Vísir - 20.11.1974, Blaðsíða 8
Vlsir. Miðvikudagur 20. nóvember 1974.
Vlsir. Miðvikudagur 20. nóvember 1974.
Umsfón: Hallur Símonarson
m
Sigurður Jónsson, formaður HSI:
Þessir leikir lofo
/#
góðu fyrir veturinn"
„Ég er mjög ánægöur meö
útkomuna úr þessum leikjum,”
sagði Sigurður Jónsson formaður
HSt eftir ieikinn I gærkvöidi.
„Strákarnir stóðu sig meö sóma,
og þótt þeir sigruöu ekki I leikjun-
um, kom margt gott fram hjá
þeim, sem lofar góðu fyrir vetur-
inn.
Hinn raunverulegi undir-
búningur landsliðsins hefst þann
15. desember og þá verður keyrt á
fullu fram að Norðurlandamót-
inu, sem fram fer I Danmörku I
lok janúar.
Mjög miklar likur eru á að
júgóslavneska landsliðið komi
hingað I febrúar — þó er það ekki
alveg öruggt — en i marz kemur
tékkneska landsliöiö hingað, og
það danska fáum viö i heimsókn I
april.
Það verður þvi nóg um að vera
hjá okkur, og þessir leikir við
Austur-Þýzkaland er góður for-
réttur á það sem koma skal”
—klp—
Taflan oft verið lakari
t landsleiknum I gærkveldi
gerðum við töflu um sóknir
islenzka liðsins — þ.e.a.s. hvernig
hverri sókn fyrir sig lauk. Töflur
eins og þessar gefa ekki
nákvæma vlsbendingu um
leikinn, þótt sjá megi ýmislegt út
úr þeim. Þegar talað er um
rangar sendingar.er það t.d. ekki
alltaf þeim, sem missir boltann,
að kenna hvernig fór — sendingin
getur hafa verið svo slæm, að
ekki er hægt að hemja boltann.
Þá eru sendingar á menn I dauöa-
færi eða á linu ekki taldar með, og
segir það þvl ekki nema hálfa
sögu um skotin og mörkin.
En það eru margir, sem hafa
gaman af þvl að grúska I tölum og
úr þessum má ýmislegt sjá. Eitt
er vlst, það hafa margar sóknar-
töflur I landsleikjum I handknatt-
leik hér á landi verið verri en
þessi , a.m.k. hefur skotnýtingin
oft áður verið lakari:
Skot Mörk Varið E U. J= t stöng Röng send.
Axel Axelsson 14 7 5 1 1 2
Einar Magnússon 7 2 2 2 1 I
ólafur Jónsson 4 3 0 0 1 2
Björgvin Björgvinss. 4 3 0 0 1 0
Páll Björgvinsson 3 2 1 0 0 0
Jón Karlsson 2 2 0 0 0 0
Pétur Jóhannesson 1 1 0 0 0 1
Viðar Slmonarson 1 0 1 0 0 2
Þeir Arni Indriðason og Stefán Halldórsson áttu ekki skot á markiö I
leiknum, en töpuðu báðir boltanum einu sinni.
Einar Magnússon tók 4 vltaköst I leiknum og heppnuðust 2 þeirra —
■þriðja var fram hjá og fjórða var dæmt af. Þessi vltaköst fengust eftir
að brotið var á þeim, Björgvin, Páli (tvlvegis) og ólafi Jónssyni.
Markverðirnir vörðu 8 skot í leiknum — Ragnar Gunnarsson 6 og
Birgir Finnbogason 2. —klp—
Ragnar Gunnarsson, markvörður:
„Þeir hitta þá bletti
sem maður nœr ekki á
„Það er ekki hægt að verja það
sem maður sér ekki. Skotin frá
þessum mönnum — eins og t.d.
Lakenmacher og Ganshow —
voru sum svo föst, að maður vissi
varla hvað var að gerast fyrr en
boltinn þaut fram hjá manni”
sagði Ragnar Gunnarsson mark-
vörður, sem stóð lengst af I
markinu á móti Austur-Þýzka-,
landi I gærkvöldi.
„Þeir földu boltann mjög vel,
og maður sá hann varla fyrr en
þeir voru búnir að hleypa af. Þeir
skutu mikið i hornin fjær, en voru
svo snöggir að þessu, að það var
oftast nær of seint aö fara af stað
á eftir boltanum. Þá var meiri-
hlutinn af þessum skotum þeirra
alveg út við stöng, eða upp I vinkl-
unum — og þeir voru ótrúlega
nákvæmir að hitta þá bletti, þar
sem ómögulegt var fyrir mann aö
ná i tuðruna.
