Tíminn - 16.06.1966, Side 14
14
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 16. júní 1966
InoltkS
S'efí/re
QU
00
Einangrunargier
Framleitt einangis úr
úrvals gleri — 5 ára
ábyrgð.
Pantið tímanJega
KORKIÐJAN HF.
Skúlagötu 57 Sími 23200.
TRÉSMIÐ IAN.
Holtsgötu 37,
framleiSi' eldhúss- og
svefnhef.. ;-gisinnréttingar.
RYÐVORN
Grensásvegi 18, simi 30945
Látið ekk) dragast að ryð-
veria og bijóðeinangra bif
reiðina með
GUNNAR GUÐBJARTSSON
Framhald af bls. 1
Framleiðsluráð taldi því þessa leið
lokaða. Frá þessu skýrði ég á Sel-
fossfundinum. Aukafundurinn sam
þykkti ályktun um, að útflutnings
bæturnar yrðu ekki lægri hundr-
aðshluti af heildarverðmæti land-
búnaðarframleiðslunnar hverju
sinni en verið hefur.
Okkur var ljóst, að það yrði að
leita að leiðum til að leysa mál-
ið á annan hátt en með því að
hækka útflutningsuppbæturnar,
enda hygg ég, að hægt sé með
athugunum að finna leiðir til þess
að leysa þann vanda, sem þegar
er fyrir hendi. Það, sem ég hefði
talið skynsamlegast í því efni er
annars vegar að nýta innanlands-
markaðinn eins vel og frekast er
kostur með verðtilfærslum á milli
vörufjokka, og líkur eru til þess,
að hægt sé að ná meiru út úr
markaðnum innanlands með þeim
hætti, og hins vegar með beinum
aðgerðum ríkisvaldsins með því
að færa niður reksturskostnað á
ýmsum sviðum. Vafalaust koma
fleiri leiðir til greina, og allt
þetta er í athugun hjá Stéttar-
sambandinu og Framleiðsluráði,
og reynt verður til þrautar að
vekja skilning á því, að vandann
verði að leysa. Ég treysti því, að
sú alda, sem nú hefur risið meðal
bænda, verði okkur hjálp við að
fá lausn á þessum miklu vanda-
málum okkar. Ég vil þakka þeim
mönnum, sem tekið hafa skyn-
samlega á málunum, og ég trúi því
að þessi alda verði okkur einmitt
til styrktar og stuðnings í þessu
máli.
— Haldið þið ekki bráðlega
fund með fulltrúum þeirra nefnda
sem kosnar hafa verið í hinum
ýmsu héruðum?
— Jú, það hefur verið ákveðið
að nefndir úr héruðunum komi
saman til fundar hér í Reykjavík
á sunnudaginn, og á mánudaginn
kemur er boðaður fundur hjá
Framleiðsluráði og þá munu þess-
ar nefndir ræða við Framleiðslu-
ráð um hugsanlegar leiðir til að
leysa vandann, bæði á þessu ári
og einnig til fram'búðar. Ég von-
ast eftir góðu samstarfi við þá
menn, sem koma utan af landi
og vilja leggja sig fram um að
vinna að lausn þessara mála.
— Hafa nefndir þessar lagt fram
einhverjar tillögur enn sem fcomið
er?
— Mér er ekki kunnugt um, að
fram hafi komið neinar ákveðnar
tillögur frá nefndunum en ég geri
ráð fyrir, að ef nefndirnar hafa
einhverjar slíkar tillögur, þá muni
þær ko'ma fram á fundunum á
sunnudag og mánudag, og öllum
slíkum tillögum verður tekið með
vinsemd af Framleiðsluráði, og
þær athugaðar mjög gaumgæfilega.
— Hvað viltu segja að lokum
um þetta mál, Gunnar?
— Ég vil að lokum láta í ljós
von um, að það takist að leysa
þennan vanda þannig, að bænda-
stéttin verði ekki fyrir miklu
áfalli út af þessu máli, og að land-
búnaðurinn geti haldið áfram að
þróast með eðlilegum hætti á
ókomnum árum.
M.R.
Framhald af 16. síðu.
öll til fyrirmyndar. Félög nem-
endanna eru fjölmörg, svo að
flest kvöld var eitthvað um að
vera, og verður það ekki rakið
hér. Ég vil taka það fram, að ég
tel félagsstarfsemi skólanemend-
anna mjög þroskandi fyrir þá.
Árspróf voru haldinn dagana 5.
maí—31. maí. Undir það gengu
789 nemendur og stóðust það 705.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
TECTYL
Hreingern
m
Hremgerningar með
nýtizku vélum
Fljótleg og vönduð vinna
Hreingerningar sf..
Sími 15166, eftir kl. 7 e.h.
32630.
ÞAKKARÁVÖRP
Þakka hjartanlega öllum, sem glöddu mig á 90 ára
afmæli mínu 11. þ.m. með heimsóknum, gjöfum, hlóm-
um og skeytum og gerðu mér daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Hólmfríður Teitsdóttir,
Seljalandi, Dalasýslu.
Faðir okkar.
Jón L. Þorsteinsson
bóndi á Hamrl í Þverárhlíð
andaðist að heimili sínu 14. þ. m.
Þorsteinn Jónsson, Þórarinn Jónsson.
Úfför mannsins míns, föður okkar og tengdaföður,
Helga Péturssonar
fyrrverandi framkvœmdastjóra
fer fram frá Dómkirkjunni laugardaginn 18. júní kl. 10.30 f. h.
