Tíminn - 15.05.1966, Síða 12
ORÐSENDING TIL STÖÐN-
INGSMANNA B-LISTANS
Kosninganefnd vill minna alla þá, scm fengið hafa happdrættis
miða í kosningahappdrættinu senda að gera skil hið allra
fyrsta. Það er mjög nauðsynlegt að allir velunnarar B-Iistans
bregði fljótt við og hafi samband við skrifstofuna, Hringbraut
30, sem opin verður í allan dag, og alla daga í næstu viku
frá kl. 9 að morgni til kl. 10 að kveldi. Þeir, sem ekki hafa
tök á að koma á skrifstofuna geta hringt í síma 23757 og 12942
og verður þá andvirði miðanna sótt.
VERUM SAMTAKA OG TRYGGJUM SIGUR B-LISTANS.
Kosninganefnd.
J
109. tbl. — Sunnudagur 15. maí 1966 — 50. árg.
SMJORIÐ
LÆKKAÐ
EJ—Reykjavík, laugardag.
Blaðinu barst í dag fréttatil-
kynning frá Framleiðsluráði land
búnaðarins, þar sem segir, að
Framleiðsluráð hafi ákveðið að
selja smjör á niðursettu verði, þ.
— Hver sagði ÁFRAM meS
Framsókn?
e. 65 kr. pr. kg- um óákveðinn
tíma. Jafnframt verði tekið 50
aura innvigtunargjald af allri mjólk
sem kemur til mjólkurbúðanna frá
I. maí s. 1. — Vegna þrengsla í
blaðinu er ekki hægt að birta til-
kynninguna í heilu Iagi nú, cn
það verður gert eftir helgina.
í tilkynningunni segir m. a. að
ljóst sé, að á þessu ári dugi út-
flutningsuppbætur ekki til þess
að bændur fái fullt verð fyrir alla
framleiðsluna, og eins, að smjör-
birgðirnar valdi ýmsum mjólitur
búum miklum rekstrarerfiðleikum.
Hafi Framleiðsluráð um s. 1. ára-
mót gert tillögur um, að þessum
vanda yrði mætt með því að reýna
að örva sölu smjörs með lækkuðu
útsöluverði, en nýmjólk hækkuð
tilsvarandi, og að heimilt yrði að
leggja innflutningsgjald á erlent
kjamfóður um vissan tíma. Hvor
ugt þessara úrræða hafi fengizt
samþykkt, en í nýsamþykktum lög
um sé Ihins vegar veitt heimild til
að innheimta innvigtunargjald af
mjólk, og nota það fé til að jafna
halla af útflutningi mjólkurvara,
Framhald á bls. 22.
„£g kalla þetta hörmuag‘
- segir aflakóngur Vestmannaeyja
KJ—Reykjavík, laugardag.
Aflakóngurinn í Vestmannaeyj
um í ár er Óskar Matthíasson á
Leó, og er þetta annað árið í röð
sem hann hlýtur þennan titil.
Tíminn hringdi í Óskar i dag og
spjallaði við hann um vertíðina.
— Já, það á víst að heita svo,
að ég sé aflakóngur hér í Eyjum,
segir Óskar, en ég vil nú kalla
þetta hörmung. Við voram með
775 tonn eftir úthaldið, og þetta
hefur farið hríðversnandi hjá
mér núna síðustu þrjú árin. í
fyrra var ég með 1050 tonn og ár
ið þar áður tæp tólf hundruð
tonn. Ætli það verði ekki fimm
hundruð tonn á næsta ári — það
mætti segja mér það.
— Og hverju er þetta svo að
kenna?
— Bara fiskileysi, mundi ég
segja. Nótafiskiríið bætir það sko
alls ekki, svo varlega sé tekið til
orða, því að nótin drepur allan
hrognfiskinn, sem ekkert annað
veiðarfæri gerir.
— Voruð þið, með net allan
tímann?
— Nei, ekki var það nú. Við
byrjuðum með net 27. janúar og
fyrsta lögnin var í fjóra daga í
sjónum, vegna þess að vig gátum
ekki vitjað um vegna veðurs. Það
Bráðabirgðalög um skaftavísitölu:
Gildir einnig um tekjuútsvar
EJ—Reykjavík, laugardag.
Blaðinu hefur borizt tilkynning
frá Félagsmálaráðuneytinu nm
bráðabirgðalög um breytingu á
lögum um tekjustofna sveitarfé-
laga, þar sem ákveðið er, að skatta
vísitala sú, sem nú gildir um
tekjuskattaálagningu, muni einnig
gilda við álagningu tekjuútsvara.
