Tíminn - 15.05.1966, Síða 1
SJÓMANNADAGUR
Þessi mynd var tekin af höfninni á Akranesi daginn tyrir lokadag, og voru þá margir bátar i höfn, eins og sjá má.
Tímamynd — Bj. Bj.
BÆTT SKIPULAG í
ER BRYN NAUDSYN
Rætt við aflakóng Akurnesinga, Þórð Óskarsson á Sólfara
Aflakóngur Akurnesinga á
þessari vetrarvertíð er Þórður
Óskarsson, skipstjóri á Sól-
fara, en hann fékk 1010 tonn
á vertíðinni. Þórður var einnig
aflakóngur í fyrra á Sólfara,
sem er 200 tonna stálbátur,
tæplega þriggja ára gamall.
Blaðamenn Tímans skruppu
upp á Skaga í vikunni, og
ræddu við Þórð um vertíðina
í vetur, og um sjávarútveginn
yfirleitt. Var hann þá að hefja
undirbúning fjrir síldveiðam-
ar, en fyrstu bátarnir munu
væntanlega hefja síldveiðar síð
ar í þessum mánuði.
Við ræddum fyrst við Þórð
utn nýlofcna vetrarvertíð.
— Hvernig hefur afkoma
bátanna verið að undanförnu?
— Hún hefur áreiðanlega
verið ákaflega misjöfn. Minni
bátarnir standa sérstaklega höll
um fæti, en stærri bátarnir
hafa meiri möguleika á að geta
bjargað sér, þeir geta fært sig
meira um veiðisvæðin.
— Þú hefur nú verið afla-
kóngur Akraness á tveim vetr-
arvertíðum. Gætirðu sagt okk-
ur í stuttu máli, hvernig ver-
íðin hefur gengið í ár?
— Hún hefur nú verið frek-
ax slök, en er þó hugsanlega
eitthvað skárri en í fyrra hér
á Akranesi. Annars hefur ver-
tíðin verið ákaflega harðsótt
og lítið um fisk. Hann hefur
aðallega verið norður á Breiða-
firði. Fiskurinn hefur mikið
haldið sig á nokkrum blettum,
og þvi hefur verið mikið kapp-
hlaup um viss svæði og þrengsli
skapast. í heild var vertíðin
ógæftasöm og veðrátta erfið.
Þá höfum við einnig verið
að veiðum fyrir sunnan, allt
austur undir Vestmannaeyjar.
— Hver var heildaraflinn á
bátnum ykkar, Sólfara?
— Við fengum 1010 tonn,
en næsti bátur er með yfir
900 tonn, miðað við lokadag-
inn 11. mai, er það „Sigurborg"
skipstj. Þórður Guðjónsson.
— Hvernig finnst þér, að
fiskverðið sé fyrir þorskinn?
— Verðið fyrir fiskinn upp
úr sjó má ekki vera lægra.
Menn verða að fiska mjög mik-
ið til þess, að það komi betur
út fjárhagslega en að vinna í
landi.
— Hefur verið auðvelt að
fá mannskap á bátana?
— Ekki á hina smærri báta.
Ég veit, að ástandið hefur
verið slæmt hjá þeim mörgum.
Aftur á móti hafa þeir í veru-
legum mæli getað bjargað sér
með þvi að fá Færeyinga til
landsins.
— Þið hafið ykkar eigin
fiskverkunarstöð?
— Já, við höfum lagt fisk-
inn upp þar.
— Hafið þið átt í erfið-
leikum með mannskap?
— Nei, hjá okkur er allt
unnið í akkorði, og það er viss
hópur manna, sem tekur þetta
að sér yfir vertiðina.
— Þú ert að láta smíða nýj-
an bát?
— Já, það á að fara að
smíða fyrir okkur 300 tonna
stálbát í Kópavogi.
— Hvað á hann að kosta?
— Ætli hann kosti ekki um
16—17 milljónir króna full-
gerður, en hann verður búinn
öllum nútíma veiðitækjum.
— Er ekki alltaf verið að
smíða stærri og stærri báta?
— Jú, stóru bátunum er
alltaf að fjölga .aðallega út af
síldveiðunum. Það eru komnir
í gagnið þó nokkrir bátar, sem
eru yfir 300 tonn, og fleiri eru
í smíðum. Og það er jafnvel
búið að leggja drög að smíði
tveggja báta, sem verða 400—
450 tonn. Það verður sífellt
nauðsynlegra að hafa stóra
báta, eftir þvi sem síldin verð-
ur langsóttari. í fyrrasumar fór
um við til dæmis til Jan May-
en til þess að ná í síldina, og
til þess þarf nokkuð stóra báta.
í fyrrahaust var flutt verulegt
magn síldar að austan, af þess
um skipum til Faxaflóa. Sú
síld fór öll í frystingu og salt.
— Svo hafið þið byggt sölt-
unarstöð á þessum stað?
— Það háir okkur einkum
þar, að engin síldarverksmiðja
er á staðnum, svo að flytja
verður úrganginn á Norðfjörð.
Við höfum áhuga á að fá þarna
litla verksmiðju, og er það mál
í undirbúningi, og ekkert
ákveðið hægt að segja um það
á þessu stigi. En við höfum
sérstaklega áhuga á nýrri teg-
und verksmiðja, sem sparar
mannafla og á að vera hag-
kvæmari í rekstri en þær, sem
nú eru starfræktar. En þetta
mál á eftir að rannsaka betur,
og þá m.a. hvað þessi verk-
smiðja, sem er sænsk, vinnur
feita síld.
— Hefur þú trú á, að í ná-
inni framtíð komi nýjar vélar,
sem auðvelda síldarsöltun?
— Ný tækni á þvi sviði
kemst vafalaust í notkun eft-
ir stuttan íma. Það er verið að
vinna að vélum, sem eiga að
annast þetta, og spara þannig
geysilegan mannafla. Það er
Þórður Óskarsson, skipstjóri
erfitt i dag að fá fólk og flytja
það alla þessa leið. Og þar
sem búast má við auknum
vinnuaflsskorti í þjóðfélaginu
með hverju arinu. þá verður
þetta vandamál eingöngu leyst
með því að auka tæknina.
— Lögðu margir bátar upp
hjá ykkur í fyrrasumar?
— Nei, við lögðum eigin-
lega upp einir, en fengum þó
smávegis af tveim öðrum bát
um. Ég býzt við. að einn bát-
ur í viðbót muni leggja upp
hjá okkur í sumar, og ef við
getum annað meiru, og síld
býðst, þá munum við að sjálf-
sögðu taka við henni.
— Hvernig finnst þér, að
sildarleitin sé fyrir austan?
— Það er ekkert nema gott
um hana að segja, þar hafa
prýðismenn verið á ferðinni
sem rækt hafa starf sitt af mikl
um dugnaði.
— Ef við snúum okkur að
öðru, Þórður, telur þú, að þorsk
aflinn fari minnk.andi?
— Já, ég he!d að hann hafi
dregist saman. Annars brá okk
ur mörgum í brún sem 'vrum
í sjávarútveginum, við tilkynn-
Framhaló & bls. 15