Vísir - 07.09.1974, Qupperneq 8
Vlsir. Laugardagur 7. september 1974.
8
MÍNUM
EYRÚM
ORN
PETERSEN
Bryan Ferry.
„Another time
another place".
Hinn sjálfmenntaOi tónlistar-
maður og stofnandi hljómsveit-
arinnar Roxy Music er hér á
ferðinni með aðra sólóplötu
sina, sem að minum dómi er
öilu betri en sú fyrri „These
fooiish things”.
Fyrir Roxy Music hefur Fecry
skrifað mörg lög, og einkennast
þau öll af hinum sérstaka stil
hans, þ.e. hinn sérstæði söngur
hans og andstæður blásturs-
hljóðfæra og rafmagnshljóð-
færa, en laglinurnar sjálfar
sækir hann oft aftur i gömlu
rokkárin. Þó vil ég alls ekki
likja sólóplötum hans við tónlist
Roxy Music, þvi á þeim er hann
á ferðinni með gömul þekkt lög,
sem hann svo útfærir á sinn
máta og leggur aðaláherzluna á
sönginn. Þannig tók hann á
„These foolish things” fyrir lag
Dylan’s ,,A Hard Rain’s A-
Gonna Fall” með skemmtilegri
útkomu en Dylan hefði getað
gert.
— Jæja, en snúum okkur að
„Another time, Another place”.
Eins og á „These foolish things”
tekur Ferry til meðferðar göm-
ul þekkt lög, og fyrir valinu i
þetta sinn eru lög eins og „What
a wonderful world”, „Help me
make it through the night”,
„You are my sunshine” og vit-
anlega eitt Dylan lag, „It aint
me Babe”.
Aðstoðarmenn Ferry’s á
þessari plötu eru að mestu leyti
þeir sömu og á „These foolish
things”, en hljóðfærin sem
notazt er við á plötunni, eru
aðallega blásturshljóðfæri
pianó, trommur (þungur takt-
ur), gítar, bassi, fiðlur, orgel, að
ógleymdum bakröddunum, sem
oft koma skemmtilega út.
Allur frágangur og upptaka á
þessari plötu er til fyrirmyndar.
Það er býsna erfitt að likja tón-
list Ferry’s við eitthvað sér-
stakt, en þeir sem gaman hafa
af tónlist Roxy Music-Wizzard-
Ike Tuner’s, verða ekki fyrir
vonbrigðum með þessa plötu.
Beztu iög: „Smoke gets in
Your Eyes”
„The ’ln Crowd.”
„It aint me Babe”.
Bryan Ferry, Amanda, David Bowie og Shaun
BlACK -fcYfcÖ HOY'
Paper Lace. //Paper
Lace".
Þó að þessi hljómsveit sé orð-
in fjögurra ára gömul, sló hún
fyrst i gegn nýlega með lögun-
um „Billy don’t be a Hero”, og
„The night Chicago died”. Fjór-
menningarnir i Paper Lace
koma frá Nottingham i Eng-
landi og heita Phil Wright, Cliff
Fish, Michael Vaughan og Carlo
Santanna. Þetta fyrsta albúm
þeirra sýnir, að þeir eru engir
tónsmiðir, heldur taka þeir fyrir
gömul og ný lög úr ýmsum átt-
um, en þó aðallega lög eftir
Murray og Callander.
Þeir Murray og Callender
hafa i gegnum árin skrifað
mörg lög fyrir fólk eins og Tom
Jones, Lulu, Cliff Richard, The
Tremeloes, Paul Anka og fleiri.
Af frægustu lögum tvimenning-
anna má helzt nefna „I’m tell
ing you now”, „How do you do
it”, og „I like it”. Nóg um það,
félagarnir i Paper Lace flytja
létta tónlist, sem margir myndu
eflaust likja við „sleikjubrjóst-
sykur”, og á þessu albúmi taka
þeir fyrir gömul lög eins og
„Dreams are ten a penny”,
„Happy birthday, Sweet six-
teen”, „Hitchin’a Ride”,
„Sealed with á kiss” og „Mary
in the morning”. 011 hafa þessi
lög verið gerð fræg af öðru tón-
listarfólki, má þar t.d. nefna
Neil Sedaka, Tremeloes og
Vanity Fare, undantekning frá
þessu eru vitanlega „hit-lög”
þeirra,”Billy, don’t” og „The
night Chicago.” Aðaltromp fé-
laganna i Paper Laceeru radd-
irnar, þvi allur söngur á þessari
plötu kemur ágætlega út, án
þess að notazt sé við „stúdió-
trix”. Ekki myndi ég þó kaupa
mér þessa plötu, það væri þá
eingöngu til notkunar i „partii”,
og mæli ég þvi eingöngu með
henni sem slikri.
