Tíminn - 16.06.1966, Page 9

Tíminn - 16.06.1966, Page 9
FTMMTUDAGUR 16. júní 1966 TÍMINN Á þessum stað verður búlð að leggja götur og gangstéttar og reisa eftir örfá ár. Þá sjást engin merki um þaö mikla starf, sem Sigurbjörn hefur unnið hér í 'Fossvogsdalnum. Hefði getað orðið lystigarður Heimsókn í Garðyrkjustöðina í Fossvogi Reykjaivík er óðum að stækka. Hún teygir sig á alla vegu og kanta, og sífellt rísa ný og ný borgarhverfi, þar sean fyrir örfáum árum voru grænar grundir, engi og mýr- ar. Hús og koffar, sem reist voru af lítilli fomjálni á tvist og bast um nágrenni höfuð- borgarinnar, verða óðum að víkja fyrir nýju skipulagi. Þetfca er nauðsynlegt, það vita allir, en í sumum tilvikum er erfitt að sætta sig við það. Bráðlega stendur fyrir dyr- Sigurbjörn Björnsson garð.yrkju- maður um úfchlutun lóða í Fossvogi, og eru þeir vafalaust margir, sem þessa stundina bdða í of- væni eftir að fá að vita, hvort þeir séu meðal þeirra, sem 'hnossið hljóta. En hvað sem því líður verður innan fárra ára að ölium líkindum risið upp skipulegt íbúðahverfi í drögunum niður efftir Fossvogs dalnum að norðanverðu, þar sem nu standa lítil hús á víð og dreif, umgirt stórum görð- um, fleira sem ekki á vel heima innan takmarka höfuð- borgarinnar. En f slakkanum rétt neðan við Béstaðaveginn hefur um tæpa tvo áratugi verið starfrækt Gróðrarstöð. Garðyrkjustjórinn heitir Sig- urbjörn Björnsson og fékk hann svæðið sem gróðrarstöðin stendur á og spannar 3,6 hekt- ara sem erfðafestuland fyrir áratugum síðan. Þetta svæði á einnig að hverfa undir skipu- lagið. Að þessu tilefni gerði ég mér ferð þangað suður eft- ir fyrsta sólskinsdaginn í júní og ræddi Itilsháttar við Sig- urtojöm. Það var glampandi sól og hiti, nóg að starfa við gróðr- arstöðina, svo að ég hafði dá- lítið samvizkuhit yfir því að vera að tefja þennan vinnu- sama mann frá störfum sín- um. Hann þauð mér inn í stofu sína, og úr stofuglugganum er gott útsýni yfir trjágarðinn og uppeldisstöðina, sem Sigur- björn hefur komið upp með dugnaði og elju, en á nú að hverfa undir götur, gangstétt- ir, samlbýlishús, bílskúra og fleira, sem skipulaginu tilheyr ir. — Þeir eru þegar farnir að ryðja þessu í burtu. Trén eru óðum að hverfa, og það er vcr- ið að flytja þau yfir á Klambra tún. Maður má nú annars ekki kalla þetta Klambratún lengur, Mildatún heitir það víst núna. íbúðarhúsið mitt, garðurinn umhverfis það og gróðurhúsið mega standa í tvö ár til viðtoót- ar, en svo verður þetta allt að hverfa. Það á víst að skríða blokkhús hér upp með tröpp- unum á húsinu. — Það hlýtur að vera sárt, að sjá ævistarf sitt hverfa svona eins og dögg fyrir sólu. — Það er bezt að hugsa sem minnst um það, svona verður það að vera, segir Sigurtojörn og það dimmir yfir svip hans. — Ég fékk þetta erfðafestu- land fyrir áratugum síðan. Fyrst fór ég að rækta hér kál og kartöflur í hjáverkum og hélt þvd áfram fram yfir stríð, en fyrir nítján áram hóf ég rekstur gréðrarstöðvarinnar og ræktaði blóma- og trjáplöntur í smáum stíl jafnhliða kart- öfluræktinni, en með árunum þróaðist þetta þannig, að ég minnkaði við mig kartöflu- ræktina og lagði jafnframt meiri áherzlu á trjáa og blóma ræktina. Síðasta ár fékkst ég eingöngu við það. Ég kom á fót uppeldisstöð og gróðurhúsi, hef aukið framleiðsluna smám saman með áranum og hef haft á tooðstólnum algengustu trjáa- og blómategundir, sem notað- ar eru í skrúðgarða. Ég held, að mér sé óhætt að segja að rekstur stöðvarinnar hafi yf- irleitt gengið bærilega, og ég hef altaf 'haft mikla ánægju af garðyrkjunni. Það er sér- staklega ánægjulegt starf, að hugsa um gróður, sjá hann vaxa og dafna og fá þannig uppskeru erfiðis síns. Á síðustu árum hefur það oft hvarflað að mér, að ég væri á hœttulegum stað, og að landið yrði ef til vill tekið und ir byggingalóðir. í þessu sam- bandi átti ég fyrir um það bil 10 árum tal af þáverandi skipu lagsstjóra Reykjavíkur, Gunn- ari heitnuim Ólafssyni. Við ræddum saman um framtið stöðvarinnar, og var hans skoð un á þá lund, að vel mætti fella gróðrarstöðina inn í skipulagið, sem gera átti um Fossvogsdalinn. Hann var kom inn á fremsta hlunn með að gera einhverjar ráðstafanir um dalinn, þegar hann skyndi- lega féll frá nokkrum mánuð- um eftir samtal okkar, og ég þykist þess fullviss, að hefði hans notið við, væri skipulagi á annan veg og betra. Svo var það fyrir nokkrum áram, að haldin var skipulags- keppni um Fossvogsdal. Sá, sem fyrstu verðlaunin hreppti, var norskur maður, sem gerði ráð fyrir óbyggðu svæði eða garði á þessum stað. Nýja skipulagið kollvarpar þessu öllu saman. Hversu miklum peningum þeir eyddu í verð- launaafhendingar og annað í sambandi við fyrrgreinda keppni, veit ég ekki, en þetta er bara smásýnishorn af vinnu brögðunum. Fyrir þremur ár- um vora þeir svo hér á ferð arkitektarnir Manfreð Vil- hjálmsson og Gunnlaugur Hall dérsson. Þeir gáfu mér þa til- efni til að halda, að mér og Framihald á bls. 13. Vélskóflan ryður i burtu grenitrjánum einu af öðru.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.