Vísir - 09.01.1975, Síða 2
2
Vísir. Fimmtudagur 9. janúar 1975.
visntsm:
Veiztu hvað það kostar
að hringja eitt umfram-
simtal? (5,30 krónur)
Ölafur Benediktsson, krana-
maður:Við vorum að reikna
bað saman vinnufélagarnir, hvað
það kostaði okkur úr eiginn vasa
að hringja utan úr bæ 4-5 sinnum
á dag vegna vinnunnar. Það kom
I ljós að það eru um 20 þúsund.
Upphæðin er fljót að koma, þegar
hvert simtal i sjoppum er selt á 20
krónur. Ég veit ekki hvað hvert
simtal kostar heima, en þau hafa
hækkað óskaplega.
Helga Erlendsdóttir, húsmóðir:
Nei, það veit ég ekki. Ætli það
kosti ekki 7 krónur. Mér finnst
siminn ekkert rosalega dýr, enda
fer ég ekki mikið fram yfir
lágmarksfjöldann.
Helga S. Backman, kennari: —
Ég held 5,20. Mér finnst það anzi
dýrt. Maður fer misjafnlega
mikið fram yfir.
Paul Heide, úrsmiður: i-Það hef
ég ekki hugmynd um. Ég gizka á
5 krónur. Það er hálfergilegt,
þegar maður fer umfram. Já, það
er mikið um umframsimtöl á
minu heimili, enda á ég tvær
stelpur.
Gunnar Eggertsson, verzlunar-
maður: -Ætli það kosti ekki sex
kall. Það finnst mér nú ekki sér-
lega rriikið, það er ekki svo oft
sem maður hringir. Þaö verður
öllu dýrara, þegar maður lætur
simann vekja sig á morgnana.
Gylfi Guðjónsson, iögregluþjónn:
Ég er nú ekki alveg viss. Ég
veit bara að við I Mosfellssveit-
inni borgum tiltölulega meira
fyrir simann.
íslendingur sem þurfti á sjúkrohús í Luxemburg:
LÁTINN LIGGJA GRÚT-
SKÍTUGUR EFTIR SLYS
— veron ó Landsspitalanum
eins og himnariki
miðað við Luxemburg
„Hjúkrunarkonan lét mig fá heilan pakka af verkjatöflum og baö
mig að éta sjálfan,” segir Björn Grlmsson um veru sina á sjúkra-
húsi I Luxemburg. Ljósm. Bragi.
,,Ég hélt fyrst, að
vinstri fóturinn hefði
farið úr liði og vildi þvi
útvega góðan skáta til
að kippa honum i liðinn
aftur”, segir Björn
Grimsson, sem legið
hefur i 6 vikur á Lands-
spitalanum eftir slys,
sem hann varð fyrir í
Luxemburg.
Björn lenti i miklu umferðar-
slysi á þröngri götu i
Luxemburg að kvöldi föstu-
dagsins 29. nóvember. Björn
var þar á ferð i Volkswagen-
bflnum sinum, missti stjórn á
honum vegna hálku og of hraðs
aksturs og hafnaði á heilli röð
bila.
Hurðin á bil Björns brotnaði
af við fyrsta höggið og hann
hentist i götuna rétt áður en
bfllinn hans rakst mjög harka-
legu á siðustu bifreiðina.
„Ég reyndi að standa upp, en
við áreynsluna leið yfir mig”,
segir Björn.
„Svo kom auðvitað sjúkrabill
og mér var ekið á sjúkrahús,
sem kennt er við heilagan
Jósep”.
Þarlent blað
hneykslast
Meðferðin, sem Björn hlaut á
þessu sjúkrahúsi var fyrir
neðan allar hellur. Blað eitt i
Luxemburg birti fyrir skömmu
heillar opnu frásögn af með-
ferðinni, sem Björn hlaut á
sjúkrahúsinu þá daga sem hann
var þar og notar tækifærið til að
ráðast á aðbúnað á sjúkra-
húsum i Luxemburg almennt.
„Ég vissi hvorki i þennan
heim né annan, þegar ég
rankaði við mér eftir hádegi á
laugardag. Þó bað ég um að
félögum minum hjá Cargolux
yröi tilkynnt um veru mina
þarna, hvað var og gert. Ég bað
nunnuna lika að skila þvi til
þeirra, að ég lægi þarna á
lélegasta sláturhúsi sem ég
hefði komizt i kynni við. Sú til-
kynning komst þó að sjálfsögðu
ekki til skila”, sagði Björn.
„Mér var tjáð, að læknirinn
talaði ensku, en það reyndust
loftkastalar. Ég varð þvi að
reyna að bjarga mér á blöndu af
þýzku og luxemburgarisku. Ég
skildi þó ekkert, þegar reynt
var að útskýra hvað að mér
gengi”.
Lá alblóðugur og
skitugur
„Félagi minn ofan af flugvelli
kom i heimsókn og fékk það
uppgefið hjá hjúkkunni, að ég
væri mjaðmagrindarbrotinn.
Þar með ruku allar áætlanir um
útvegun góðs skáta út i veður
og vind”, segir Björn.
Luxemburgarblaðið greinir
frá þvi að félagar Björns hafi
komið i heimsókn strax á
laugardagskvöldið. Þá var hann
mjög þjakaður og lá i móki. Það
sem gestunum þótti þó enn
alvarlegra var að sjá hann
liggja alblóðugan og skitugan
uppi i rúmi.
Björn hafði verið dreginn
beint upp úr götúnni og lagður i
sjúkrarúmið án þess, að hann
væri þveginn eða færður i hrein
föt
„Félagarnir báðu þá eina
nunnuna um handkiæði og
þvottapoka, svo hægt væri að
þvo mér. Með herkjurn fengu
þeir loks handklæði og var sagt
að þeir ættu sjálfir að útvega
sápu, handklæði og náttföt”,
segir Björn.
