Tíminn - 30.04.1966, Page 7

Tíminn - 30.04.1966, Page 7
LATJGAK»AGUR 30. apríl 1966 TfMINN 7 Ekkert af meginskilyrðunum er uppfyllt í álsamningnum ÁlbrÆcðslusamningurinn var til 2. umræðu í efri deild síðdegis í gær. Sveinn Guðmundsson mælti fyrir áltti meirililutans, sem stað- festa vill samninginn óbreyttan. Helgi Bergs mælti fyrir nefndar- áliti 1. minnihluta álbræðslunefnd ar. Fer bér á eftir meginefnið úr nefndaráliti þeirra Helga og ÓI- afs: Verðlags- og efnabagsmálin eru megmvandamál þjóðarinnar um 'þassar mundir. Dýrtiðarhjólið er á fleygiferð. Ríkisstjómin hefur brugðizt þeirri frumskyldu sinni að ná tökum á þessum vanda- málum. Stórfelld erlend fjárfest- ing á því svæði landsins, þar sem þennslan í verðlaginu á rót sína, ofan á ailt annað, nauðsynlegt og ónauðsynlegt, sem verið er að framkvæma, mundi að okkar dómi thafa slíkar óheillaafleiðingar fyrir efnahagslífið í landinu, að seint yrði bætt. Samningurinn er óhagstæður. Raforkuverðið er mjög lágt. Raf- orkuverðið er sagt miðað við það, að bræðslan skili í raforkuverði rúmlega sínum hluta af virkjunar- kostnaði ódýrustu virkjunar, sem möguleg er á íslandi, en bræðsl- an á að fá tvo þriðju hluta af orkunni frá þeirri virkjun. Mjög er þó undir hælinn lagt, hvort þær áætlanir standast, og líkleg- ast, að þær geri það ekki. En sjálf um er okfcur ætlað að standa undir dýrari virkjunum, sem nauðsyn- legar verða á samningstímabilinu, m.a. vegna álbræðslunnar. Samningurinn geymir ákvæði um lögsögu og gerðardóm, sem eru með öllu óviðunandi. Það er ekki nóg með, að svissneska fyrir- tækið geti einhliða skotið deilu- málum sínum við íslenzka ríkið til útlends gerðardóms. Slíks munu e.t.v. einhver dæmi, að um- komulitlar þjóðir hafi orðið að sætta sig við það. Hitt mun al- f irt einsdæmi, a.m.k. í ríkjum, sem búa við svipað réttarástand og hér er, að hið íslenzka verksmiðjufyr- irtæki getur einnig stefnt ísJenzka ríkinu, Landsvirkjun o. fl. opin- berum íslenzkum aðilum fyrir er- lendan gerðardóm. Sagt er, að sá erlendi dómstóll eigi að dæma eft- ir íslenzkum lögum auk alþjóð- Kísilgúrfrumvarpið afgreitt til 3. umræðu í efri deiid stjórn framleiðslunnar með hönd um eftir því sem frekast er kostur. Helgi sagði, að afstaða sín færi eftir því að fullnægjandi yfirlýs- ingar varðandi þessi atriði fengj- ust frá ráðlierra. Jóhann Hafstein, iðnaðarmála- ráðherra, sagði að talað hefði ver- ið um að' samningurinn yrði til 20 ára. Sjálfsagt væri, að íslenzk- ir tæknimenn, störfuðu við fram- leiðsluna eftir því sem kostur væri á. Erlenda félagið myndi lúta ís- lenzkum lögum á sama hátt og Álbræðslan í Straumsvík. Þegar A1 þingi hefði staðfest alþjóðasamn- ing Alþjóðabankans um lausn fjár festingardeilna væru það íslenzk lög að vísa málum til hins alþjóð- lega gerðardóms. Helgi Bergs sagðist vilja fá skýlausa yfiríýsingu um það, að engin frekari ákvæði um erlend- an gerðardóm yrðu í samningn- um umfram það, sem íslenzk lög heimila á hverjum tíma. Magnús Jónsson fjármálaráð- herra, formaður Kísiliðjunnar, sagði að líklegt væri að samkomu- lag yrði um það, að deiluraálum megi skjóta til gerðardóms, sem verði þannig skipaður að hvor að- ili um sig skipar einn mann en Hæstiréttur fslands oddamann verði aðiljar ekki sammála um skipun hans. Ólafur Jóhannesson sagðist óska eftir ótvíræðari yfirlýsingu um að hið erlenda félag skuli í einu og öllu lúta lögsögu íslenzkra dóm- stóla og dómsvalds og ekki komi til mála að semja um annað. Jóhann Hafstein sagðist engar frekari yfirlýsingar myndi gefa í málinu. Helgi Bergs sagði, að fyrirvör- um þeim, sem hann hefði á um fylgi við frumvarpið, hefði ekki verið fullnægt og því legði hann fram rödstudda dagskrá um að frumvarpinu yrði vísað frá. Til- laga hans til rökstuddrar dagskrár kvað efnislega á um að þar sem deildin teldi rétt að leggja samn- ing sem slíkan fyrir Alþingi eldi hún óæskilegt að veita jafn nð- tækar heimildir