Vísir - 20.11.1974, Side 6
6
VÍSIR
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjóri
Fréttastjóri
Ritstjórnarfulltrúi
Auglýsingastjóri
Auglýsingar
Afgreiösla
Ritstjórn
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Birgir Pétursson
Haukur Helgason
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Hverfisgötu 44. Simi 86611
Sföumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands.
t lausasölu 35 kr. eintakiö. Blaöaprent hf.
Hvað um konung?
Grikkir urðu fyrstir til að skapa lýðræði i
mannkynssögunni. Gleðilegt er, að sjö ára ein-
ræði er nú lokið og kjósendur völdu beztu leiðina
til að tryggja lýðræðið i kosningunum á sunnu-
daginn.
Næst ættu Grikkir að losa sig við konungdæmið.
Það tækifæri gefst eftir þrjár vikur.
í þingkosningunum sýndu griskir kjósendur, að
þeir vildu ekki taka áhættu. Þeir kusu þann
manninn, Konstantin Karamanlis, sem bezt hafði
verið reyndur af stjórnmálamönnum sem leiðtogi
á undan einræðistimanum.
Þeir höfnuðu kommúnistum gjörsamlega.
Kjósendur veittu hægri flokki Karamanlis
meira en 54 prósent atkvæða og 213 þingsæti af
300. Verði griskt lýðræði tryggt i framtiðinni, þá
var þetta öruggasta leiðin.
Miðflokkurinn var næststærstur, og lýðræðis-
sósialistar fengu fleiri atkvæði en kommúnistar.
Úrslitin eru þvi athyglisverðari, sem óttazt
var, að fylgi kommúnista hefði vaxið. Flokkur
þeirra er samsteypa ýmissa allólikra hópa. Engu
að siður fékk hann aðeins rúm 9 prósent
atkvæðanna og 10 þingsæti.
Það er ekki ýkja langt siðan minnstu munaði, að
kommúnistar tækju völd i Grikklandi með bylt-
ingu. Eftir að siðustu leifar þýzka hersins voru
teknar úr landinu árið 1944, varð misklið milli
skæruliða kommúnista og konungssinna.
Borgarastyrjöld brauzt út. Með mikilli aðstoð
Bandarikjanna voru kommúnistar loks sigraðir
árið 1950.
Karamanlis tók þann kostinn að leyfa starf-
semi kommúnista, þegar hann myndaði bráða-
birgðastjórn við fall herforingjastjórnarinnar i
sumar. Þetta var á allan veg hagstæðast. Komizt
var hjá þvi að hluti einræðisins héldist áfram,
og með þvi að færa starfsemi kommúnista upp á
yfirborðið fæst bezta tryggingin fyrir lýðræðið.
Kommúnistar reyndu að gera sér mat úr þvi,
að mörgum Grikkjum þótti sem Atlantshafs-
bandalagið hefði fremur stutt innrás Tyrkja á
Kýpur.
Engu að siður var Karamanlis valinn, en hann
er dyggur stuðningsmaður vestrænnar sam-
vinnu.
Karamanlis hefur forðazt að segja hug sinn
um, hvort endurreisa skuli konungdæmið.
Konstantin konungur flýði til Rómar i desember
1967, nokkrum mánuðum eftir valdatöku her-
foringja. Hann hafði stutt byltingartilraun, sem
var kæfð i fæðingu.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um konung verður
hinn 8. desember.
Fremur er búizt við, að konungdæmi verði
afnumið og Karamanlis kunni að verða forseti i
nýstofnuðu lýðveldi.
Konstantin konungur hefur glatað sambandi
við grisku þjóðina.
Hann er að visu ungur að árum og talinn fylgj-
andi lýðræði i reynd.
En Grikkir ættu að stiga Skrefið til fulls. Þeir
hafa ekkert að gera við konung.
—HH
Vlsir. Miövikudagur 20. nóvember 1974,
Sáning I fullum gangi á ökrum austan tjalds, en sllkum þungavinnuvélum veröur ekki komiö viö, þegar
jarövegurinn er of gljúpur eftir margra vikna úrhellisrigningar.
