Vísir - 09.01.1975, Blaðsíða 5
5
Vísir. Fimmtudagur 9. janúar 1975.
REUTER
AP/NTB
ÍMORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson
Þrem Wateraatemönnum sleppt út
John Sirica dómari
Watergatemálsins breytti í
gær dómum sínum yfir
John Dean/ Jeb Stuart
Magruder og Herbert
Kalmbach, þannig, aö
gæzluvarðhaldstimi þeirra
kæmi til frádráttar refsi-
vistinni.
Gengu þessir þrír frjáls-
ir allra ferða sinna úr
fangelsum í morgun, haf-
andi þar með afplánað sína
dóma.
Sirica dómari vildi ekki aðra
skýringu gefa á þessari ráð-
breytni en þá, „að æði margt
hefði ráðið þessari ákvörðun.”
Dean var lögfræðilegur ráðu-
nautur^ Bandarikjaforseta i tið
Nixons. Honum var gefið að sök
að hafa átt þátt i aö hylma yfir
tengsl Hvita húss stjórnarinnar
við Watergateinnbrotið.
Jeb Stuart Magruder vann að
endurkjöri Nixons og honum var
gefiö að sök, aö hafa átt hlut að
ráðabrugginu um innbrotið i
Watergate og hleranirnar þar.
Herbert Kalmbach var lög-
fræöingur Nixons og lá undir
sömu sök.
Allir þessir þrir höfðu i réttar-
höldunum yfir þeim játað sök
sina og siöan vitnað gegn fyrrver-
andi starfsfélögum sinum, eins og
Haldeman, Ehrlichman og Mit-
chell.
Verjendur þeirra fimm, sem
fundnir voru sekir á nýársdag
(þ.á m. Haldeman, Ehrlichman
og Mitchell), þykja liklegir til
þess að halda þvi fram, að Dean,
Magruder og Kalmbach hafi gert
samninga við yfirvöld um að
vitna gegn hinum og sleppa i
staðinn með væga dóma. — Slikt
gæti oröið tilefni áfrýjunar.
Dean sat alls 5 mánuði inni, en
hann hafði hlotið eins til fjögurra
ára fangelsi.
Magruder sat af sér 7 mánuöi at
tiu mánaða til fjögurra ára
fangelsi, sem hann var dæmdur i.
— Þegar konu hans var skýrt frá
þvi, að láta ætti mann hennar
lausan, æpti hún: „Eruö þið að
gabbast að mér?” — Með tárin
streymandi niður kinnarnar hlóð
hún börnunum inn i stationbil
fjölskyldunnar og ók til Baltimore
til að sækja bónda sinn.
Kalmbach haföi setiö inni i 6
mánuði af þeim sex til átján mán-
uöum, sem hann átti að afplána.
Fara ólympíu-
leikarnir úr
skorðum vegna
verkfalls?
Sex vikna langt verk-
fall byggingarmanna i
Montreal þykir geta leitt
til þess, að fresta, verði
ólympiuleikunum 1976.
laugina, „þýðingarmestu mann-
virkin.”
Atvinnumálaráðherrann i
Quebec, Jean Cournoyer, sagði i
gær, að „lyki verkfallinu ekki i
næstu viku, gæti farið svo, að af-
lýsa þyrfti leikunum.”
Kjósa í dag um
efnahagsmálin
27. nóvember var stöðvuð vinna
við gerð 70.000 sæta stúku við
leikvanginn, þar sem leikarnir
eiga að fara fram. — Járna-
bindingarmenn fóru i verkfall til
áréttingar kaupkröfum sinum.
Killanin lávarður, forseti
alþjóðlegu ólympiunefndarinnar,
sagöi, að nefndarmenn hefðu
miklar áhyggjur af þvi, að
stöðvuð hefði verið vinna við leik-
vanginn, hlaupabrautina og sund-
Indíánar
œfir út í
brazilísk
yfirvöld
Indiánaættkvisl ein i
Norður-Braziliu hefur
orðið enn einum hvitum
manni að bana, og sér-
fræðingar i málefnum
Indiána spá þvi, að til
frekari árekstra eigi eft-
ir að koma vegna vega-
gerðar þess opinbera
um svæði Indiána og
landnáms.
- Hviti maðurinn var landnemi,
sem hafði teygt jarðabætur sinar
inn á friðað svæði Surui-Indiána.
Dauða hans ber að einungis tiu
dögum eftir að Indiánar urðu
fjórum embættismönnum
stjórnarinnar að bana. I það sinn
var þó önnur ættkvisl að verki,
Vaimiri-Atroaris.
Indiánarnir eru æfir vegna
lagningar þjóðvegar yfir lönd
þeirra. Vegur þessi á að tengja
saman Braziliu og Caracas.
Yfirvöld hafa hafnað tillögum
um að ráöast með táragasi að
Indiánunum til þess að hræða þá
til uppgjafar.
Danir ganga til kosn-
inga í dag, og er það í
annað sinn á 13 mánuð-
um.