og frumvarpið kvæði á um og tæki því fyrir næsta mál á dagskrá. Karl Kristjánsson sagðist and- vígur dagskrártillögunni og sagð- ist vita, að erlenda félagið hefði nú fallið frá kröfu um erlendan gerðardóm. Myndi hann því greiða frumvarpinu atkvæði. Dagskrártillaga Helga Bergs var felld með 10 atkvæðum gegn 8. Fyrsta grein frumvarpsins var samþykkt að viðhöfðu nafnakalli með 11 atkvæðum gegn 8. Allir stjórnarandstæðingar nema Karl Kristjánsson greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. laga. Ýmsir munu að óreyndu kvíða því, að þekking erlendra manna á íslenzkum lögum kunni að reynast takmörkuð. Auk þess hafa ákvæði úr stjórn- arskrá íslands verið tekin inn í samninginn, og gæti það augsýni- lega síðar gefið einhverjum til- efni til að halda því fram, að út- lendi gerðardótmurinn eigi að skera úr því, hvenær þau eigi við eða þeim sé fullnægt. Við undirritaðir og flokkar okk- ar höfum jafnan talið, að samvinna við erlent fjármagn til uppbygg- ingar nýrra orkufrekra iðngreina í landinu komi mjög til greina, en aðeins við þau skilyrði og með þeim skilmálum, sem eru í sam- ræmi við íslenzka þjóðarhagsmuni. Þau skilyrði höfum við í megin- atriðum skilgreint þannig: Erlend stóriðja er í sjálfu sér engfn lausn á atvinnuvandamál um okkar og kemur aðeins til greina sem liður í skipulegri framkvæmd heildaráætlunar í framkvæmda- og efnahagsmál- um. FRAMKVÆMDAÁÆTLUN Framhald af bls. 16. skólabygginga, að meðtöldum íþróttahúsuim og sundlaugum 182 millj. kr„ ílþróttavalla 14 millj., ikr., dagheimila, leikvalla og leik sbóla 36 millj. kr. heilsuverndar- stöðvar 15 millj. kr. Heilsuvernd arstöðin er jafnframt skrifstofu- bygging bæjarins. Enntreanur er gert ráð fyrir að bærinn leggi fyrirtækjum sínum til allmiláð fé, eða samtals 30 milljónir króna til fjarhitunar, vatnsveitu og hafn arsjóðs. Auk þess er gert ráð fyrir stórum lántökum fyrir þessi fyrir tæki úr ríkissjóði. Allar þessar tölur hljóta að breytast vegna verðbólguþróunar en með endur skoðun á noklkurra ára fresti á rammi áætlunarinnar að standast. FLUGMALASTJÓRI Framhald af bls. 16. því mótmælt, að óeðlilegur drátt ur á byrjun leitarstarfsins bafi orðið vegna þess að ekki var haft beint samband við aðalstöðvar SVFÍ í Reykjavík. Þá segir, að eðlilegast sé að nota fjarskiptasamband flugstjórn armiðstöðvarinnar, sem hefur beint símasamband á sérstökum línum til ýmissa staða úti á landi. „Tilmæli frá Slysavarnafélaginu þess efnis, að einungis beri að hringja í tiltekna sáma aðalstöðva SVFÍ, voru ekki fyrir hendi, enda hefur sorgleg reynsla áður fengizt af því símasambandi“. Þá ræðir flugmálastjóri um stofnun og tilgang Flugbjörgunar- sveitarinnar, og segir, að í nóv- ember 1961 hafi hún efnt til fund ar með SVFÍ um hugsanlega hlut verkaskiptingu þessara aðila, en forseti SVFÍ hafi vísað þessum til lögum algjörlega á bug, nema um yrði að ræða innlimun Flugbjörg unarsveitarinnar í Slysavamafé- lagið, og sveitin lyti stjórn þess að öllu leyti. ,,Er hægt að kalla þetta samstarfsvilja?“ spyr flug- málastjóri. í niðurlagi segir flugmálastjóri orðrétt: „Ég hlýt að harma, að mál þessi hafa verið gerð opinber á þennan óvenjulega hátt og tel það miður farið. Hins vegar væri óviturlegt að halda uppi karpi um hin ýmsu málsatriði, meðan opinber rann- sókn hefur ekki farið fram. Að henni lokinni verður óhjákvæmi- legt að koma aftur að þessu máli svo og öðrum málum, er snerta samskipti Slysavamafélags ís- lands, Flugbjörgunarsveitar og Flugmálastj órnarinnar”. NYJAR KVIKMYNDIRIREYKJA VIK J Frumvarp ríkisstjórnarinnar um breyting á lögum um Kísilverk- smiðjuna við Mývatn var til 2. umr. í efri deild í gær. Meirihluti fjárhagsnefndar deildarinnar mælti með samþykkt frumvarps- ins, Helgi Bergs skrifaði þó und- ir nefndarálitið með fyrirvara, en Hjalti Haraldsson undirritaði það ekki og lýsti sig andvígan frum- varpinu í umræðunum. Karl Kristjánsson mælti fyrir