Tíminn - 22.05.1966, Blaðsíða 8
s
SUNNUDAGUR 22. maí 1966
NÝJAN
Sú saga er sögS um William
nokkum Ullathorne, biskup í
Birmingham á Englandi, a3 ung
ur prestur hafi einu sinni spurt
hann að því, hver hefði skrifað
bezta bók um lítillætið, og hafi
biskup þá svarað: Það hefi ég
gert.
Þetta rifjaðist upp fyrir mér
á þriðjudagskvöldið, þegar ég
hlýddi á útvarpsræðu Birgis fs-
leifs Gunnarssonar. Eftir að
borgarstjóri og allir hinir ræðu
menn Sjálfstæðisflokksins
höfðu keppzt um að lýsa fram-
úrskarandi dugnaði meiri hlut-
ans í borgarstjóm og Birgir
sjálfur fékk tæpast vatni hald-
ið fyrir hrifningu af sjálfum
sér og hinum íhaldsmönnunum,
sagði hann þessa hógværu setn-
ingu: En við Sjálfstæðismenn
ofmetnumst ekki. Fyrr má nú
vera hógværðin og Íítillætið.
TÍMINN
Nú vita Reykvíkingar það, að
íhaldið 'ofmetnast ekki af því
að Hitaveitan hefur brugðizt
í heilum hverfum, skipulagið
er á þannig grunni reist, að
jafnvel stóra skrautfjöðrin.
sjálf Miklabrautin er orðin
vandamál áður en hún er full-
byggð, þrísett er í margar
kennslustofur og tvísett í allar
hinar, enn standa uppi herskál
ar 20 árum eftir lok styrjaldar-
innar, dagheimili og leikskólar
eru helmingi of fá, lóðahneyksl
ið verra en nokkru sinni fyrr,
ekkert byrjað á nýrri höfn og
aðeins örlítið brot af sjúkra-
húsinu tekið í notkun svo ég
nefni eitthvað af afrekum
þeirra.
Finnst mönnum ekki lítil-
lætið alveg einstakt? Getur hóg-
værðin verið öllu meiri?
Vanrækslusyndir undanfar-
inna áratuga verða ekki bættar
upp, með þvi hitasóttarkennda
vígsluæði, sem einkennt hefur
athafnir borgarstjóra að und-
anförnu. Dómgreind Reykvík-
inga er misboðið með því að
gera því skóna að þeir sjái
ekki í gegnum þennan loddara
Ieik. Jafnvel sauðtryggustu
Sjálfstæðismenn eru farnir að
blygðast sín gagnvart þessu
framferði. Þeir vita sem aðrir
að þeim áföngum, sem vígðir
hafa verið að undanförnu hef-
ur verið náð með stórfelldu
bruðii á fjármunum borgar-
anna og fyrirlíta í hjarta sínu
þá sýndarmennsku sem lýsir
sér í þessu.
Andvaraleysið er hættuleg-
ast hefur Morgunblaðið eftir
forsætisráðherra í gær. Enginn
vafi er á því, að andrúmsloftið
er orðið bæði fúlt og rakt í
ýmsum skúmaskotum borgar-
innar eftir áratuga langa inni
setu Sjálfstæðismanna. Mér
finnst fjálfsagt að gera það
fyrir forsætisráðherrann að
hleypa nýjum andvara inn í
málefni borgarinnar, og það
skulum við Framsóknarmenn
líka gera í þessum kosningum,
ekki mun af því veita.
Nú eru aðeins tveir dagar
þangað til kosið verður. Hafi
menn fram að þessu verið í
einhverjum vafa um það, milli
hverra höfuðorustan stendur að
þessu sinni, eru allar slíkar efa
semdir nú úr sögunni.
Undanfarna daga hafa and-
stæðingablöð okkar varið því
sem næst öllu sínu rúmi til
að skamma Framsóknarflokk-
inn. íhaldið og kommúnistar
hafa fallizt í faðma vegna þess-
ara sameiginlegu hagsmuna.
Þegar fhaldið er loksins upp-
gefið á því að kalla Fran»-
sóknarfólkið óvini Reykjavík-
ur, taka kommúnistar við þess-
ari gatslitnu dulu. En við mun-
um sýna þeim, að svona mál-
flutningur á ekki hljómgrunn
meðal Reykvíkinga. Fyrir fjór-
um árum svöruðum við þess-
um rógi íhaldsins með því að
bæta við okkur einum borgar-
fulltrúa. Við skulum svara
þessu á sama hátt nú. Látum
brigzlyrði andstæðinganna
verða okkur hvatningu til enn
betri starfa fyrir B-Iistann, fyr-
ir Reykjavíkurborg og íbúa
hennar.
Einar Ágústsson.
Einar Ágústsson
ANDVARA í BORGARMALiN
Atriði úr
stefnuskrá
Eftirfarandi atriði eru m.a. í stefnuskrá þeirri, sem Fram-
sóknarmenn lögðu fram í borgarmálum Reykjavíkur:
Stuðningur við listir.
Framsóknarflokkurinn leggur áherzlu á, að listastarfsemi í
borginni verði veittur öflugur stuðningur, svo sem með því:
að reistir verði hið allra fyrsta sýningarsalir fyrir myndlist í
samstarfi við samtök listamanna, eða þeim veittur nauðsyn-
legur stuðningur til þess að standast stofn- og reksturskostnað.
að styrkja leikstarfsemi í borginni.
að styrkja tónlistarstarfsemi almennt og beita sér fyrir því,
að í Reykjavík skapist sem fyrst grundvöllur til rekstrar söng-
Ieikhúss.
að skreyta borgina sjálfa og byggingar hennar listaverkum.
að veita árlega ein myndarleg listaverðlaun.
