Vísir - 27.12.1974, Síða 2

Vísir - 27.12.1974, Síða 2
Vísir. Föstudagur 27. desember 1974. fisDtsm: Hvaft er þér eftirminnilegast frá __ árlai. wm nii er aft IIAa? Arni Mr Araaaan, ventnnar- maftur og nemi: — Þaft er ekki gott aft segja. En ætli þaft séu ekki stjórnarskiptin, sem ég var mjög ánægftur meft, og jólin, sem eru búin aftveia allt áriö.Og loks hinn hroftalegi atburöur á Neskaup- atab, sem er enn I fersku minni. Pétur Jóhanneaaon, vertlnnar- maftur: — Þaft er úr mörgu aft velja. Af svona almennum vett- vangi eru þaft stjórnarskiptin og allt I kringum þau. Þaö, sem mér sjálfum viftkemur, er, aö á árinu var ég valinn i landsliftiö i hand- knattleik og lék minn fyrsta landsleik gegn Luxemborg, og alikur ulevmir mabur ekki I bráft. Ævar Pálmi Eyjólfason, lögreglu- þjónn: — t svona fljótu bragfti er mér eftirminnilegast ferftalag, sem ég fór á hestum úr Lands- sveit i Landmannalaugar og vikudvöl þar. Og atburöurinn á Neskaupstaö í sibustu viku er aft sjálfsögftu i huga manns. Sigrfftur Axeis, húamóftlr: — Myndun rikisstjórnarinnar er mér eftirminnilegust og einnig hinn hroftalegi atburftur á Nes- kaupstað. Þá mitt fyrsta sumar- fri I mörg ár, en það notafti ég til aft skreppa til Spánar. Ólafur Thorarensen verzlunar- maftur: — Ég eignaftist dóttur á árinu, og allt annaft finnst mér nauftaómerkilegt I samanburfti vift baft. Gyifi Kristjánsson, gullsmlftur: — Mér er eftirminnilegust góft kvöldstund meö góftum félögum i Brighton I Englandi. En án gamans er þaft atburfturinn á Neskaupstað i siftustu viku, og allt það fólk, sem á um sárt að binda á eftir. Frumsýning ! kvðid: Morðið í dómkirkju Frá æfingu i Neskirkju. Pétur Elnarsson f hlutverki „freisarans” og Jón Sigurbjörnsson i hlutverki Tómasar Bekket. Þaft kippir sér enginn upp vift þaft lengur, þó aft Leikfélag Reykjavikur bregfti sér f Austur- bæjarbió meft einstaka leiksýn- ingar. Hitt er aftur á móti nýjung, og kemur mörgum á óvart, aft Leikfélagift skuii setja leikrit á svift I kirkju. „Morftiö i dómkirkjunni” heitir leikrit eftir T.S. Eliot, sem sýnt verftur I Neskirkju klukkan tiu i kvöld. Fjallar þaö um baráttu Tómasar Bekket og dauöa hans, en hann var myrtur fyrir altari dómkirkjunnar i Kantaraborg ár- ift 1170. Leikritið var frumflutt I þeirri sömu kirkju árift 1935. Tómas Bekket var geröur aft dýrlingi þrem árum eftir dauöa hans og naut hann mikillar virö- ingar hérlendis Ikaþólsku. Eru aft minnsta kosti 7 kirkjur helgaöar honum hér á landi. Hefur oft verift litift á Guömund Arason gófta sem islenzka útgáfu af þessum dýr- lingi. Jón Sigurbjörnsson fer meö hlutverk erkibiskupsins en aörir flytjendur eru lika leikarar hjá Leikfélagi Reykjavfkur. Þeirra á meöal Karl Guðmundsson, sem hefur haft veg og vanda af þýö- ingu þessa mikla verks. Leik- stjóri er Kjartan Ragnarsson. FlytjenÖir losa sig ekki alveg vift handritin, en hreyfingar eru samt viöhafðar. A milli atrifta flytur kór Háteigskirkju forna kirkjutónlist. Vésteinn ólafsson lektor flytur stutta kynningu á verkinu fvrir sýningu. — ÞJM. ÞRÍR SÁTU INNI ÁJÓLANÓTT Þrir menn sátu i fangageymsl- um lögreglunnar á jólanótt. Fjölgun varft þar hinsvegar f nótt, enda nokkur ölvun I borginni. Einn mannanna sem dvaldist i fangageymslu á jólunum, var sá, sem réöst á