Vísir - 09.09.1974, Page 5
Vlsir. Mánudagur 9. september 1974.
I MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND
Umsjón Guðmundur Pétursson
Portúgalsstjórn sendir herlið
gegn hvítum uppreisnarmönnum
sem höfðu enn í morgun mikilvœga staði í höfuðborg Mósambik ó sínu valdi
Rikisstjórn Portú-
gals tilkynnti i morgun,
að hún hefði sent herlið
frá norðurhluta Aíriku-
nýlendunnar Mosam-
bik til að bæla niður
uppreisn hvitra manna
i höfuðborg nýlendunn-
ar, Lourenco Marques.
Uppreisnarmenn, sem
eru andvigir þvi, að
sjálfstæðishreyfing-
unni Frelimo verði af-
hentir stjórnar-
taumarnir i landinu,
segjast munu berjast
við herlið stjórnarinn-
ar, ef þörf krefji.
Hinir hvitu uppreisnarmenn
hafa náö á sitt vald mikilvægum
stööum I Lourenco Marques.
Þar á meöal er útvarpsstööin,
sem þeir hafa notaö til aö krefj-
ast sjálfstæöis nýlendunnar og
mótmæla valdatöku Frelimo.
Þeir segjast vera aö koma á fót
rikisstjórn meö þátttöku allra
kynþátta.
Fyrir utan höfuöborgina létu
tveir hvitir menn og einn svart-
ur lifiö, er svertingjar réöust
meö grjótkasti aö stuönings-
mönnum uppreisnarinnar, þar
sem þeir voru á leiö til flugvall-
arins til aöná honum á sitt vald.
Þetta er eina manntjóniö, sem
enn er oröiö I uppreisninni, svo
vitaö sé.
Fulltrúar Frelimo sögöu I Lu-
saka I Zambíu, aö skæruliöar
Frelimo mundu leggja til atlögu
gegn hinum hægri sinnuöu upp-
reisnarmönnum. Mundi Fre-
limo vinna meö Portúgalsstjórn
að þessu i samræmi viö sam-
komulagiö um, aö Frelimo
myndi bráöabirgöastjórn I
Mósambik.
En i Lissabon sagöi Gon-
calves, forsætisráöherra Portú-
galsstjórnar, að stjórn hans
heföi ekki fariö fram á neina aö-
stoö af hálfu Frelimo viö aö
koma aftur á röö og reglu. Ekki
væri um neina byltingu aö ræöa.
heldur aöeins örvæntingarfulla
aögerö fámenns hóps, sem ekki
heföi skilning á sögulegri þróun.
Forsætisráöherrann sagöi, aö
enn heföi ekki veriö unnt aö her-
taka útvarpsstöðina I Lourenco
Marques, þar sem uppreisnar-
menn heföu tekiö konur og börn
sem gisla. Lögregla og herlið
stjórnvalda stóö i nótt vörö viö
útvarpsstööina en geröi enga
tilraun til aö komast inn.
Yfirvöld I Portúgal hafa vlsað
á bug fullyrðingum uppreisnar-
manna um, aö þeir hafi náð
undirtökunum viösvegar um
Portúgal. Allt væri meö kyrrum
kjörum og hvorki lögregla né
herlið heföi gengiö I liö meö
uppreisnarmönnum. En til aö
forðast blóðsúthellingar hefði
enn ekki veriö lagt til atlögu
gegn uppreisnarmönnum I
útvarpsstööinni og á flugvellin-
um, sem þeir hafa lika á sinu
valdi.
Lausafregnir frá Lourenco
Marques segja, aö sumir þeir
hópar svertingja, sem andvigir
eru Frelimo, hafi lýst yfir
stuðningi við uppreisnarmenn.
Sömu fregnir segja, aö foringi
uppreisnarinnar sé fyrrverandi
hershöfðingi, Mesquitela, sem
Spinola Portúgalsforseti vék úr
starfi fyrir stuöning viö fyrri
stjórn Caetanos. Mundi Mesqui-
tela lýsa yfir sjálfstæöi einhliöa,
eins og gert var I Rhodesiu á
sinum tlma.
Eldflaug Knievels sést hér þjóta af staö I tilraun hans til aö kom-
ast yfir Snákafljótsgljúfur. A myndinni sést, aö ein fallhllfin er
þegar aö opnast nokkru áöur en til var ætlazt.
FORD NÁÐAR
NIXON JÁTAR
„Engin orð fá lýst
harmi minum og þján-
ingu vegna vanda þess,
sem Watergate-mistök
min hafa valdið þjóð-
inni og forseta-
embættinu”, sagði
Nixon, fyrrum Banda-
rikjaforseti i gær, er
hann tók við náuðun-
inni, sem Ford forseti
veitti honum.
