Vísir - 03.01.1975, Side 5
Vlsir. Föstudagur 3. janúar 1975 __________________________________________________________________________________________________________________________5
DRGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson
Ráðherra sœrðist til
ólífis vegna sprengju
Var að opna nýja járnbrautarlínu. Lézt á sjúkrahúsi
Samgöngumálaráðherra
Indlands, Lalit Marayn
Mishra, lézt í morgun af
völdum sára, sem hann
hlaut í sprengingu í Bihar í
gærkvöldi.
Tuttugu og tveir aðrir
slösuðust í þessari sömu
sprengingu, sem varð,
þegar ráðherrann var að
opna nýja járnbrautarlínu
fyrir umferð i Bihar. —
Sex hinna slösuðu voru
alvarlega meiddir.
Sprengingin varö í þann mund,
sem ráöherrann var að ýta af stað
kerru, sem renna átti fyrstu
ferðina eftir teinunum frá
Samastipur — járnbrautar-
stöðinni. Stór tréflis úr kerrunni
þeyttist i mjöðm ráðherrans, sem
varð að ganga undir skuröaðgerð
i nótt. En það kom fyrir ekki.
Onnur sprengja varð I
skrifstofum járnbrautarstöðvar-
innar nokkrum klukkustundum
siöar i nótt. Særðist þá tvennt til
viðbótar.
Mishra ráðherra hefur verið i
brennidepli pólitiskrar ólgu, sem
gætt hefur i Bihar að undanförnu.
Lögreglan hefur handtekið 20
manns vegna þessara sprengju-
tilræða.
Herflokkum Saigon-
stjórnarinnar hefur tekizt
að hrinda árásum
kommúnistaá Phuoc Dinh,
sem er aðal kaupstaður
Phuoc Long-héraðsins (um
120 km norður af Saigon).
Þarna hafa verið dag-
legir bardagar að undan-
förnu og ekki einu sinni lát
gert á yfir jólahátíðina.
Kommúnistar, skæruliðar Viet
Cong, hafa hert mjög hernaðar-
aðgerðir siðustu mánuði. Hafa
þeir haldið uppi linnulausri sókn á
ýmsa þéttbýliskjarna, eins og
Phuoc Dinh siðustu daga og Hoai
Duc, sem er minna þorp.
Saigon-stjórnin, sem heldur úti
um 2000 manna liði á þessum
slóðum til varnar, segir, að varn-
arliðinu hafi tekizt að hrekja
sóknarherinn af höndum sér og
vikka út varnarhringinn i bili. En
menn þarna óttast, að ekki þurfi
lengi að biða þess, að þessir tveir
bæir falli á vald Viet Cong.
Frá þvi að friðarsamningarnir
voru geröir i Paris i janúar 1973,
hafa ellefu sveitaþorp falliö i
hendur Viet Cong. Þar af sex á
siðustu tveim vikum.
Herstyrkur Viet Cong i Phuoc
Long-héraðinu er talinn vera
milli sex og átta þúsund manns.
Þannig voru jólin haldin f
Suður-Víetnam — I skjóli
byssunnar. Daglegir bardagar
hafa verið til sveita siöustu vik-
urnar.
Ellefu þorp fallin
í hendur Víet Cong
á „friðartímum"!
Kafbátar Rússa og USA
í árekstri neðansjávar?
„Bandariskur kafbát-
ur, vopnaður eldflaug-
um með kjarnaoddum,
rakst á sovézkan kafbát
neðansjávar i
Norðursjó,” skrifar
dálkahöfundurinn, Jack
Andersson, í Washing-
ton Post núna i vikunni.
Andersson, sem er einhver
mest lesni dálkahöfundur i
Brando
gefur
Indíán-
um land
Bandarikjunum, heldur þvi fram,
að kafbáturinn „Amdison” hafi
fengið á sig 2,70 metra langa
rispu undir sjávarlinu.
