Vísir - 09.01.1975, Page 16
vism
Fimmtudagur 9. janúar 1975.
Bííí
skemmd
ist af
sandroki
Aftakaveður var i gær undir
Eyjafjöllum allt fram á Markar-
fijótsaura, að sögn Sveins isleifs-
sonar, lögregluvarðstjóra á
Hvolsvelli.
Enginn snjór var þó til skaða,
heldur mikill sandbylur. Þegar
jörðin hefur þiönað og frosið á
vixl, verður sandurinn laus ofan
á, og þegar svona rok gerir, er
engin fyrirstaða, heldur rýkur
sandurinn miskunnarlaust.
Bill undan Eyjafjöllum, sem
æltaði að sækja börn i skóla aust-
ur þar og flytja þau á Hólmabæ-
ina i Austur-Landeyjum, varð frá
að hverfa, og voru þá allar rúður
orönar skemmdar i honum ,,og
lakkið sjálfsagt lika, þótt ekki
væri það nefnt,” sagði Sveinn.
Ekki hafði hann frétt um aðra
skaða af völdum veðursins, en
taldi liklegt, að einhvers staöar
sæi á húsum, aö minnsta kosti
rúðum, eftir þetta veður. — SH
Síldveiðar
aftur?
Hugsanlegt að
veiða 10 þúsund
tonn nœsta haust
Hugsanlegt er að
veiða allt að 10 þúsund
tonn af sild á næsta
hausti, þar sem
friðunaraðgerðir hafa
borið svo góðan árang-
ur. Sildveiði var siðast
leyfð hér haustið 1971,
og þá veiddust ekki
nema 10-11 þúsund
tonn, þótt menn mættu
veiða að vild.
Þetta kemur fram i siðasta’
hefti timaritsins Sjávarfréttir.
Friðunaraðgerðir hófust árið
1966 og voru smám saman aukn
ar, þar til veiðin var bönnuð. Á
árunumfyrir 1967 bættust árlega
60-70 þúsund tonn af þriggja ára
sild i síldarstofninn, en siðan
geröist sú sorgarsaga, að i hann
bættust ekki nema 5-10 þúsund
tonn. Stofninum hrakaði þvi ört,
þvi að miklar veiðar voru
stundaðar á sama tima og end-
urnýjun stofnsins brást. Argang
urinn, sem nú hefur verið
mældur og hrygnir f fyrsta sinn
næsta sumar, er i námunda við
30 þúsund tonn, eða mitt á milli
þess sem bezt var og þess sem
lakast var, að sögn Jakobs
Jakobssonar fiskifræðings. Mið-
að við verð i dag mundi 10 þús-
und tonna afli þýða um 300 mill-
jónir króna upp úr sjó. Um 100
bátar mundu liklega fara á
þessar veiðar, að sögn Sjávar-
frétta.
Jakob var spurður hve langt
kynni að verða, þar til mætti
veiða 50-60 þúsund tonn, þannig
að sú veiði yrði árviss. Hann
sagði, að væri miðað við miðl-
ungsgott árferði að þvi er varð-
aði vöxt og viðgang síldarseiða
gæti þetta gerzt við lok þessa
áratugs.
—HH
Arni Guðmundsson stýrimaður, Emil Pálsson matsveinn og Stefán Sigurðsson annar stýrimaöur voru að búa sig og skipið undir loðnuna
,,Viö förum þegar við erum klárir”. Ljósm. Bragi.
— segir Eggert
Gíslason á Gisla Árna
„Elskan mín góða, það
er engin vertíð eins,”
sagði Eggert Gislason,
skipstjóri á Gísla Árna, er
Vísir spurði hann um út-
litið á komandi loðnuver-
offramboð er á öllum hlutum, að
ákveða loðnuverðið fyrirfram
fyrir alla vertiðina. Ég held það
sé rétt stefna að miða verðið við
styttri timabil og hvernig selst á
hverjum tima. En sjálfur þori
ég engu að spá um verðið,”
sagði Eggert.
Aöspurður um sildar-
bræðsluna i Neskaupstaö sagði
Eggert:
,,Það er vitanlega mjög slæmt
að missa jafn stóran aðila út úr
dæminu. Þetta þýðir, að við
verðum að sigla lengra með
allan afla, sem veiðist austan-
og suðaustanlands.
Þar fyrir utan var þjónusta öll
mjög góð á Neskaupstað og þvi
enn sárara að geta ekki landað
þar.”
1 morgun hafði enginn bátur
lagt af stað austur i leit að
loðnu. Snarvitlaust veður var á
miðunum og lá rannsóknarskip-
ið Arni Friðriksson i vari á
Eiðsvik. -JB.
Slœmt veður á
miðunum. Árni
Friðriksson í vari
„Við erum bara
þakklátir fyrir það sem
við fáum," sagði Eggert.