ERFIÐLEIKAR
í LANDBÚNAÐI
AUSTAN TJALDS
Landbúnaður Austur-
Evrópulanda hefur átt
við erfiðleika að striða i
haust og hefur orðið að
leita aðstoðar hers, iðn-
verkamanna og litilla
flugvéla til þess að ná
inn haustuppskerunni og
sá til vetrarins á ökrum,
sem eru orðnir eins og
mýrar eftir úrhellisrign-
ingar.
Vikum saman stytti nær aldrei
upp og leiddi af þvi flóð á stórum
svæöum i Póllandi, Austur-
Þýzkalandi, Tékkóslóvakiu, Ung-
verjalandi og Júgóslaviu. Vegna
þessara flóöa dróst á langinn að
hægt væri að taka upp sykur-
rófurnar, ná inn maisnum eða sá
hveitinu fyrir veturinn.
Stjórnvöld urðu að gripa til ör-
þrifaráða. Kvaddar voru til þús-
undir manna úr borgunum, her-
menn voru sendir til liðs við
bændur og stúdentar teknir úr
skólunum og sendir upp i sveitir.
Svo er að sjá, að það hafi dregið
nokkuð úr tjóninu, en öll lönd á
þessum slóðum hafa þó beðið
töluverðan skaða.
Þungavinnuvélar gátu ekki at-
hafnað sig á gljúpum jarðvegin-
um, svo að rófu- og mais-
uppskeran var að mestu unnin
með handafli.
Með því að gripa til þessara
neyðarráðstafana og með þvi að
veöur hefur haldizt þurrt núna
undanfarna ellefu-tólf daga er
uppskerunni að mestu lokið. En
gæði uppskerunnar eru léleg og
sykurinnihald rófnanna er viða
heldur litið.
Þetta hefur verið sérdeilis lé-
legt ár hjá Pólverjum. Byrjaði
það með seinkun á sumarupp-
skerunni og slöan banni á öllum
útflutningi á sykurrófum. Pól-
verjar eru fimmtu mestu rófu-
framleiðendur. — Sykurrófuupp-
skerunni er nú nær lokið, en
stjórnin stöðvaði útflutninginn til
að fyrirbyggja sykurskort heima-
fyrir. Þó er það hald sumra, að
Pólland sé að safna birgðum til að
geta orðið öðrum kommúnista-
rikjum að liði. Aðrir geta sér þó
til, að Pólverjar hafi veður af
hugsanlegum hækkunum á
heimsmarkaði á sykri og hyggist
biða með söluna, þar til þeim
bjóðist hagstæðara verð en fást
mundi núna.
Landbúnaður Pólverja beið
nokkurn skaða i sumar, þegar
þriggja vikna töf varð á kornupp-
skerunni vegna fyrst þurrka en
siðan rigninga. Stjórnin I Varsjá
lét þá kveðja út bæði her og stóra
vinnuflokka úr borgunum, verk-
smiðjum og verzlunum til vinnu á
ökrunum. Leiðtogi rómversk-ka-
þólskra þar I landi, Stefan
Wyszynski kardináli, lét til leið-
ast (I fyrsta sinn) að leyfa
meðlimum safnaðarins að vinna
á sunnudegi. — Tókst vel til og
uppskerunni varö bjargað, en
vart höfðu menn fagnaö sigri, er
steypiregn skall á. Var úrkoman
fjórföld ársúrkoma i október.
Varð að kveðja til her og verk-
smiðjufólk að nýju — og i þetta
sinn til að bjarga rófunum.
Hætta varð við vetrarsáningu
og bændum var ráðlagt að búa sig
heldur undir að sá i vor.
Til allrar gæfu fyrir Ibúa þessa
hluta álfunnar var hveitiuppsker-
an viðast góð i sumar. Júgó-
slavia, Ungverjaland og Tékkó-
slóvakia gátu státað af metupp-
skeru. — Þessi lönd áttu þó eins
og Pólland við aðra erfiðleika að
striða.
í Júgóslaviu fóru nær fimm
hundruð þúsund hektarar lands
undir vatn um tima. Stjórn Titós
lagöi bann á sölu mais og annars
skepnufóðurs úr landi frá og með
1. nóvember, eftir að spáð hafði
verið 240 þúsund smálesta minni
uppskeru mais en árið áður. Var
það þó aðeins fjórðungs upp-
skerutap, miðað við það, sem
bændur höfðu sjálfir búizt við.