Ég hef aldrei fyrr leikið á móti
svona snöggum og skotföstum
mönnum — i það minnsta ekki
svona mörgum i einu liði — og var
þetta þvi mikill skóli fyrir mig”.
—klp-
Joachim Pietzsch (nr. 8) hrindir Axel, þar sem hann er kominn I dauðafæri. Jafnvægiö fór úr skorðum — og þegar Svendson dómari flautaði bjuggust margir
við vlti. Svo var ekki — aukakast. Ljósmynd Bjarnleifur.
ALLT Á RÉTTRI LEIÐ
Þaö fer ekki á milli mála —
islenzkur handknattleikur er í
framför — og sjaldan eða
aldrei höfum viö átt jafn
marga sterka leikmenn og í
dag. Það hafa landsleikirnir
við Austur-Þýzkaland — þjóð í
alfremstu röð í heiminum —
sannað svo ekki verður um
villzt. islenzka landsliðið
tapaði í gærkvöldi með
f jögurra marka mun fyrir þvi
austur-þýzka — árangur/ sem
ekkert landslið í heimi þyrfti
að skammast sín fyrir. Loka-
tölur voru 24-20.
Þó kom aftur fram hinn mikli veik-
leiki i markvörzlu liðsins, sem gert
hefur Þjóðverjum eftirleikinn auð-
veldari en beinlinis efni hafa staðið til.
Fyrstu 40 min. landsleiksins i gær-
kvöldi var sama og ekkert variö hjá
islenzku markvörðunum — en svo varð
skyndilega brevting. Ragnar
Gunnarsson, markvörðurinn úr
Armanni, kom inn á þegar 12 min voru
af sföari hálfleik. Staðan var þá ljót og
allt virtist stefna I mikinn yfirburða-
sigur Þjóöverja, 21-12, stóð fyrir þá.
En Ragnar fór aö verja — skot eftir
skot — og fljótlega fór munurinn að
minnka. Varnarleiknum var einnig
breytt — komið á móti þýzku leik-
mönnunum mikluutará vellinum. Þar
ruglaði kerfi þeirra — en krefst mikils
af varnarmönnunum, en þeim tókst þó
furðuvel gegn hinum leikreyndu
mönnum Austur-Þýzkalands. Loka-
kaflann — slðustu 18. min leiksins —
rétti islenzka liðið mjög sinn hlut og
skoraði þá átta mörk gegn þremur
Þjóðverja.
Þessi kafli sýnir vel að það er mikill
kjarni I islenzka liðinu — með heil-
steyptri markvörzlu yrði það stór-
hættulegt hvaða liði sem er. Tapið var
þó ekki umflúið að þessu sinni — til
þess var markvarzlan lengstum, bæði
hjá Ragnari i byrjun og siðan Birgi
Finnbogasyni, of slök, auk þess, sem
afar dýrar villur áttu sér stað i leikn-
um — raunverulega tveggja marka
villur. Mest áberandi var það tvivegis
i fyrri hálfleiknum. Staðan var 9-7
fyrir Þýzkaland , þegar þeir Ólafur H.
Jónsson og Páll Björgvinsson brunuðu
upp i hraðaupphlaupi. Ólafur var með
knöttinn og ætlaði að gefa á Pál er
alveg var frir — en sendingin mistókst.
Beint i hendur næsta Þjóðverja — og
hraðaupphlaup Þjóðverja gaf mark.
Enginn viðbúinn þessum ósköpum. í
stað9-8 kom 10-7 á ljósatöfluna. Siðast
i fyrri hálfleiknum var Viðar Simonar-
son með knöttinn og 15-20 sekúndur
eftir. Viðari uröu á ljót mistök —
reyndi vonlaust markskot, þegar
nægur timi var að leika upp á mark,
Þjóðverjar náðu knettinum og
skoruðu. Aftur tveggja marka villa, 1
hálfleik stóð þvi 13-9 fyrir þá þýzku —
hefði hæglega getað verið jafnt ef
þessar ljótu villur hefðu ekki átt sér
stað. En auðvitað hljóta aö eiga sér
Það gekk illa aö skora I byrjun —
en svo fékk Ólafur Jónsson hörku-
sendingu frá Axel (nr. 11) inn á
linu. Kastaði sér inn i teiginn og
skoraði fyrsta mark islands i
leiknum. Ljósmynd Bjarnleifur.
stað villur hjá liði, sem hefur þvi
miður, allt of litla samæfingu.