Allt er í óvissu um það,
hvort takist að af stöðnum
kosningunum að mynda
nægilega sterka ríkis-
stjórn til að glima við
efnahagsörðugleika þjóð-
arinnar.
Staðan i Hastings-
mótinu breyttist litið i
tiundu umferðinni.
Heldur Tékkinn Hort
enn forystu sinni eftir
jafntefli við Vaganian,
og Andersson sýnist eiga
unna biðskák á móti
Csom, sem hefur átt við
veikindi að striða.
Hort er með 7 vinninga,
Andersson 6 (og eina biðskák)
Guðmundur, Beljavsky, Miles og
Vaganian eru allir meö 6 vinninga
lika. Garcia, Hartston hafa 5 1/2
vinning. Planinc hefur 5 (og 1
biöskák) Botterill og Steam 4 1/2
daga benda til þess, að þingsæt-
in 179 i Þjóðþinginu verði áfram
jafn margskipt og eftir siðustu
kosningar, þegar fjöldi flokk-
anna tvöfaldaðist. Þingflokk-
arnir eru tiu.
Poul Hartling forsætisráð-
herra efndi til kosninganna i von
um að efla aðstöðu minnihluta-
stjórnar Frjálsiyndra á þingi,
þegar hann fékk ekki nægilegan
stuðning frá hinum flokkunum
til að koma fram tillögum sinum
um ráðstafanir i efnahagsmál-
unum.
vinning, Benkð 4, Csom 3 1/2 (og
1 biðskák) Mestel 2 1/2 vinning
(og 1 biðskák) og Basman og
Diesem 2 1/2 vinning hvor.
Miles komst upp aö hliö
Guðmundar, Beljavsky og
Vaganian, þegar hann vann
Botterill, Bretlandsmeistara, á
tima. Haföi Botterill betra
framan af, en glutraði öllu niður i
timahrakir
1 skák þeirra Planincs og
Mestels, sem fór i bið hefur
Planinc dúndrandi sókn á Mestel,
og vinni hann skákina, er hann
kominn i annað sætið með hinum
öllum.
Maraþonskák þeirra Guð-
mundar og Harstons úr 7. umferð
lauk loks I gær eftir 105 leiki. Fór
eins og viöbúið var, að Hartston
vann.
Danir hafa mátt glima við
16% verðbólgu og 11,7% at-
vinnuleysi.
Hafði Hartling ætlað að koma
á eins árs frystingu launa og
verðstöðvun, jafnt á land-
búnaöarvörur sem aörar. —
Þessum hugmyndum hefur vax-
ið mikið fylgi siöustu vikur, og
er þvi spáö, að flokkur Hartlings
vinni milli 16 og 28 þingsæti i
þessum kosningum til viöbótar
þeim 22, sem flokkurinn hafði á
siðasta þingi.
Samt er þvi spáð, að sósial
demókratar verði áfram stærsti
stjórnmálaflokkurinn, þvi að
þeir muni bæta viö sig nokkrum
þingsætum. Höfðu sósial demó-
kratar 46 þingfulltrúa fyrir.
Fyrsta ríkis-
stýran
Fyrsta konan, sem kjörin hef-
ur verið i embætti ríkisstjóra I
Kandarikjunum, sór i gær
embættiseið sinn i Hartford.
sem er höfuðborg Connecti-
cut-rikis.
A myndinni hér að ofan sést
Ella Grasso hafa yfir eiðstaf-
inn eftir forseta hæstaréttar,
Charles House.
Jarðskjólfta-
kippir ennþó
Menn fundu minniháttar jarð-
skjálftakippi i Karakoram-fjöll-
um i Pakistan i gær, þar sem
björgunarsveitir starfa að þvi að
likna þeim 70 þúsundum, sem
misstu hcimili sin I jaröskjálftun-
um milli jóla og nýárs.
Annað veifiö hefur oröiö jarð-
skjálfta vart þessa 11 daga, sem
liðnir eru, sfðan 5.300 fórust i
stærstu jarðskjálftunum.
hjá Nixon
Kichard Nixon, fyrrum
Bandarikjaforseti. er 62 ára i
dag, en hann veröur á heimiii
sinu og aðeins hans nánustu hjá
honum á afmælisdaginn.
Nixon er sagöur á hægum
batavegi eftir skuröaðgerð, sem
hann gekkst undir I október
vegna blóðtappa. Var hann þá
nær dauða en iifi. Læknar hafa
gefiö honum ströng fyrirmæli
um að hafa hægt um sig tii þess
aö hlífa vinstri fæti eftir aðgerð-
ina.
Þessi mynd var tekin af Nixon
I hjólastól á sjúkrahúsinu á
Lönguströnd I Kaliforniu,
þegar hann gekkst undir upp-
skurð vegna blóðtappa I
vinstra fæti og I lungum.
Skoðanakannanir siðustu
Fjölskipað
2. sœtið