Ekki hefur verið gert kunnugt,
hvað kannanir á uppskerunni
leiddu I ljós.
I þessum flóðum var 40 þúsund
manna lið lögreglu, borgarbúa og
hermanna kvatt til að starfa að
flóðavörnum. Lágu þá heilu
dalirnir i noröausturhluta
Júgóslavfu undir vatni. Reynt var
að bjarga uppskerunni með þvi að
gera stlflur til að hindra rennsli
vatnsins.
Vélum varð sjaldnast komið við
og kallaður var til æskulýður
landsins. 80 þúsund ungmenni
gengu að vetrarsáningu hveitis i
„Brauðkörfunni”, eins og
Vojvodinahéraðið I Serbiu er
gjarnan kallað. Notaðar voru
flugvélar til að sá i votan og
gljúpan jarðveginn. — Samt sem
áður gera Júgóslavar ráö fyrir
700þúsund smálesta minni hveiti-
uppskeru eftir þennan vetur en
árið áður, þótt auövitað megi
vænta þess að neyðarráðstafan-
irnar muni draga eitthvað úr þvi
tjóni.
Uppskeran var með fyrra móti
hjá Júgóslövum og þeir voru þvi á
undan Ungverjum, þegar úrhellið
skall á. Októbermánuður er sá
allra blautasti, sem Ungverjar
hafa fengið i hundrað ár, en þó
voru flóðin ekki eins viða hjá
þeim. Þeir, eins og Júgóslavar,
gripu til þess að kalla út alla þá,
sem vettlingi gátu valdið. 200 þús-
und stúdentar, verkamenn og
aðrir einbeittu sér að þvi að koma
sykurrófuuppskerunni i hús.
En vinnan sóttist afar seint og
þegar komið var að byrjun
nóvember beittu sykurverk-
smiðjurnar enn aðeins einum ti-
unda afkastagetu sinnar. Þá
höfðu náðst upp aðeins 20% af
maisuppskerunni, sem venjulega
er lokið fyrir þann tima.
Embættismenn kunna frá þvi að
segja, að gæði maisins séu miklu
lakari en áður. Blautir kögglarnir
klesstust i vélunum og torvelduðu
vinnuna. Þurrkhús hafa ekki und-
an.
Vinberjatinslunni seinkaði
vegna sólarleysis, en svo bættust
rigningarnar ofan á og berin eyði-
lögðust á runnunum.
Stjórn Búlgariu hefur skýrt
frá þvi, að þurrkar hafi valdið
„töluverðu tjóni og erfiðleikum” i
landbúnaði á þessu ári. Hafa
Búlgarar séð sig tilneydda að
kaupa 300 þúsund smálestir af
fóðurkorni frá Sovétrikjunum.
Nivolae Ceausescu, forseti
Rúmeniu, gagnrýndi nýlega I
ræðu rúmenska bændur fyrir lé-
lega uppskeru þessa árs. Hann lét
að visu ekki uppi neinar tölur, en
auðheyrt var, að útkoman var
fjarri bjartsýnum áætlunum
stjórnarinnar. — Rúmenia átti
einnig eins og aðrir við þurrka að
striða I sumar.
Auk rigninganna máttu Tékkar
þola snjókomu, sem sykurræktun
þeirra gat vel verið án. Sykurinn
er geipimikilvægur útflutnings-
verzlun þeirra og gjaldeyrisöflun.
Selja þeir hann helzt til Vestur-
Þýzkalands fyrir beinharðan
gjaldeyri. — Þrátt fyrir snjóinn er
áætlaö, að sykurrófuuppskeran
verði 7.600.000 smálestir þetta ár-
ið, einhver sú mesta, sem þeir
hafa nokkurn tima fengið. En á
hinn bóginn er óttazt, að sykur-
innihaldið verði með allra
minnsta móti vegna slæmrar
veðráttu i júli og ágúst.
I Austur-Þýzkalandi hafa að-
eins tveir þriðju sykurrófuupp-
skerunnar komizt i hús. Uppsker-
unni var lokið um miðjan nóvem-
ber i fyrra. Herinn var kvaddur
til uppskerustarfa og var þúsund
marka verðlaunum heitið þeim,
sem mestu afkastaði hvern dag.