bilstjóra á aftfanga- dag og rændi bil hans. Bilstjórinn var aft aka út jóla- gjöfum. Þessi maöur vildi fá far meö honum, en þaft reyndist ekki auftsótt. Réftst hann þá á bilstjór- ann og tók kverkatak á honum, svo hann féll I ómegin. Siðan ýtti maöurinn bilstjóranum út úr biln- um og ók i burt. Bfllinn fannst nokkru siðar vift Hlemmtorg, en mafturinn fannst vestur á Granda, allmjög ölvaftur. Hann er utanbæjarmaöur, en hefur dvalizt um skeið i höfuftborginni. Hinir tveir mennirnir, sem sátu inni á jólanótt, voru bar vegna ölvunarláta. __ Esjon er margbreytileg Óvenjuleg myndlistarsýning var opin I húsakynnum Bygg- ingaþjónustu arkitektafélagsins viö Grensásveg þrjá siðustu dagana fyrir jól. Þar voru sýnd- ar fimmtiu vatnslitamyndir, sem allar sýndu Esjuna. „Það er hægt að haida áfram að mála Esjuna i það óendanlega. Hún er aldrei eins. Ekki einu sinni svo mikiðsem fimmtiu minútur i senn,” sagði Jörundur Páls- son, sem sést hér við nokkrar mynda sinna á sýningunni. —ÞJM/Ljósm: Bragi LESENDUR HAFA ORÐIÐ Nesstofa og hjúkrunarheimili aldraðra Dagblaöift Visir birti þann 20. desember s.l. vinsamlega grein um fyrirhugaftar heilbrigftis- stofnanir i Nesi samkvæmt vift- tali vift undirritaftan. Stutt sim- tal I önn dagsins gefur ekki alltaf skýra mynd — og þvi vildi ég biftja fyrir fáein orft um sama málefni. Fyrirhuguftu hjúkrunar- heimili er ætlaft aft veita þá þjónustu, sem talin er nauftsyn- leg I dag, þ.e. auk venjulegrar hjúkrunar sé þar séft fyrir sjúkraþjálfun, iftjuþjálfun og föndri, auk þess er hugmyndin aft hafa þar dagvistun aldraöra, eins og getið var um. Nesstofa yröi ekki tengd þessum fyrirhuguftu stofnunum i Nesi, en ánægjulegt er, ef á sama tima og byrjað yrði aft hanna þessar fyrirhuguftu heil- brigftisstofnanir væri hafinn undirbúninguraft þvi að færa Nesstofu til upprunalegrar gerftar og koma þar upp minja- safni og stofnunum, sögu læknisfræftinnar, tengda Há- skóla Islands. Vel væri, ef þessar nýju stofn- anir I Nesi mættu verfta til þess aft minna alþjóð á þann staft, þar sem vagga læknisfræðinnar á íslandi stóft. Ég er fullvisa um, aft hjúkr- unarheimiliö og skyldar stofn- anir I Nesi eiga eftir aft verfta Seltjarnarneskaupstaö ómetan- legar stofnanir og raunar lands- mönnum öllum. Ekki er hægt aö hefja byggingu allra þessara stofnana samtimis, þvi aö I mörg horn er aft lita, en hjúkrunarheimilið á forgang, þvi aö þess er brýnust þörfin. 1 febrúar sl. birtist vifttal við mig i Visi um þetta málefni. Fjórum dögum siðan kom til min fátæk ung kona, sem ég haföi aldrei séft áður, með 5000 krónur sem framlag sitt til væntanlegs hjúkrunarheimilis. Ég sagfti henni, að ennþá væri þetta afteins hugmynd, en hún vildi samt, aft ég tæki vift þessum peningum og geröi ég þaft. Eru þeir geymdir I banka- bók. Gefandi vildi ekki láta nafns sins getið. Ég vona að gjöf þessarar ungu konu megi verða öörum hvatning til þess aft styftja þetta brýna verkefni. A6 lokum skal þess getið, að bæfti Nesstofa og lendur allar i Nesi og nágrenni eru i einka- eign — og þvi er það undir vel- vilja eigenda komið, hvernig til tekst með framkvæmdir en mér er óhætt aft fullyrfta, aft eigendur eru velviljaðir I þessu máli. Jón Gunniaugsson læknir.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.