Vísir - 28.09.1974, Page 16
16 _______________ Vfsir. Laugardagur 28. september 1974.
n □AG | Q KVOLD | | í DAG | Q KVÖLD | n PAG-1
Sjónvarp í
kvöld kl. 22.00:
BREZK MYND
UM ÞÝZKA STÚLKU
OG BANDARÍSKAN
LIÐÞJÁLFA...
Hér sjást þeir i hlutverkum
sinum i „Berlinargulli” þeir
Richard Widmark og Niegel
Patrick, en i aðalkvenhlut-
verkinu er Mai Zetterling. Leik-
ur hún þýzka stúlku, sem tekið
hefur að sér hóp munaðarlausra
barna. Hún vill komast með
hópinn til Suður-Ameriku, eða
á við stóran vanda að etja: þetta
er á striðsárunum og ferðalög
býsna erfið. En þá kemur
bandariskur liðþjálfi til skjal-
anna (Richard Widmark), og
býðst hann til að reyna að
hjálpa henni að útvega það fé,
sem til þarf. bessi biómynd er
brezk og er orðin nær tuttugu
ára gömul.
Launadeild
fjármálaráðuneytisins
óskar að ráða starfsfólk til starfa við
launaafgreiðslu og undirbúning skýrslu-
vélavinnslu. Laun samkvæmt kjara-
samningum fjármálaráðherra, B.S.R.B.
og félags starfsmanna stjómarráðsins.
Launaflokkur ræðst af menntun og fyrri
störfum starfsmannsins.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf
sendist ráðuneytinu fyrir 5. október n.k.
LAUNADEILD
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTISINS
1
W y-' iMMfc
mrn
NÚTÍAAA
VERKSTJÓRN
KREFST NÚTÍMA
FRÆÐSLU
Þetta vita þeir 800 verkstjórar, sem sótt hafa verkstjórnarnámskeið á undanförnum árum.
Á almennum 4ra vikna námskeiðum er lögð áhersla á þessar greinar:
O Nútima verkstjórn, vinnusálarfræði o Öryggi, eldvarnir, heilsufræði o Atvinnulöggjöf, rekstrarhagfræði o Vinnurannsóknir, skipulagstækni
A framhaldsnámskeiðum gefst fyrri þátttakendum tækifæri á upprifjun og skiptum á reynslu.
KENNSLUSKRÁ VETRARINS:
1974 46. námskeið. fyrri hluti 14. til 26. október. 47. námskeið, fyrri hluti 18. til 30. nóvember. Framhaldsnámskeið 9.. 10. og 11. desember.
1975 46. námskeið siðari hluti 6. til 18. janúar 48. námskeið fyrri hluti 20. til 31. janúar 47. námskeið siðari hluti 17. til 28. febrúar Framhaldsnámskeið 13., 14. og 15. marz. 48. námskeið siðari hluti 7. til 19. apríl.
Innritun og upplýsingar I sima 81533 hjá Verkstjórnarfræðslunni Iðnþróunarstofnun Islands, Skipholti 37.
Sjónvarpið
kl. 20.25:
Það verður bandariski pianó-
leikarinn og furðufuglinn Liber-
ace sem skemmtir okkur og
segir frá ævi sinni eftir fréttir i
kvöld.
Liberace hefur komið viða
við, en þó mest á skemmtana-
brautinni, siðan hann fæddist i
West Allis i Wisconsin riki i
SJÚNVARP •
Laugardagur
28. september
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Liberace og heimur
hans. Bandariskur
skemmtiþáttur, þar sem
Italsk-bandariski pianó-
leikarinn og furðufuglinn
Liberace leikur listir sinar
og segir frá ævi sinni.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
21.15 írak. Frönsk
fræðslumynd um
stjórnmála- og efnahagslif i
landinu. Þýðandi Ragna
Ragnars.
22.00 Berlinargull (A Prize of
Gold) Bresk- bandarisk
biómynd frá árinu 1955,
byggð á skáldsögu eftir Max
Catto. Leikstjóri Mark
Robson. Aðalhlutverk
Richard Widmark, Mai
Zetterling og Nigel Patrick.
Þýðandi Óskar Ingimars-
son. Myndin gerist i Þýska-
landi á striösárunum.
Bandariskur liðþjálfi
kynnist þýskri stúlku, sem
tekið hefur að sér hóp af
munaðarlausum börnum.
23.35 Dagskrárlok
Furðufugl og
skemmtikroftur
Bandarikjunum, þann 16. mai
árið 1919.
Hann byrjaði feril sinn sem
einleikari með sinfóniuhljóm-
sveit Chicago og siðan sem
skemmtikraftur á árunum 1940
til 1945. Hann kom fyrst fram I
sjónvarpi á frumbernskudögum
Sunnudagur
29. september
18.00 Fflahirðirinn. Bresk
framhaldsmynd fyrir börn
og unglinga. 2. þáttur.
Fiskikötturinn Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir. 1
fyrsta þættinum greindi frá
drengnum Toomai og heim-
kynnum hans I þjóðgarði i
frumskógum Ceylon. Too-
mai er foreldralaus, en
hann á sér þá ósk heitasta
að verða fflahirðir, eins og
faðir hans áður var. Þegar
nýr umsjónamaður kemur
til þjóðgarösins, óttast Too-
mai, að honum verði visað
þaðan. En heppnin er hon-
um hliðholl. Honum er falin
umsjá fflsins Kala Nag.
18.25 Sögur af Tuktu Kana-
diskur fræðslumyndaflokk-
ur fyrir börn. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir. Þulur
Ingi Karl Jóhannesson.
18.40 Steinaldartáningarnir
Bandariskur teiknimynda-
flokkur. Þýðandi Guðrún
Jörundsdóttir.
19.00 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.30 Bræðurnir Bresk fram-
haldsmynd. 12. þáttur.
þess I Los Angeles 1952.
Frá þeim tima hefur hann
gert garðinn frægan á ýmsum
sviðum skemmtanabrautarinn-
ar, leikið I kvikmyndum, verið
með fasta sjónvarpsþætti og
haldið tónleika i ýmsum fræg-
ustu hljómleikasölum Banda-
rikjanna og viðar.
Kvenkostir Þýðandi Jón O.
Edwald. Efni 11. þáttar:
Mary Hammond beitir
kænsku sinni og bragðvisi til
hins ýtrasta, til að koma
David og Jill i hjónaband.
Og það tekst henni að lok-
um, að höfðu samráði við
Jill sjálfa. Carter vill losna
við Edward úr stöðu stjórn-
arformanns og aðalfram-
kvæmdastjóra. Hann notar
tækifærið, þegar Edward
fer til meginlandsins að
leita Parkers, og kallar
saman stjórnarfund. En
áður en hann hefur lagt til-
lögur sinar fyrir fundinn
birtist Edward og vill fá að
vita hvað sé á seyði.
21.25 Sunnan um höfin Dans-
flokkur frá Suðurhafseyjum
sýnir þjóðdansa og kynnir
þjóðlega tónlist i sjónvarps-
sal. Þýðandi Jón O. Edwald.
Aður á dagskrá 26. desem-
ber 1972.
22.00 Aspen Mynd um bæinn
Aspen i Kólóradó i Banda-
rikjunum, en þar hefur á
undanförnum árum þróast
eins konar listamannaný-
lenda. Þýðandi og þulur
Stefán Jökulsson.
22.30 Að kvöldi dags. Séra
Björn Jónsson flytur hug-
vekju.
22.40 Dagskrárlok.