ATVINNUMÁL
Framsóknarflokkurinn telur
það meginverkefni borgarstjórn
ar að sjá svo um, að jafnan séu
næg atvinnutæki í borginni og
að allir vinnufærir borgarbúar
eigi kost á verkefnum við hag-
nýt störf. Ber í þessu sambandi
að leggja höfuðáherzlu á að
skapa undirstöðuatvinnuvegum
borgarinnar, sjávarútvegi og
iðnaði, sem bezta aðstöðu svo
og að greiða fyrir nýjum at-
vinnugreinum.
Síðustu árin hefur fiskiskip
um ,sem gerð eru út frá Reykja
vík, farið fækkandi og á það
bæði við um togara og báta.
Þessari þróun verður að snúa
við. Jafnhliða þarf að bæta að-
stöðu í landi til útgerðar frá
borginni og stuðla að meiri og
betri nýtingu aflans en nú á
sér stað.
Fjölga þarf verbúðum fyrir
bátana og nýta Vesturhöfnina
eingöngu fyrir fiskiskipin. Þá
er aðkallandi, að borgarstjórn
stuðli að því, að fiskveiðiland-
helgin verði stækkuð, fiskirann
sóknir efldar og eftrlit aukið
svo að ofveiði eyðileggi ekki
fiskistofninn.
Bæta þarf aðstöðu iðnaðarins
og stöðva samdrátt í þessari
atvinnugrein. Meira en 40%
borgarbúa hafa framfærl sitt af
vinnu við iðnað, svo að öllum
má Ijóst vera, hver þýðing hans
er. Tryggja þarf iðnaðinum
þann sess, er honum ber, sem
einum af höfuðatvinnuvegum
landsmanna, til hagsbóta fyrir
borgarbúa og þjóðina í heild.
Sjá verður um, að jafnan séu til
tækar hentugar Ióðir fyrir
smærri og stærri iðnaðarfyrir
tæki og leyfa þarf iðnaðar
fyrirtækjum, sem byggja yfir
starfsemi sína að borga gatna-
gerðargjöld með jöfnum greiðsl
um á 4—5 árum í stað þess að
þurfa að greiða þau að fullu fyr
irfram eins og nú er.
ÞýSir þetta, að persónufrádráttur
og þrep útsvarsstigans hækka i
samræmi við skattavísitöluna.
Tilkynningin er svohljóðandi:
„Forseti fslands gjörir kunnugt:
Félagsmálaráðherra hefur tjáð
mér, að í lög um álagningu útsvara
vanti ákvæði um breytingu á per-
sónufrádrætti og á þrepum í
útsvarsstiga til samræmis við þau
ákvæði, sem nú gilda um álagningu
tekjuskatts, skv. lögum nr.90 7.
okt ’65 um tekju- og eignarskatt.
Þar eð þörf slikra breytinga sé
sízt minni við álagningu útsvara
en við álagningu tekju-
skatts beri brýna nauðsyn til þess
að setja nú þegar lög, sem ákveði,
að skattvísitala samkvæmt 53.
gr. laga nr. 90/1965, gildi einnig
um álagningu tekjuútsvara, sam-
kvæmt lögum nr. 67/ 1965.
Með skírskotun til framanritaðs
eru hér með sett bráðabirgða
lög samkvæmt 28. gr. stjómar-
skrárinnar, á þessa leið.
1. gr.
Frá og með gjaldárinu 1966 er
skylt að hækka eða lækka þær
fjárhæðir, sem um ræðir í 2.
mgr. 2. laga nr. 67/1965 svo og
þrepin í útsvarsstiga þeim, sem
um ræðir í 3. gr. sömu laga í
Frambald á bls. 22.
vora fimim tonn í, og við lögðum
aftur, en það var sama sagan, að
við komumst ekki út aftur, og fisk
urinn var orðinn fimm nátta,
þetta hálfa tonn, sem var í. Svo
fórum við yfir í trollið 13. febrú-
ar og til 9. marz og það var hreint
ekkert, sem við fengum á því
tímabili — eitthvað 40—50 tonn.
Þá fórum við aftur yfir í netin,
eins og aðrir bátar höfðu gert,
og fengum nokkra góða róðra.
Það var aðallega ufsi, sem við
fengum þá, en verðið á honum er
nokkuð gott. Við fáum 5.50 fyrir
hann upp úr sjó fram í miðjan
febrúar, en eitthvað minna eftir
það. Ufsinn er seldur til Þýzka-
lands sem sjólax og stundum
kaupa stöðvarnar stykkið á 50—
60 krónur af nótabátunum. Nú,
fram til 25. apríl vorum við með
Framhald á bls. 22.
Oskar Matthiasson
I