Markvarzla þýzku markvarðanna
var miklu betri i þessum leik en á
sunnudag — og þvi mikið afrek að
skora 20 mörk hjá þeim. Einkum var
Olympiumarkvörður Þjóðverja, Klaus
Weiss, snjall framan af leiknum — en
hann var ekki með I fyrri leiknum. Þar
sáum við vel hvernig á að verja mark.
En Weiss var llka heppinn — i upphafi
leiksins áttu þeir ólafur og Axel
Axelsson hörkuskot I stangir þýzka
marskins — og sumir markverðir
komast I ham við að fá slika „aðstoð”
Já, það var talsverð óheppni hjá
islenzka liðinu i upphafi leiksins og
fyrsta markiö var ekki skorað fyrr en
eftir niu min. hjá Þjóðverjum. Þá
skoraði ólafur gull af marki eftir
sendingu Axels — en Þjóðverjar höfðu
áður skorað þrivegis. Næstum náð
þeim mun, sem var I lokin_
Það var margt jákvætt i leik
islenzka liðsins — en það komu lika
fram gallar, sem auðvelt ætti að vera
að sniða af með mikilli og góðri sam-
æfingu. Axel Axelsson sýndi enn hve
stórhættulegur leikmaður hann er i
skotum. Hann var markhæstur i leikn-
um með sjö mörk, en þurfti reyndar til
þess mörg skot. En það var lika viö
snjalla markmenn að eiga. ólafur átti
nú mun betri leik en á sunnudag —
einkum i sókninni — og Björgvin
stendur alltaf fyrir sinu.
En ánægjulegastur var þáttur Páls
Björgvinssonar, Jóns Karlssonar og
Ragnars Gunnarssonar. — Páll átti
stórgóðan leik bæöi I vörn og sókn — en
þrú ár eru siðan hann var siðast i
landsliði.Það var glæsileg endurkoma.
— Páll skoraöi t'vö mörk og „fiskaði”
tvö viti. Jón hefur ekki leikið betri
landsleik áður — hann dreifði spilinu
meir en aðrir og yfirferö hans er meiri
en flestra annarra. Og i siðari hálf-
leiknum sýndi Ragnar hvers er að
vænta af honum i markinu — þegar
hann fær tækifæri til að öðlast reynslu
sem landsliösmarkvörður. Hann fékk
ekki það tækifæri, þvi miður, fyrir
tæpu ári, þegar hann lék tvo landsleiki
— fékk ekki að fara á HM, sem þó
virtist svo sjálfsagt.
Viðar Simonarson sýndi litið i þess-
um leik — en „keyrslan” á Viðari
hefur veriö svo mikil að undanförnu,
að það hlaut að hafa einhver eftir-
köst. Einar Magnússon náði ekki sama
leik og á sunnudag — og þar fannst
mér talsvert rangt á málum haldið
með innáskiptingar. Það hlýtur aö
vera niðurdrepandi fvrir leikmann,
sem átt hefur stórleik, að vera
settur hjá eins og Einar var I fyrri
hálfleiknum. Aðeins með rétt i byrjun
— siðan ekki söguna meir I fyrri hálf-
leiknum, nema rétt til aö koma inn á
og taka viti. Tvö þeirra heppnuðust hjá
Einari i f.h. — úr þvi þriðja skoraði
hann einnig, en steig á linu, og markið
var dæmt af. I siðari hálfleiknum mis-
notaði Einar annað viti. 1 þeim hálfleik
var oft mikil ógnun i leik Einars — og
þrátt fyrir mistök er hann greinilega
vaxandi landsliösmaður. Tveir leik-
menn voru litið notaðir i leiknum,
Stefán Halldórsson og Arni Indriða-
son, og kom það á óvart, einkum með
Árna. Og hvers vegna er hraði Stefáns
ekki nýttur? — Hvað með hraðaupp-
hlaup, þar sem hann er öllum mönnum
fljótari.
Um þýzka liðið er óþarfi að fara
mörgum orðum. Þar er valinn maður i
hverju sæti — þó svo þeir Ganschow og
Lakenmacher beri af — þeir tveir
leikmenn, sem valdir voru I heimslið,
en vildu heldur fara til íslands.