Ford tilkynnti náðunina i gær.
Hann náðar Nixon af öllu
hugsanlegu misferli i sambandi
viö Watergate og önnur þau
mál, er veltu Nixon úr sessi.
Hann steig þetta skref til að
hindra niu mánaða eða heils árs
þjáningar þjóðarinnar, meðan
mál Nixons væri fyrir rétti.
Margir þingmenn hafa gagn-
rýnt Ford fyrir þetta og segja
ákvörðun hans ósanngjarna
gagnvart ráðgjöfum Nixons,
sem sitja I fangelsi eða biða
dóms fyrir þátttöku I hneykslis-
málum Nixons. Ráðgjafi Fords
sagöi I gær, að forsetinn hefði
ekki hugsað sér að náða þessa
ráögjafa.
Formaður þingflokks demó-
krata I öldungadeildinni sagöi,
aö Ford hlyti að vera viss um,
aö Nixon væri sekur, úr því að
hann hefði náðaö hann.
Ofurhuginn lenti í
gljúfrinu ómeiddur
upp á gljúfurbarminn, virtist
hann ekki slasaður. Hann veif-
aöi til áhorfenda og sagöi: ,,Ég
rakst á tvær eða þrjár syllur á
leiöinni niöur, en ég var svo fast
bundinn, að það gerði ekkert til.
Ef ég heföi lent I fljótinu, heföi
ég aldrei komizt upp úr þvl
aftur.
Knievel gefur hér sigurmerki,
áður en hann leggur I misheppn-
aöa för sfna yfir gljúfrið.
Ofurhuganum Evel
Knievel tókst ekki að
ráða við fallhlifarnar á
eldflaug sinni, er hann
reyndi i gær að komast
yfir Snákafljótsgljúfur
i Bandarikjunum.
Hann féll niður i
gljúfrið og var bjargað
þaðan heilum á húfi.
30.000 manns horföu á Nievel
reyna að stökkva á eldflaug yfir
fljótiö. Hann er 34 ára gamall
kappakstursmaöur á vélhjólum.
Knievel haföi auglýst þetta til-
tæki sitt rækilega sem stærsta,
hæsta og lengsta stökk I mann-
kynssögunni. Alténd græddi
hann meira en 600 milljónir
Islenzkra króna á tiltækinu.
Hver áhorfandi greiddi sem
svarar 2500 krónum fyrir aö sjá
stökkiö. Þar á ofan hafði ein og
hálf milljón manna greitt 1000
krónur hver fyrir að sjá stökkiö
á lokuöu sjónvarpskerfi I kvik-
myndahúsum um öll Bandarík-
in.
Knievel hefur undirbúið þetta
stökk I meira en tvö ár. Sjálft
stökkiö tók ekki nema tvær
mlnútur og endaöi I gljúfrinu.
Þegar hann var kominn aftur
Ford hefur
meira
fylgi en
Kennedy
Meirihluti bandarfskra kjósenda
tekur Ford fram yfir Edward
Kennedy sem forseta Bandarikj-
anna samkvæmt slöustu Gall-
up-könnun. 57% segjast munu
kjósa Ford, 33% Kennedy og 10%
voru óráönir.
Blaðafull-
trúi Fords
fór í mót-
mœlaskyni
Andvígur
nóðun Nixons
Blaöafulltrúi Fords Banda-
rikjaforseta, Jerald terHorst,
sagði af sér I mótmælaskyni I
gærkvöldi, er Ford haföi náö-
aö Nixon, fyrrverandi forseta,
fyrir hugsanlegt ntisferli
hans, meöan hann var viö
völd.
terHorst sagöi I þessu til-
efni: „Ford hefur gert eins og
samvizkan býöur honum og
þaö viröi ég, en ég hef llka gert
eins og samvizkan býöur
mér.”
Taliðer, aöafsögn terHorsts
séóafturkallanleg. Hann muni
fara, hvort sem Ford tekur af-
sögnina til greina eöa ekki.
„Mildin verður að vera jöfn
eins og réttlætiö”, sagöi
terHorst og benti á, aö nán-
ustu aöstoöarmenn Nixons
sætu I fangelsi, rúnir heiöri, og
fjölskyldur þeirra ættu viö
erfiöleika aö strlöa.
terHorst er gamall vinur
Fords. Hann hefur lengst af
verið blaöamaöur og mun nú
hefja sllk störf aö nýju.
Ford Bandarlkjaforseti undirritaöi I gær náöun Nixons.