Fegrun borgarinnar.
Framsóknarflokkurinn leggur á það áherzlu:
að þess sé gætt í sambandi við skipulag og byggingar að spilla
ekki fögru umhverfi og sérkennilegu og fallegu borgarstæði
Reykjavíkur.
að nægilegt sé af opnum svæðum í borginni, þar sem fólk
geti eytt frístundum sínum og notið heilnæmrar útivistar.
að Elliðaárnar verði vemdaðar og landssvæðið meðfram þeim
friðað og fegrað með aukinni ræktun. Þess verði sérstaklega
gætt, að framkvæmdir í nágrenni ánna, svo og væntanleg hafn-
armannvirki skaði efcki laxgengd í ámar.
Framkvæmdaáætlun.
Framsóknarflokurinn telur nauðsynlegt, að jafnan séu samd-
ar framkvæmdaáætlanir fyrir ákveðin tímabil til að tryggja
sem bezt samræmdar framkvæmdir stofnana og fyrirtækja
borgarinnar.
Munið x-B
Svar til kjósanda í NjarSvíkum
Kratar í Njarðvíkum hafa ný-
lega hleypt af stokknum blaði er
þeir nefna „Sjónarhóll." Er blað-
ið vandað að frágangi, enda út-
gáfan að öllum líkindum kostuð
af Keflavíkurverktökum. Efni
blaðsins er aftur á móti með
þynnra móti, ef undan er skil-
in ágæt grein Guðmundar Snorra-
sonar um íþróttamál.
Meginefni blaðsins er upptugga
á hinni hvítu bók, er hreppsnefnd-
armeirihlutinn hefur nýlega gef-
ið út um ágæti sitt, á kostnað
útsvarsgreiðenda (léleg eftir-
herma á bláu bók íhaldsfeðranna
í Reykjavík), en ein grein er þó
í því blaði, sem orsakar það, að
ég get ekki látið hjá líða að senda
þetta svar. Greinin ber fyrirsögn-
ina „Kjósum öll Alþýðuflokkinn"
og er undirrituð „Kjósandi." Þar
sem greinin er uppfull af heimsku-
legum mótsögnum og nálgast það
að vera háð um Alþýðuflokkinn,
er það grunur minn, að hún sé
samin af 6. manni listans í Njarð-
víkum, sem frægur er fyrir slíkar
greinar.
Hann talar meðal annars um,
að Alþýðuflokfcurinn hafi átt því
láni að fagna að hafa í framboði
duglega og heiðarlega menn, á
sama tíma og vitað er, að fyrir
tilverknað þessa manns (6. manns
á lista Alþ.fl.) gengur Alþýðu-
flokkurinn til þessara kosninga án
sinna duglegustu og beztu manna
og mun fyrir vikið tapa a.m.k.
25% af fylgi sínu, ef ekki meir.
Þá deilir hann á Framsóknarflokk-
inn fyrir að hafa í tveim efstu
sætum lista síns, menn, sem áð-
ur hafa verið kenndir við aðra
flokka, og er það aðal ástæðan
fyrir því, að ég tel þessa greinar-
skömm svaraverða. Það er viður-
kennt af öllum andstæðingum
Framsóknarflokksins í Njarðvík-
um, að flokkurinn muni að
minnsta kosti tvöfalda fylgi sitt,
og spá mín, að hann muni þre-
falda það. Það hlýtur því að liggja
í augum uppi, að mestur hluti
þessarar fylgisaukningar er feng-
inn frá öðrum flokkum þar sem
kjósenda aukning er aðeins um
13%, og er því augljóst og eðli-
legt að flokkurinn nýti starfs-
krafta hæfra manna úr þeim hópi.
Þetta skilur hinn „visi“ krati auð-
vitað ekki, því að háns eðli er að
taka blóð, en ekki gefa.
Ég lít aftur á móti svo á, að
hin nýju andlit á lista Framsókn-
arflokksins, sýni hina réttu mynd
og hlutfall kjósendaaukningarinn-
ar, og það munu Njarðvíkingar
sanna í dag með því að krossa við
B-listann.
Fyrrverandi Alþýðuflokksmaður.
KOSNINGASKRIFSTOFUR
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Sauðárkrókur — Suðurgata 3, sími 204.
Kópavogur — Neðstatröð 4, sími 4-15-90.
Hafnarfjörður — Norðurbraut 19, sími 5-18-19 — og
Strandgötu 33, sími 5-21-19.
Keflavík — Framnesvegur 12, sími 1740.
Akureyri — Hafnarstræti 95, sími 1-14-43 og 2-11-80
Vestmannaeyjar — Strandvegur 42, sími 1080.
Garðahreppur — Goðatún 2, sími 52261, 52262 og
52263.
Seltjarnarnes — Miðbraut 24, 3. hæð, sími 24210.
Siglufjörður — Túngata 8, sími 716-53.
Reykjavík — Tjarnargata 26, símar 1-29-42, 1-96-13
.... 2-38-32 og 1-55-64.
Njarðvíkur — Grundarvegur 15 (jarðhæð)) sími 2125.
Hveragerði — Breiðumörk 26, sími 122.
IFIeiri konur-fleiri Framsóknarmenn í borgarstiórn
/