Gangur leiksins var I stuttu máli sá,
að Þjóðverjar skoruöu þrjú fyrstu
mörk leiksins — og höfðu eftir það 2-4
mörk yfir i hálfleiknum, Staðan i leik-
hléi 13-9. Munurinn jókst geigvænlega
i byrjun siðari hálfleiks — allt upp i 21-
13 — en þá kom Ragnar aftur I markið
og mikil breyting átti sér stað — einnig
i varnarleiknum. Island skoraði þrjú
næstu mörk — og hélt siðan áfram að
minnka muninn allt niður 1 fjögur
mörk. Það var afrek.
Mörk íslands i leiknum skoruðu Axel
7, Björgvin 3, ólafur 3, Einar 2, Jón 2,
Páll 2, og Pétur Jóhannsson eitt. Fyrir
Austur-Þýzkaland skoruðu Laken-
macher 6, Böhme 5, Ganschow 4,
Kaklert 3, Rost 2, Pietzsch, Engel
Hildebrand og Schmidt eitt hver.
hsim
Heinz Seiler, aðalþjálfari þýzka liðsins:
„Getið unnið hvaða
lið sem er heima
##
„Þetta lið ykkar er
mjög gott, og það getur
unnið hvaða lið sem er á
heimavelli, þegar búið
er að finpússa það
örlitið,” sagði aðalþjálf-
ari austur-þýzka lands-
liðsins Heinz Seiler, er
hann ræddi við frétta-
menn eftir leikinn i gær.
„Stóri munurinn á liöunum er
sá aö ykkar menn eru greinilega
ekki eins vel þjálfaðir hver og
einn og okkar menn. Samvinnan á
milli linumanna og skotmann-
anna er heldur ekki nægilega góð
— línumennirnir opna ekki nógu
vel fyrir skotmönnunum — og
skotmennirnir eru ekki alltaf
nógu fljótir til að nýta tækifærin,
sem þeir fá. En þetta má
auðveldlega laga.
Þið lékuð mjög glannalega
vörn, en hún gaf lika markvörð-
unum betra tækifæri til að verja,
þvi okkar skotmönnum var haldið
það langt fyrir utan. Markvarzlan
var lika betri I þessum leik en i
fyrri leiknum.
Ég er tiltölulega ánægður með
mitt liö — allavega verð ég ekki
vondur við mina menn, þó svo
þeir hefðu átt að geta gert betur i
báðum leikjunum.” —klp—
Birgir Björnsson, þjólfari landsliðsins:
#/
Urðum að ráðast á þá
til að trufla spilið"
„Útkoman I þessum leik er
betri en I fyrri leiknum, og ég er
mjög ánægður með leikinn og
úrslitin, þótt það hefði sjálfsagt
verið skemmtilegra að sigra I
öðrum hvorum þeirra”, sagði
Birgir Björnsson þjálfari lands-
liðsins eftir leikinn.
„t þessum leik áttum við yfir
40 upphlaup og skoruðum 20
mörk, og er það svipað og I fyrri
leiknum, þar sem útkoman úr
sóknunum var um 48%.
Það kom á daginn, sem við
töluðum um fyrir þennan leik,
að við urðum að taka þá framar
þegar þeir sóttu — ráðast á þá
fyrir utan punktallnu, ef svo
bar undir, I stað þess að hafa
vörnina aftar.
Það er sýnilegt, að þetta
verður að gera viö öll eða flest-
öli austantjaldsliðin — það er
eini möguleikinn til að trufla
spil þeirra, sem allt byggist upp
á nákvæmum staðsetningum og
timasetningu.
Þetta gaf að vlsu mörk, en
þetta er eina ráðið, þvi það er
bölvað að eiga við þá á annan
hátt. Miðað við þann litla undir-
búning, sem við höfðum
haft.var útkoman góð, og ég er
haröánægöur með liöiö og úr-
slitin I leikjunum”.
—klp—
Breytingar hjá enskum
Terry Cooper, bakvörðurinn
snjalli hjá Leeds, verður i enska
landsliðinu, sem leikur gegn
Portúgal á Wembley-leikvang-
inum I kvöld I Evrópukeppni
landsliða, ef hann stenzt læknis-
skoðun I dag. Annars verður Colin
Todd, Derby, I liðinu.
Enski landsliðseinvaldurinn,
Don Revie, tilkynnti skipun enska
landsliðsins I gærkvöldi og gerði
nokkrar breytingar á liðinu frá
þvi það sigraði Tékkóslóvakiu á
dögunum i sömu keppni.
Liðið verður þannig skipað.
Ray Clemence, Liverpool, Poul
Madeley, Leeds, Dave Watson,
Sunderland, Terry Cooper eða
Colin Todd, Emlyn Hughes,
Liverpool, Colin Bell, Manch.