áliti meirihlutans og gerði grein fyrir efni frumvarpsins. Skýrði hann frá því, að hollenska félag- ið AIME, sem höfð hafði verið samvinna við í upphafi málsins, hefði ekki haft fjárhagslegt bol- magn og ekki getað tryggt sölu kísilgúrsins og hefði dregið sig til baka. Stjórn Kísiliðjunnar hefði þá tekið upp viðræður við banda- ríska fyrirtækið Johns-Manville, sem hefði góðan markað fyrir kís- ilgúr og hefði Johns-Manville nú ákveðið að taka þátt í fyrirtæk- inu, ef um semst við félagið, en samkomulag hefur þegar komizt á í aðalatriðum. Lagt hafi verið í mikinn kostnað til að sannprófa hráefni og vinnsluaðstöðu og yrði framkvæmdum haldið áfram og hefði Johns-Manville lánað 30 milljónir króna til verksins. Hið erlenda félag skal eiga minnst 39% í framleiðslufélaginu, en eigi eitt sölufélagið, sem selur kísil- gúrinn. Sölufélagið mun eiga heim ili á Húsavík og mun einn íslend- ingur eiga sæti f stjórn þess. Það mun greiða 45% skatta að frá- dregnum kostnaði sínum erlendis. Helgi Bergs sagðist hafa þann fyrirvara á afstöðu sinni til frum- varpsins, að fram fengiust ský- lausar yfirlýsingar frá ráðherra, hvernig nota ætti þær heimildir, sem frumvarpið veitti, ef að lög- um yrði, og yrði þá eftirfarandi skilyrðum að vera fullnægt: 1. Heimildirnar yrðu ekki notað- ar til að gera samning sem kvæði á um að hið erlenda félag lyti ekki að öllu leyti og í einu og öllu íslenzkri löggjöf og lögsögu íslenzkra dómstóla. 2. Samningurinn yrði ekki gerð- ur til meira en 20—30 ára. 3. íslenzkir tæknimenn hafi LAUGARÁSBÍÓ sýnir kvikmynd- ina Augu án ásjónu nú um helgina. Mynd þessi er frönsk, en aðalhlutverk leika Pierre Brasseur og Alida Valli. Leik- stjóri er Georges Franju. Myndin er um óhugnanlegt fyr irbæri. Skipt er um andlit á stúlkum og fylgja því ýmsar af- leiðingar. Þetta er hrollvekja ein af þeim, sem stundum eru auglýstar fyrir taugasterkt fólk. NÝJA BÍÓ sýnir kvikmyndina Maðurinn með járngrímuna. Þetta er frönsk hetju- og ævin- týramynd og gerist á tímum Lúðvíks fjórtánda. Jafnvel hetj an d'Artagnan kemur við sögu. Sá með járngrímuna er tví- burabróðir Lúðvíks konungs og er hann sóttur á vettvang, þeg ar búðvík veikist. Aðalhlut- verk leíka Jean Maráis og Sylv ana Koscina. Leikstjóri er Heari Decoin. HÁSKÓLABÍÓ sýnir myndina Opnar dyr með Robert Taylor og Shelley Winters í aðalhlut- verkum. Mynd þessi er um fínt vændi og hlutafélagið Morð h. f. Myndin er byggð á frægri bók, eins konar sjálfs- ævisögu, og leikur Shelley Winters höfuðpersónuna og höfundinn Þarna koma við sögu frægir glæponar eins og Lucky Luciano, leikinn af Ces- ar Romero og Broderic Craw Nú liggur engin slík áætlun fyrir, og ríkisstjórnin er stefnu laus í atvinnu- og efnahagsmál um. 2. Slíkur rekstraraðili lúti íslenzk- um lögum — þá auðvitað um leið íslenzkri lögsögu. Nú eigum við hins vegar að fá útlendan gerðardóm yfir ís- lenzkt ríkisvald. 3. Raforkuverðið sé liagstætt og standi að sínu leyti undir ódýr- ustu virkjun, sem möguleg er á íslandi — ef það þá stenzt. z. Slíkum iðhaði sé valinn staður í samræmi við þjóðarhagsmuni og viðleitni okkar til stópulegr- ar byggðar í landinu. Nú á að byggja verksmiðj- una þar, sem þörf okkar fslend- inga sjálfra er mest fyrir vmnu- afl og raforku. Ljóst er af þessu, að ekkert af meginskilyrðum okkar er uppfyllt við þessa samningagerð. Við leggj um því til, að samningurinn verði ekki staðfestur og frv. fellt. Við teljum samninginn í sjálfu sér slæman og ýmis ákvæði hans hættaleg fordæmi í framtiðinni. ford kemur einnig fram í mynd inni. Þetta er sem sagt sann- söguleg bófamynd. STJÖRNUBÍÓ sýnir myndina Sunnudagar með Cybéle. Hér er um franska verðlaunamynd að ræða frá Columbia. Þessi mynd hefst í stríði Frakka í Indókína. Hún er um flugmann og hjúkrunarkonu. Mynd þessi er sérikennileg og hrifandi. Aðal hlutverk leiba Hardy Kruger og Nicole CourceL

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.