Vísir - 17.01.1975, Blaðsíða 1
VISIR
65. árg. —Föstudagur 17. janúar 1975 — 14. tbl.
Fjórar síður
um snjó-
þyngslin
— sjó opnu blaðsins
Skatta-
leiðbein-
ingarnar
— með blaðinu
ó morgun
SJÖ FÓRUST
— Hin nýja þyrla Þyrluflugs h.f. hrapaðí í morgun
ó túnjaðarinn í Hjarðarnesi ó Kjalarnesi og brann
— Enginn komst lífs af
Myndin var tekin á slysstaö rétt fyrir hádegiö. Eldur kom upp I vélinni er hún skaii I jöröina, og brann
hún til ösku á stuttri stund. Ljósm. VIsis Bragi
í>:/
"H
Ný þyrla Þyrluflugs
h.f. fórst við bæinn
Hjarðarnes á Kjalarnesi
klukkan hálfellefu i
morgun. í vélinni, sem
var á leið til Stykkis-
hólms, voru sjö manns.
Allir létust.
Samkvæmt frásögn
sjónarvotts, Sigriðar
Böðvarsdóttur ungrar
stúlku á bænum Saurbæ,
sem er næsti bær við
Hjarðarnes, varð slysið
um það bil klukkan
10.30.
„Ég var á gangi i móunum á
milli Saurbæjar og Hjarðarness,
þegar þyrlan flaug þar yfir. Rétt
um það bil, sem hún flaug yfir
mig fór hún að láta einkennilega i
loftinu og lækka flugið,” sagði
Sigriður. ,,Ég heyrði ekki vegna
roksins hvort hreyflar þyrlunnar
voru i gangi. A þessu gekk i eina
til tvær minútur, að þvi mér
fannst.
Siðan fór vélin það lágt, að ég
sá hana ekki lengur. En skömmu
siðar heyrði ég daufa sprengingu
og hún var i ljósum logum, þegar
ég kom þar að.”
Sigriður Böðvarsdóttir sagði,
að þyrlan hefði komið úr há-suöri
fram með Tiðaskaröi. Hjarðarnes
er um það bil einn kilómetra þar
frá.
A Hjarðarnesi var fátt heima.
Þegar þyrlan kom yfir var fólkið
sofandi, en heyrði þyrlugný i
svefnrofunum og siðan heljar-
mikla sprengingu. Þegar þvi varð
litið út um gluggann, sá það hvar
vélin lá logandi á túninu
norðvestan við bæinn rétt niðri
við sjóinn. Þegar var tilkynnt um
slysiö.
Hin nýja þyrla Þyrluflugs h.f.
kom til landsins um áramót og
var þetta eitt af hennar fyrstu
flugum. Þegar kunnugt var um
slysið fór Arbæjarlögreglan
strax á staðinn, ásamt sjúkrabil-
um og slökkvibil. Þegar komið
var að flakinu fékk þó enginn
neitt að gert, nema slökkva
siðustu logana i flakinu.
Lögregluþjónar, sem fyrst komu
á staðinn sögöu, að þeir hefðu
getað greint fjögur lík i eldinum.
Þyrlan, sem fórst i morgun, kom
til landsins á nýársdag meö Brú-
arfossi. Hún var af geröinni Si-
korsky, i eigu Þyrluflugs h.f.
Sigriður Böðvarsdóttir, — hún
varð vitni að slysinu.
Vélarflakið er tiltölulega litið
dreift um túnið og er greinilegt,
að þyrlan hefur ekki fallið úr mik-
illi hæð.
Stélið liggur samt nokkuð frá
vélinni og hjólin undan henni i
skurði skammt frá. I kringum
vélina er túnið brunnið. Ekki er
hægt að skýra frá nöfnum þeirra,
er fórust, að svo komnu máli.
—JB/ÓG/ÓH
Rœtt við
smyglara
„Það rikir alltaf gifurleg
spenna, þegar verið er að
koma smyglinu i land.
Skvldu nú tollararnir finna
eitthvað? Skyldi báturinn
kontast og ná i smyglið?”
segir farmaður einn, sem
mikið hefur föndrað við að
smygla áfengi og fleiri vör-
um til landsins. Hann varð
við beiðni blaðsins að skýra
frá þvi, hvernig smyglarar
bera sig að, þegar koma á
stórum áfengissendingum i
land. Viðtalið við hann er hið
fróðlegasta. M.a. telur hann,
að ef eftirlit meö brenni-
vinssmygli yröi hert, mundu
smyglarar snúa sér i aukn-
unt mæli að eiturlyfjum.
SJA BLS. 2-3
LOSNA EKKI VIÐ SNJÓINN STRAX 16 stiga frost á Akureyri í morgun
Þeir mega búa sig vel norðan-
lands I dag og geta vist ekki bú-
izt við þvi, að háir skafiar hverfi
strax. A Akureyri var hvorki
meira né minna en 16 stiga frost
klukkan 9 I morgun, og I inn-
sveitum noröanlands var hörku-
frost.
Á annesjum var frostið mun
minna, á Sauöárkróki var til
dæmis 11 stiga frost, 13 stiga
, frost á Blönduósi og 12 stiga
frost á Egiisstöðum.
Noröanlands er annars hæg
austan átt eöa logn, en austan
átt er rikjandi alls staöar á
landinu. Austan stinningskaldi
og él eru vestan til, en austan
kaldi sunnanlands. A Stórhöföa
var stormur I morgun.
í Reykjavik er gert ráð fyrir
austan kalda eöa stinningskalda
og skýjuöu I dag, og sama
veöur helzt alls staöar á
landinu. —EA