Bjallan tekin úr sam-
bandi
„Fyrstu nóttina eftir að ég
var farinn aðranka við mér, var
ég með óráð og með geysilega
verki. Ég hringdi á hjúkrunar-
konuna og bað um verkjatöflur.
Hún lét mig loks fá töflur, sem
verkuðu um tvo tima i senn.
Þegar ég fór að hamast á
bjöllunni i hvert sinn, sem
töflurnar hættu að verka, gafst
hún upp á mér, skildi heilan
pakka af töflum eftir hjá mér og
bað mig að éta sjálfan”, heldur
Björn áfram.
„Þegar ég var orðinn ónæmur
fyrir þessum töflum hélt ég
áfram að hringja, þvi verkirnir
voru alveg að drepa mig.
Hjúkkan afgreiddi það mál með
þvi að taka bjölluna af mér”.
Þá sá ég mér ekki annað fært
en að banka í vegginn, en hún
bankaði þá bara á móti og litið
linnti þjáningunum við það. Ég
hef sennilega haldið öllum á
spitalanum vakandi þessa
nóttina”.
,,Fáðu þér hressingar-
göngu”.
Við komuna á spitalann var
skurður á hökunni saumaður
saman og fyrsta morguninn var
tekin ein röntgenmynd af Birni.
„Þeir tóku bara ein mynd
beint framan á i sparnaðar-
skyni. Læknirinn sjálfur kom
ekki til min fyrr en 30 timum
eftir að ég kom á sjúkrahúsið.
Hann hafði bara eina mynd til
að styðjast við og sagði lasleika
minn ekki mjög alvarlegan.
Hann hvatti mig um fram allt að
fara sem fyrst á fætur og stiga i
vinstri fótinn, mér til heilsu-
bótar”, segir Björn.
Björn átti þó alls ekki auðvelt
með að standa upp. Eftir að
hann var fluttur til Islands, var
hann myndaður í bak og fyrir.
Kom þá i ljós, að f jórði hryggjar
liður að neðan var brottinn, svo
ekki var von að göngurnar yrðu
langar.
Þess má geta að eftir að hafa
legið I sex vikur i vellystingum á
Landsspitalanum má Björn
ekki einu sinni velta sér á hlið I
rúminu, á meðan hann var
hvattur til göngu i Luxemburg,
á öðrum degi.
„Ég var kvefaður, þegar
slysið varð og slím og drulla
söfnuðust i lungun á mér. Við
þessu var ekkert gert fyrr en ég
kom hingað i menninguna. Þá
var ég strax tekinn fyrir og
þetta nuddað upp úr
lungunum”.
ógiftur og barnlaus
„Ég veit ekki, hvort svona
meðferð tiðkast almennt þarna
úti. Við eigum að heita i sjúkra
samlagi, en bæði er ég Utlendur
og það sem verra er, ekki
kaþólskur. Á þessu sjúkrahúsi
var hins vegar allt vaðandi i
nunnum og Jesúsar upp um alla
veggi. Ég hefði nú frekar varið
peningunum til kaupa á sápu.
Yfirmaður frá Cargolux kom
strax til min og vildi allt fyrir
mig gera. Hann spurði, hvort ég
vildi ekki að ættingjar minir
yrðu sóttir að heiman. Ég var á
báðum áttum, en hann hringdi
heim og bauð föður minum að
koma. Hann kom á þriðja degi.
Daginn eftir var ég svo sendur
heim til íslands. Lifið hér á
sjúkrahúsinu er eins og himna-
riki miðað við helviti”, segir
Björn
„Ein meinlokan, sem þeir
hafa tekið i sig i Luxemburg er
að ekki sé hægt að eignast börn
nema að vera giftur. Þegar ég
kom á sjúkrahúsið var ég
spurður hvort ég væri kvæntur.
Ég sagði nei, en ég ætti konu og
barn. Þeir héldu, að ég hefði
skaddazt á höfði þegar ég lét
svona vitleysu út úr mér. Það
væri ekki hægt að eiga börn
nema að vera kvæntur. Ég var
þvi skráður ókvæntur og barn-
laus”, heldur Björn áfram.
„Slátrarinn”.
„Undir lokin var ég búinn að
kynnast Belga, sem lá með mér
og hann varð eins konar sátta-
semjari milli min og yfir-
nunnunnar, sem var kona á ein-
hverju æðra tilverustigi.
Ein nunnan leyfði mér ekki að
fara einum fram úr en önnur
skipaði mér fram, ef ég vildi
reykja. Ég lét þvi halda vakt
frammi á meðan ég fékk mér
reyk inni á stofu. Ef nunnan var
á leiðinni, kom vaktmaðurinn
hlaupandi inn, þreif af mér
sigarettuna og opnaði alla
glugga.
Hér eru hjúkrunarkonurnar
hins vegar alveg ódrepandi við
að keyra mig fram, ef ég vil fá
mér reyk”, segir Björn. „Hér
vita þeir nefnilega, að hægt er
að hafa rúmin á hjólum.
Þótt samkomulagið við
nunnurnar lagaðist heldur var
mér þó alltaf jafnilla við mann,
er ég kallaði „slátrarann”,
Hann var ákaflega ónærgætinn
og stjakaði við mér ef honum
fannst ég vera lengi að
klöngrast úr rúminu yfir á
börur, þegar færa átti mig til”.
segir Björn að lokum um
reynslu sina af sjúkrahúsum i
Luxemburg, sem orðið hefur til
að vekja upp gagnrýni blaða á
meðferð sjúklinga þar.
—JB