1 gær var verið að búa Gisla
Arna eins og önnur veiðiskip
undir loðnuvertiðina. Gisli Arni
kom frá Noregi á Þorláks-
messu. 1 Noregi voru settar
hliðarskrúfur i skipið. Aður en
haldið var til Noregs var skipið
á veiðum i Norðursjó, en þangað
hélt það i mai.
,,Við þurfum ekki að kvarta
yfir útkomunni á Norðursjón-
um. Við höfum aldrei gert það
betra þar. Hitt er svo annað
mál, að þarna voru fleiri bátar
en áður og útkoman þvi mis-
jafnari”, sagði Eggert.
Gisli Arni veiddi með nót i
Norðurs^ónum þannig, að ekki
þarf mikið að lagfæra fyrir
loðnuvertiðina við Island. Þó er
þörf á að breyta einangrun I
lestum og ditta að smáhlutun-
um.
,,Ég held það þýöi ekkert að
biða eftir veröinu á loðnunni.
Það kemur af sjálfu sér að fara
á þessa vertið, um annað er ekki
að ræða. Við leggjum i hann á
næstu dögum og svo reynum við
bara að gera okkar bezta,”
sagði Eggert.
,,Ég held það sé ófært, þegar
Aflaklóin Eggert Gislason var
aö hella i fantinn. „Það þýðir
ekkert að vera að bíða eftir
verðinu.”
„Treysta nögl-
unum of vel"
- metdagur í árekstra-
fjölda í gœr
„Þetta var metdagur i
vetur, hvað fjölda
árekstra snertir. Okkur
var tilkynnt um tæplega
þrjátíu umferðaróhöpp i
gær", sagði lögreglan i
Reykjavík, þegar blaðið
hafði samband við hana í
morgun.
Veðurskilyrði og slæm færð
áttu mestan þátt i þessum
umferðaróhöppum.
„Þaö má lika kenna þvi um,
að margir bilstjórar treysta
nagladekkjunum allt of vel.
Þegar farið er að snjóa, hafa
þau litið að segja”, sagði lög-
regluþjónn hjá slysarannsókna-
deild lögreglunnar.
Langflest óhöppin voru minni
háttar nudd á brettum og
„stuðurum”.
Flestar tilkynningarnar um
árekstra bárust siðdegis, þegar
menn voru á leið heim úr vinnu.
Hafði ’slysarannsóknadeildin
ekki við að sinna þeim, og þurfti
aö kalla til lögregluþjóna úr
öðrum deildum. —ÓH
Skyggni slœmt og hólka
Svo virðist sem umferð hafi
gengið áfallalitið i Reykjavik og
nærsveitum i gær, þrátt fyrir —
cða kannski einmitt fyrir —
viðvaranir lögreglu um hálku,
ófærð og slæmt skyggni I út-
varpinu.
Óskar Ólason, yfirlögreglu-
þjónn umferðarmála i Reykja-
vik, sagði Visi, að umferðin
hefði ekki gengið illa miðað við
veðráttu. Ófærð var ekki telj-
andi en æði dimmt i éljunum.
Hálka var mikil á götum borg-
arinnar, ekki sizt á gangstéttun-
um.
Það var einkum i Arbæjar-
hverfi, sem élin voru svört og
skyggni lélegt.
A Vesturlandsvegi var varla
nokkur snjór en ökumenn áttu i
erfiöleikum að sjá, hvar þeir
fóru. Svipuð saga var um Hafn-
arfjarðarveg, og lögreglan i
Hafnarfirði sagði, að allt hefði
sloppið þar áfallalaust að kalla,
aðeins fjórir árekstrar urðu.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Selfossi gekk um-
ferð á Hellisheiði sæmil. Þar
var ekki ófærð en mjög dimmt
og skóf mikið. „Það er alltaf
eitthvert basl með smábila,
þegar svona gerir,” sagði við-
mælandi okkar þar.
Hjá lögreglunni i Keflavfk var
þær fréttir að fá, að snjór hefði
hlaðizt á veginn i Skörðunum,
en umferð eftir vonum
en þau eru á móts við Vogana.
Þar var rutt, og gekk þá
umferðin eftir vonum, en blind-
bylur var um tima á Reykjanes-
braut og erfitt að sjá.
Á Reykjanesbraut — og raun-
ar fleiri stöðum — bar nokkuð á
þvi, að skæfi inn á bilana svo
þeir bleyttu sig og vildu ekki
ganga. Þá stöðvuðust þeir á
miðjum akbrautum og trufluðu
aöra umferð.
Ýmiss konar efni eru til þess
að rjóða á kveikjukerfiö eða úða
yfir það, til þess að gera það
vatnsþétt. Þá er einnig hægt að
fá hlifar t.d. yfir kerti, svo
bleyta nái ekki að valda þar út-
leiðslu. — SH.
Ljósmyndari Visis BG festi þennan árekstur á Miklubrautinni á filmu fyrripart gærdagsins. Aðeins
var um „smánudd” aö ræða. Samtals fengu yfir sextfu bflar „nudd” I háikunni á götum Reykjavíkur f
gær.