Vísir - 18.11.1974, Blaðsíða 9

Vísir - 18.11.1974, Blaðsíða 9
Vlsir. Mánudagur 18. nóvember 1974. 9 KRISTINN SENDI VALS- MENN ÚT í KULDANN! Siðasta helgi var mikil og glæsileg fvrir 1. deildarliö iR I körfuboltanum. Liðiö, sem margir höfðu spáð að yrði ekki með I baráttunni um islands- meistaratitilinn I ár, lagði þá að velli tvo sterka andstæöinga og tók forustu I deildinni með 6 stig að loknum 3 leikjum. lR-ingarnir léku tvo leiki um þessa helgi eins og KR-ingarnir, en útkoma KR var ekki eins góð —■ aðeins tvö stig út úr báðum leikjunum, sem ekki þykir góð uppskera i þeim herbúðum. KR-ingarnir léku á laugar- daginn við HSK og voru I hálf- gerðum erfiðleikum til að byrja með. Austanmenn höfðu forustu I upphafi og voru komnir upp I 23:15, þegar Kolbeinn Pálsson fór að ylja þeim undir uggum. Hann skoraði 15 stig i röð og kom KR þar með yfir, og varð engin breyting á þv! það sem eftir var ieiksins. Hann skoraði I allt 40 stig i leiknum, sem lauk með 30 stiga sigri KR — 107:77 — er þetta þriðji leikurinn í 1. deildinni, i ár, þar sem annað liðið fer yfir 100 stig. Hinn leikurinn á laugardag var á milli 1R og UMFN. í þeim leik áttu Njarðvikingarnir aldrei glætu, þrátt fyrir dyggan stuðning á annað hundrað fylgismanna, sem komu með liðinu að sunnan. IR-ingarnir réðu lögum og lofum á vellinum — Njarðvik- ingarnir á áhorfendapöllunum — og sigruðu i leiknum 94:77. Þeir höföu 30 stig yfir rétt fyrir leikslok, 89:59, en á lokasprett- inum skoruðu Njarðvikingarnir 18 stig á móti 5 stigum IR-inga. 1 gærkveldi léku IR-ingarnir aftur og sigruðu þá Val með 10 stiga mun 95:85. 1 fyrri hálfleik skiptust liöin á um að hafa yfir — ÍR-ingarnir þó öllu oftar og áttu átta stig 1 pokahorninu i hálfleiknum — 49:41. Valsmenn komust yfir i siðari hálfleik 61:60 og hófst þá ofsa- lega spennandi keppni. .Er 4 minútur voru eftir var staðan 82:82, en þá skoruðu ÍR-ingarnir 7 stig I röð og tryggðu sér meö þvi sigurinn i leiknum — 95:85. Kristinn Jörundsson var i ofsalegum ham i þessum leik skoraði hvorki meira né minna en 48 stig, sem er frábært afrek — Metið i einum leik á Þórir Magnússon Val, 56 stig. Leikur KR og 1S var ekki siður spennandi og skemmti- legur en leikur ÍR og Vals. Stúdentarnir, sem höfðu sigrað KR i tveim siðustu leikjum — Islandsmótinu á s.l. vetri og Reykjavikurmótinu i haust — héldu uppteknum hætti og sigruðu nú með 5 stiga mun 90:85. Þeir höfðu forustu i hálfleik 44:37. Er 10 minútur voru búnar af siðari hálfleiknum tókst KR- ingunum loks að jafna 65:65, en stúdentarnir náðu aftur forust- unni og héldu henni út allan leikinn. Næst komust Islands- meistarar KR i 80:82, er 4 minútur voru eftir af leiknum, en héldu ekki höfði úr þvi — skutu i tima og ótima úr vafa- sömum færum — og rann sigur- möguleiki þeirra þeim þar með úr greipum. Næstu leikir i deildinni verða á laugardaginn. Þá leika HSK- UMFN og ÍS-Armann. A sunnu- dagskvöldið veröur svo enn einn stórleikurinn, en þá mætast 1R og Armann. Allir leikirnir fara fram á Nesinu. —klp SKORAÐI 48 STIG FYRIR ÍR-KR FÉKKSKELL HJÁ STÚDENTUM í 3JA SINN í ÁR Fjör hjá konunum (í handboltanum) Þrjú lið hafa möguleika í Reykjavíkurmótinu Framstúlkurnar mörðu eins marks sigur gegn Víking I meistaraflokki kvenna i Reykja- vikurmótinu i handknattleik á laugardaginn, og standa þær þar með jafnar að vigi og Vals og Armannsstúlkurnar um barátt- unni um efsta sætið i mótinu Framstúlkurnar sigruðu 9:8 og eru þar með búnar að ná sér I 6 stig úr 4leikjum, eða sama stiga- fjölda og Valur og Armann eftir jafnmarga leiki. í hinum leiknum sigraði KR ÍR 12:6, en leikur Armanns og Þróttar féll niður, þar sem Þróttarstúlkurnar eru hættar i keppninni. Þær léku tvo fyrstu leikina og hættu svo. A föstudaginn kemur fara fram siðustu leikirnir og verða þá úr- slitin liklega ráðin. Ármann leikur við KR, og Valur leikur viö Fram og Vikingur við ÍR. Ef Ármann sigrar KR leikur Ármann aukaleik við sigur- vegarann i hinum leiknum, en sigrar I mótinu ef sá leikur endar með jafntefli. Ef Armann tapar aftur á móti fyrir KR verður leik- ur Vals og Fram hreinn úrslita- leikur — nema að jafntefli verði, þá þarf annan leik á milli þeirra. Staðan i meistaraflokki kvenna i Reykjavikurmótinu er nú þannig: (Leikir Þróttar eru ekki taldir með) Fram Valur Ármann KR Vikingur ÍR 3 0 1 40:19 3 0 1 