin eign Halidórs óskarssonar, fer
fram eftir kröfu Kristins Sigurjónssonar hrl. á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 11. september 1974 kl. 5.00 e.h.
Bæjarfógetinn I Hafnarfirði.
Umsjón:
KLP og GP
ÚTLÖND