Vísir - 28.09.1974, Page 5

Vísir - 28.09.1974, Page 5
Vlsir. Laugardagur 28. september 1974. ERLEND MYNDSJÁ Umsjón: BB/GP Hjálpin kemur að gagni Vegir hafa að nýju verið opn- aðir til flóðasvæðanna i Honduras og járnbrautir eru byrjaðar að flytja fæði og klæði til hinna nauðstöddu. Góðar horfur eru þvi orðnar á þvi, að það takist að bægja hungurvof- unni að mestu leyti frá flóða- svæðunum. Efnahagsöngþveitið i kjölfar flóðanna er hins vegar að koma í Ijós. Tölur um tjón eru enn óljósar en þó taldar nema að minnsta kosti 50 milljörðum króna. Þá hefur bananaræktin, sem er helzti útflutningsat- vinnuvegur iandsmanna orðið fyrir slíkum áföllum, að hún verður nokkur ár að komast I samt lag aftur. Burton leikur Churchill Richard Burton hefur undan- farið leikið I sjónvarpsmynd um ævi Sir Winstons Churchill, fyrr- um forsætisráðherra Breta. Hér sést Burton i gervi Churchills og var myndin tekin á blaða- mannafundi nýlega, þar sem myndin var kynnt. Þess verður minnzt 29. nóvember n.k. að hundrað ár eru liðin frá fæðingu Churchills og af þvi tilefni verður sjón- varpsmyndin um hann m.a. sýnd um öll Bandarlkin af NBC-sjónvarpsstöðinni. Það skal tekið fram, að á blaðamannafundinum lét Richard Burton þess getið, að hann væri enn ástfanginn af Elizabetu Taylor og væri ást þeirra gagnkvæm. Hins vegar hefði skilnaður þeirra I júnl s.l. bundið endi á samveru þeirra og þráðurinn yrði ekki aftur tekinn upp, þar sem frá var horfið. NIXON UM BAKDYR TEPPI Bandarik ja maðurinn Bill Mattingly var orðinn þreyttur á að þvo og bóna bifreið sina. Hann greip til þess ráös til aö létta af sér leiöindunum að klæöa bflinn teppi að utan. A þakinu er þaö röndótt en annars staðar dökkgrænt. Nú þarf Mattingly ekki annað en grlpa til teppahreinsarans, þegar hann dustar rykið af bilnum sln- um. Richard Nixon, fyrrum Bandarikjaforseti, fór inn um bakdyrnar á sjúkrahúsinu, þar sem hann liggur nú til lækninga við blóðtappa. Myndin er tekin af Nixon og Julie, dóttur hans, þegar þau gengu inn i sjúkra- húsið á mánudag. Þótt Nixon færi þessa leið til að forðast ágengni blaðamanna, komst hann ekki hjá þvl að vera ljós- myndaður. Læknar Nixons skýrðu frá þvi I gær, að blóðþynningarlyfin hefðu góð áhrif á hann. Læknar vöruöu blaðamenn við þvi að halda uppi „óstaðfestum sögu- sögnum” um heilsu forsetans fyrrverandi. Um loftin blá Það tók svissneska ofurhugann Roger Egle 26 mlnútur að svifa ofan af 3244 m háum fjallstindi niður á 1224 m háa hásléttu I farartæki þvl, sem sést á þessari mynd. Atburð- urinn gerðist fyrr I vikunni skammt frá bænum Cortina I itölsku öIpunum.Farartækið vegur 18 kiló og hér svlfur Egle I þvl yfir Cortina. BÍLL KLÆDDUR

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.