Hann bar heimildarmenn sina
fyrir þvi, að jafnvel þótt svo illa
hefði farið, að rifa hefði komið á
bandariska kafbátinn og hann
sokkið, þá hefði ekki verið hætta á
þvi, að kjarnorkustyrjöld brytist
út.
Andersson segir, að eftir að
kafbátarnir strukust hvor við
annan — óviljandi auðvitað —
hafi þeir strax farið upp á
Nokkrir nágrannar kvik-
myndaleikarans Marlon
Brando kvíöa því, að
Indíánar taki yfir landar-
eign leikarans í Aguoura í
Kaliforniu.
Brando, sem hefur mikið
látið málstað afkomenda
frumbyggja Ameriku til
sin taka, ákvað að gefa
Indiánum landareign sína,
sextán hektara, ekki langt
vestur af Los Angeles.
Hef ur hann látið Chumash-
ættbálkinn hafa gjafabréf
upp á það.
yfirborðið. Skipstjórarnir góndu
hvor á annan úr brúnni.
Síðan skrifar dálkahöfundur-
inn: ,,úr þessum neista hefði
getað orðið leiðinlegt bál, jafnvel
sjóorrusta úti á rúmsjó, en skip-
stjórar beggja kafbátanna héldu
ró sinni og sigldu siðan hvor i sina
átt, án þess svo mikið sem ræðast
við.”
Ekki lét Andersson þess getið,
hvaða sovézkur kafbátur hafi átt
að vera þarna á ferð eða hvort
einhverjar skemmdir hafi orðið á
honum.
Chumash-ættkvislin hafðist
einmitt við á þessum slóðum,
þegar landnámiö færðist vestur á
bóginn.
Almennt hefur þessi rausn leik-
arans mælzt vel fyrir, en ein-
staka granni hans kviðir þvi, að
Indiánar reisi þorp á jörðinni.
Eins og frú Maria Nelson sagði,
en hún á landið sem liggur næst
að: ,,Mér er nokkuð sama um
Indiánaþorp i næsta nágrenni við
mig, ef þeir halda sig bara á
mottunni. Sennilega verður þó
búið með friðsældina hérna,
einkanlega ef Indiánarnir ætla
sér að laða að sér ferðamenn”.
SKUTU AÐ
SKOZKUM TOGARA
OG VÖRPUÐU
DJÚPSPRíNGJUM
í KRINGUM HANN
Aberdeentogari í landhelgi
Fœreyja sinnti engum
fyrirmœlum og sigldi út á haf
Dönsk freigáta mun
liafa varpað fyrir borð
djúpsprengjum i
grennd við skozkan
togara og skotið að
lionum viðvörunar-
skotum, þar sem hann
var aö veiðum við
Færeyjar á jóladag,
samkvæmt upplýsing-
um frá Færeyjum.
Fréttastofa Reuters hefur það
eftir landhelgisgæzlunni i Fær-
eyjum, að freigátan hafi elt
togarann alla jólanóttina og i
birtingu á jóladagsmorgun
skotið fyrir framan stefni
togarans. Eins reyndi hún meði
djúpsprengjum að hrella skip-1
stjórann til að stanza. (
Þegar togarinn stanzaði ekki'
fyrir það, gafst freigátan uppi
við svo búið.
Hjá utanrikisráðuneyti Danai
hefur verið upplýst, að danska
stjórnin hafi farið þess á leit viðj
þá brezku, að hún léti fara fram
rannsókn á þessum atburði. .
Jafnframt var kvartað yfir
þvi við brezku stjórnina, að 27.
desember hafi sex skozkir
togarar verið að ólöglegum |
veiðum innan fiskveiðilög-
sögunnar og i þessu opinbera |
kvörtunarbréfi er sagt, að einn
togari frá Aberdeen hafi ekki (
stanzað, þrátt fyrir viövörunar-
skot dansks herskips, sem |
einnig reyndi djúpsprengjur