Beztu lög. The night Chicago
died.
Billy, don’t be a Hero.
Mary in the morning.
Harry Nilsson
//Pussy-Cats".
Flestir tónlistarmenn, er ná
mikilli frægð, eiga að baki lang-
an feril, en svo er ekki með Nils-
son. Allt til ársins 1968 starfaði
hann i banka einum stórum 1
USA („bankamaður” held ég að
maður kalli það) og var nærri
orðinn aðstoðarbankastjóri, er
hann ákvað að snúa sér að tón-
listinni, (sennilegast ekki þolað
slifsi).
Fyrsta albúm hans hét
„Pandemonium Shadow Show”,
og það innihélt m.a. tvö góð lög,
„Without Her”, og „1941”. En
hann vakti mesta athygli fyrir
meöferð sina á eldri lögum
Beatles, og i gegnum þau lög
kynntist hann þeim félögum
Paul, Ringo, George og John.
Eftir það hefur hann ljóst og
leynt verið nefndur fimmti með-
limur Beatles, og á seinni al-
búmum hans hafa Beatles ætið
lagt hönd á plóginn, þó aðallega
þeir John og Ringó.
Það er sosum ekkert að furða
þótt hann hafi verið nefndur
fimmti bítillinn, þvi tónsmið
hans er eins konar millivegur á
milli John og Paul, og söngrödd
hans samlagast stil Beatles
mjög vel. Auk þess spilar hann á
pianó, og myndi það gefa Paul
tækifæri til þess að snúa sér ein-
göngu að bassanum.
Nóg um það, snúum okkur að
albúminu.
Það heitir „Pussy-cats” og á
að vera sólóalbúm frá Nilsson,
en er I raun og veru allt eins frá
John Lennon. Að visu eru flest
lögin eftir Nilsson, en það er
John Lennon, sem hefur annazt
útsetningu laganna, auk þess
sem hann syngur með á þeim
flestöllum, svo platan hefur á
sér anzi mikinn „Lennon-brag”.
Fyrstu lögin — „Many Rivers to
Cross” (eftir Jim Cliff) og
„Subterranean Homesick Blu-
es” (eftir Bob Dylan) minna t.d.
mjög mikið á fyrri lög Lennons.
Svo er á plötunni eitt lag eftir
Lennon, en það er lagið „Mucho
Mungo/Mt. Elga, fallegt og ró-
legt lag, kannski bezta lag plöt-
unnar.
— Mörg fræg nöfn koma fram
á þessari plötu og má þar helzt
nefna: Ringo Starr, Klaus
Voorman, Jim Keltner, Danny
Kootch, Keith Moon og Sneeky
Pete og þarf vart að spyrja að
frammistöðu þessa liðs.
En ég get barasta ekki gert að
þvl, en þessi plata missir alger-
lega marks, hvað mig snertir.
Ég hef ekki verið hrifinn af tón-
list Lennons frá þvi að Beatles
hættu, og Nilsson virðist hreint
og beint vera að stæla hann.
Mér finnst lika leiðinlegt að
hluta á þessar afbakanir á eldri
lögum, eins og „Rock around
the Clock”, „Save the last dance
for me” og „Loop de Loop”,
sérstaklega þegar svona menn
eiga i hlut, þvi þeir ættu að geta
gert betur. Þetta er plata fyrir
forvitna og Lennon aðdáendur.
Beztu lög:
Mucho Mungo/Mt.Elga.
Don’t forget me.
Harry Nilsson og John Lennon
RICK WAKEMAN, fyrrv.
meðlimur YES, slappar nú
af á spitala og reynir að losa
sig viö taugaáfallið, sem
hann hafði meðferðis þangað.
Fyrsta albúm STEPPEN-
WOLF eftir endurreisnina á
vfst að heita „Slow Flux”.
Hæ, ef þú átt nýjustu plötuna
hans STEVIE WONDER
„Fulfilingness-First Finale”,
þá kiktu á aibúmiö og sjáðu
hvort þú sérö einhver skilaboð
á myndinni, en ef þú átt’ana
ekki, þá slepptu þvi? Nú,
ósköp fær ma’r lltiö pláss I
dag....