City, Trevor Brooking, West
Ham, Gerry Francis, QPR, Mike
Channon, Southampton, Alan
Clarke, Leeds, og Dave Thomas,
QPR.
Þeir Kevin Keegan, Liverpool,
Frank Worthington, Leicester, og
Martin Dobson, Everton, misstu
stöður sinar i liðinu, en eru meðal
varamanna. Einnig Norman
Hunter, Leeds, sem er meiddur.
Alan Ball, Arsenal, er i vara-
mannabekkjum, svo og Peter
Shilton, Leicester.
Þá var skozka landsliðiö, st -n
leikur við Spán i kvöld á
Hampden Park, einnig tilkynnt i
gær. Þrjár breytingar voru
gerðar á liðinu, sem sigraði
Austur-Þjóðverja á dögunum.
Billy Bremner, Leeds, kemur
aftur inn sem fyrirliöi lands-
liðsins — en Graham Souness,
Middlesbro, heldur þó stööu sinni.
Ken Dalglish, Celtic, missti slna
stöðu — er varamaöur. Þá varð
Willie Ormond, landsliðs-
einvaldur, að gera breytingar á
vörninni vegna þess, að
Manch.Utd.-leikmennirnir
Martin Buchan og Jim Holton
heltust úr lestinni á siðustu
stundu vegna meiðsla. Ken
Burns, Birmingham, var valinn I
liðið — og Gordon McQueen,
12 leikir i Evrópukeppni lands-
liða verða i kvöld — meðal annars
leika Holland og ttalia i Rott-
erdam og er mikil spenna I sam-
bandi við þann leik. ttalia aöeins
með tvo af þeim leikmönnum,
sem tóku þátt I HM — en silfurlið
Hollendinga svipað og á HM.
Heimsmeistarar Vestur-Þýzka-
lands leika gegn Grikklandi og
sex þeirra taka þátt i leiknum.
Liðið er þannig skipaö. Maier,
Vogts, Schwarzenbeck, Becken-
bauer, Helmut Kremers, Cull-
mann, Wimmer, Hoeness, Geye,
Holzenbein og Heynches. — Paol
Breitner er ekki með og kom það
á óvart — en þeir Gerd Muller og
Wolfgang Overath hafa lýst yfir,
að þeir vilji ekki framar leika
með landsliðinu. —hsim.
Sigur á elleftu stundu
David Johnson frá Ipswich
skoraði sigurmark Englands á
siöustu sekúndu I landsleiknum á
milli Englands og Portúgals-leik-
menn 23ja ára og yngri — I Lissa-
bon i gærkvöldi.
Leikurinn, sem var liður i
Evrópukeppni landsliða 23ja ára
og yngri, var að verða búinn, og
dómarinn ætlaði að fara að blása i
flautuna, þegar Johnson skoraði
eftir mistök hjá portúgalska
markverðinum Manuel Bento.
Englendingarir höfðu 2:0 yfir i
hálfleik — David Johnson skoraði
fyrra markið og Peter Taylor (C
Palace) það siöara.
Snemma i seinni hálfleik var
fyrirliða liðsins, Steve Perryman
(Tottenham) visað af leikvelli
fyrir aö „tækla” einn Portúgal-
anr., án þess að boltinn væri ná-
lægur. Við það gáfu Englend-
ingarnir eftir og Portúgalirnir
jöfnuöu — skoruðu bæöi mörkin
á sömu minútunni. Var staðan
þannig þar til á siðustu
sekúndunni, að Johnson skoraöi.
1 Bosch i Hollandi marði hol-
lenzka landsliðið 23ja ára og
yngri 3:2 sigur á þvi italska i
þessari sömu keppni.
Hollendingarnir voru fyrri til
að skora, en ítalirnir jöfnuöu, og
var staðan þannig i hálfleik. í
siðari hálfleiknum komust þeir
hollenzku aftur yfir, en ítalirnir
jöfnuðu i annað sinn. Stóð þannig
þar til 10 min. fyrir leikslok, að
Lubse skoraði sigurmark Hol-
lands.
—klp—
B
O
M
M £
1 í ©
Sporting hefur yfir i hléi 1-0. Bommi
var slakur... áhyggjur af móöur sinni
og enginsamvinnaviðfélagana.
Bommi hefur áhyggj
ur, en hann breytir til
Ekkisatt?
;j Y Ég veit ekki Y
il./hvaðég á aö segja
Lolli og Polli. Y
En förum nú og,)
' Yinnum þá!