Soffía Björnsdóttir,
Björn Helgason, Soffra Einarsdóttir,
Gpnnlaugur P. Helgason, Erla Kristjánsdóttir,
Helga S. Helgadóttir.
Innilegar þakkir til allra er auðsýndu samúð og vinarhug við and-
lát og jarðarför föðurbróður míns
Árna Magnúsar Sigurðssonar
Sérstakar þakkir færi ég heimilisfólkinu að Hátúni við Rauðavatn
fyrir umhyggju við hinn látna.
Guðbjörg Jóhannsdóttir.
Útför sonar okkar og bróður,
Bjarna Þorbiörnssonar
Andrésf jósum
verður gerð frá Selfosskirkju laugardaginn 18. júní kl. 1 e. h. jarð-
sett verður að Ólafsvöllum
Ingigerður Bjarnadóttir, Þorbjörn Ingimundarson
og systkini.
ingar
Nokkrir fluttust próflaust milli
bekkja af ýmsum persónulegum
ástæðum, og örfáir fengu að
fresta prófi til hausts.
Hæstar einkunnir við árspróf
hlutu:
Kolbrún Haraldsdóttir, 5. bekk
A. ág. 9,26. Helgi Skúli Kjartans-
son, 4.S. ág. 9.22, Emilía Martins-
dóttir 3. F. ág. 9.17. Helga Ög-
mundsd. 4. X ág. 9.09 og Snorri
ICjaran 5. T, ág. 9.04.
Stúdentspróf var haldið dagana
23. maí til 13. júní. Undir það
gengu 192 nemendur, 184 ínnan
skóla og 8 utan skóla, 79 í mála-
deild og 113 í stærðfræðideild. Er
þá svó komið, að stærðfræðideild-
arstúdentar eru verulega fleiri en
máladeildarstúdentar, og mun sá
munur vaxa verulega næsta ár.
Einkunnir skiptast þannig, að
3 fengu ágætiseinkunn, 82 I. eink-
unn, 95 II. einkunn og 12 III.
einkunn.
Hæstu einkunn við stúdents-
próf hlaut
Ásmundur Jakobsson, 6. Z. ág.
9.54 og varð því dux scholae þetta
skólaár, aðeins örfáir hafa hlotið
hærri einkunn á stúd.prófi næstur
varð Jón Snorri Halldórsson, 6.
B, ág. 9.29, þriðji varð Guðmund-
ur Þorgeirsson, 6. Z, ág. 9.24, 4.
varð María Gunnlaugsdóttir, 6. A,
1. 8.91 og fimmti varð Hans Kr.
Guðmundsson, 6. Z, I. 8.86.
Rektor afhenti stúdentum skír-
teini og óskaði þeim síðan öllum
til hamingju, og hóf að afhenda
verðlaun, sem voru mörg.
Fulltrúi j'úbílanta voru mættir
og tóku þessir til máls: Fyrir 60
ára stúdenta Sigurður Nordal, fyr-
ir 50 ára stúdenta frú Anna Bjarna
dóttir, fyrir 40 ára Bjarni Bene-
diktsson forsætisráðherra, sem af-
henti 100.000 kr. gjöf, sem ætluð
er til bókakaupa, fyrir 30 ára Sig-
urður Ólafsson lyfsali, sem afhenti
peninga til óákveðinnar ráðstöfun-
ar, fyrir 25 ára stúdenta frú Val-
borg Sigurðardóttir, sem afhenti
bergsmásjá, fyrir 20 ára stúdenta
Páll Sigurðsson, sem afhenti kvik-
myndavél og stjörnukíki, fyrir 15
ára stúdenta talaði enginn, en
þeir gáfu peninga, fyrir 10 ára
stúdenta talaði Sveinbjörn Björns
son, og afhenti peningagjöf í
minningarsjóð Pálma Hannesson-
ar rektors.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Eftir kröfu Þorvalds Lúðvíkssonar hrl. o.fl. fer
fram nauðungaruppboð að Bræðraborgarstíg 7
hér i borg. Verða þar seldar vélar og áhöld fyrir-
tækjanna: Herkúles h.f., Iris, Minervu, Nærfata-
og prjónlesverksmiðjunnar h.f. og Sokkaverk-
smiðjunnar h.f.
Uppboðið fer fram á staðnum mánudaginn 20.
júní 1966 kl. 10.30 árdegis.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavílc. \
FRÁ HÚSMÆÐRAKENN-
ARASKÓLA ÍSLANDS
HÁUHLÍÐ 9.
Ráðskonudeild tekur til starfa við skólann í haust.
Umsóknir um skólavist skulu berast fyrir 15.
júlí n.k. Umsækjendur skulu hafa lokið landsprófi
eða gagnfræðaprófi og námi í húsmæðraskóla,
vottfest afrit af prófskírteinum og fæðingarvott-
orð skulu fylgja umsóknum.
Skólastjóri.
FORDSON-MAJOR
- Skurðgröfutraktor
í góðu lagi til sölu. Traktorinn er með gröfu að
aftan, skóflu fyrir gröft, mokstur og framræslu,
járnhjól með göddum til jarðvinnslu, vökvastýrðri
ýtu að framan til sléttunar, hreinsunar lands o.
m.fl. Sérlega hentugt tæki til notkunar hvort sem
er fyrir bæjar- eða sveitavinnu. 'Mjög hagkvæm
kjör, ef samið er strax. Upplýsingar að Skipholti
27 frá kl. 1—5 e.h. og í síma 17126 frá kl. 7—9
e.h.