40:21 3 0 1 35:22 202 27:30 2 27:32 4 17:62 0 —klp— 2 0 0 0 Staðan og efstu lið Staðan i 1. deild tslandsmótsins I körfuknattleik eftir leikina um helgina: KR-HSK 107:77 ÍR-UMFN 94:77 ÍS-KR 90:85 tR-Valur 95:85 ÍR 3 3 0 255:223 6 KR 4 3 1 384:320 6 ts 3 2 1 229:219 4 Valur 4 2 2 257:234 4 Armann 2 1 1 169:163 2 UMFN 3 1 2 224:241 2 Snæfell 4 1 3 247:298 2 HSK 3 0 3 195:252 0 Stigahæstu menn: Kolbeinn Pálsson KR 98 Stefán Bjarkason, UMFN 79 Axel og Kristbjörg — standa sig vel. Ljósmynd BB. Efst á báðum stöðum Axel og Kristbjörg gera það gott í Þýzkalandi t öllum fréttum af velgengni Axels Axelssonar I vestur-þýzka handboltanum, hefur alveg farið fram hjá mönnum velgengni konu hans i þýzku deildarkeppninni i handknattleik kvenna. Er lið hennar, Eintracht Minde nú I efsta sæti I norður deildinni og lið Axels I efsta sæti i karlakeppn- inni. Kona Axels heitir Kristbjörg Magnúsdóttir, og lék hún með KR áður en þau hjónin héldu utan i sumar. „Við erum búnar að leika sjö leiki i deildinni og erum I efsta sæti,” sagði Kristbjörg, er við töluðum við hana I gærkveldi, en hún kom heim með Axel, sem leikur báða landsleikina við Aust- ur-Þýzkaland. „Þetta hefur gengið ljómandi vel hjá okkur, enda er þetta mjög gott lið,” — Hvernig kanntu við þig þarna i Þýzkalandi? „Alveg ljómandi vel, enda er allt fyrir okkur gert. Viö höfum góða ibúð og það er alveg dásam- legtað vera þarna. Það eina, sem mér finnst aö, er að ég hef ekki fengið neina vinnu. Atvinnuleysið er mikið i Þýzkalandi og mjög er- fitt að fá atvinnuleyfi fyrir út- lendinga”. Axel tók undir orð konu sinn- ar.... „þetta er ofsalega gott að vera þarna, og við höfum það eins fint og mögulegt er. Ég er að vinna á skrifstofu I stórri verk- smiöju og hef nægan tima til að æfa og keppa með vinnunni. tslenzku keppendurnir á Norðurlandamótinu i badminton, sem haldið var I Osló I Noregi um helgina, voru allir slegnir út i fyrstu umferö nema Friöleifur Stefánsson Hann komst I aöra umferð, en þvi miöur höfum viö ekki fengiö fregnir af þvi hvernig honum vegnaöi þar. Mótherji hans i Við æfum þrisvar i viku, tvo tima i einu, og svo eru leikir þar fyrir utan. Æfingarnar eru mjög strangar og erfiðar og leikirnir eru ekki siðri. Við eigum að leika um næstu helgi og helgina þar a eftir eigum við að mæta Gummersbach — fyrir hádegi á sunnudag.” —klp— fyrstu umferö var norskur. Þeir Haraldur Korneliusson, Steinar Petersen og óskar Guö- mundsson voru allir slegnir út I 1. umferð, og I tvileikaleiknum, þar sem Haraldur/Steinar og óskar/Friöleifur léku santan, voru þeir einnig slegnir út i fyrstu umferö —klp— Friðleifur komst í aðra umferð Hinir slegnir út í fyrstu umferð í einliða og tvíliðaleik ÍR missti tvo menn um helgina! Þrátt fyrir að IR-ingar hafi átt góða helgi — sigraö bæöi UMFN og Val i 1. deildinni i körfu- knattleik á laugardaginn og sunnudaginn, urðu þeir fyrir miklu áfalii um helgina. Tveir af leikmönnum liðsins slösuðust illa, þar af annar þeirra þaö mikið, að hann verður frá i margar vikur, ef hann þá getur nokkuð leikið með liðinu, það sem eftir er vetrarins. Það er Kolbeinn Kristinsson, sem verið hefur einn bezti maður liðsins undanfarin ár og fastur maður i landsliðinu. Hann meiddist illa I leiknum við UMFN, og var samstundis fluttur á sjúkrahús, þar sem gerður var á honum uppskurður i gær. Hann kom illa niður undir körfunni og sleit öll liðbönd I öðrum fætinum — við ökkla — auk þess sem hann meiddist eitthvað meira. A æfingu á föstudagskvöldið meiddist Sigurjón ólafsson einnig á fæti — þó ekki eins mikið — og verður hann eitthvað frá af þeim sökum — -klp Drógu kœruna til baka Armenningar hafa dregið kær- una á leik Armanns og Vals i 1. deild Islandsmótins i körfubolta til baka. Var það gert nú um helg- ina, en þá var hún komin i hendur dómstóls KKÍ. Armenningarnir kærðu á þeim forsendum, að annar dómari leiksins hafi ekki haft réttindi til að dæma, og einnig að þeir hafi ekki verið látnir vita af þvi, að hann ætti að dæma leikinn. Fyrra atriðið var algjör fjar- stæða og það siðara aðeins til að hlæja að. Flestir leikmennirnir voru algjörlega á móti þessari kæru, — enda hún einstök i sinni röð og sýnir allt annað en skemmtilegan iþróttaanda hjá þessu annars vinsæla og skemmtilega liði. —klp—

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.